Reykjavík - 21.04.1906, Qupperneq 2
66
REYKJAVÍK
Höfn á þingkosningarárum, hversu
ganga muni þingkosningar á eftir.
Þykir allsennilegt að stjórnin nái ekki
meirihiuta á þingi næst, nema með
sambandi við hægri menn; En þá
kembir hún varla hærur lengi úr því.
(Meiri útl. fréttir næst).
Landshornanna milli.
—:o:—
Drukknun. — Á Öndverðarnesi
í Breiðavíkurhreppi fórst bátur í lend-
ingu 14. þ.m., drukknuðu þar 2 menn,
en 2 varð bjargað. Þeir sem af kom-
ust vóru, formaðurinn Óli M. Arn-
grímsson og sonur hans að nafni
Valentínus. Hinir, er drukknuðu,
vóru: Jónas Jónsson þurrabúðarmaður
á Nesinu, og hinn Grímur, annar
sonur formannsins, ókvæntur og um
hálfþrítugur.
Jónas sál. var tæpra 28 ára að
aldri, mannvænlegur maður. For-
eldrar hans vóru Jón Bárðarson og
Sigríður Gísladóttir.
Jónas sál. lætur eftir sig konu og
2 börn komung.
—23. Marz. O. J.
Manntjón enn. — Merkismaður
í Grindavík ritar oss 15. þ. m.: —
Herra ritstjóri! í gær fórst bátur
með 5 manns hér á Járngerðarstaða-
sundi í Grindavík af brimi. Varð
ófært á skammri stund. Þeir sem
drukknuðu vóru þessir: formaður
Guðbjartur Guðmundsson, ættaður
héðan úr Grindavík, nú til heimilis
í Reykjavik, ókvæntur. Útvegsbónd
inn Jón Jónsson á Hópi, dugnaðar-
maður og drengur góður; lætur eftir
sig konu og 4 börn í æsku, og far-
lama föður og uppgefna tengdamóður.
Hinir vóru Halldór Guðbrandsson, til
heimilis í Reykjavík, ókvæntur, Guð-
laugur Sigurmann Guðmundsson, ó-
kvæntur, frá Hjálmholtskoti i Flóa,
og loks Sigurbjörn Jónsson, ókvæntur
unglingur frá Syðri-Gröf í Flóa. Að eins
lík formannsins rekið upp í dag.
Enskur botnvörpungur sást
sökkva suður af Reykjanesi 7. þ. m.
Nafn hans óþekt.
Húsbruni. Baðstofa á Vogalæk á
Mýrum brann 7. þ. m. Munum bjargað.
Önnur hús varin.
Mannalát. 2. þ. m. Ólafur Þor-
bjarnarson hreppstj. á Kaðalstöðum
í Stafholtstungum hálfsjötugur. —
4. þ. m. Vilhjálmur Guðmundsson
verzlunarm. á Akranesi 41 árs.
Reykjavík og grend.
S/s „Kong Helge“ (skipstj. Jensen)
ið nýkeypta skip jT/iore-félagsins kom
hingað aðfaranótt þ. 17. þ. m. með
fulifermi af vörum. Með skipinu var
fátt farþega frá útlöndum: Halldór
Guðmundsson rafmagnsfræðingur (kom
frá Höfn) og nokkuð af farþeg-
um frá Austfjörðum, þar á meðal:
frú Sigríður HeJgason. Skipið kom
við á Mjóafirði og Eskifirði, hafði
þangað meðferðis 6 mótorbáta.
Skipið er allstórt og álitlegt, og er
sagt að það fari mjög vel í sjó. Það
er enn þá lítið herbergjað fyrir farþega,
en ætlast er ti) að það verði gert, er
skipið kemur til Kaupm.hafnar úr
þessari ferð.
Aukasklp er væntanlegt hingað
frá Thore-iéVdgmn þessa dagana. Það
er gufuskipið „Perwie“, sem átti að
fara frá Höfn 6. þ. m. til Færeyja
og hingað.
Alþýöufyrirlestrarnir. Á Mánu-
daginn kemur 23. þ. m., kl. 83/4 að
kvöldi, byrjar mag. Ágúst Bjarnason
aftur á alþýðufyririestrum sínum og
talar þá um sócíalismann.
lÁfrjú þilskip farast. Auk slyss-
ins, sem getið var í síðasta bl., hafa
tvö önnur þilskip héðan úr bænum
farist í ofsaveðrinu 7. þ. m.
Þessi skip vóru „Emilie" (Th. Thor-
steinssons) og „Sophie Wheatley"
(eign Jaf. Ólafssonar, Thor Jensens
o. fl.) — sbr skipaskrá „Rvíkur" (10.
tbl. þ. á.). — Þessir menn fórust á
„Emiiie:“
1. Björn Gíslason (Bakka, Rvík)
skipstj. hálffert. — 2. Árni Sigurðs-
son stýrim., Rvík (30 ára). 3. Árni
Guðmundsson, þurrab.m. Akran. (44).
— i. Ásgeir Ólafsson vm., Rvík (19).
— 5. Guðjón Guðmundsson, vm. Rvík
(26). — 6. Guðjón Ólafsson lausnm.
Patreksf. (23). — 7. Guðlaugur Ólafs-
son vm. Bakka, Rvík (19). — 8. Guðm.
Bjarnason þbm. Akran. (22). — 9.
Guðm. Guðmundsson Im. Patreksf.
(30), — 10. Guðm. Guðmundss. vm.
Rvík (25). — Guðm. Jónss. þbm.
Rvík. (22). — 12. Guðm. Kristj.s.
vm. Akran. (15). — 13. Guðm. Magn.s.
þbm. Akran. (59). — 14. Guðm. Þorst.s.
þbm. Akran. (49). — 15. Hannes
Ólafss. þbm. Akran. (23). — 16. Krist-
inn Jónss. vm. Rvík (17). — 17. Krist
ján Guðm.s. bóndi Akran. (53), faðir
nr. 12. — 18 Kristján Magn.s. b.
Akran. (51). — 19. Ólafur Eiríksson
þbm. Rvík (37). — 20. Ól. Ólafsson
þbm. Akran. (47). — Sigurður Jónss.
þbm. Akran. (35). -— 22. Stefán
Bjarnason vm. Túni, Hraung.hr. (20).
— 23. Stef. Böðvarss. b. Faliandast.
Hrútaf. (29). — 24. Þorst. Bjarnas.
vm. Akran. (17), bróðir nr. 8.
Á „Sophíe Wheatley" fórust: 1.
Jafet Ólafsson skipstj. Rvík (33 ára).
— 2. Eyvindur Eyvindsson stýrim.
Rvík (26). — 3. Steindór Helgason
vm. Rvík (36). — 4. Guðni Einarss.
Im. Brandshúsum, Rvík (31). — 5.
Þorvarður Karelss. b. Gíslholti Rvík
(32). — 6. Þórður Eyvindsson vm.
Eyrarb. (23). — 7. Ól. Eiríkss. vm.
Hæli Eystrahr. (19). — 8. Steinn
Steinsson vm. Grund, Skorrad. (27).
— 9. Arnbj. Sigurðss. vm. Eyrarb.
(39). — 10. Jón Bjarnason b. Klöpp
Rvík (29). — 11. Jón Sigurðss. vm.
Rvík (17). —■ 12, Sig. Jónsson lm,
Krurnmshó]um,||BOTgarhr. (26). —
13. Sig. Kristjánss. vm. Árgilsstöðum
Rvs. (22). — 14. Jón Hákonars. vm.
Haukadal, Dýraf. (21). — 15. Þorberg
ur Eggertss. vm. Keldudal, Dýraf. (21).
— 16. Guðfinnur Þoivarðsson vm.
Rvík (56). — 17. Jón Guðmundsson
vm. Kyrkjubólsdal, Dýraf. (22). — 18.
Gísli Steindórss. vm. sama bæ (24).—
19. Gisli Hallsson b. Rvík (35). — 20.
Kristj. HeJgason vm. Hestanesi, Kjós
(17). — 21. Gísli Gíslas. vm. Hösk
uidarkoti (21). — 22. Matth. Sumar-
Jiðas. vm., Grund, Skorradal (28). —
23. Konráð Magnúss. vm. Rvík (19).
— 24. Þorvaldur Gizurarson vm.
Viðey (19).
„Emilie“ var 85 tons, „Sophie
Wheatly" 81 t.
Bæði þessi skip vóru í flóanum
utarlega, er veðrið byrjaði, en rákust
undan veðri upp á Mýrar. Þar hefir
rekið ýmislegt af þeim, en nær alt
molbrotið.
67 manns hefir farist alls á þess
um 3 pilskipum, og 5 fórust í Grinda-
vik síðasta Laugard. — alls 72 menn.
10 lík, sem rak upp í Viðey af
„Ingvari,“ vóru jarðsett hér í gær.
Af hinum þilskipunum hafa engin lík
rekið enn, svo að spurst hafi.
Kviknað í sklpi. ll.þ.m.kvik-
naði í þilsk. „Nelson" af ísafirði hér
á höfninni; var verið að bræða stál-
bik niðri í hásetaklefa. Gat brann á
hlið skipsins og þilfar varð að brjóta
upp til að koma slökkvidælum að.
í fyrra kviknaði hér líka í við bik-
bræðslu niðri í hásetaklefa og skemd-
ist maður við þann bruna.
Frá lóndum i Höfn.
Hér eru kaflar úr tveim bréfum,
sínu frá hvorum manni.
7. 6. Maí. Ég var á stúdenta-
félagsfundinum á Laugard. var. Þar
talaði Guðmundur Jæknir Hannesson
um aðskilnaðinn. Meðal annars sagði
hann. að þetta stjórnarfyrirkomulag,
sem vér nú hefðum, og alt annað
fyrirkomulag, sem um væri talað,
það fengjum vér með því, að sélja
sjúlfstæfti vort fyrir sjál fsstjórn,
og sagði hann, að Jón Siyurðsson
hefði hyrjaö á þessum óföynuði.
Minst var á þessum fundi á íslend-
ingabrags-greinarnar í „Extrabladet"
og var þjóðræðismönuum og Jand-
varnarmönnum, er ég heyrði um þær
tala, meinilla við þær, skömmuðust
sín fyrir þær og vóru hræddir um að
þær yrðu til að stórspilla fyrir þeirra
flokki heima. — Þá var og á þeim
að heyra, að þeim væri Ssárilla við
andatrúarvitleysuna heima, sem þar
væri orðin að pólitísku flokksmáli, og
gramdist þeim að þeirra flokks blöð
skyldu hafa tekið þá fásinnu upp.
Ekki þorði Valtýr að koma á fund-
inn, því að hann hafði sama daginn
látist andæfa. að skilnaðarmálinu í
„Extrabl.,“ svo að hann hefði átt
örðugt með að verða því fylgjandi
um kvöldið — en auðvitað vóru þó
þá liðnar heiJar 5 klukkustundir frá
því blaðið kom út!
II. 6. Maí. „ —---------Ég hjó
eftir einu hjá ræðumanni (Þorkeli
Þorkelssyni). Hann sagði það væri
sorglegt, hvað frammistaða andstæð-
ingaflokksins heima væri orðin aum-
leg. Það væri auðsjáanlegt, að alt
væri, því miður, að fara í hundana
fyrir þeim sameinuðu, en stjórnar-
mönnum ynnist mikið á. Hann sagð-
ist hafa fengið bréf víða að heiman
með 'þessum leiðindafréttum. Svo
væri nú þetta síðasta glappaskot, að
maður, sem mundi vera í stúdenta-
félaginu og væri landvarnarmaður,
mundi standa. -á bak §við þessa sví-
virðilegu árás á ráðherrann og meiri-
hlutann í dönskum blöðum [hann
var þar að tala um þýðinguna á ís-
lendingabrag og þau ummæli, að hann
væri orktur nú], og þetta hlyti að
verða heimastjórnarmönnum gott vopn
heima á íslandi.“
Y endetta.
Ritað ósjálfrátt af N. N.
Júdas gamli gekk mjög þungbiýnn um
gólf á skrifstofu sinni og raulaði drauga-
lega í Passíusálmunum sálminn um afdrif
nafna sins sáluga.
í þessu var rjálað hægt við dyralokunni
og hurðin opnuð og inn læddist, hljóð-
laust sem köttur, flóttalegur maður og ská-
renndi augunum til allra hliða; gætti þá
naumast annars en ins hvíta í augunum.
„Nú! Komdu sæll, Efíaltes“, mælti Júdas
og spurði, hvort hann hefði nokkrar ný-
jungar að færa.
„Já, störmerkar fréttir. Enn hefir nýskeð
verið| ritað ósjálfrátt bæði í bundnu og
óbundnu máli“.
„Það eru ágætar fréttir. Er það Ander-
sen?“
„Nei, lyfjasveinninn móðgaði hann svo
mikið, að hann vildi eigi koma“.
„Það var við því að búast, en hart er að þessi
meðalablöndugutlssamsullaraprúðmennsku-
durgur skuli eigi skilja gamla Dönsku“.
„Já, víst er um það, en nú er kominn
nýr maður til sögunnar“, sagði Efíaltes
mjög drýgindalega.
„Og hver er það“.
„Móse“.
„Móse! Það var ágætt, slíkt, getur haft
ómetanlega þýðingu fyrir Harald. Og hvað
lætur svo Móse skrifa? Lestu!“
„Og sjá, herrann var sjúkur og miklum
harmi og felmti sló yfir alla. Lýðurinn
barði sér á brjóst og grátur hans barst
upp að hásætinu. Þá aumkvaðist Jahve
yfir fólkið, og sjá, hann sendi spámann til
herrans, og skipaði einum framliðnum að
setja lifsins balsam í axlarlið spámannsins.
Og sjá, herrann lá þannig, að hann mændi
augum til himins, en spámaðurinn lagði
sinn fingur í hans munn. Og sjá, lífsins
balsam rann fram í fingur spámannsins
og inn i munn herrans. Og sjá, þá skeði
það, að herrann stóð heill upp, tók sæng
sína og gekk. En fólkið söng lofgjörðar-
sálma og sagði: mikill spámaður er risinn
npp á meðal vor“.
„Herrann! Þetta er auðskilið11, mælti
Júdas „En sjáum nú til. Hvað stendur
oft: „og sjá“ ? — Jú, eftir á að hyggja,
það er fimm sinnuin í jafu stuttu lesmáli
sem þessu. Það er áreiðanlegt að þetta
@
| Jörð til kaups eða ábúðar, fh þétt við Reykjavík. ih Hálf jörðin Mýrarhús á" Seltjarnarnesi fæst til kaups ■T eða ábúðar frá 14. Maí næstk. W Jörðin fóðrar 2—3 kýr, hefir góð og mikil ver- y gögn til fiskverkunar. Uppsátur og lending, einhver ■ in allraj bezta á Seltjarnarnesi, Jörðin liggur því ágæt- ■ lega við, til að stunda þaðan sjávarútveg, hvort lreldur ■ er á þilskipum eða opnum bátum, og hrognkelsaveiði Á er þar rétt uppi ' við Iandsteina.* Q Húsakynni eru þar mikil og vönduð, flest öll ný #h eða nýleg úr timbri og steini. Eftirgjald eftir jörðina má mestmegnis vinna af V sér með jarðabótum. y Lysthafendur snúi sér sem allra fyrst til eiganda « jarðarinnar 1 Thor Jensen's 0