Reykjavík - 07.07.1906, Síða 3
REYKJAVÍK
115
OLIVER TWI8T,
In heimBÍrœsa ahíUdaaga eftir Charles
Dickens, kemur nú út í vandaöri islenzltri
þýðingu. Saga þessi heflr verið gefln út á flest-
um öðrum tungumálum og hvervetna veríð vel
tekið. Oliver Twist er jafn vel fallin til lest-
urs fyrir fullorðna sem börn. Pað mun óhætt
að fullyrða, að þeir, er lesið hafa sögu þessa, telja
hana ágæta. Hún er þannig skrifuð, að hún
hlýtur að glæða alt gott og göfugt hjá hverjum
manni — ungum og gömlum — en vekja við-
bjóð á öllum smásálarskap og varmensku í hverri
mynd sem er. Höfundurinn, Charles Dickens,
er heimsfrægur og mesta uppáhald allra ment-
aðra manna, sem hann þekkja.
Hver sem vill eignast góða og spennandi sltáld-
sögu til að lesa, ætti að kaupa OLIVKR
TWIST.
ekki margir, hafa virt lögin að vettugi . . .
lögunum illa hlýtt í 25 sýslum .... þeir
eiga í hasli með bannlögin sín . . . .
Reynslan bágborin .... Allt af var hugs-
ánlegt að þeir menn kæmist til valda, er
hikuðu ekki við að beita þeim (lögunum)11
o. s. frv.
Það sem lært verður af þessu, er ekki
ýkja mikið til inntektar fyrir bindindið, en
eitt ber það glögt með sér, og það er það,
að bannlögunum í Kansas er illa beitt og
auðvitað illa hlýtt.
Ég skal undir eins geta þess, að áfengis-
bannslögin í Kansas eru ekki aðflutnings-
bannslög eins og Björn gamli gefur i skyn.
Þau banna tilbuning, veitingar og verzlun
áfcngra drykkja í ríkinu sjálfu, en aðflut-
ning geta þau ekki bannað, því að aðflut-
ningur áfengra drykkja tilheyrir sambands-
eða milliríkja verzluninni, en til þess þarf
lög frá sambandsþinginu, sem hæpið er að
komi fyrst um sinn.
Birni gamla segist svo frá í nafni ríkis-
stjórans i Kansas, að 260 þús. ungra manna
hafi alist svo upp þar, að þeir hafi aldrei
stigið fæti sínum inn í veitingahús. Þegar
ég las þetta, skellihló ég að einfeldni gamla
manusins.
í Kansas eru engin opinber veitingahús,
en ógrynni af launknæpum, og allt í kring-
um Kansasríkið nóg af veitingahúsum. —
Þessar og aðrar eins tölustaðhæfingar
eru skoplegar; það væri rétt eins og Björn
gamli færi að staðhæfa einhverja ákveðna
tölu Goodtemplara hér á laudi, er ekki
blótuðu Bakkus á laun. Gæti gamli mað-
urinn talið sjálfan sig? Ég efa það; hon-
um hefir sjálfum opinberlega verið dreift
við áfengiskaup, og hann hefir aldrei bor-
ið það af sér.
Það þarf engum að blandast hugur um
það, hvers vegna Björn gamli sauð þessa
ritgerð saman, því að þriðja grein hennar
hljóðar svo:
„Ein áhrif laganna eru það, að hafa sett
glæpamannamark á alla bruggara og á-
fengissala. Þeir eru lítilsvirtir allstaðar . . .
Uppeldisáhrif laganna hafa skipað áfengis-
sölum og bruggurum á bekk með glæpa-
mönnum, og þeim er raðað þar við hlið
innbrotsþjófum, peningafölsurum, þjófum
og meinsærismönnum11.
Fyrir þessi kjarnyrði er allt ritsmíðið
gert. Þetta á að vera eitt af hyggjubrögð-
um gamla mannsins, að stynja því út, að
þannig líti unglingarnir í Kansas á áfengis-
salana o. s. frv. En það er mjög hæpið,
að treysta á álit þess lýðs, sem er uppalinn
í þvf ríki, þar aem lögum er illa beitt og
illa hlýtt, og alt gengur kaupum og sölum.
í slíku laudi alast upp ofstækisfullir hræsn-
arar, sem hafa þá aðferð, að svívirða aðra
til að gylla sjálfa sig. Þegar ofstæki bind-
indismanna gengur svo langt, að þeir
missa sjónir á öllu réttu, þá er ekki rétt
mikið gefandi fyrir vizku þeirra.
Það er ekki langt síðan að læknir, sem
er Goodtemplari, kom til drykkjumanns,
sem svaf eðlilegum drykkjumanna svefni
nokkuð fast, eftir sólarhringsandvöku eða
meira.
I<æknir gat ekki vakið manninn; jú, og
hvað svo? Segir hann vera búinn að fá
brennivínsslag, en þegar læknir var farinn,
vaknar maðurinn, og var inn frískasti, var
drukkinn dag og nótt í heíla viku á eftir,
hætti svo eins og hann var vanur og fór
að vinna, og hefir ekki orðið misdægurt.
Mikið væri að byggja á óhlutdrægni
þessa læknis og annara hans nóta.
Góðir hálsar, þið vitið allir, að Björn
gamli er Goodtemplari og mun lengstum
hafa átt hoima í stúkunni „Verðandi“.
Það er að minnata kosti öllum ísu-lesend-
um ljóst, að hann fer all-geist í henni
oft og einatt, þegar um bindindi er að
ræða, og setur sig aldrei úr færi að illyrða
|\j0benhavns
Fineste
L Kvalitet
Ek
f^argarine
tít a! Husholdnin*sbru6.
99
fifist í verzluninni
GODTHAAB^
I
o
„denatureret“ ágætt til iðnaðar og
brcnslu, mjög ódýrt, fæst ávalt í
verzlun Ben. S. Pórarinssonar.
'wi|T|,^ • y er þjóðdrykkur Engla og Skota og er mesti
™gæða drykkur, þegar það er gott. En enginn
selur hér á landi eins gott Whisky og BEl. §. ÞÓRAKOS.
SOi, enda er úr mestu að velja hjá honum, 12 teg'undum.
og hrakyrða á allar lundir þá er ekki eru
bindindismenn, og hefir alloft fylgt þeira
með smánaryrðum og lítilsvirðingum að
himnaríkisdyrum,
Allir lesendur ísu litlu hafa og tekið
eftir því, að hún hefir oft og einatt morað
af áfengisauglýsingum bæði innlendum og
útlendum, Og meira að segja, skal ég
bæta því við, að Björn gamli hefir aldrei
sett sig úr færi, að seilast í áfengisauglýs-
ingar kaupmanna þegar færi hefir gefizt.
Ég fór hérna um daginn inu á Lands-
bókasafnið og bað þar um 3 árganga af
ísu, tók svo einn af handahófi, og taldi í
honum áfengisauglýsingarnar, en viti
menn, að þær urðu þá á milli 80—00 í árg.
Það er meira en ein í hverju tölubl.
En ég rak mig þar líka á langa grein
eftir gamla manninn sjálfan og á hans
eigin máli, um hreinsun landsins fyrir á-
fengi. Og það skal ég segja ykkur fyrir
satt, að þar er ekki lítill völlur á karl-
íuglinum.
Þennan yfirBkyns- og hræsnis-skollaleik
hefir Björn gamli, ritstj. ísu, leikið ár eftir
ár, og það segi ég satt, að svo er honurn
þetta eiginlegt og tamt, að hann er hætt-
ur fyrir lifandi löngu að fyrirverða sig
fyrir þetta virðulega(U) athæfi sitt, bind-
indismálinu til ins mesta tjóns.
Það sem mest hefir hneykslað bæði
drykkjumenn, templara og hófsmenn, er
þetta lúsablesalega gróðabrall, og þessi
látlausa óskammfeilni, er skinið hefir út úr
allri framkomu gamla mannsins í ísu í
bindindismálinu, og margan góðan bind-
indisdreng hefi ég heyrt kalla það sýnis-
horn innar auvirðilegustu og fúlustu fjár-
sýslu, er nokkru sinni hefir þekst hér á
landi.
í hverju er Björn gamli heiðvirðari
áfengissölunum í Kausas? Og hvar mundu
vandfýsnu ungliugarnir í Kansas skipa slík-
um höfðingja á bekk, ef hann væri þar
vestra eða þeir þektu til athæfis hans í
bindindismálinu ?
Þeir unglingarnir settu vafalaust gamla
manninn, ritstj. ísu, við hliðina á bruggur-
unum og áfengissölunum, og þið munið
eftir því, hjá hvaða höfðingjum þeir eru
settir, eftir sögusögn Björns gamla sjálfs.
Hann væri ekki illa skipaður bekkurinn
sá(!!)
Er óhugsandi, að þessi þjóðmálamaður
eigi oftar andra fala en í bindindis-
máiinu, þegar er að ræða um öunur
mál þjóðarinnar? Er hægt að bera nokk-
urt traust til slíks manns og er hægt að
álíta hann málsmetandi?
Þessum spurningum má hver svara sem
vill. Ég geri það einhvern tíma með tíma
og tækifæri. Síðhöttur.
Mestu auðkýfingar heimsins.
í Ameríku eru fleiri auðkýfingar
en í nokkru öðru landi. Hér skulu
taldir nokkrir inir helztu, og er auð-
ur þeirra hvers um sig talinn í milí-
ónum sterlings-punda, og með því að
hvert sterljngs-pund er jafngildi 18 kr.,
þá þarf ekki annað en að margfalda
tölurnar hér á eftir með 18, og kemur
þá út milíóna-upphæðin í krónutali:
John D. Rockefeller .... 110
Andrew Carnegie 50
W. K. Wanderbilt .... 25
J. J. Astor 20
Wm. Rockefeller 20
G. J. Gould 20
W. A. Clark 20
D. 0. Mills 15
H. C. Frick 12
Mrs. Hetty Green .... 11
Geo. Westinghouse .... 10
Pierpont Morgan 10
í Englandi eru þessir auðugastir
Aifr. Beit 100
J. B. Robinson 80
W. W. Astor 80
Srathcona lávarður .... 25
Hertoginn af Westminster . 16
Mountstephen lávarður . . . 15
Rothschild lávarður .... 15
Iveagh lávarður 14
Hertoginn af Devonshire . . 10
Hertoginn af Bedford . . . 10
í öðrum löndum má nefna:
Tercazas hershöfðingi, Mexico 58
Demidoff fursti, Rúslandi . . 40
Sennora Cousino, Chile . . 14
Hitt og J>etta.
PródiRapinn talar oft um það
í bók sinni að éta og drekka og
vera glaðir. Ef hann hefði verið nú
á dögum, þá hefði hann, vafalaust
sagt: „Étum og drekkuin þjóðfræga
brcunivínið frá Ben. S. Þór-
arinssyni, og verum glaðir.“
Til leigu
nú þcgar, eða frá 1. September: 2
íbúðarherbergi.eldhús og geymslu-
klefi.
Semja má við
cT/iomsens sfflagasín.
E^kkert n<25ti
er handhægara nje betra í
útreiðartúra og ferðalög en
N1ÐURS0ÐINN MATUR,
en hann fæst hvergi
fjölbreyttari,
betri
nje ódýrari en í
Nýhafnardeildinni i
Thomsens Magasmi.
Dráttur
r
a
Lotteriseðlum,
er úlgefnir vóru af nefnd
þeirri er stóð fyrir Tom-
bóluhalda til ágóða fyrir
»þurfandi eftirlifanda sjó-
druknaðra og til bjargráðan
heíir farið fram í dag undir
umsjón lögreglustjóra Páls
Einarssonar og hafa eflir-
farandi númer hlotið mun-
ina sem um var dregið.
Nr. 1079 myndina »Kvöld við
Reykjavík.«
47 myndina »St. Paul
að stranda.«
572 myndina »Heklu.«
801 Borðstofuskáp.
Munirnir verða afhentir
réttum hlutaðeigendum í
verzluninni Edinborg.
Reykjavík, 3. Júlí 1906.
Ásgeir Sigurðsson,
form. nefndarinnar.
Signet
hefir fundist hjá Eríkyrkjunm. Eigaudi
sæld til afgr. „Rvíkur“ og borgi þessa
auglýsiugu.
Þakjárn
utanhúss-pappi
saumur alls konar
o. fl. til byg-g-ing-a í verzlun
H. P. Duus.
nýkomnir til
H. P. Duus.
cTfesf íií éacjlagra
þarfa
er til sölu í —31
Bakkabúð.
Stór sölubúð.
í miðbænum, með skrifstofu-herbergi og
uægu geymsluplássi, er til leigu frá 1.
Okt. næstk. — Menn semji við
cand. jur. Eggert Claesen.
Barnavagn, nýr, fallegur, til sölu nú
þegar. Upplýsingar í Gutenberg.