Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 25.09.1906, Blaðsíða 2

Reykjavík - 25.09.1906, Blaðsíða 2
170 R E YK J A V í K Lcekningar-aðferd min við berklaveiki í útlimum. Nú eru mörg ár síðan að ég átti einu sinni að lækna ungan mann, sem hafði mjaðmarbólgu. En með því að ég hafði illa raun af berkla- veiki að undanförnu, hugsaði ég um ngtt, og, ef verða mœtti, betra ráð. Heitir bakstrar hafa um ómuna- tíð þótt gott ráð við bótguveiki og sjávarvatn við berklaveiki; fyrir því notaði ég hvorttveggja sem bakstra úr þangi. Hér um slóðir er ekki annað þang, það ég hefi séð, en blöðruþang. Pað lét ég skera, þó ekki smátt, bœði til þess að það gœti legið voðfeldara og til þess, að safinn úr því gœli kom- izt að skinninu. Síðan var tekinn poki úr mjög gisnu lérefti, svo stór, að hann náði yfir alt bólgu- svœðið og nokkuð út fyrir, en ekki inn undir, til þess að hlífa liðnum fyrir hreyfingu, og þá var skorna þangið látið i pokann, svo mikið, að lagið varð um í þml. á þykl. Siðan var pokinn velgd- ur i potti og svo lagður á. Eftir reynslu um nokkurn tíma komst ég að þeirri niðurstöðu, að tveir timar tvisvar á dag vœru hœfi- legasti timi, sem skinnið gœti þol- að og sjuklingurinn, án þess að þreytast. Sama bakstur nota ég tvisvar. Sjálfsagt varð unglingur- inn að liggja grafkgrr, en honum batnaði og hann varð heill heilsu, að öðru leyti en því, að hann var nokkuð stirður í mjaðmarliðnum. Síðan hefi ég haft þessa aðferð við berklaveiki í öllum utlimum, og jafnan lœknað alla á lengri eða skemmri tíma; en lengdin fer eftir því, hve mikið limunum hefir verið misboðið á undan; einnig hvort nœsti liður verður stjarfur (ósveigjanlegur) eða liðast sem áður. Prír mánuðir eru það minsta, og Ph ár það lengsta, sem liggja hefir þurft, til að verða heil- brigður af sjúkdómi í mjöðmunum eða knjám; en alls engrar legu hefir þurft við sjúkdóm i örmum, og séð hefi ég barn,sem hafði berkla í ristinni, verða heilbrigt, þótt það vœri nokkuð á fótum. Aldrei hefir neinn dáið, sem að eins hefir haft berkla í útlimum. En ef lengi hefir verið beðið, getur ýmislegt komið fyrir; en það þarf maður ekki að óttast, heldur fara með sem það ekki væri berklaveiki. Ég nota einnig þangbakstra við bólgu í kirtlum og hjaðna þeir miklu ftjótara en bein. Á síðari árum gef ég berklaveik- um einnig joðjárn og þykir betra en ekkert. En ef ég væri þar, sem hœgt vœri að ná í söl, mundi ég láta þá neyta þeirra. Svaneke Borgundarhólmi, 4. Sept. 1906. Guðni Guðmundsson. Járnbraut. Langt er síðan „Rvík“ og „Þjóð- ólfur" skýrðu frá því, að landsstjórn- in ætlaði að láta inn nýja lands-verk- fræðing skoða svæðið héðan austur í Árness- og Rangárvalla sýslur til að láta uppi álit sitt um járnbrautar- lagning þangað, hvort hún væri til- tækileg og hvað hún mundi kosta. Verkfræðingurinn (hr. Þorvaldur Krabbe) hefir ferðast austur lauslega, en ekki getað gert neinar veruiegar mælingar eða nákvæma áætlun — til þess hefir hann verið of-hlaðinn öðrum störfum í sumar og orðið að þeytast landshornanna milli. Getur verið álitamál, hvort stjórnin hefði eigi átt að taka færra fyrir í einu og gefa honum tóm til að vinna rækilega að hverju um sig, þó eitt- hvað biði þá næsta árs eða næstu ára. Engir óviðráðanlegir erfiðleikar eru á því að leggja braut austur; að eins vafamál, hvar heppilegast sé að hún liggi, og hver kostnaðurinn verður. Helzt talin líkleg einhver af þess- um þrem leiðum: Lágaskarð, Hellis- heiði eða Mosfellsheiði (og þá um Grafninginn). Lágaskarð er óbrattara en Hellis- heiði, en meiri snjóþyngsl á því. Leiðin yrði yfir Ölfusið alt, því lengri, en þá og gegn um mikla bygð. Hellisheiði er brattameiri að aust- an, hvar sem brautin yrði lögð og langur atlíðandi hér megin, sem all- an yrði að skásneiða. Aðalmótbára hr. Þ. Kr. gegn þess- um leiðum er þó helzt sú, að þær liggja svo mikið um óbygð og ó- byggileg svæði. Er það hvervetna reglan, að leggja járnbrautir sem mest um bygð hér- uð, eða þá óbygð lönd, sem eru byggi- leg og geta bygst, er brautin kemur. Því vill hann helzt velja Mosfells- heiði, þannig, að brautin liggi inn Mosfellsdalinn, upp Gullbringur, yfir þvera Mosfellsheiði yfir að Heiðarbæ eða Hagavík við Þingvallavatn, svo um Grafninginn niður með Iugólfs- fjalli að Ölíusárbrú. Með þessu móti lægi brautin öll um bygt iand, nema þverspottinn yfir Mosfellsheiði, sem yrði stuttur. Þessi leið er um */s lungri en Hellisheiðar-Jeiðin, en miklu meira þarf að skásneiða á þeirri leið, og gæti svo farið, að hún með öllum sneiðingakrókum yrði lítið eða ekki styttri. Um kostnaðinn er ekki auðið að segja neitt að sinni. „Lögr.“ talar um 187,000 kr. fyrir míluna (danska), en það er úr' lausu lofti gripið. Það er eitthvað það lægsta sem tekist hefir að fá lagða fyrir járnbraut er- lendis yfir torfærulaust sléttlendi; en slíku er ekki hér að heilsa. Yega- lengd þessi, austur að Ölfusárbrú Mosfellsdalsleiðina, ®r um 75 kíló- metur1). Ef kílómetrið kostaði 350,000 kr., sem sízt mun of í lagt, þákost- aði brautin þessa leið austur ^ð brú 2,625,000 kr:, eða yfir hálfa þriðju milíón króna. Mörgum mun það í augum vaxa, en ekki ægir það oss í sjálfu sór. Enginn efi er á því, að undirlendið hér austanfjalls gæti komist í þá rækt, að 70—80,000 manns gætu lifað þar, og þá yrði nóg að flytja til þess, að brautin gæti svarað kostnaði. En til þess þarf fyrst og fremst áveitur dýrar og mikil mann- virki, og þau þarf að vinna, en til þess skortir fólk. Og til þess að borgi sig að vinna þessi verk, verð- ur að vera til fólk til að byggja héruðin. Og hvaðan fæst það? Það flytur ekki hingað, svo að stórmiklu nemi, úr öðrum héruðum. Til þess eru menn of vanafastir og venjubundnir við átthagana, enda eigi æskilegt í sjálfu sór, að leggja alt hitt landið í eyði. Innflutning fólks þurfum vér að fá. Hann má fá frá Noregi, Þýzka- landi og víðar að. En því að eins fáum vér fólk hingað — ekki sel- setumenn eða farfugla, heldur land- námsmenn, er hér vilja setjast að og samlagast þjóðinni, að þeir eigi kost á að ná hér þegnrétti með auðveldu móti, t. d. eftir 3 ára búsetu, svo að þeír fái þegnleg réttindi (kosning- arrétt og kjörgengi) eins og hórborn- ir menn, og þurfi ekki að vera ófull- veðja menn. Þeir yrðu að þýðast lög vor og læra mál vort; niðjar þeirra yrðu íslendingar. Það væri vafalaust holl þjóðblöndun, eftir því sem annarstað- ar hefir reynst. Þannig gæti þjóð vor aukist, fljótara en auðið er af sjálfrar sín stofni einvörðungu, og þá yxi henni fiskur um hrygg til flestra framfara. Hæða ráðherrans við tornsteiDSlapiDg bókasafnsMssins. „Háttvirta samkoma! „Hálfnað er verk þá hafið er“, segir gamalt máltæki. Það er svo Það nœr engu tali, að kalla kílómetur „röat“; röstin var miklu lengri (og þó vafasöm). Nær sanni væri að kalla myría- metur (10 kílóm.) röst, en kílómetrið „mílu“ eins og Hollendingar gerðu, er þeir tóku upp meturmál, eða þá „nýmílu“. jafnan um öll nauðsynjamál og góð fyrirtæki, að aðalerfiðleikarnir eru í byrjuninni, enda „varðar mest til allra orða, að undirstaðan rjett sje fundin". En sje undirstaðan fundin og hyrn- ingarsteinninn lagður í fullri meðvit- und um tilgang og takmark, í ein- lægum vilja og einbeittri trú á mál- efnið, þá lánast að jafnaði að Ijúka því sem eftir er. — I dag eigum vjer að leggja hyrn- ingarstein að mikilsvarðandi og merki- legu húsi, stórhýsi, er á að geyma fjársjóðu, sem vjer vonum, að eigi fyrir sjer að vaxa með vaxandi viðgangi og menning þessarar þjóð- ar, eins og safn það, sem þetta hús sjerstaklega er ætlað til að varð- veita, hefur eflst og aukist með vaxandi mannrænu, sjálfsdáð og sjálfstæði þjóðar vorrar á öldinni sem leið. Saga landsbókasafnsins er ekki löng. — Byrjun þess var sú, fyrir 88 árum síðan, árið 1818, að danskur maður, 23 ára gamall lögfræðiskandí- dat, Carl Christian Bafn, er síðar varð svo kunnur fræðimaður og ís- landsvinur, sneri sjer til Bókmentafje- lagsins með tillögu um, að stoL bóka- safn í Reykjavík, til þess aðrSTend- ingar ættu kost á að kynnast bók- um og mentum, sem þeim annars væri svo erfitt að ná til vegna fjar- lægðar landsins frá öðrum mentalönd- um. Hann hafði þegar safnað nokkr- um bókum í þessu skyni, og gaf þær um leið og hann bauðst til þess að vinna að efling safnsins eftir megni. Reykjavíkurdeild Bókmentafjelagsins átti nú brjefaskriftir um þetta mál við stiftsyfirvöldin, þau aftur við stjórnarvöld ríkisins, og árið 1821, II. apríl, gaf konungur 840 ríkisdali reiðu silfurs til þess að útbúa herbergi með hyllum og öðru, er til þurfti, á loftinu yfir dómkirkjunni hjer í Rvík. Þetta safn var nefnt Stiftsbókasafn. Arið 1826 var safnið orðið um 2000 bindi, og var þá gefin út reglugerð fyrir það, og útlánsreglur. Eftirþað jókst safnið smátt og smátt, mest af gjöfum góðra manna, en að starfsemi þess hafi ekki aukist afarfljótt, sjest á því, að 30 árum síðar, 1856, eru árslaun bókavarðarins nýhækkuð úr 30 rdl. upp í 40 rdl. Árið 1868 bættust safninu 2,800 bindi frá kgi. bókasafninu í Kaupmh., auk gjafa frá F. A. Krieger ráðherra o. fl., sem of langt yrði upp að telja hjer. En af almannafje hafði bóka- safnið engan styrk, alt þangað til Island fjekk sjálft fjárráð sín. En þeg- ar 1875, á hinu fyrsta löggjafarþingi, í fyrstu fjárlögum, sem alþingi samdi, var veitt fje til stiftsbókasafns- ins, að vísu ekki nema 400 kr. á ári, en það var þó byrjun, er markaði nýja stefnu. Safnið var þá enn geymt á kirkjuloftinu. En þegar alþingis- húsið var byggt, 1880, var stiftsbóka- safninu ætlað rúm þar, og á alþingi 1881 var tillagið til bókasafnsins fært upp í 2050 kr. á ári, og jafnframt afnumið notendatillagið, sem til þess tírna var 2 kr. á ári. Um það leyti var komið inn í safnið bókasafn ffóns Sigurðssonar, sem keypt var fyrir 25,000 kr. samkvæmt fjárveiting frá 1877, og er safnið upp frá þessu nefnt Landsbókasafn. Síðan hefur safnið aukist tiltölu- lega fljótt, og á nú um 50,000 bindi, eða fleiri þó, ef alt smælki er með talið. Framlag landsjóðs hef- ur og aukist smám saman, og er eftir núgildandi fjárlögum 11,760 kr. á ári. — Síðan safnið fór að stækka hafa menn fundið mjög til þess, að hús- næði þess í alþingishúsinu er allsendis ónógt og ófullnægjandi; auk þess vantar landsskjalasafnið, sem stofnað Stumpasirz og margar tegundir af Handsápu nýkomið með „Yesta" í verzl. Godthaab.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.