Reykjavík

Eksemplar

Reykjavík - 09.11.1907, Side 4

Reykjavík - 09.11.1907, Side 4
258 REYKJAVIR Mesti eimskipa-hraði. [Eftir en9kum og amerískum blöðum]. Fyrsta eimskipsferð yfir Atlantshaf var farin 1838. Það var eimskipið „Sirins“, er þá ferð fór, og var 19 daga á leiðinni til New York. Þetta þótti þá feikna- merkiiegt, enda var það ekki lítils virði, þar sem þá var ekkert síma- samband milli Ameríku og annara heimsálfa, að milliferðatíminn yrði sem styztur og öruggastur. 1851 var framförin orðin sú, að örskreiðustu eimskip fóru þá leiðina á 9 dögum; 1882 mátti komast þetta á 7 dögum og 1897 á 6 dögum. Það vóru alt brezk skip, er flýtinn höfðu mestan til þessa. En svo komu Þjóðverjarnir í spilið : fyrst Kaiser Wil- Jielm cler Grosse, sem kom t.ímanum niður í 6 sólarhringa rétta (áður vóru 6 sólarhr., 3 klst., 12 mínútur styzta ferð). En svo gerðu Þjóðverjar skipið DeutscJiland; það var allra skipa hrað- skreiðast; fór á 1. ferð sinni yfir At- lantshaf 22,42 sjómíiur enskar á klukku- stund að meðaltali alla ferðina; en nokkru síðar í bezta veðri fókk það svo gott leiði, að ferðin varð alla leið að jafnaði 23^/2 sjómila. Þeir unnu þá „bláveifu Atlantshafsins", heiðurs- veifu, sem það skip hefir ávalt rétt til að eiga og bera, sem hraðasta ferð hefir farið. Undu Bretar því illa, að önnur þjóð en þeir skyidi hafa blá- veifuna (Tlie Blue Ribbon of tJie At- lantic). Því iét Cunard-línan brezka smíða skipið Lusitania, sem er allra skipa stærst og aflmest. Það fór fyrstu ferð sína yfir Atlantshaf í miðjum Septem- ber, og var frá Daunt-vita við Queens- town (á írlandi) til Sandy Hook (við New York) 5 sóIarJiringa og 54 mín- útur. Það var styzti tími, sem enn hefir farið verið á meginlandanna milli (DeutscJiland fór iengri ieið). Meðalhraði á ferðinni hafði verið 23,oi sjómíla, og var það hraðara en Deutsch- iand fór á fyrstu ferð sinni, en ekki eins hratt og það hafði hraðast farið, enda var veður misjafnt. En 6. f. m. lagði Lusitania enn vestur um haf, og náði nú meginland- anna milli á 4 sólarhringum og 20 kist., en það er 3 stundum hraðara en Deutschland hafði bezt gert (ef sama mílnatal er reiknað báðum). Lusitan- ia fór nú að meðaltali 24 sjómiiur alla leiðina; en 243/4 míln var mesti hraði, sem hún náði. Um það eru allir ásáttir, að betur geti Lusitania þó gert enn, er vélar- nar liðkast ©g veður er jafnara, en nú var. Aðalkonsúll Þjóðverja í New York afhenti skipstjóra Lusitaniu bláveifuna á hátíðlegan hátt. Cunard-línan hefir látið smíða ann- að skip, að öllu nær sem Lusitania, en þó í við stærra og ferðmeira. Það heitir Mauretania og er nú komið á sjó og farið að reyna sig. Það þótti mikið, er Etruria var smíðuð og var 8120 tons á stærð, en hafði 14,500 hestöfl (1885). 12 árum síðar smíðuðu Þjóðverjar Kaiser Wil- helm der Grosse, 14,349 tous að stærð, með 28,000 hestöflum. En Lusitania er 32,500 tons og hefir 70,000 hestöfl. Lusitania hefir kostað £ 1,500,000 (=27 milíónir, 375 þús. króna). Venju- legt farmeimskip má smíða fyrir um £ 9 á tonnið ; eimskip, með meðal póst- skipshraða yfir Atlantshaf, fyrir um £ 35 á tonnið; en skip á við Lusitaniu, eða með hennar hraða, fyrir um £ 50 á tonnið. Brezka stjórnin greiðir Cunard-Iínunni £ 150,000 ársstyrk gegn því að eiga rétt á að taka Lusitania og Maure- tania í sína þjónustu á ófriðar tímum. Auk skipshafnar getur hvort þessara skipa flutt 8000 hermenn hvert á land sem vili. Nú eru Bretar farnir að hafa við orð að smiða eimskip 50,000 tonna stórt og hraðara öilum öðrum skipum í htimi. Mannkærleiki. Maður er nefndur Skafti Sigvaldason. Hann er íslenzkur bóndi í Ivanhoe, Minnesota. Hann er trúmaður mikili og mannvinur. Nú liggur hann á sjúkrahúsinu í St. Paul vegna þess, að hann tók að sér að hjálpa manni til heilsu, er talinn var ólæknandi, en til þess varð hann að leggja 125 ferþuml- unga af hðrundi sínu í sölurnar. Tildrögin til mannúðarverks Skafta eru þessi: Fyrir fjórum mánuðum skaðbrendu sænsk hjón sig í St. Paul á alkóholi, er kviknaði í af slysum. Konan dó af brunasárum, en maður- inn hefir legið á sjúkrahúsinu í St. Paul og eigi tekist að græða hann. Læknarnir á sjúkrahúsinu reyndu alt sem þeim kom til hugar við bruna- sár mannsins og þegar ekkert af því kom að haldi, var auglýst að maður- inn væri ógræðandi nema einhver vildi verða til að leggja hörund sitt fram til að græða með brunasárin. Skafti Sigvaldason sá augiýsinguna og ritaði þegar yfirlækni sjúkrahússins og spurð- ist fyrir um það hvort hann fengi aðgang að sjúkrahúsinu ókeypis ef hann tækist á hendur að bjarga mann- inum. I.æknirinn kvað já við því. Fór Skapti þá til sjúkrahússins og lét flá af hörundi sínu 125 ferþml. til að bjarga manninum. Skurður þessi oar mjög kvalafuliur, en læknarnir töldu Skafta hafa borið þær þjáningar vel og karlmannlega. Mennirnir kváðu báðir á batavegi. Fregnir um þetta hafa verið í ýms- um Bandaríkjablöðum og ítarlegastar, sem vér höfum séð, í Minneota Mascot, og er framanritað aðalútdráttur úr því sem þar er sagt,. Skafti hafði hvorki heyrt né séð sjúka manninn áður og því hjálpað honum af mannúðarhvötum einum. Slíkur mannkærleiki, sem ekki hik- ar við að leggja líf og blóð i sölurn- ar fyrir meðbræðurna, er svo fátíður að hann á það skilið að honum sé haldið á lofti, og það er sómi fyrir oss íslendinga, að hetja þessi skuli vera vorrar þjóðar. [„Lögberg"]. „Fram“. Fundur 2. og 4. Fimtudag í hv. mán. kl. 8*/2 síðd. í Templara-húsinu. Næst: Nýtt skattmála-umtalsefni. Dagbók. 9. Nóvbr. Látin. Húsfrevja Bergþóra Jóns- dóttir, f. 18, Okt. 1851 í Skálholts- koti (dóttir Jóns heitins Arasonar og Ingibjargar húsfreyju hans). Gift 1877 Guðbrandi Eiríkssyni, er liflr hana. Börn þeirra á lífi eru: Ingi- hjörg leikfimikennari, frú Anna (hús- freyja Brynjólfs tannlæknis) og Jón, bókari í »Völundi,« — Hún dó úr hjartaslagi 6. þ. m. Hafnarfjarðarsíminn. Samkv. ráð- stöfun síðasta Alþingis á að leggja talsíma milli Reykjavíkur og Kefla- víkur (yfir Hafnarfjörð) með styrk af sýslunni. Landssjóður ætlaði því að kaupa símann milli Hafnarfjarð- ar og Reykjavíkur fyrir 3000 kr. (ákvæðisverð hlutabréfanna). Auð- vitað er síminn og staurarnir gamalt skran og úr sér gengið, og lands- sjóður hefði aldrei notað það, held- ur lagt alt nýtt til; en kaupið var af sanngirni við hlutafélagið, sem átti liann. En svo buðust þeir Thorsteinsson & Co. (og J. P. T. Bryde) til að kaupa Hafnarfjarðar- símann fyrir sama verð og gaf lands- stjórnin það eftir með því skilyrði, að eklci má hagnýta hann til sam- tals af neinum öðrum en verzlunum þeirra kaupendanna, og þær mega ekki nota hann til sambands við neina út í frá, að eins verzlanirnar sín á milli. Veðurathuganir eftir Knutl Zimsen og M. Thorberg. Nóv. 1907 Loftvog | millim. 1 Hiti (C.); -4J -4-J «o 8? 'S *o <x> k Veðráttaj Fö. 1. 7 752.4 7.7 SA 5 Alsk. 1 751 8 9.0 ASA 5 Alsk. 4 751.2 8.5 ASA 4 Alsk. 10 750.8 7.5 SA 5 Hálfsk. Ld. 2. 7 747.9 8.5 SA 5 Alsk. 1 745 7 6.7 SA 6 Alsk. 4 744 4 7.0 SA 6 Regn 10 747.3 1.4 A 1 Regn Sd. 3. 7 749 6 1.7 A 1 Skýjað 1 750.4 44 A 2 Skýjað 4 750.3 4.1 A 3 Skýjað 10 751.6 2.9 Xjogn 0 Regn Má. 4. 7 751.2 0.9 Logn 0 Skýlaus 1 751 3 4.8 ASA 2 Alsk. 4 751 3 2.4 SSA 2 Skýjað 10 754 0 1.1 SV 2 Snjór Þd. 5. 7 758.5 3.0 SSV 2 Hálfsk. 1 759.0 44 s 1 Skýjað 4 758.3 65 SSA 3 Móða 10 760.1 6.6 SSV 2 Regn Mi. 6. 7 759.0 7.7 SV 3 Regn 1 754 2 8.5 S 6 Regn 4 7513 8.1 SA 7 Regn 10 748 9 4.8 SA 6 Skýjað Fi. 7. 7 749 5 1.3 SSV 6 Skýjað 1 748 3 23 S 5 Skýjað 4 747 9 1 9 S 2 Skýjað 10 748.1 0.0 SV 2 Hálfsk. A" idvörun. Lúni og gamli ferðamaður! Kom þú ekki seint um kvöld að Elliða- vatni, ef inn heiðraði húsbóndi ekki kann að vera heima; því að ef þú fær vinnuhjú til að fara inn í hús- ið að beiðast fyrir þig gistingar, færðu það svar út aftur eftir fjórð- ung stundar frá náðugu frúnni, að þú verðir að liggja á gólfinu. En sértu lúinn og gamall, þolir þú það ekki. Farðu heldur að Vatnsenda til inna merku hjóna; þar fær þú gist- ingu og hana ágæta fyrir annað- hvort sanngjarna eða enga borgun. Gamall ferðamaður. i—2 herbergi til leigu nú þegar í Þingholtstræti 7. Forstofu-inngangur. Ostar eru beztir í verzlun Einars Árnasonar. Aðalstræti 14. Talsími 49. Til leigu á Laugavegi 40: 3 herbergi, eldahús og sölubúð á neðsta lofti. ftf Til þess að rýma til fyrir jóíav0runum, sem homa með næstu shipum, sinn yefinn alsllt L0MPUM í diazarÓQÍléinni í cT/iomsQns cJltagasíni. Matardeildin s e 1 u r ijlt svínakjöt Thomscns jVtagasin. Peir sem þurfa að fd sfer pösíulínsleir~ eða cjhrvarning, spara bœði tima og peninga með því að fara beint niður í Basardeildina í DA N eir ómótmælanlega bezta og langódijrasta JrV f * nftryggingarfélagið. — Sérstök kjör fyrir bindindismenn. — Langliagfeldustu kjör fyrir sjó- menn. A.llir ættu að vera líftrygðir. Finnið að mali aðalumboðsm. I). 0STLUND. Rvík. vínf sem eru undir tilsjón og efna- rannsökuö: rautt og hvitt P0RTVIN, MADEIRA og SHERRY frá Albert B. Cohn, Kabenhavn. Aðal-birgðir í H. Th. A. Thomsens Magasín. Félagid „LONDON“ tryggir karla og konur gegn alls konar slysum og meiðslum og ýmsum veikindum t. d. mislingum. Nánari upplýsingar gefur Pétur Zóphóníasson. Thomsens prima vinðlar. Ilvar á að kaupa öl og vín? En í Thomsens M a g a s í n. Prentsmiðjan Gutenberg. Pappírinn frá Jóni Ólafssyui. Stór-auðug'ir geta menn orðið á svipstundu, ef lánið er með, og þeir vilja ofurlítið til þess vinna. — Biðjið um uppiýsingar, er verða sendar ókeypis. — Reykjavik, — Pinglioltsstræti 3. Stefán Runólfsson. Ueyniö einu sinni verður fyrst um af

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.