Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 23.11.1907, Blaðsíða 2

Reykjavík - 23.11.1907, Blaðsíða 2
264 R EjjY K J A V í K Oliver Twist er heimsfiæg skáldsaga eftir Charles Dickens. Hún fæst nú í vandaðri ísl. þýðingu hjá bóksölum víðsvegar um land alt. Góð, hentug og mátulega dýr tækifærisgjöf fyrir unga og fullorðna. Menn hafa sagt um Njálu, að hvað oft sem þeir litu í hana, lœrðu þeir eitthvað af henni. Sama má segja um Oliver Twist: hversu oft sem hann er lesinn, finst nóg til íhugunar og auk þess er bókin víða mjög skemtileg. fram fór á Seyðisfirði nóttina áður en konungur kom þar ? Þá var skorið- á alla dannebrogsflaggs-strengi og auk þess rifln niður smá-dannebrogsflögg, en hvergi biáflögg. Höíulöíö af skömminni bíta þeir þó Benedikt Sveinsson og Ari Jónsson er þeir gefa í skyn í „Ingólfi" síðasta, að félag heimastjórn- armanna „Fram“ hafi lagt þessa sví- virðingu undir á fundi. Á fundinum í „Fram“ vóru við- staddir nokkrir heiztu embættismenn, andlegir og veraldlegir, ýmsir vand- aðir og mikilsmetnir alþýðumenn, þar á meðal einn eða tveir bláfeidungar, en ekki nokkur einn maður sem nokk- rum manni mundi detta i hug að bendla við götustrákaskap og óþverra, nema þeim Benedikt og Ara, sem, eins og „Lögr.“ bendir á, hafa ef til vill unnið fúlvirki þotta sjálfir, til þess að geta komið með svívirðilegar get- sakir á hendur mótstöðumönnum sin- um, þá þurfa þeir eðlilega að geta komið þessum grun af sér yfir á sak- lausa mótstöðumenn. gV* Heflrðu borgað „Rvík ?“ m A Stórtíðindi í hraðskeytaflutningi. 17. Október 1907. En almenningi ekki ætlað að kom- ast að fyr en eftir 8—10 daga. Stórtíðindi þessi flutti enskur botn- vörpungur hingað í gær, í Lundúna- blaði frá 18. og 19. f. m., The Day- ly Mirror, er ísafold heflr fengið í hendur fyrir góðvild Mr. Newmans Marconistöðvar-varðar hér. Ritsíma- skrifstofunni dönsku, Ritzaus Bureau, hefir ekki þótt þau frásagnarverð! Hálfa leið um Atlanzhaf tókst fyrir nokkrum missirum að koma loftskeytum reglulega og að staðaldri en ella ekki nema orði og orði, er vel stóð á, fyr en nú. Þeir hafa, Marconi og hans félagar, verið að berjast við það alla tíð síðan, að koma á greiðum, reglulegum og á- reiðanlegum skeytasendingum þá leið alla. Vald. Poulsen inn danski kom með í fyrra sína nýju umbót á loft- rituninni og hugðist mundu skjóta Marconi langt aftur fyrir sig. En svo hefir ekki orðið. Þetta gerir stórkostlega byltingu í öllum þeim inum mikla ritsíma-at- vinnurekstri og bakar sjálfsagt öllum ritsímafélögum í heimi geysitjón. Er því meira en skiljanlegt, að þeim sé ekki vel við þessa nýjung. Enda tekur Marconi eða hans félag ekki nema 38 aura (5 d.) á orðið, en ritsímafélögin 90 aura (1 sh.) milli Englands og Ameríku. Hlutabréf Marconifélagsins gerðu meira en tí- faldast í verði fyrsta sólarhringinn, sem haldið var uppi loftritun um þvert Atlanzhaf. Stöðvarnar send- ust þá á 14,000 orðum. (»ísafold«). Þann dag, 17. f. m., hafa orðið stórtíðindi í heimi liraðskeytalistar- innar, ef svo mætti að orði kveða. Þá hefir Marconi tekist að koma ótakmörkuðum orðafjölda reglulega og viðstöðulaust um þvert Atlanz- haf, milli Nýja-Skotlands og írlands, 1940 mílur enskar, sama sem hér um bil 415 vikur sjávar eða dansk- ar mílur. Það er meiri vegarlengd en 6 sinn- um alt ísland af enda og á. Marconi var sjálfur á nýreistri loftskeytastöð í Nýja-Skotlandi, þar sem heitir Glace Bay, og sendi það- an 30 orð til viðtökustöðvar þeirrar, er hann hefir reisa látið á írlandi vestast, í Clifden í Connemarahéraði. Skeytið barst alla leið á tæpum 2 mínútum. Það var kveðja til blaðs í Dýfl- inni, Dublin Evening Mail, fyrsta blaðsins, sem hagnýtti þráðlaus skeyti fyrir 9 árum, segir þar. Þetta var snemma morguns, og var síðan haldið áfram loftrituninni milli fyrnefndra stöðva um daginn, send 40—50 orð á mínútu. Um miðjan dag fékk eitt meðal helztu blaða í Lundúnum, Daily Mail, samfagnaðarskeyti frá blaðinu Times í New Yoi'k, loftleið til ír- lands og þaðan með ritsíma. Fáeinir stórhöfðingjar fengu að loftrita hjá þeim Marconi þann dag' ■----—------------------------• ÚRSMÍÐA-YINNUSTOFA. Vönduð Íí r og Klukkur. Bankastræti 12. Helgi Hannesson. Hinn 29. I. m. var fyrsta þing verkmannasambandsins sett í Báru- húsinu og var því slitið 5. þ. m. Samband þetta er stofnað af ýms- um verkmanna- og iðnaðarsveinafé- lögum hér í bænum, og er ætlast til þess, að það síðar meir nái yfir ait landið. Hvatamenn að stofnun sambandsins voru formenn nokkurra félaga hér í bæ (Dagsbrún, Báran og Prentarafélagið), og var fyrsti undirbúningsfundur, þar sem rætt var um mál þetta, haldinn 17. marzþ. á. og voru þar mættir 25 menn, er allir voru stjórnendur ýmsra félaga hér í bæ; þar var kosin nefnd til að semja lög o. s. frv., og síðan hefir málið vérið í undirbúningi hjá fé- lögunum, og loks komst það svo langt, að sambandið var stofnað og fulltrúar mættu á hinu fyrsta þingi verkmannasambands íslands. Eins og eðlilegt er, þá var mikið af starfinu á þessu þingi falið í laga- smíði fyrir sambandið, en þó voru mörg fleiri mál afgreidd þar. í 2. gr. laganna erstefnuskrá Verk- mannasambandsins, og sýnir hún ljósast stefnu þess. Hún hljóðar svo: x. Að vinnan sé móðir allrar vel- megunar, og að arðurinn af vinnunni gangi til þeirra, er taka þátt í henni. 2. Að ailir menn, karlar og kon- ur, bæði giftar og ógiftar, sem eru 21 árs, hafi óbundinn kosningarrétt. 3. Að kvenmenn hafi jafnrétti á við karlmenn í stjórnmálum, atvinnu- málum og mentamálum. 4. Að ríki og kirkja sé aðskilið, enda sé og hverjum frjálst að hafa þá trú, er honum sýnist og sann- færing hans býður. 5. Að uppfræðsla og mentun sé sameiginleg fyrir aliar stéttir fram að vissu aldurstakmarki, og kostuð af almannafé. 6. Að gjafsóknarréttur sé öllum frjáls. 7. Að öll gjöld til þess almenna hvíli að öllu ieyti á fasteignum, arði af atvinnu og peningaforða einstakra manna. 8. Að erfðagjald til lándsjóðs fari hækkandi, og hækki því meir, sem arfurinn er stærri. 9. Að arðvænleg fyrirtæki, er miða til aimenningsheilla, svo sem sam- göngur á sjó og landi, námugröftur o. s. frv., séu rekin með fé hins al- menna og undir umsjón þess. 10. Að öryrkjastyrkur sé veittur öllum, er ekki geta séð fyrir sér sjálfir, og án þess þeir missi nokk- urs í af réttindum sínum. 11. Að séð verði um, að þeir, er þess óska, geti fengið land til rækt- unar með sem beztum kjörum, og ódýr lán til að rækta með landið. 12. Að aðflutningur og tilbúning- ur áfengra drykkja sé bannaður. 13. Að sjúkrasjóðir verði stofnaðir og styrktir af almannafé. 14. Að engir aðrir en búsettir menn í landinu eigi fasteignir, fossa, ítök, námur eða reki aðra atvinnu í því eða landhelgi þess. 15. Að íult sjálfstæði Islands sé viðurkent". En auk þeirra mála, er hér eru talin, þá hefur sambandið mörg fleiri mái til meðferðar (5. gr. laganna), og eru þau aðallega þessi: 1. Samtök vinnukaupenda gegn verkamönnum til að þröngva kosti þeirra. 2. Atvinnuleysi innan sambandsins. 3. Kaupfélagsskapur eða samtök til vörukaupa. 4. Fræðsla og mentun barna og unglinga verkamanna. 5. Sjóðstofnanir til þarflegra fyrir- tækja og fyrir félögin. 6. Nægilegar húslóðir handa verka- mönnum í kaupstöðum. 7. Kosningar í bæjarstjórnir. 8. Kosningar til alþingis. 9. Útgáfa blaða eða blaðs, er ræði málefni og hugsjónir félagsmanna. Eins og sjá má, eru hugsjónir sambandsins taisvert miklar, og eigi að búast við, að þær komist allar til framkvæmda þegar í stað. Þau mál, er þingið nú aðallega hafði með höndum, voru kaupfélags- mál, bæjarstjórnarkosningar og blaða- málið. Öllum þessum málum var vísað til Sambandsráðsins til fram- kvæmda og úrslita. Kaupfélagsmálið er komið svo langt á veg, að öll astæða er til að álíta, að það kom- ist í framkvæmd, áður en langt líður og er enginn efi á því, að það verður mikill hagnaður að því fyrir marga. Slíkur félagsskapur er einkar þarfur, einkum eins og nú stendur á. Lög fyrir væntanlegt félag eru fullsamin — voru útbúin á þinginu — og er meginregla þeirra- engin lán, engar skuldir, hvorki innlendar eða útlendar. annars er fyrirkomulag þess að nokkru svipað t. d. Verzlunarfjelagi Stein- grímstjarðar og fél. Ingólfur á Stokks- eyri. Um bæjarstjórnarkosninger hér í Reykjavík er það að segja, að Sam- bandsráðinu var falið, í samvinnu við stjórnir félaganna í sambandinu, að semja lista fyrir það. Blaðamálið er máske stærsta og þýðingarmesta málið út á við. Það var að öllu falið Sambandsráðinu, og er vonandi, að því takist að hrinda því í framkvæmd, því undir því er þróun og velgengni þess mikið komin. Annars er verkefni Sambandsráðs- ins allmikið, þannig á það t. d. að leitast við að koma í veg fyrir verk- . föll og koma á sættum, ef unnt er, ef verkfall verður o. fl. I sambandsráðinu eru 7 menn, og er herra Þorvarður Þorvarðsson prent- ari formaður þess. P. Hálfyrði um verkmanna-sambandið. Vór höfum tekið upp í dag eftir tilmælum sambandsins skýrslu um það og stefnuskrá þess. Vér gerum það því fúslegar sem samtök þessi eru í sjálfu sér þörf og nauðsynleg, og þeir menn, sem hafa komið þeim á, eiga þökk og virðing fyrir skiiið. Það eru engin tiltök um höfunda stefnuskrárinnar, sem ekki munu vera neinir fræðimenn, þó að þeir þekki ekki stafróf viðslciftafrœðinnar („econo- miks“, „Nationalokonomi"). Því má finna fáeina agnhnúa á stefnuskrá þeirra, sem rétt væri fyrir þá að laga sem alira-fyrst. Af þessum agnhnúum er langlakast- ur sá í 1. tölul. stefnuskrárinnar: „að vinnan sé mbðir allrar velmegunar“. Þetta er 131 árs gömui villikenning, nú marghrakin og úrelt. Hún er eins fáránleg nú í augum fræðimanna eins og sú skoðun, að steinn(l) só í elding- unni („skruggusteinn"), er í augum náttúrufræðinga nú. Vór skulum gera stuttlega grein fyrir, hvernig þessi kenning um vinn- una sem einka-uppsprettu auðs, er til komin. Sá skóli viðskiftafræðinga, sem kaliaðir vóru fysíokratar, en Arnljótur Ólafsson nefnir búauðunga, kenndi, að enginn annar auður væri til, en líkam- legar afurðir jarðarinnar. Þeir héldu því fram, að vinnan væri alls ekki auðsuppspretta, því að hún yki engu við auð heimsins, þó að hún yki verð einstakra hluta. Þeir játuðu það, að t. d. timburhúsið væri meira vert, en timbrið, sem í því er, hefði verið í skóginum. En alt um það neituðu þeir því, að vinnan við að fella trén, koma þeim á markað, saga þau, hefla og byggja úr þeim húsið, hefði aukið einu hæti við auðlegð heimsins. Þetta kæmi af því, að meðan verkamenn- irnir hefðu unnið að öllu þessu, þá hefðu þeir til fæðis, klæða og annara nauðþurfta sér og sínum eytt nákvæm- lega jafnmiklu af líkamlegum afurðum jarðarinnar, og minkað þannig auð heimsins um nákvæmlega jafnmikið með eyðslu sinni, eins og þeir hefðu aukið hann með vinnu sinni. Þetta var nú svo auðsæ fjarstæða, að siík villukenning gat ekki lengi staðið.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.