Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 23.11.1907, Blaðsíða 3

Reykjavík - 23.11.1907, Blaðsíða 3
Fööursystir Charley’s verður leikin annað kvöld. R EjY K J A V1 K 265 Sunlight Úr Sunlight sápu getur 12 ára barn hæglega þvegið jafn mikinn þvott, og gert það betur en fullorðinn, sem notar vanalegar sápur eða blautasápu. Fylgið fyrirsögninni sem er á öllum Sunlight sápu umbúðum. Sápa ISXaililBBl Adam Smith, inn frægi viðskifta- fræðingur, sá hve fjarstætt þetta var, og í bók sinni um „Auð þjóðanna" (Wealth of Nations) 1776 hélt hann því fram, alveg réttilega, að vinnan væri auðsuppspretta. En honum fór eins og oft vill verða, er menn hrekja forna villu, hann fór langt yfir sann- leiksmarkið, og vildi gera vinnuna að einu auðsuppsprettunni („móður allrar velmegunar"). Þetta er jafn-mikil fjar- stæða. Vinnan er mikil, stórmikil auðsuppspretta, en eina auðsuppsprett- an er hún ekki. Auður (velmegun) er alt það, og það eitt, sem verður verði metið, keypt og selt. Engum hugsandi manni getur duiist það, að líkamlegar afurðir jarðarinnar eru lí/ca auðsuppspretta. Oftast þarf einhverja vinnu til að hagnýta sér þær, en stundum litla eða því nær enga, svo að vinnan á lítinn eða eng- an þátt í að gefa hlutnum verðgildi. Tökum dæmi: maður er á gangi í Brazilíu út á víðavangi og sér demant fyrir fótum sér; hann beygir sig niður og tekur hann upp, og er við það orð- inn stórauðugur maður. Er það nokk- ur vinna að beygja sig og taka stein- mola upp í lófa sór? Alls ekki. Hér er það ekki vinnan, sem varð móðir velmegunar mannsins. Það er fágæti demantanna, sem gefur þeim verð. Annað dæmi: hval rekur á fjöru mína; óg vinn ekkert að honum sjálf- ur nó mínir menn, en ég leyfl öðrum að skera hann og sel þeim hvalinn og fæ mikið fé fyrir. Ekki er það vinna, sem þar hefir auðgað mig, heldur réttur minn sem landeiganda til hvalsins. Það er því auðsætt, að mæður allrar velmegunar eru þrjár: jörðin, vinnan og réttindin. Vinnan er því „móðir velmegunar", en ekki „móðir allrar velmegunar“. í 4. tölul. er fram haldið aðskilnaði ríkis og kyrkju, og er það frjálsmann- legt, en viðbótin „enda sé . . .“ 0. s. fr. er alls óþörf, því að þetta stendur í stjórnarskrá íslands (46. og 47. gr.). 6. liður er viðsjárverður i meira lagi: „að gjafsóknarréttur sé öllum frjáls". — Þetta getur ekki þýtt neitt annað en það, að hver sem vill fara í mál — hve tilefnislaust og vitlaust sem það er —, skuli eiga rétt á að leika sér að því á kostnað landssjóðs. Með lögum frá siðasta þingi er nefnil. gjafsóknarréttur öllum frjáls, nema hvað „málstaður beiðanda kem- ur til álita". 300000 00000000000000-1 Klukkur, úr og úrfestar, j sömulciðis gull og silfurskraut- 1 gripi borgar sig bczt að kaupa á Laugavegi nr. 12. g Jóhann Á. Jónasson. 000000-0000000000000000000 7. tölul. sýnir, að höfundar hans eru talsvert ruglaðir í máli viðskiftafræð- innar. Þeir vilja að öll gjöld til „ins almenna" (á ísl.: til almanna þarfa) hvíli að öllu leyti á fasteignum, arði af atvinnu og peningaíovðíí einstakra manna. Fyrst skulum vér athuga fasteignina. Ekki svo að vór höfum neitt á móti að leggja skatt á landið sjálft, jörðina. En ef hún (samkv. 1. tölul.) væri alls ekki móðir neinnar velmegunar, þá væri það rangt að leggja á hana. Og því á að leggja á peninga-iorða fremur öðrum auðæfum. Ef maður á 50 kr. í gulli (peningum), þá á að leggja á þessar vesalings 50 kr. En þótt maður eigi 50,000 kr. i bankaseðluin eða víxlum eða innieign í banka, þá á ekkert að gjalda af því (því að banka- seðlar, víxlar, hlutabréf, innieign hjá öðrum, er ekki peningar, heldur rétt- indi). Þessir gallar eiga allir rót sína að rekja til þess, að höfundarnir þekkja ekki viðskiftamálið nógu vel né laga- málið. Höf. eiga að lagfæra þetta sem allra-fyrst. Það er bráðnauðsynlegt fyrir þá. Því miður geta þeir það likl. ekki fyrri en að hausti samkvæmt lögum sínum. Símskeyti til „Reykjavikur". frá Ritzaus Bureau. Kanpm.h. 20. Nóv. Landsþingisniaður og justizráð Hansen frá Gundesolille er skipað- ur í milliþinganefndina í stað mála- flutningsm. Kolding-Hansen. íslenzk félög héldu á Laugardag- inn minningarhátið um Jónas Hall- grímsson. Hannes Hafstein hélt ræðu fyrir minningu Jónasar og fyrir góðu samkomulagi á íslandi. Valtýr Guðmundsson hélt ræðu fyrir ráðherranum (H. H.). Höfnin á Jótlandsskaga var vígð í gær hátíðlega af konungi. Hann- es Hafstein var þar viðstaddur. Kh. 21. Nóv. Hákon konungur farinn til Eng- lands. Var í heimsókn í dag í Fredensborg. Ástandið í Portúgal talið ískyggi- legt. Lýðveldisflokkurinn eflist afar inikið. Margir menn settir í varð- hald. Hitt og þetta. „Vonin‘S skonnorta af Eyrar- bakka, eign Lefolii-verzlunar, lá 4. f. m. í Álasundi í Noregi og var verið að skipa upp úr henni saltfiski (seld- um Ronneberg & Sonner); er orð á því gert, að það hafi verið góð vara, vel verkuð. Yfirlit yfir tekjur landssímans í Ágúst- mánuði 1907 : Fyrir símskeyti innanlands kr. 695,00 íslands hluti af símskeyt- um til útlanda........— 1698,80 íslands hluti af símskeyt- um frá útlöndum ... — 784,01 Fyrir samtöl.............— 2868,50 Aðrar tekjur.............— 207,25 Samt. Kr. 6253,56 Dagbók. 23. Nóvbr. t Séra Ólafur Ólafsson dóm- kyrkjuprests Pálssonar varð bráðkvadd- ur hér 17. þ. m. Hann var síðast prestur í Saurbæjarþingum í Dalasýslu, en í sumar sem leið sagði hann af sór prestsskap og flutti sig hingað til Reykjavíkur. Brydes-verzlun hér hefir verið breytt og stækkuð í sumar; mun henn- ar verða nánara getið síðar. E/s ,Vesta£ fór héðan loks til út- landa síðdegis 20. þ. m. E/s ,Sterling£ fór frá Leith um há- degi í fyrradag. Slys. 9 ára gamall drengur kast- aði steini í annan dreng 10 ára gaml- an, Þórð Árnason að nafni, og beið sá bana af. — Ætti þetta sorglega slys að verða öðrum börnum til varn- aðar. Hörmulegt slys vilditil 15. þ. m. í vesturós Héraðsvatna í Skagafirði. Sig- urður hreppstjóri Ólafsson á Hellulandi fór á mótorbát með sonum sínum 3 frá Sauðárkróki að vesturósnum og lögðu þeir bátnum í ósinn. Skafti sonur Sigurðar varð eftir við ósinn til að gæta bátsins, því suðaustanstormur var á. Um kvöldið rær Skafti á pramma út í bátinn til þess að ausa hann, en misti prammann frá bátnum. Var nú komið rok og skóf yfir mótorbátinn, svo að hanu hálf-fylti, en hann mun hafa staðið í botni. Ólafur bróðir Skafta leitar nú til Jóns ferjumanns Magnússonar og heitir á hann til hjálpar, að ná Skafta úr bátnum. Fer Jón niður að ósnum, kallar til Skafta og biður hann vera rólegan, kveðst muni sækja hann þegar er veðrinu sloti. En ekkert heyrðist fyrir ofsan- um. Sjá þeir nú, að Skafti kastar sér út úr bátnum og ætlar að synda í land. Veður Jón þá á móti honum upp í axlir og ætlar að ná í hann. En þegar Skafti átti eftir á að gezka 3 faðma að Jóni, kemur á hann ísrek framan úr Vötnum, sem færði hann í kaf, og drukknaði hann þegar. Lík hans er ófundið enn. Skafti var um tvítugt, bezta manns- efni og þjóðhaga smiður, eins og faðir hans. [„Lögrétta"]. E/s „Kong Helge“ fer frá Kaup- mannahöfn 30. Nóvember aukaferð til Reykjavíkur og Vestfjarða. Enskur hotnvörpungur strandaði 9. þ. m. á Hörgslandi í Vestur-Skafta- fellssýslu. Nafn skipsins var „Premier", nr. 740, frá Grimsby. — Einn dreng- ur drukknaði, aðrir komust af. Lelkfélag Reykjavíkur lék í fyrsta sinn á þessum vetri á Sunnudaginn var „Föðursystir Gharley’s" eftir Brand- on Thomas. Fólk skemtir sér vel, þótt efni leiks- ins sé lítilfjörlegt. Ritstj. „Reykjavíkur" hefir legið rúmfastur síðustu daga. Veðurathuganip eftir M. Thorberg. Nóv. 1907 Loftvog millim. i 1 Hiti (C.) ^< *o 8? ■s ! <x> > Cð 'Cð v. U *o a> > Fö. 15. 7 745 4 2.4 sv 2 Skýjað 1 733.3 20 A 6 Regn 4 731.4 7.3 SV 8 Regn 10 737.2 3.6 vsv 8 Alsk. Ld. 16. 7 741.6 1.0 vsv 5 Hálfsk. 1 742 5 1.8 s D •J Skýjáð 4 740.7 1.2 Logn 0 Skýjað 10 739.6 1.3 ssv 1 Hálfsk. Sd. 17. 7 742.4 00 ssv 3 Hálfsk. 1 745.6 -i-1.2 vsv 4 Snjór 4 748.2 -5-0.4 V 4 Smásk. 10 751.5 -5-0.2 sv 5 Skýlaus Má. 18. 7 754.7 -r-0,4 Logn 0 Smásk. 1 751.7 0.4 A 1 Regn 4 747.1 1.0 A 4 Regn 10 728 3 4.1 SA 9 Regn Þd. 19. 7 717.1 4.5 S3V 9 Regn 1 722 7 2.1 SSV 9 Alsk. 4 725.8 1.0 ssv 9 Snjór 10 732 6 1.6 sv 9 Skýjað Mi. 20. 7 738.1 -5-1.5 sv 5 Skýjað 1 738.1 -4-1.2 ssv 3 Skýjað 4 738.2 -r-2.1 Logn 0 Alsk. 10 742.7 -5-2 4 Logn 0 Smásk. Fi. 21. 7 743.3 -4-2.8 sv 2 Snjór 1 743.6 -4-1.6 SA 1 Smásk. 4 741.5 -5-1.3 A 1 Snjór 10 738.3 -4-1.6 SA 1 Snjór €ggert Claessen, yfirréttarinálaflutnlngsmaðnr. Lækjarg, 12 11. Talsími 16. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. SVEINN BJÖRNSSON yfirréttarmálaflutningsm., Kyrkjustræti 10 tekur að sér öll rnalfærslustörf, kaup og sölu [tf] á húsum og lóðum o. s. frv. Heima kl. 10^/a—lU/a og 4—5. Samkomuhúsið „SIL OAM“ vlð Grundarstíg. Vígsluguðsþjónusta 24/n kl. 5 síðd. Allir velkomnir ókeypis. Saimicl 11. Jolinson. Hálf jörðin Neðridalur i Vestur-Eyja- fjallahreppi — in góða sauðjörð — fæst til á- búðar í fard. 1908. Menn snúi sér til um- ráðamanns jarðarinnar i Rvík, Lindargötu 16. Vinnustofa Jóns Sigmunds- sonar gullsmiðs, er nú flutt á Laugaveg nr. 8. Þar geta menn fengið vandaða gull- hringa og margt fleira fyrir minna verð en alment gerist. [—84. Jónas Hallgrímsson: Úrvalslj óð. (Öll fallegustu og einkennilegustu kvæði og vísur hans). Útgefandi: Jón Ólafsson. Innb. 50 au. Hjá öllum bóksölum. Aukafundur fyrir „Ekknasjóð Reykjavíkur" verður haldinn iiiunudaginu 24. þ. m. kl. 3 síðd. í Grood-Templara- liúsiiiu (uppi á lofti) til þess að ræða um mjög mikilsvarðandi málefni. Er því áríðandi að allir sjóðstyrkjendur mæti. Þeir sjóðstyrkjendur, sem ekki hafa enn þá greitt árstillag sitt fyrir yfir- standandi ár, eru vinsamlega beðnir um að gera það sem fyrst. Reykjavík, 22. Nóv. 1907. Stjórnin. Framfarafélagið heldur fund í Bárubúð Sunnud. 24. þ. m. kl. 6 síðd. Umræðuefni: Bæjarstjórnarkosningar.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.