Reykjavík

Issue

Reykjavík - 31.03.1908, Page 2

Reykjavík - 31.03.1908, Page 2
REYKJAVIK 50 venjulegum skilningi þess orðs. En þegar bréfið svo er ritað í þeim til- gangi eingöngu, að sverta og níða með ósönnum sakargiftum annan stjórnmála- flokk landsins og stjórn þess, þá virð- ist oss enginn vafi leika á, að slíkt bréf getur eigi átt rétt á sér sem prívatbréf, né notið þeirrar helgi, sem þau annars eru látin njóta. Það er nú mjögfjarri oss, að faraað bera hönd fyrir höfuð mannsins, sem fyrstur varð til þess, að birta bréf þetta, né kjósandans sem bréfið var til. Vér hyggjum, að þeir séu færír til þess sjálfir, ef þeir vilja. En vér höfum gert þessa athugasemd til þess, að sýna fram á, að herra Guðmundur Hannes- son hefir enga ástæðu til, að ausa ill- yrðum yfir þessa menn, heldur má hann sjálfum sér um kenna, að hann nú stendur frammi fyrir fólkinu sem maður, er vill í skjóli bréflielginnar bera á aðra sakir, sem liann opinber- lega getur ekki fundið neinn stað. Að svo mæltu viljum vér með nokkr- um orðum víkja að bréfinu sjálfu eða einstökum köílum þess og um Jeið hafa nokkra hliðsjón af grein höfundarins í sNorðurlandi“. Höfundurinn segir a.ð hann (og Land- varnarmenn) vilji vinna að þvi, að fá rílcisrétt Islands viðurkendan og að fara gœtilega í fjármálum. Með þessu er auðvitað ekki sagt mikið annað, en það, sem allir stjórnmálaflokkar og yfirleitt allir landsmenn vilja. Ef í staðinn fyrir „ríkisrétt íslands" er sett hið spaklátara orð „landsréttindi ís- lands“ þá fáum vér ekki betur séð, en að Heimastjórnarflokknum og stjórn vorri hafi þegar tekist að fá fyrra at- riðinu fullnægt. Vér fáum ekki betur séð, en að konungur vor, með því að kveðja bæði löggjafarþingin (íslands og Danmerkur) til þess sem jafn réttháa málsaðila að gera tillögur um og semja og samþykkja á sínum tíma lög um samband landanna framvegis, hafi þeg- ar viðurkent full landsréttindi íslands. En að þessu hafa Landvarnarmenn alls ekkert stutt. Blöð þeirra voru þvert á móti mjög andvíg skipun sam- bandsnefndarinnar, og nú láta þau ekki sitt eftir liggja, að gera hana sem tor- tryggilegasta í augum þjóðarinnar, hvenær sem þau minnast. á hana. Hina gætilegu fjármalastefnu sína auglýsa Landvarnarmenn með því, að þeir vilja berjast fyrir því með hnúum og hnefum, að ísland verði ríki út af fyrir sig eða í konungssambandi einu við Danmörku. Auðvitað hafa þeir ekki til þessa gert neina ábyggilega áætlun um, hve mikil aukin útgjöld þetta myndi hafa í för með sér, enda verð- ur að virða þeim það til vorkunnar, því þeir eru alls ófærir til sliks og vita yfirleitt ekki um hvað þeir eru að tala. En úr öllum vaðli þeirramá þó draga þá ályktun, að jafnvel þeir hugsa sér vart minni aukin gjöld, en liðugan fjórðung úr miljón króna ár- lega. Allir skynsamir menn vita, að þetta er vart helmingur þess, sem kostnaðurinn í minsta lagi hlyti að verða, og er engin furða þótt mörgum virðist slíkt koma miður vel heim við gœtilega fjármálastefnu. Afleiðingar hinnar gœtilegu fjármála- stefnu í innanlandsmálum, eins og Landvarnarmenn virðast skilja hana, hefir Jón Þorláksson nýlega sýnt mjög ijóslega fram á í fyrirlestri, sem prent- aður er í „Lögréttu" og sem sendur mun verða út um land, svovérslepp- um því atriði hér. Um fjármálapólitík stjórnarflokksins segir bréfshöfundurinn, að hana megi marka af því, að viðlagasjóðnr sé nær- felt horfinn og hálfrar miljónar króna lán eigi nú að taka hjá D'ónum. Og svo bætir hann því við, að símafyrir- tœki stjórnarinnar muni ekki reynast arðsöm, svo ekki sé á því að byggja., að þeir peningar komi aftur, sízt i bráð. Þó sjálfsagt megi nú töluvert afsaka margar af vitleysum þeim, er höfund- ur þessi hefir látið sjást eftir sig síð- an hann fór að rita og ræða um op- inber mál með því, að hann er þekk- ingarlítill gjálfrari í þeim málum flest- um, þá virðist varla geta verið því til að dreifa hér, heldur beinlínis ósann- sögli. í þessu blaði er á öðrum stað skýrt frá, hvernig hagur landssjóðs var við árslok 1906; áður var búið að gera það i „Lögréttu" 4. marz þ. á. og nú er ágrip af landsreikningnum komið út, svo menn eiga kost á, að sjá það með eigin augum. Hvernig hagur landssjóðs hefir verið við árslok 1907 er enn eigi fullljóst, þar eð þeir reikningar eru eigi búnir; en eftir öllum gögnum, sem íyrir hendi eru og eftir því, sem stjórnin hefir lát- ið uppi, er engin ástæða til að ætla, að fjárhagurinn hafi versnað að mun á þessu ári. Þetta mun höfundinum eins vel kunnugt og öðrum. eða hann hefði þó alténd getað fengið um það réttar upplýsingar, ef tilgangurinn hefði verið sá, að skýra rétt frá, í stað þess, að hann virðist hafa verið sá einn, að rægja stjórnina og stjórnarflokkinn. Höfundurinn vill auðsjáanlega í grein sinni í „Norðurlandi" sem minst minn- ast á þetta atríði. Hann segir að mál þetta hafi nýlega verið rætt í „Norður- landi" og vilji hann því ekki þreyta merm á því. En annars telur hann beztu sönnunina þá, að þingið hafi samþykt 500,000 kr. lántöku, því það hafi verið gert vegna þess, að lands- sjóð hafi skort fé. Yér viljum nú ekki þreyta menn á, að minnast hér mikið á fjármálarit- gerðir „Norðurlands“. Þær eru eins og allir vita, sem hafa haft þolinmæði til að lesa þær, að eins léleg uppsuða úr ræðu dr. Yaltýs Guðmundssonar í efri deild í sumar sem leið, ræðu sem heita má að nafnfræg sé orðin fyrir ranghermi og vitlevsur. En um 500,000 kr. lántökuna er það að segja, að höf- undarinn hlýtur að vita, að þingið sam- þykti alls eigi lántöku, heldur að eins lántökuheimild handa stjórninni til að nota, ef á þyrfti að halda, til þess að framkvæma ritsima og talsímafyr- irtæki þau, sem þingið samþykti. Lánið er ótekið enn, og það er enn alveg óvíst, hvort á því þurfi að halda eða hvort landið getur af eigin efnum staðizt þessi áður nefndu útgjöld. En þó á þessari lántöku þyrfti að halda, þá mundi það engin sönnun vera fyrir því, að hagur landssjóðs eða viðlagasjóðs væri í hnignun. Guð- mundur Hannesson er eflaust ekki svo skyni skioppinn, að hann hafi nokkurn tima ímyndað sér, að viðlagasjóðurinn sé fúlga, sem geymd sé í kistum eða skápum stjórnarinnar. Hann veit að viðlagasjóðurinn er að mestu leyti í útlánum til landsmanna, sveitarfélaga, «-J'i i.ih,i.hiiHjUU.h ■ ...i m .,iui i.iii ■ i mi.u,ili,.ii*w855ft Úrsmíðavinnustofa I Carl F. Bartels | ■ Laagavegi 5. Talsírai 137. j bæjarfélaga sýslufélaga og einstakra mann t.il arðberandi fyrirtækja —bein- linis eða óbeinlínis. — Og hann veit, að það mundi verða óbætanlegur hnekkir fyrir landið í heild sinni, ef þetta fé væri heimt inn með stuttum fyrirvara — þó hægt væri — svo að það væri betra að taka fé til láns >ó með okur- vöxtum væri, hvað þá með góðum vaxtakjörum. Hvað snertir símafyrirtæki landsins, þá má lengi deila um, hvort þau séu arðsöm fyrirtæki eður eigi. Þau hafa að vísu eigi enn látið í té svo mik- inn beinan arð, að svari vöxtum aí stofnfénu, þvi síður fyrning. En þess er að gæta, að því meira sem fram- kvæmt verður af þessum fyrirtækjum, því betur hljóta þau að borga sig bein- línis, því kostnaðurinn við starfræksl- una vex ekki að sama skapi sem sím- unum fjölgar, en það gera tekjurnar af þeim. Urn hinn óbeina hag af þessum fyrirtækjum er ekki hægt að gera áætlun, en bezta sönnunin fyrir því, að landsmenn yfirleitt álita hann töluverðan, virðist oss vera sú, að allar sveitir landsins sækjast um, að fá síma til sín og margar þeirra með þeim kjörum, að kosta sjálfar tölu- vert miklu til. Alt í alt virðist oss, að þessi fjár- málakafli í bréfinu só augljós tilraun til, að æsa rnenn upp á móti stjórn- inni og nota til þess það ráð, sem reynslan hefir sýnt, að oftast er áhrifa- mest, það nefnilega, að reyna að telja mönnum trú um fjárhagslegan voða. Hversu heiðarleg slík aðferð er, þarf ekki að lýsa nánar. Þá segir höfundurinn, að það sé til nægar sannanir fyrir þvi, að tilætlun stjórnarmanna sé innlimun (íslands í Danmörku!), enda sé sér kunnugtum, að nokkrir heldri stjórnarliðar séu á því máli. Til frekari fullvissu um þetta vísar hann í „Norðurlandi“ til greinar eftir sjálfan sig í „Ingólfi", sem heitir „Sérmálasjálfstæðið". Um þett.a atriði og áminsta grein er það að segja, að aðdróttanir þær, sem þar eru til stjórnarflokksins um innlimun- arfyrirætlanir væru beinlínis svívirði- legar, ef taka mætti orðin eins og þau falla. En það kemur í ]jós hér eins og víðar, að höfundurinn veður reyk í þessu efni. Hann blandar nefnilega alveg saman innlimun og sambandi á milli landa og kallar hvert, Jand inn- limað, sem ekki er sérstakt ríki. Með því móti er auðvitað hægt, að gera innlimunarmenn úr nálega öllum stjórn- arflokksmönnum, því þeir kannast fylli- lega við, að þeir vilji að ísland sé hér eftir eins og hingað til í sambandi við Danmörku. Og einmitt til þess, að gera uppástungur um, hvernig því sambandi skuli fyrir komið eftirleiðis, er nefnd sú skipuð, sem nú situr að verkum í Kaupmannahöfn, en ekki til að innlima landið. Höfundurinn gætir eigi að því, að ef þessi kenning hans væri rétt, þá hefði ísland þegar um mörg hundruð ára verið innlimað Danmörku, því um mörg hundruð ára hefir Island verið hluti hins danska rikis. En sem betur fer er kenningin al- veg röng og sprottin af hugsunarílækju hjá höfundinum. Innlimun (Inkorpora- tion) er það eitt, þegar land eður lands- hluti, sem áður hefir verið sérstakt ríki, gengur á þann hátt inn i annað ríki, hvort heldur af sjálfsdáðum eða hernumið, að það missi öll ráð yfir sínum sérmálum og hafi sameiginlega löggjöf og sameiginlegan fjárhag með hinu ríkinu. T. d. er Pólvei-jaland innlimað Bússlandi, Hannover innlim- að Prússlandi og Færeyjar innlimaðar Danmörku. En að nokkur íslending- ur sé til, sem vill innlima ísland á þann hátt, það ætlum vér, að ekki einu sinni Guðmundi Iiannessyni detti í hug að halda fram, þó hann vilji flest reyna að finna stjórnarflokknum til foráttu. Vér viljum nú láta hér staðar num- ið að svo stöddu. Yér vilduin óska þess, að Guðmundur Hannesson vildi sjálfur sjá og kannast við, að hann er fyrir flestra hluta sakir ófær til að rita og ræða urn stjórnmál. Áður en hann fór til þess, var hann að mak- legleikum vel virtur maður, sem snill- ingur í sinni ment. En það getur ekki hjá því farið, að stjórnmálaraus hans og getsakir og ósannsögli um þá, er hann telur mótstöðumenn sína verði með tímanum til þess, að rýra tilfinn- anlega álit hans, og teljum vér það illa farið. ★ * *■ Símskeyti til „Reykjavíkur". Kaupm.hö/n 27. marz, kl. 10,20 f. h. í landspinginu liafa liægri menn og hinir frjálslyndari íhaldsmenn gert langar atreiðir að Al- bertí, og i fólksþinginu hefur verið bor- in upp tillaga að skipa nefnd til að rannsaka embættisfærslu hans. Stórþingið norska hefur afnumið orður (og tilla) í Noregi. Brot úr ferðasögu. Eg var staddur i bæ austur i Rang- árvallasýslu, var að bíða þar eftir kaffi. Þegar eg hafði beðið nokkrar mínútur, kemur inn einn af heima- mönnum með þau boð, að maður sé úti, sem vilji tala við húsbónda. Hann fer út, og að litlum tíma liðnum koma þeir báðir inn. Eftir að gestur hafði heilsað heimafólki, tekur hann blað úr vasa sínum réttir það að hiis- bónda, og spyr hann hvort hann vilji skrifa nafn sitt undir þetta. Þegar hann rétti það að bónda gat, eg lesið- á því orðið: „Misrétti“. Húsbóndi las það meö nrestu athygli. Þegar hann hafði lokið lestrinum, réttir hann bréfið að gesti og segir: „Æ neit Eg: er litið fyrir þessar undirskriftir, enda skil eg það varia“. Oestur: „Það er um þessa voða meðferð á okkur eftir síðasta þing. Við fáum ekki nærri því alt sem við- báðum þingmenn okkar að útvega okkur úr landssjóði. En í Þess stað- eru sett á okkur öll möguleg gjöld, t. d. viðhald á Holtaveginum 0. fl. Það sýnist þó sem Reykvíkingar ættu að kosta viðhaldið að nokkru leyti, þegar við seljum þeim árlega smjör kjöt og fieira, svo ódýrt sem við með nokkru móti getum. Heldurðu ekki, að það sé munur fyrir þá, að vegirnir séu. góðir sem það er flutt eftir? Svona er þetta alþingi í öllu. Þetta er að- eins eitt lítið dæmi“. Bóndi: Yið heimtum líka alt mögu- legt, og sköpwnum svo þingið fyrir eyðslusemij/en þingmennina okkar fyrir

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.