Reykjavík - 31.03.1908, Blaðsíða 3
REYKJAVIK
51
Sunliöht
Úr Sunlight sápu getur 12 ára barn hæglega
þvegið ]afn mikinn þvott, og gert það betur
en fullorðinn, sem notar vanalegar sápur eða
blautasápu.
Fylgiö fyrirsögninni seni er á öllum
Sunlight sápu umbúOum.
Sápa
ódagnað, ef þeir hafa ekki alt fram.
Svona gengur það. Eitt árið fáum
við mikið úr landssjóði, annað árið
minna. Eg fyrir mitt leyti held að
Rangárvallasýsla þurfl ekki að kvarta.
Á þeim árum, sem brýrnar voru
bygðar og vegirnir lagðir, var mikið
lagt til okkar, og þó sendi engin sýsla
biöðunum óánægjurollu undirskrifaða
af flestum kjósendum sýslunnar. Hvað
mættu ekki Skaftfellingar segja? En
vonandi bætir þingið þeim upp það,
sem þeir hafa orðið útundan“.
Gestur: »Það er ekki satt, að við
skömmum þingið fyrir eyðsluna, að
minsta kosti ekki altaf, við landvarn-
armenn skömmum ráðherrann".
Bóndi: „Er nokkurt réttlæti að
skamma ráðherrann fyrir það? Þing-
mennirnir koma hlaðnir af sníkjum
og áskorunum frá okkur til þings, hver
írá sinu héraði, eins og sjá má á þing-
málafundargerðunum, alstaðar reka
menn sig á sömu orðin: „Fundurinn
skorar á þingið að veitt verði úr lands-
sjóði“ o. s. frv. Hefur þú ekki tekið
eftir því? Þetta kemur úr hverju ein-
asta kjördæmi og svo skammirnar fyrir
bruðiið. Nei! Undir þetta skjal skrifa
eg ekki“.
Gestur: „En undir þettaskjal skrifa
flestir kjósendur sýslunnar, fjöldinn, án
þess að lesa það. Og það okkar bestu
inenn“.
Bóndi: „Ekki trúi eg því, að pró-
fasturinn okkar geri það, ekki Vigfús
á Brúnum, ekki heldur nafnarnir Jón
Sveinbjörnsson eða Jón á Ægissíðu né
Einar á Geldingalæk. Þessa menn tel
eg 1 flokki greindari manna í sýslunni.
Eg er hræddur um að þetta verði okk-
ur heldur til minkunar, ef það kemst
íyrir almenningssjónir. Enda komið
nóg af þessum undirskriftum á síðast-
liðnum árum“.
Gestur: „Fyrst þú ert ófáanlegur
til að skrifa nafn þitt eins og hinir,
svo nær það ekki lengra. En það skal
eg segja þér, að eg hefði ekki hætt
svona fljótt við þig, ef eg vissi ekki
hvað þú ert þéttur fyrir. Eg hef átt
ervitt með margan, en flestir látið
undan".
Síðan kveður hann og fer.
Þegar maðurinn var farinn, spurði
eg húsbónda, hver tilgangurinn væri
með þessar undirskriftir. Hann sagði:
„Tilgangurinn hjá þessum manni sem
ferðast um alla sýslu er sá, að hann
vill sjálfur komast á þing, ásamt öðr-
urn rnauni, sem hefir samió þetta skjal
með lionurn. En þeir vita, að þeir
hafa lit.ið fyigi i sýslunni og því ríður
þeim á að rýra álit síra Eggerts, ef
vera mætti, að það gæti aflað þeim
fýlgis".
Ætli það? segi eg.
„Taktu eftir hvort hann ög annar
maður (sem hann nefndi) bjóða sig
ekki fram næst. mælti bóndi. Jú þeir
vita, að fjöldinn af kjósendum les ekki
alþingistíðindin og má því segja þeim
alt, sem vera vill um þingmennina".
En hvaða erindi eiga menn þessir á
þing? kastaði eg fram.
„En að hjálpa til með atkvæðum
sínurn, að velta Hannesi Hafstein úr
völdurn. Forsjónin þeirra eru þjóð-
ræðis- og landvarnarstjórnendurnir í
Reykjavík. Nú fer annar þeirra bráð-
um suður að tala við þá, og verður
þá auðvitað við messu hjá þeim í anda-
trúarmusterinu, því hann er prestur“.
Eftir að eg hafði þakkað fyrir góð-
gerðirnar, lagði eg af stað. Svona
gengur það til í þessari sýslu, hugsaði
eg með sjálfum mér.
í erðarnaður.
Innan bæjar og utan.
„Stcrllng“ fór héðan t.il útlanda
25. þ. m. Með skipinu fóru Hallgr.
biskup Sveinsson og frú hans, Þórður
Sveinsson spítalalæknir, Magnús Sig-
urðsson cand. jur., Gunnar Gunnars-
son kaupm., Jón A. Egilsen verzlunar-
stj. ú'r Stykkishólmi, Borchost danskur
lögfræðingur og frú hans, Edilon
Grimsson skipstjóii, Magnús Stephen-
sen yngri, A. Obenhaupt farandsali,
M. Kisum Ijósmyndari, ungfrú Regína
Björnsdóttir.
Skattainálanefndin er sezt á
rökstóla. Af nefndarmönnum eru
hingað komnir þeir alþingismenn-
irnir Pétur Jónsson á Gautiöndum og
Óiafur Briem á Álfgeirsvöllum. Guðl.
sýslum. Guðmundsson er enn ekki
kominn, en von á honum fljótlega.
„Yesta“ kom hingað frá útlöndum
norðan og vestan um land 26. þ. m.
Farþegar allmargir voru með henni.
í Ijarvern biskups gegnir prófessor
Þórhallur Bjarnarson embætti hans.
í Skaptafelssýslu er cand. jur.
Sigurður Eggerz settur sýslumaður.
Hann fór austur nú með pósti.
1000 kr. eftirlaun heflr bæjar-
stjórnin hér samþykt að veita Pétri
Péturssyni bæjargjaldkera.
Jóliann Sigurjónsson skáld frá
Laxamýri, hefir samið nýtt leikrit á
dönsku, og verður það léikið á Dag-
mar-leikhúsinu. Jóhann hefir áður
samið annnð leikrit, oinnig á dönsku.
OOOOOO-OOOOOOOOOOCOOO-t
O Klukkur, úr og úrfestar.
5 eömuleiðis gull og silfurskrai
O gripi borgur sig bezt að kaupa á
O Laugavegi nr. 12.
9 Jóhann Á. Jónasson.
OOOOOOO-OOOOOOOOOC
Það heitir Dr. Bung, og var gefið út
af Gyldendals-bókaverzlun í Kaupm.-
höfn.
Búfjársýningu ætla Eyflrðingar að
halda á Grund í Eyjafirði í sumar.
sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu hefir veitt
100 kr. til sýningarinnar.
Fiskiskipið „Kjartan“ eign Bryd-
es-verzlunar hér í bænum, rak á land
á Hvalsnesi í ofviðrinu 24. þ. m. For-
maður skipsins, Jón Jónsson að nafni,
drukknaði, en hásetar allir (18) kom-
ust heilir af. Skipið kvað vera mjög
mikið brotið.
Leiðrétting. í síðasta tbl. „R.víkur"
hefir í ógáti fallið úr fyrirsögn grein-
arinnar eftir „Heimastj.m."; hún var:
Svar til „ Ingólfs“.
V eðurskey ti.
Samkv. athugunum kl. 7 árd.
Marz 1908 Loftvog millim. e-»- <; 0 o* i 3- 8 0* <3 a> 0* pá' e» S» Hiti (C.)
(Rv. 727.1 A 3 iRegn + 4.4
Bl. 732.7 SA 3 Skýjað + 9.4
Þd. 24. {Ak. 736.4 SSA 5 Skýjað -j- 5.5
Gr. 702.5 SA 5 Skýjað + 2.4
Isf. 741.9 SA 5 Regn + 9.0
(Rv. 751.0 ASA 3 Léttskýj - 0.5
Bl. 751.8 V 3 Snjór + 0.1
Mi. 25. ’Ak. 752.5 SSV 6 Snjór + 0.5
Gr. 717.6 ssv 6 Skvjað + 0.2
Isí. 757 3 sv 6 Skýjað + 5.8
(Rv. 742.5 SA 6 Regn + 3.6
Bl. 744.4 S 8 Alskýjað + 4.5
Fi. 26. Ak. 748.4 Logn 0 Skýjað + 3.5
Gr. 714.8 SA 5 Skýjað - 0.5
iSf. 754.0 SSV 1 Regn r 4-7
(Rv. 724.8 A 5 Alskýjað (- 3.0
Bl. 730 4 SA 4 Alskýjað - 4.0
Fö.27. <Ak. 732.5 NV 1 Alskýjað - 2.0
Gr. 798.7 sv 5 Skýjað - 0.6
|Sf. 745.9 s 4 Regn b 3.0
|Rv. 729.3 A 1 Léttskýj - 2.6
Bl. 728.7 s •'i Hálfheið - 3.6
Ld.28. <. Ak. 728.9 sv 4 Hálfheið - 3.0
Gr. 695.0 sv 3 Léttskýj - 5.2
|Sf. 723.6 V 3 Léttskýj + 0.4
(Rv. 729.3 A 4 Alskýjað - 2.9
Bl. 730.1 s 2 Léttskýj - 7.9
Sd. 29. <Ak. 730.0 Logu 0 Heiðskir r 42
Gr. 694.7 Logn 0 Heiðskír 'r- 4.8
ISf. 730.1 Logn 0 Heiðskír =- 2.2
(Rv. 732.1 Logn 0 Heiðskír f- 4.5
Bl. 733.7 S 2 Hálflieið =- 8.0
Má. 30. <Ak. 733.1 ssv 1 Léttskýj 5.8
Gr.
(Sf.
Aths. Veðurhæðin er reiknuð í stig-
um frá 0—12 : 0 = Logn. 1 = Andvari.
2 = Kul. 3 = Gola. 4=Kaldi. 5*=Stinn-
ingsgola. 6. = Stinnings kaldi. 7 = Snarp-
ur vindur. 8 = Hvassviðri. 9. Stormur. 10.
= Rokstormur. 11. Ofsaveður. 12. Fárviðri.
Rv. = Reykjavík. — Bl. = Blönduós. —
Ak. = Akureyri. — (ir. = Grímsstaðir. —
Sf. = Seyðisfjörður.
€ggert Claesseti,
yfirréttarmálaflutningsinaður.
Pósthússtr. 17. Talsími 10.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
A t Í IX IX VI
sem bóRlialdari við verzlun, helzt
hér í bænum, óskar reglusamur mað-
ur, sem hefir góð meðmæli frá verzl-
unarskóla utanlands og einnig frá þeim
stöðum þar sem hann hefir unnið, bæði
utanlands og innan. Ritstj. vísar á.
ftf.]
C. Jsachsen £ Co.
Kristiania.
Telegrafadr.: I s a c h.
Umboðsverzlun og kaup á öllum ís-
lenzkum afurðum. Hefir til sölu hey,
hálm, hafra, kartöflur o. fl.
___________________[—1. apr.
lÁtill bátur hentugurvið hrogn-
kelsaveiðar óskast til kaups. Ritstj.
vísar á.
Kappg’líma.
Samkvæmt því, sem áður er aug-
lýst, fer fram kappglíma um siifur-
skjöld þann, er glímufélagið Ármann
hefir látið gera til heiðurs mesta glímu-
manni Rvíkur, á miðvikudagirm 1.
apr. kl. 8V2 síðd. í Iðnaðarmanna-
húsinu.
Nánara á götuauglýsingum.
Rvík 27. marz 1908.
Stjórnin.
jldaría Jöhannsðóttir
les upp í siðasta sinn kafla úr sdgu
sinni „Systurnar frá Grænadal“, aðra kafla
en lesnir hafa verið áður, í samkomusal
K. F. U. M. föstudaginn 3. apríl kl. 8'/2
síðdegis.
Aðgöngumiðar fást keyptir á afgreiðslu
„Reykjavíkur“ fimtudag og föstudag og
við innganginn og kosta 50 aura.
Tll leiðbeiningar.
Hreinsunarmiðar Áburðarfélagsins
eru seldir í verzlun Einars Árnasonar
Aðalstræti, verzlun J. Zimsens Hafn-
arstræti, vinnustofu Baldvins Einarson-
ar Laugaveg nr. 11. verzlun Jóns
Helgasonar Laugaveg nr. 45.
Keyrslumaður Guðmuudur Jónsson,
Hverisgötu nr 53, Telefón nr. 52,
hefur áburð til sölu.
Ef ykkur vantar góða töðu, þá er
hana að fá hjá mér, góðan vagnhest
líka.
Mig er að hitta á Laugavegi 8 á
þriðjudögum kl. 10—11 f. h.
Kristján Magnússon,
Korpólfsstöðum.
Til sölu er hér í bænum gott hús
tveggja ára gamalt, með stórri og
góðri lóð. Ágætt Yerð og þægileg
borgunarskilyrði. Ritstjóri vísar á.
Á Vopnafirði er í óskilum bókapakki,
sem inniheldur 40 stafrófskver eftir
Hallgrím Jónsson, gefin út af Sigurði
Jónssyni frá Álfhólum. Pakkinn er
merktur „Jón Sighvatsson Vopnafirði".
Eigandi bókanna getur vitjað þeirra tiJ
undirritaðs gegn borgun fyrir auglýs-
ingu þessa.
Vopnafirði í marz 1908.
Ó. íriðgeirsson,
verzlunarstjóri. [—15
150 króna prjónavél
(alveg ný) er til sölu fyrir alt að 100
kr. mót peningum. Skifti mót öðr-
um hlutum geta líka komið til mála.
Ritstj. vísar á.
3 íbúdir fyrir minni fjölskyldur
eru til leigu frá 14. maí á góðum
stað hér i bænum. Lysthafendur snúi
sér til Jóns kaupm. Þórðarsonar Þing-
holtsstræti 1.
Til leigvL
á Stýrimannastíg 12 frá 14. maí 3—
4 herbergja íbúð með ýmsum þæg-
indum og hlunnindum.
Taltid eftir!
Fyrirtaks
reyktóbak
í stuttar pípur. í lausri vigt á
1 krónu pundið.
25 aura ■/. pund
fæst í
Nýhafnardeiidinni i
Thomsens jlíagasíni.