Reykjavík

Útgáva

Reykjavík - 03.04.1908, Síða 2

Reykjavík - 03.04.1908, Síða 2
56 REYKJAVIK „Það er langt síðan Frank iðraðist, er það ekki satt, Frank“, spurði sjúk- lingurinn". „ Eg hefl aldrei iðrast þess, að fara að ráðum yðar“, svaraði Frank. „Eg vona að þið séuð góðir vinir frændurnir", sagði öldungurinn. „Svo er það hvdð mig snertir", svaraði Felthorpe. „Eg hefl enga á- stæðu til annars en að bera vinarhug til Franks. Þó ég kunni fyrrum að hafa öfundað hann dálítið, þá er nú ekki framar um það að ræða“. Það heflr svo margt á dagana drifið fyrir mér á umliðnum árum, að eg er nú orðinn reyndari og gætnari. Eg iðrast hvorki eftir að ég hafnaði kvon- fanginu né horfi í skaðann, sem yður þóknaðist að láta þá synjan mína hafa í för með sér. Ég fór þess þá ekki á leit að þér færðuð neinar ástæður fyrir breytni yðar gagnvart mér, og geri það ekki heldur nú. Mér þykir mjög vænt um, að þér mintust mín enn svo hlýlega, að þér óskuðuð þess, að ég kæmi hingað nú“. „Ég hefl ætíð borið hlýjan bug til þín“ svaraði sjúklingurinn. „Mér gramdist að eins ólukku stífnin í þér. En þú fórst þína götu, þó þú vissir, hvað þú ættir í húfi. Þú munt vera sami þverhausinn enn sem fyr?“ Frank tók hönd gamla mannsins og þiýsti hana hlýlega. „Já, ég er sami þverhausinn, og ég ímynda mér að ég mundi ekki vaxa í áliti yðar við það, ef ég hefði skift um skapferli". „Frank“, sagði gamli maðurinn, „réttu mér tóbaksdósirnar mínar". Frank tók dósirnar af borðinu og rétti honum. Dósirnar voru afarmiklar og alsettar dýrum steinum. Á miðju lokinu var mynd af Karli I. Englakon- ungi. Utan um myndina vaf þéttsett röð af stærri og smærri gimsteinum, og voru dósirnar því ákaflega mikils virði. „Asninn, sem þykist vera að reyna að iækna mig“, sagði gamli maðurinn, „stendur fast á því, að dósirnar eigi að\yera svo langt í burtu, að ég nái ekki í þær sjálfur. Hann heldur, flónið að tarna, að ég muni taka minna í neflð, ef ég þurfi að láta rétta mér dósirnar. En honum verður nú varla að því“. „Reynið þér nú ekki of mikið á yð- ur“, sagði Frank. ,'.Þegar komið er í andlátið verður að hafa hraðann á, svo maður geti sagt það, sem segja þarf, áður en það er um seinan .... Ég gef þér Ge- org að mér látnum þessar tóbaksdós- ir, með öllu sem í þeim er. „Ég er skolli hræddur um“, sagði Felthorpe brosandi, „að það verði ekki mikið eftir í þeim, ef þér hafið þær svona nálægt yður“. „Hann Frank“, hélt gamli maðurinn áfram, „mun varla fara að telja eftir þér annað eins lítilræði og dósirnar þær arna, þar sem hann erfir allar aðrar eigur mínar. Ég gef þér dósirnar vegna þess, að þú ber ættarnafn mitt, og þær hafa gengið þannig mann frá manni síðan Karl konungur gaf forföður okkar þær til minningar um unnin afreksverk. Ég set það að eins upp, að þú fargir ooooooooooooooc Klukkur, úr og úrfestar, | sömuleiðis gull og silfurskraut- 1 i gripi borgar sig bezt að kaupa á Laugavegi nr. 12. Jóhann A. Jónasson. ÖOOOOOOOOOOOOOOOC ekki dósunum til nokkurs manns sem heitir öðru nafni". ^,Ég tek þakklátlega við gjöflnni og geng fúslega að skilmálunum", svaraði Felthorpe. „Jæja, það gleður mig að heyra", sagði gamli maðurinn. „Farið nú til herbergja ykkar og látið ekki þetta verða að misklíðarefni á milli ykkar". Þegar Felthorpe var kominn inn í herbergi sitt kom gamji Brooks þang- að til, hans, til þess að vita, hvort hann þarfnaðist einkis sérstaklega; en aftur á móti fékst hann ekki til þess að skifta sér neitt af Frank Netley eða hirða um hann. Þeir vissu það vel báðir tveir, Felt- horpe og Brooks, að gamli maðurinn mundi ekki fyr verða skilinn við en kona Netleys mundi koma og setjast að þar í húsinu. Sagði Brooks að hún dveldi nú í gestgjafahúsinu hinumegin heiðarinnar og biði þar andlátsfregnar- innar. Gamli maðurinn hafði aftekið það í alla staði, að hún væri eina nótt undir sama þaki og hann, á meðan hann væri á lífi. „Frank var það flón að giftast henni, eftir ósk minni", sagði hann stundum, „og samkvæmt ósk minni kemur hún ekki hér inn fyrir húsdyr meðan ég lifl. Ég get aldrei fyrirgefið Georg mótþróann, sem hann sýndi mér, nó Frank auðsveipn- ina. Báðir eru þeir asnar!“ „Brooks“, sagði Felthorpe, „ég legg á stað undir eins og gamli maðurinn er skilinn við. Eftir jarðarförinni bíð ég ekki. Ég kæri mig ekkert um að hitta þá sem þar verða samankomnir". „En ég verð að bíða þangað til hún er um garð gengin“, svaraði Brooks. „Þú verður þá að koma á eftir mér inn til borgarinnar. Ég hefl afráðið, ef þú enn heldur því fast fram, að lofa þér að taka hlutdeild í fátækt minni. En hugsaðu þig tvisvar um áður en þú staðræður það“. „Ég er staðráðinn í því, herra!“ „Jæja þá. Ef alt um þrýtur, þá getum við skilið“. „Við munum ekki skilja, herra!" Þenna sama dag, klukkan þrjú, dó gamli maðurinn. Hann leið út af með tóbaksdósirnar í hendinni. Tveimur klukkustundum síðar kom frú Netley, fastráðin í því að taka við stjórnar- taumunum þar á heimilinu. (Framh.). TITh AThomsen- Viðbötarbygging viö HAFNARSTR' 17'1819 20 21-22 - KOLAS 12-LÆKJART l-Z • REYKJAVIK • Með „Ceres“ kom m. a.: KartöíTur, Kálhausar, Laukur, Þurkaðir ávextir, Ostur, Niðarsoðin matvæli, Tvíbökur. Linoleum. Gardínuefni. Nýjar tegundir af vindlum og ótal margt fleira. alþingishúsið. Tilboð óskast um bygging viðbætis við alþingis- húsið. Lýsingar og teikningar af hinni fyrirhuguðu bygg- ingu eru til sýnis í stjórnarráðshúsinu hvern virkan dag, kl. 10—4. Tilboðin afhendist í stjórnarráðshúsinu miðvikudag- inn 15. apríl 1908, kl. 2 síðdegis. Stjórnarráðið, 31. mars 1908. Ef þér viljið lifa lengi, þá eigið þér að muna eptir því, að ekkert læknislyf, sem hingað til hefur verið uppgötvað til að varðveita heilsu mannkynsins, getur jafnazt á við hinn heimsfræga heilsubótarbitter H.ína-lífs-elixír. Tæring;. Konan mín, sem mörg ár hefur þjáðst af tæringu og leitað ýmissa lækna er við stöðuga notkun Kína- lífs-elixfrs Waldemars Petersens orðin til muna hressari og eg vona, að hún nái heilsu sinni algerlega við áfram- haldandi notkun þessa ágæta elixírs. y. P. Arnorsen. Hundested. Taugfagigt. Konan mín, sem io ár samfleytt hefur þjáðst af taugagigt og tauga- sjúkleika og leitað ýmissa lækna árang- urslaust er við notkun hins heims- fræga Kína-lífs-elixírs Waldemars Pet ersens orðin albata. J. Petersen timburmaður. Stenmagle. Hin stærstu gæði lífsins eru heilbrigði og ánægja. Góð heilsa er öllu dýrmætari, hún er nauðsynlegt hamingjuskilyrði. Heil- brigði gerir lífið á sinn hátt jafndýr- mætt, eins og veikindi gera það aumt og ömuriegt. Allir sem vilja varð- veita þá heiibrigði líkamans, sem er skilyrði fyrir hamingjusömu lífi eiga daglega að neyta Kína-líf§>elixírs, sem frægur er orðinn og viðurkennd- ur um allan heim, en variö yður á lélegum og gagnslausum eptirstæl- ingum. Gætið þess nákvæmlega, að á ein- kennismiðanum sé hið lögverndaða vörumerki: Kínverji með glas í hendi og merkið í grænu lakki á flösku- stútnum. „Fram“. Fundur 2. og 4. Fimtudag í hv. mán. kl. 8l/2 síðd. í Templara-húsinu. Ostar eru bez t i r í verzlun Einars Árnasonar, Tal8Ími 19. í búðirnap í húsinu Nr. 20B á Lauga- veg, fást leigðar frá 14. maí næstkomandi. Upplýsingar gefur Björn Þórðarson kaup- maður á Laugavcg 20B í Reykjavik. 2—B stór og góð hcrbergi fyrir sköla — nelzt í miðbænum — óskast til leigu á komandi hausti. Tilboð merkt „Skóli“ sendist afgreiðslu „Reykjavíkur“. Herbergi til leigu í húsi Sighvats bankastjóra Bjarnason- ar við Amtmannsstíg. Takid eftir! Fyrirtaks reyktóbak í stuttar pípur. í lausri vigt á 1 krónu pundið. 25 lun v. pund fæst í Nýhafnardeildinni i Jhomsens jYiagasíni. Xhomsens príma vinðlar. Di fd er ómótinælanlega bez/a og langóðijrasta 1» líflryggingarfélagið. —Sérslök kjör fyrir bindindismenn. — Langhagfeldustu kjör fyrir sjó- menn. Allir ættu að vera líftrygðir. Finnið að niáli aðalumboðsm. I). 0STLUND. Rvík. Stór-auðugir geta menn orðið á svipstnndu, ef lánið er með, og þeir vilja ofurlítið til þess vinna. — Biðjið um uppiýsingar, er verða sendar ókeypis. — Reykjavík, — Pingholtsstræti 3. Stefán Runólfs8on. Reynið einu Himii vín, sem eru undir tilsjón og elna- rannsökuð: rautt og hvitt PORTVIN, MADEIRA og SHERRV írá Albert B. Cohn, Knbenhavn. Aðal-birgðir í H. Th. A. Thomoena Magasln. Félagið „LONDON“ tryggir karla og konur gegn alls konar slysum og meiðslum og ýmsum veikindum t. d. mislingum. Nánari upplýsingar gefur Pétur Zóphóníasson. Ilvar á að kaupa öl og vín? En í Thomsens M a g a s í n. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.