Reykjavík - 19.05.1908, Blaðsíða 3
REYKJAVIK
83
þá peninga margfaldlega aftur, svo
að gjöldin til símans, eða símatekj-
urnar íslenzku, verða einmitt til þess
að fylla vasa landsmanna í staðinn
fyrir að tæma þá, eins og »ísafold«
heldur fram.
Upphæðir þær sem nefndar eru í
þessari grein og umsögnin um notk-
un símans af hálfu embættismanna,
alþingismanna og erlendra tíðinda-
manna, er alt eftir umsögn síma-
stjórans. Hann mun fúslega leyfa
»ísafold« að skygnast eftir þessu í
hókum símans, og ætti hún að geta
það án mikillar aukafyrirhafnar. Hún
gæti t. d. látið grenslast eftir þessu
einhvern tíma um leið og hún er
með sinni alkunnu hagsýni að
innbyrða ókeypis hinar daglegu
veðurskýrslur símans. — Önnur blöð
sem skýrslurnar nota borga fyrir það,
eins og lika sjálfsagt er.— Þetta nefnir
»ísafold« ekki, þegar hún er að fárast
um misbrúkun símans, eða ætli að
henni fmnist það ekki minni háttar
ráðvendni þó.
Innan bæjar og utan.
Prestskosning er nú um garð
gengin í Yiðvíkurprestakalli í Skaga-
firði. Þorleifur Jónsson prestur á
Skinnastað í Axarfirði var kosinn.
„HÓlar“ náðust út af Hornafirði.
Skipið var vel þétt. Nákvæma skoðun
átti að gjöra á því á Eskifirði 14. þ. m.
t Gruðjón Gfuðmundsson ráðunautur
varð bráðkvaddur hér að kvöldi 13. þ. m.
Nokkra daga undanfarið hafði hann verið
á Landakotsspítalanum og þar verið
skorið af honum æxli, sem hafði tek-
ist vel og var það sár gróið. Guðjón
heitinn var síðustu árin ráðunautur
Búnaðarfélagsins, einkurn að því er
snerti kynbætur búpenings. Hann var
36 ára að aldri.
Breiðaflóaháturinn „Reykjavík“
fór héðán vestur að kvöldi 12. þ. m.
Næsta morgun snemma var skipið
2 vikur sjávar undan Skógarnesi. ftakst
það þar á fullri ferð á blindsker og
brotnaði svo, að það sökk innan hálí-
tima.
Menn björguðust allir á skipsbátunum
og póstflutningur, en annar farmur
allur týndist með skipinu, því nær
allur óvátrygður, og verður því tjónið
mörgum æði tilfinnanlegt. Farþegar
með skipinu voru um 20.
„Eskjærg" fór í strandferð (fyrir
„Hóla") austur og norður um land að
morgni 16. þ. m. Meðal farþega voru
Pétur Jónsson alþm. á Gautlöndum á
heimleið úr skattanefndinni og Björn
kaupmaður Kristjánsson, er fór snöggva
ferð til Djúpavogs.
„Mj<51nir“ kom af Vestfjörðum á
sunnudagsmorguninn var. Sighvatur
Bjarnason bankastjóri kom hingað með
skipinu úr heimsóknarferð sinni til út-
búa íslandsbanka. Allmargt farþega
að vestan var og með skipinu.
Samsöngur var haldinn í Bárubút
ÖOOOOO-OOOOOOOOOOCCXK3-OOOC
n r
Klukkur, up og úrfestar,
| sömuleiðis gull og silfurskrauf-
1 BPipi borgar sig bezt að kaupa á
Laugavegi nr. 12.
Jóhann Á. Jónasson.
JOOOOO-OOOOOOOOOC
á sunnudagskvöldið, til ágóða fyrir
barnahælið „Karitas". Þar sungu
ungfrú Elín Matthíasdóttir og læknir
Th. Balslev af „Isl. Falk“. Elín söng
vel að vanda, einkanlega tókst lagið
„Humleranken" ágætlega. Læknirinn
söng einnig mjög vel og sum lögin
alveg prýðilega, t. d. má nefna „Friih-
lingsglaube" og „Rondo“ úr „Romeo
og Julie“, sem varð að endurtaka.
Ungfrú Kristrún Hallgrímsson lék á
Flygel og G. Rasmussen lék nokkur
lög á fiðlu.
Samsöngurinn var vel sóttur.
í bréfkaíla úr Stykkishólmi í 15.
tbl. »Reykjavíkur« þ. á. segir svo:
»Óánægja er hér mjög mikil yfir því
hvernig gengið hefir í vetur með
póstinn úr Borgarnesi hingað. Ur
flestum ferðurn vantar böggla«.
í tilefni af þessu votta ég að hér
á póstafgreiðslunni hefir ekki orðið
eftir einn einasti böggull, sem með
Stykkishólmspósti hefir átt að fara.
Ég hefi nú þegar spurst fyrir á öllum
bréfhirðinga- og viðkomustöðum
póstsins á leiðinni til Stykkishólms,
og alstaðar fengið sama svarið, að
aldrei hafi neitt orðið eftir af flutn-
ingi þeim, sem pósturinn hefir átt
að taka.
Hér er um misskilning að ræða,
það er ekki trassaskap póstsins, eða
manna þeirra sem eiga að afgreiða
hann, um að kenna, þó útgáfumenn
blaða sendi eigi ætíð með hverri
póstferð blöð sín.
Ég geri ráð fyrir að það séu blaða-
bögglar sem bréfritarinn í Stykkis-
hólmi talar um.
Póstafgreiðshimaðurinn í Borgarnesi.
Kvæði f sunduriausu máii,
i.
Móðurhrygð.
1 miklu mannskaðaveðri misti hún
þrjá efnilega sonu, sem hún sá ekki
sólina fyrir og voru einkastoð henn-
ar í ellinni.
Mér lék hugur á að rétta gömlu
konunni einhverja hjálp, því ég þekti
hana litið eitt frá æskuárunum og
fór því að hitta hana.
Hún sat flötum beinum upp á
rúmi sínu, náföl og kinnfiskasogin og
starði agndofa langt langt útí geiminn.
Ég vék að henni, tók í hönd henn-
ar og heilsaði henni, en það var
eins og hún kannaðist ekki við mig
eða hugurinn væri ekki heima.
Ég nefndi þá nöfn sona hennar
látinna — og í sama vetfangi hraut
heit táraskúr af augum hennar og
hún grét langa hríð.
Því næst klappaði hún hönd minni
og sagði:
»Þakka yður fyrír, nú léttir mér.
í hálfan annan sólai-hring hefi ég
verið að berjast við grátinn; ég hélt
að ég væri líka búin að missa
tárin«.
II.
Ég sá þig.
Sólfagri svanni! ég sá þig í fyrsta
skiftið á heiðum vordegi. Ég varð
agndofa af fegurð þinni og hjartað
í brjósti mér hamaðist eins og það
ætlaði að springa. Fleinn ástar-
guðsins hneit við hjarta mér og
særði mig ólífis-sári.
Trálofunarhriníir.
?
is
14 karat gull frá 8 til 16 kr. stk. Skiif'liólKa úr gulli og silfri. W
OBrjóstnælur, Möttuliiör og Belti. Selur með lágu verði .|I
Jón Sig’iimndsson T
IfJ giillsmiður. Laugaveg ín*. 8. IfJ
Drotning drauma minna og vona,
ég reyndi að firrast þig og losa mig
úr læðing ástarinnar, þvi ég vildi
vera frjáls. En hver sólargeisli minti
mig á augu þín, hver rós á vanga
þinn og morgunsárið brá upp mynd
af hinum heiða svip þínum.
Hver vindblær hvíslaði heiti þínu
í eyra mér. Marílöturinn sólgáraði
var mér ímynd sálar þinnar og hinn
djúpi heiðblái himinn var spegilmynd
þíns hreina, góða og sanna hjarta.
Huiíulki.
Heimastjórnarmaður: „Heldurðu
ekki að ritkornið hans Lárusar sýslu-
manns standi í herini „ísu“ áður en
langt um líður“.
Landvarnarmaðnr: „Henni verður
engin skotaskuld úr að renna því niður.
Hún segir auðvitað, að einhver Þjóð-
ræðismaðurinn í nefndinni hafi samið
það“.
Veðurskeyti.
Samkv. athugunum kl. 7 árd.
Maí 1908 | Loftvog | millim. e-t- <rt- < ct> o £ <-i■ Þ- i o , Veðrátta Hiti (C.)
(Rv. 762.6 Losrn 0 Skýjað - 6.0
Bl. 762.4 .Logn 0 Skýjað - 6.0
Þd. 12, < Ak. 761.3 Logn 0 Skýjað - 4.5
Gr. 726.2 S 2 Sk'ýjað - 3.0
Isf. 763.1 Logn 0 Snjór 1- 2.2
(Rv. 756.9 Logn 0 Léttskýj + 4.8
Bl. 756 7 Logn 0 Alskýjað + 3 5
Mi. 13. < Ak. 755 7 Logn 0 Þoka + 4.9
Gr. 720.6 Logn 0 Þoka -f- 2.5
ISf. 754.9 Logn 0 Skýjað + 6.2
(Rv. 752.2 Logn 0 Heiðskír + 4.1
Bl. 753.2 S 2 |Skýjað + 3.4
Fi. 14. < Ak. 762.7 Logn 0 |Þoka + 3. i
Gr. 717.6 Logn 0 Skýjao + 4.0
|Sf. 753.3 Logn 0 Alskýjað + 2.8
(Rv. 754.4 SSA 4 Skýjað + 7.9
Bl. 756.6 Logn 0 Hálfheið 3.5
Fö. 15. <Ak. 755.5 Logn 0 Þoka 4.0
Gr. 721 5 S 2 Léttskýj 7.0
Isf. 756 4 Logn 0 Þoka 2.2
(Rv. 753.1 SSA 6 Alskýjað + 8.4
Bl. 754.8 S 3 Heiðskír + 9.5
Ld. 16. < Ak. 755.1 S 1 Léttskýj +11.3
Gr. 721.3 S 3 Léttskýj r 8.0
|Sf. 756.7 Logn 0 Léttskýj + 4.0
(Rv. 750.7 A 4 Alskýjað + 4.8
Bl. 751.7 S 1 Skýjað + 9.0
Sd. 17. < Ak. 750.7 ssv 2 Léttskýj + 11.0
|Gr. 716.9 ssv 3 Léttskýj + 6.5
|Sf. 752.0 Logn 0 Regn + 7.8
(Rv. 747.8 ASA 1 Regn + 6.5
Bl. 747.7 SSV 2 Hálfheið + 8.0
Má. 18. <Ak. 746.9 SSA i Léttskýj + 11,5
Gr. 713.0 Logn 0 Léttskýj + 9.0
Isf. 746.9 Logn 0 Skýjað + 7.7
Aths. Yeðurhæðin er reiknuð í stig-
um frá 0—12 : 0 = Logn. 1 = Andvari.
2 = Kul. 3 = Gola. 4=Kaldi. ö = Stinn-
ingsgola. 6. = Stinnings kaldi. 7 = Snarp-
ur vindur. 8 = Hvassviðri. 9. Stormur. 10.
= Rokstormur. 11. Ofsaveður. 12. Fárviðri.
Rv. = Reykjavík. — Bl. = Blönduós. —
Ak. = Akureyri. — Gr. = Grímsstaðir. —
Sf. = Seyðisfjörður.
€ggert Claessen,
yfirréttarmálaflutiiÍHgsmaður.
Póstliússtr. 17. Talsími 1«.
Yenjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
I.O.ö.T. Gyijalíí, t Fi. 21.5.H.8ilii. Inns.e.
Y tit‘lýsiu<>'.
Á síðastliðnu hausti varð það að
samkomulagi með mér og meðkenn-
urum mínum, að halda fræðandi fyrir-
lestra fyrir börnin í skóla mínum einu
sinni á viku til skiftis.
En til þess að fyrirlestrarnir yrðu
sem fjölbreyttastir að efni, áleit ég,
þegar til kom, heppilegast að geta haft
fleirum á að skipa, ef unt væri, og
hefir nú svo til viljað, að auk kennara
skólans hafa gefið sig fram, ýmist eftir
tilmælum mínum eða ótilknúðir, nokkr-
ir menn, sem voru skólanum að öllu
óskuldbundnir, til þess að fræða börnin
um ýms efni með fyrirlestrum; og hafa
jafnvel sumir þeirra talað fyrir börn-
in oftar en einu sinni. Hefi ég veitt
því eftirtekt, að börnin hafa ekki ein-
ungis sótt fyrirlestra þessa með gleði,
heldur hefi ég einnig orðið þess fylli-
lega var, að þeir hafa orðið börnunum
yfirleitt að sannri fræðslu. Leyfi ég
mér þá, samkvæmt skýrri ósk allra
barnanna í skóla mínum og ýmsra af
aðstandendum þeirra, að flytja þessum
mönnum öllum samt opinberar þakkir
fyrir þeirra hönd. Og eigi síður þakka
ég sjálfur, sem forstöðumaður skólans,
þessum ósérplægnu samverkamönnum
mínum fyrir samvinnu þeirra í þax-fir
minna ungu vina.
Skólinn í Bergstaðastr. 3.
14. maí 1908.
Asgrímur Magnússon.
Auglýsing.
Samkvæmt reglugjörð um
veðdeild Landsbankans, staðf.
1. Apríl 1906 greiðir veð-
deildin Idn pau, sem hun
veitir með hankavaxtabrefum,
en Landsbankinn kaupir þau
ekki fgrir peninga fyrst um
sinn. En ef lanþegar óska
þess tekur bankinn að sér
að koma vdxtabréfunum í
peninga, þegar unt verður
að selja þau.
Þetta auglýsist hérrneð al-
menningi.
Tryggvi Sunnarsson.
Ijelga grynjóljsðóttir
(Ensroy)
tekur að sér middlæKuiiii>ar
hvern virkan dag Kl. 11—3.
FraKKastig ir. O A.
Alls konar
tek ég að méx*.
Guðmundur E. Guðmundsson & Co.
Reykjavík:. [ah. bl.