Reykjavík

Eksemplar

Reykjavík - 23.01.1909, Side 3

Reykjavík - 23.01.1909, Side 3
REYKJAVIK 11 mmu PETTA ER HIJN! Sunlight Sápa er sápan sem yöur vantar i þvotta- húsið og á heimiliö. Meö Sunlight þarf als ekki aö nugga, hún varöveitlr hendurnar frá þvl aö veröa hrufóttar peninga Hin leyöinlega stritvinna við þvottabalann veröur yöur til skemtunar, ef pér brúkiö Sunllght Sapu. i5 ybi pakka til pruíu og sparar yðar og föt. fanst dauður um fótaferðatfma síðasta sunnudag. Lá hann í fjörunni, ekki alllangt frá bæjarbryggjunni. Halda menn að hann hafi fallið út af bryggj- unni og annaðhvort rotast eða drukknað. Veður var hið versta, bæði kafald og hvassviðri. Magnús heitinn var hnig- inn á efra aldur, hafði hann áður verið bóndi á Álptanesinu og hreppstjóri þar um mörg ár. Lestrarfálagíð nýja, sem hefir aðsetur sitt á Hótel ísland, hefir orðið margar bækur og góðar. Er tilgangur þess, að geta að mestu leyti fullnægt lestrarþörf Reyk- víkinga, og tekur það því við öllum, sem vilja gerast meðlimir þess. Nýjir meðlimir gefi sig fram við magister Ágúst Bjarnason eða Svein máiafærzlu- mann Björnsson. Miíærishn! Hus óskast til kaups, helzt i Vesturbænum. .lörð til sölu i Reykjavik. Hús i austurbænum til sölu, sama sem engin útborgun. a|3 Elng'ey til sölu. Skifti geta átl sér stað. Um ofanskrifað má semja við kaupmann Bjarna Jónsson, Laugaveg 30 A. |3svar Kaupmannaböfn Stofnsett 1870. VI. Schájcr 8 Co. eothersgade 14. Ulekaiiisk skóverksmidja og heildsölu-fordi af öllum venjulegum tegundum af karla-, kvenna- og barnaskóm, skóhlífum og ílókaskóm. Sterkleiki, gott snið, lægsta verð. Bezta samband fyrir útsölumenn. ikautafélagið hefir stofnað til kapphlaupa á tjörn- inni hinn 81. þ. m., ef veður leyfir. Hadur slasaðist hér á höfninni í gær, úti í kola- skipinu ,,Firda“. Datt kolasekkur ofan á hann og braut fótinu. Maðurinn heitir Guðmundur Gíslason, verkamaður hér í bænum. Bsej arstj ór nar anu á 11. Byggingarnefndargj'órðin samþykt, nema útmælingu til steinolíufélagsins frestað. Synjað uni styrk til barnaskólans í Bergstaðastræti, en samþykt að börn í þeim skóla fái að njóta ókeypis sund- kenslu, og borgarstjóra falið að reyna að útvega börnunum ókeypis böð. Skrautgarðsnefndin skýrði frá, með hvaða kjörum garðstæðið fengist. Tillögur fjárlaganefndar samþyktar með því skilyrði, að lúðrafélagið léki ekki sjaldnar en að undanförnu ókeypis. Útsvör var samþykt að lækka, og láta vinnukonur greiða útsvar. Heilbrygðisfulltrwi var kosinn Júlíus læknir Halldórsson. Laun hans voru ákveðin 600 kr. EUistyrkur var veittur Ólafi Ólafs- syni frá Lækjarkoti 300 kr., í viður- kenningarskyni fyrir langa starfsemi í þarfir bæjarins. Fólkstala í Reykjavík er nú 10968. V eðurskýrsluágrip. jan. Rv. íf. Bl. Ak. Sf. Gr. 17. -f- 2.0 -f- 2,7 -f- 1,9 = 4.6 -f- 1,7 - 5,0 18. -f- 0.6 H- 3.2 -f- 2.0 -f- 4.0 -f- 0.2 - 4,0 19. = 2,0 -f- 3,5 = 4,5 -f- 3,0 +- 1,3 - 6.5 20 + 4.5 + 2,6 + 5,3 3,5 -f- 3,3 - 5,0 21. + í.o -f- 6,1 -f- 1,1 -f- 0 5 + 2,0 - 5,0 22. 0,0 -h 1.9 = 0,1 -f- 1,0 -f- 2,3 - 5,4 23. + 1,6 + 0,7 + 1,6 + 2,0 + 4,7 - 4,0 Rv. = Reykjavík, íf. = Ísaíjörður Bl. = Blönduós, Ak. = Akureyri, Sf. = Seyðis- fjörður, Gr. = Grimsstaðir á Fjöllum. Cggcrt Claessen, yfirréttarmálatlutningsiuaöur. Pósthússtr. 17. Talsími ÍO. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. JARÐARFÖR Jóns sál. Jóuassonar rakara fer fram frá heimili hans Nr. 3 á Laugavegi. miðvikudag 27. þ. m. kl. IR/2 f. h. Aðalfundur hlskipaábyrgðarfél. við Faxaflóa verður haldinn í Bárubúó Mánud. 8. febr. kl. 5 e. h. Ársreikningar framlagðir, kosinn í stjórn 1 maður og 3 virðingamenn. Breytingar á lögum félagsins verða bornar npp á fundinum, en áður sendar prentaðar öllum fólagsmönnum. Tryggvi Gunnarsson. Jónas Gnðlaugsson flytur fyrirlestur um V erðandi-menn, á morgun í „Iðnó“ kl. 6 e. m. Prentvillur í ,Rvík‘ 16. þ. m. í greinipni „Sambandsmálið" í næst- neðstu málsgrein í 2. dálki: meiri hlut- anum les: minni hlutanum. í 4. dálki efst á 2. síðu : ,á morgun* les: á mánudaginn. — í sambandi við það, skal þess getið. að vinur E. M. hór í bænum, mun hafa hlaupið undir bagga á síðasta augnabliki, svo fjár- námsgjörðin fer að líkindum ekki fram i þetta skifti. Auglýsendur, sem þurfa að auglýsa eftír að „Vesta“ er komin, eru beðnir að koma aug- lýsingum sínum til blaðsins í síðasta lagi á Mánudagskvöld. R »Hálfa aðra rúblu skuluð þér fá, og renturnar borgist fyrirfram; séuð þér ánægður með það, þá —« »Hálfa aðra rúblu?« kallaði hinn ungi maður hissa upp yfir sig. »Nú, þér ráðið sjálfur!« — Með þeim orðum fékk kerlingin hon- um úrið aftur. Hinn nngi maður tók við því, og varð svo gramur að það var næstum þvi komið að honum að fara burt. En svo hugsaði hann sig um : hann hafði engin önnur ráð, og svo var það ekki ein- ungis þess vegna sem hann var kominn hingað. »Komið þér þá með peningana 1« sagði hann rustalega. Kerling tók lyklakippu upp úr vasanum, og gekk inn í hitt her- bergið, bak við dyratjaldið. Hinn ungi maður stóð nú einn i herberginu, og hlustaði forvit- inn og gat sér til um hvernig öllu myndi varið; ©Pað hlýtur áreiðanlega að vera i efstu kommóðuskúffunni; lyklana hefir hún alla í hægri vasanum . . . þeir eru dregnir upp á stálhring. . . Einn lykillinn er miklu stærri en hinir; hann gengur auðvitað ekki að kommóðunni. í*ess vegna hlýtnr að vera kista eða skatthol þar inni. Það er bezt að muna það. Slíkir lyklar eiga oft að kistum . . . Svei, viðbjóður, viðbjóður og svívirðing er þetta 1« datt honum alt í einu i hug. Kerlingin kom inn aftur. »Þarna, faðir litli; tín prósent af hálfri annari rúblu, eru fimtán kópek á mánuði, og borgast fyrirfram. Svo eru þessar 2 rúblur frá því áður, fyrir þær borgið þér 20 kópek. Það eru þvi 35 kópek til samans. Eftir því eigið þér að fá eina rúblu og fimtán kópek út á úrið. Gjörið þér svo vel!« »Bara eina rúblu og fimtán kópek. Hvað? »Já, einungis það!« Hinn ungi maður gerði ekki fleiri athugasemdir, en tók við peningunum. Hann horfði á kerlinguna, og hraðaði sér ekkert til brottferðar. Það var eins og hann ætti eftir að segja eða gera eitt- hvað, en vissi ekki gjörla hvað það var. »Það getur vel skeð að ég komi til yðar seinna i dag«, Aljona Ivanowna, með annan pant; ég á mjög snoturt vindlahvlki úr silfri. . . kunningi minn, sem ég lánaði það, lofaði að skila þvi i dag«. Hann stóð kyr og þagði. »Einmitt það; það getum við rætt um seinna, faðir litli«. þaðan i þönkum sinum. Þá var hann ekki farinn að trúa á liug- myndasmið sína, hann belgdi sig bara upp af hinni iskyggilegu, kitl- andi frekjn hugmyndarinnar. Nú aftur á móti, eftir að mánuður var liðinn, var hann farinn að líta alt öðrum augum á málið. Þrátt fyrir öll eintölin sem hann kvaldi sjálfan sig með, um það, hve huglaus og framkvæmdarlaus hann væri, var hann srnátt og smátt farinn að venja sig við að telja liið »ískyggilega hugmyndasmíð« framkvæman- legt, þótt hann væri ekki enn þá orðinn viss um hvað hann myndi gera. Og i dag ætlaði hann einmitt að gera tilraun um fyrirtæki sitt, athuga möguleikana fyrir framkvæmd þess, svo óróleiki hans óx við hvert skref er hann steig áfram. Með hjartslætti og titring í öllum taugum, var hann kominn að gríðarstóru húsi, sneri önnur hlið þess að sýkinu en hin að götunni. Húsinu var öllu skift í smá-íbúðir, og ibúarnir voru alt fátækari iðn- aðarmenn og þess háttar fólk. í báðum portdyrunura og inni í húsa- garðinum mættust þeir sem komu og fóru i sífellu. Þrír eða fjórir húsverðir voru þar til að hafa eftirlit með öllu, sem fram fór. Hinn ungi maður taldi sig hamingjusaman, að hann mætti engum þeirra, og læddist hljóðlega gegnum garðinn og upp stigann til hægri handar. Stiginn var þröngur og dimmur, kannaðist hann við það frá fyrri komum sinum. Hann hafði athugað híbýlin, og féll þau vel i geð; það var engin hætta á að forvitin augu mættu honum í slíku myrkrí. »Hvernig skyldi fara fyrir mér, ef ég einhvern tima fram- kvæmi verkið, þegar ég er svona hræddur nú strax ?« . . . hvarflaði honum í hug, meðan hann klifraði upp á Qórða loft. Hér urðu fyrir honum uppgjafadátar og götuslarkarar, sem báru húsgögn út úr her- bergjunum. Honum var kunnugt um að þar bjó þýzk embættismanns- flölskylda. »Nú, Þjóðverjinn er þá að flytja; þá verður ekki búið í öðru húsnæði á fjórða lofti en því sem kerlingin býr í, um lengri tíma. Það er heppilegt. . . hverju sem fram vindur« . . . hugsaði hann og hringdi dyrabjöllunni hjá gömlu konunni. Bjallan hafði dauft, þurt hljóð, næstum því eins og hún væri úr blikki. Hann hafði gleymt hvernig hljóð hún hafði, nú fanst honum eins og hún minti sig á eilthvað. . . Það fór titringur um hann, svo óstyrkar ▼oru taugar hans orðnar. Dyrunum var strax lokið upp, en að eins i hálfa gátt. Gegnum gáttina starði sú sem húsum réði tortryggnislega á komumann, og það einasta sem sást af henni i myrkrinu, voru tvö

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.