Reykjavík - 23.04.1910, Qupperneq 3
REYKJAVlK
67
Heídið Ewrðlíni og húslíni
yðar jaínan hvitu seni snjó
með því að nota ávaiií
Sunlight sápu.
Lciibelnlngír vlAvikJandi notkun
sdpunnar fylgja hverrl sApustðng.
hann, ef verðið gerist alt of hátt. En se
um naudsyniavöru að ræða, sem menn
ekki eða ekki nema með miklum óhœg-
indum geta án verið, þá má með einokun
sprengja verð hennar býsna hátt upp, áður
en mcnn hætta að kaupa.
Höf. segii’ „fleira ætt en siátur“, og er
það satt. En dvrt má kjöt verða áður en
menn alveg hætta að éta það.
„Kaupendumir ráða verðinu engu síður
en seijendurnir" segir hr. B. B.
Þetta er fráleitlega rangt, sem almonn
setning.
Ef frjáls samkeppin (fult frelsi í viðskift-
um) á sér stað, þá ræður hvorki neinn
einstakur kaupandi né neinn einstakur
seljandi verðinu. Það eina, sem ræður
verði hlutanna þá, er hlutfallið milli
framboðs og eftirspurnar — það og ekkert
annað.
Og að því er nauðsynjavörur (matvörur)
snertir, þá standa framieiðendurnir oftast
betur að vígi en neytendurnir (ltaupend-
urnir).
Ég hafði ekki í grein minni inni fyrri
gefið hr. B. B. neitt tilefni til að taka upp
þykkju fyrir sláturfélagið. Hafði í lienni
ekki annað um það sagt, en það sem hann
hlýtur satt að játa, jafn hygginn sláturfé-
iagsmaður, að félagið reyni að skara eld að
sinni köku, som eðlilegt er.
Nú hefir hann knúið mig til að nefna
einokun þess, og má hann okki saka mig
um það.
Ég hefi ekki enn lagt því þá einokun til
lasts, að eins nefnt hhitinn sinu rétta nafni.
Þvi að allar tilraunir til að takmarka
framboð varnings með samtökum, er til-
raun lil einokunar — í stærri eða smærri
stil, eftir atvikum.
Ég hefi ekki enn með einu orði vikið að
þvi, hvort einokun félagsins hafi verið þess
eðlis, að hún sé ámselisverð eða ekki, eða
ósanngjörn, svo að ástæða sé til að reyna að
reisa skorður við henni cða jafnvel brjóta
hana á bak aftur. Ekki heldur hefi ég um
það rætt, hvort hún hafi að einhverju leyti
gert eitthvert gagn.
En sé honum áhugamál að ræða það mál,
skal ég ekki undan þvi skorast — auðvitað
í öllu bróðerni og vinsemd.
Jón Olafsson, alþm.
Hvað er að frjetta?
Lausar sýslanir, sem ráðherra
veitir. Póstafgreiðslumannssýslanin í Stykk-
ishólmi. TJmsóknarfrestur til 25. mai. Árs-
laun 700 kr. \
Sýslanin sem umboðsmaður í Múlasýslu-
umhoði. Umsóknarfrestur til 15. maí.
Sýslanin sem umboðsmaður í Arnarstapa-
Skógarstrandar- og Hallbjarnareyrar-umboði.
Umsóknarfrestur til 15. mai.
Þeir, sem fá sýslanir þessar, verða að
setja veð, sem stjórnarráðið tiltekur.
l»rlOJi kennari við gagnfræðaskól-
ann á Akureyri var 22. f. m. skipaður sira
Jónas Jónasson frá Hrafnagili.
ArnarorOunnl rauOu hefir þýzka-
landskeisari nýskeð sæmt þá Ketil Ketilsson
i Kotvogi, Ólaf Ketilsson á Kalmanstjörn
og Jón skólastjóra Jónsson í Kirkjuvogi,
fyrir björgun og aðhjúkrun þýzkra skip-
brotsmapna.
Gufubáturinn Hrölfur frá Seyð-
isfirði fórst 30. f. m. undan Selvogi. Vará
leið til Reykjavikur. Enskur botnvörpung-
ur bjavgaði skipverjum, 14 alls, og flutti þá
til Vestmanneyja.
Dáin er á ísafirði 4. þ. m. frújóhanna
Jóhannsdóttir, kona Torfa bæjarfógetafulltr.
Magnússonar, en móðir Magnúsar bæjarfó-
geta á ísafirði, síra Richards bankaþjóns og
þeirra systkina. Hún var um sjötugt.
Hafisfregnir þær, sem hingað bár-
ust að norðan i vilcunni sem leið, reyndust
sem betur fór ósannar. Hafís hefir ekki
sjezt enn, nema einhver hroði 2—3 mílur
undan Horni.
FjárkláOa hefir orðið vart á Grróu- |
stöðum við Grilsfjörð í Barðastrandarsýslu,
og sömuleiðis í Litladal í Eyjafirði.
Dáin er 31. f. m. að Tungu í Skutuls- ]
firði ekkjau Eleonora Kr. Pjetursdóttir, 78
ára, ekkja Odds sál. Tyrfingssonar, er lengi
bjó á Hafrafelli i Skutulsfirði. Börn þeirra
hjóna voru þau (fuðmunduv sál. á Hafra- I
felli, Ranuveig, kona Rósmundar Pálssonar j
í Tungu, Pjetur, kaupmaður í Bolungavík |
og Oddur, formaður sama staðar.
Bátstapf. Bátur með 3 mönnum fórst |
í Bolungavík á sumardaginn fyrsta (21. þ.
m.). Tveir mótorbátar voru og ókomnir í
gær, og voru menn hálfhræddir um þá. —
Ofsarok hafði verið.
AflabrögO góð við ísafjarðardjúp ut- ]
anvert fyrri hluta þessara viku, og var orð-
in þörf á þvi, því að fiskilaust hefir þar
verið í allan vetur.
frá !ðnium i IjSJn.
A alm. fuxidi stúdenla í Höfn var
það borið undir atkvæði með nafna-
kalli, hvort nokkur þeirra væri sam-
dóma eða vildi réttlæta bankamáls-
framkomu ráðherrans; og svöruðu
allir neitandi, að oss er tjáð —
jafnvel Jón frá Kallaðarnesi.
Sonur Skúla Thoroddsens var til-
lögumaðui’.
Reykjavíkurfrjettir.
Bang vollf ngakvöld. Samsæti
hjeldu nokkrir Rangvellingar á Hótel ís-
land á fyrsta sumardag, og tóku þátt í því
um 60 manns, karlar og konur. Fyrir
heiðursgest, völdu þeir sér ekkjufrú Ingunni
Johnson frá Yelli.
Jón Þórðarson kaupm. bauð gestina vel-
komna, þá var kvæði sungið sem ort hafði
Jón Þórðarson úi' Fljótshlíð. Þá talaði
Þorsteinn Erlingsson skáld um Rangárvalla-
sýslu, menningu hennar fyr og nú. Jón
Þórðarson svaraði þvi fáum orðum, ogbenti
á önnur hjeruð til samanburðar. I’á talaði
síra Olafur Ólafsson, frikirkjuprestur, fyrir
heiðursgestinum, og svaraði hún með nokkr-
um vel völdum orðum. ]Því næst talaði
sira Olafur um breytingar þær, sem orðið
hafi á búnaði í Rangárvallasýslu á síðast-
liðnum aldarfjórðung. Þá talaði Þorsteinn
Erlingsson, og beindi orðum sínum til sessu-
nauts síns, Árna Gríslasonar leturgrafara,
sem svaraði því aftur.
Eftir að staðið var upp frá horðum fluttu
gestirnir síg yfir i hinn stóra sal á Hótel-
mu, og yoru þar leikin ýms lög á meðan
kaffi var drukkið.
Það er liklegt að þessi samkoma Rang-
vellinga hjer í bæ verði til þess, að þeir í
næsta skifti fjölmenni enn þá betur, því að
marga vantaði, som af ýmsum ástæðum ekki
gátu verið með i þetta sinn, þar á moðal
Sighvat Árnason fyrverandi alþingismann,
sem er veikur, en sendi samsætinu skriflega
heillaósk sína. Einn af vidstbddutn.
Próf. 1J, M. ölsen, dr. phil, er
kosinn fjelagi kgl. danska visindafjelagsins.
Mislingar. Einn af farþegum með
„Yestu“ 20. þ. m., Ásgeir Finnbogason
(bróðir Guðmundar mag.), gullnemi frá
Ameríku, var sjúkur, og álita læknar að
hann hefði mislinga. Hann var þegar flutt-
ur f sóttvarnarhúsið.
Jónas Guðlaugsson skáld, áður
ritst.jóri „Roykjavíkur11, fór með konu sina
alfarinn til Norogs 19. þ. ni.
Aldrei jafn ödýrt.
Nýkomið
Alföt (Jakki, buxur og vesti) á Ungiínga 6—14 ára. Verð 8,50—13,50.
Karlmannsföt 15,00—36,00.
Peysur Mærföt karla og kvenna.
Regnkápup og mjög margt íleira.
i Aiisturstræti 1.
Ásg. G. Gunn/augsson.
Binhlejjnr járnsmiður \
•)
getur fengið ársatvinnu á Vesturlandi. Tilboð, merkt ^
» J á r n s m i ð u r «
lok Aprílmánaðar.
sendist afgreiðsln blaðsins fvrir
o J
ELJAN
fer frá Bergen til íslands á moi’gun, 24. apríl.
$ PROSPERO
fer frá Christiania 27. apríl. Kemur sunnan um land. Verður í Reykja-
vík 7. maí. Fer hjeðan norður um land 9. maí.
Afgreiðslan: Timbur- og Kolaverzlunin Reykjavík.
Veturinn kvaddi á miðvikudaginn
með útsy.unings-jeljagangi. Hann var ein-
hver mesti snjóa- og stormavetur, sem menn
muna. *
,,Gott undii’ bú“ segir gamlafólkið
að eigi að verða í sumar. A fimmtudags-
nóttina var 5 stiga frost, svo að það er
enginn efi á því, að vetur og sumar hafa
„frosið saman“.
Seldar fasteignir. — Þingl. 31. f. m.
Sveinn Jónsson trjesmiður (Bókhlöðust.10)
selur þeim Brynjólfi Björnssyni tanniækni,
Lárusi G. Lúðvíkssyni skósmið, Pjetri Þ. J.
Gunnarssyni hótelstjóra, og Steingrimi Guð-
mundssyni trjesmið 2546 ferálna lóð norðan
af Holtsstaðabletti, með Lanfásvegi og
Bergstaðastræti. Dags. 20 marz.
Guðmundur Gamalíelsson bókbindari selur
Magnúsi alþm. Blöndahl húseign nr. 8 við
Lindargötu með tilh. lóð fyrir 8500 kr.
Dags. 4. marz.
Jóhann Jóhannesson kaupm. selurKristjáni
konsúlÞorgrímssyni húseign nr. 38 við Lauga-
veg með tilh. lóð og geymsluhúsi fyrir 19000
kr. Dags. 28. febr.
Kristófer Sigurðsson járnsmiður selur Jó-
haunesi trjesmið Lárussyni nál. 44 ferálna
lóð við Skólavörðustíg 4 C. Dags. 10. marz.
Jón málari Bjarnason, selur Jóhanni
Jóhannessyni kaupm. byggingarlóð við Skóla-
vörðustíg, 300 feráinir, fyrir 600 kr. Dags.
20. marz.
Þingl. 7. þ. m.
Sveinn G. Gíslason Hverfisgötu 36 selur
Sigurði og Þorsteini Ásbjörnssonum húseign
nr. 9 við Klapparstíg með tilh. lóð. Dags.
23. febr.
Sigurður Jónsson og Halldór Gíslason
selja Birni Gíslasyni útgerðarmanni húseign
nr. 5 við Spítalastíg með tiiheyrandi fyrir
8500 kr. Dags. 16. marz.
Björn Gíslason útgerðarmaður selur síra
Lárusi Benediktssyni uppgjafapresti húseign
nr. 5 við Spítalastíg með tilh. fyrir 6770 kr.
Dags. 2. april.
Ólafur Þórðarson Laugaveg 35 selur kaup-
konu Karólínu Sigurðardóttir í Bjarnaborg
hálfa húseign nr. 35 við Laugaveg með tilh.
fyrir 2900 kr. Dags. 22. marz.
Karitas Jónsdóttir ekkja selur Hirti
trjesmið Hjartarsyni bæinn Vik, Lindargötu
21, með tilh. fyrir 2,200 kr. Dags. 19. marz.
Sig'uröur Sigurösson,
alþingismaður Árnesinga,
er með aukaþingi.
í lok sýslufundarins fyrri Laugar-
dag, á Eyrarbakka, flutti Sigurður
alþingismaður Sigurðsson ræðu um
stjórnarástandið hér í iandi. Tjáði
hann sig hlyntan aukaþingi, og vildi
vera með að bindast, fyrir það, ef
„meiri hluti kjósenda" skoi’aði á sig.
Að gefnu tilefni frá einum fundar-
manni, sem vakti athygli á*örðugleik
samgangna um þetta ieyti, lýsti þing-
maðurinn yfir, að hann léti sór nægja
að fá allalmennar áskoranir, þótt ekki
yrði frá meiri hlut allra kjósenda.
[Þetta er símað mér að austan orðrétt
svona, með samþykki hr. alþm. Sig. Sig. J. Ol.]
£eikfjelag Reykjaviknr.
íipiDiaiyeitii
Sunnndag: £4. Apríl
i IðnaðarmannaMsinn.
£eikurinn byrjar ki. 8%.
Tekið á nióti pöntunum í afgr.
Í8afoldar.
Málverkasýnlngin í Templara-
húsinu í síðasta skifti á morgun (sunnudag)
kl. 12—4.
€ggert Claessen,
ytirréttarmAlaflntningsmaðnr.
Pósthnsstr. 17. Talsími 10.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—6.