Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 25.06.1910, Blaðsíða 3

Reykjavík - 25.06.1910, Blaðsíða 3
REYKJAVlK 107 #fih= Hreinar verksmiðjur og hrein og ómenguð sápa standa s nánu sambandi við hrein föt. Það stafar engin hætta af lllliiiiSPi Hún er áreiðanlega hrein og omenguð. Garðar Gíslason & Hay selja Sigurði E. Sæmundssyni húseign nr. 75 við Laugaveg með tilh. fyrir 9,000 kr. Dags. 26. apríl. Gísli járnsmiður Finnsson selur Einari Guðmundssyni húseign nr. 53 við Vestur- götu með tilh. fyrir 3,000 kr. Dags. 17. maí 1902. Sigurður Oddsson bóndi á Gufunesi selur Helga Magnússyni & Co. hálfa húseignina nr. 6 við Bankastræti með tilh. fyrir 9,470 kr. Dags. 3. jtínf. ________ Hæð konunga og drottninga. Belgíukonungurinn nýi er hæstur allra þjóðhöfðingja í Norðurálfunni. Hann er þrjár álnir og þrír þumlungar. Einkennilegt er það, að drottning- arnar í Norðuralfunni eru yfirieitt hærri heldur en menn þeirra. Þannig er það að því er snertir dönsku konungshjónin, og þannig var það einnig með ensku konungshjónin, Játvarð sáluga og drottningu hans. Rússakeisari sýnist blátt áfram lítill í samanburði við^ drottningu hans, og konungurinn á Ítalíu nær drottningu sinni að eins í öxl. Alfonso Spánar- konungur er höfðinu minni, heldur en Victoria drottning hans, og Vilhjálmur Þýzkalandskeisari annast ætíð um að láta drottninguna sitja, þegar þau láta taka ijósmynd af sjer báðum saman. Þótt það muni litlu, sem hennar hátign er stærri, þá er það þó nóg til þess að særa keisarann ofurlítið. lieilsuhælid á Y ífllsföduiii er nú sem næst fullgert. Ákveðið, að það taki til starfa í ágústmánuði næstk. Sjúklingar sem æskja viðtöku, þurfa að senda umsóknir sem allra fyrst til Sigurðar Magnússonar Jæknis heilsu- hælisins, og verður þeim þá tilkynt hve- nær þeir megi koma. Ákveðið er, að meðgjöfln sje kr. 1,50 á dag fyrir þá sem sofa í sambýlis- stofum, en færist niður í kr. 1,25, ef þeir dvelja lengur en 6 mánuði. Ein- býlingar eiga að greiða kr. 2,50 á dag fyrsta misserið, en 2 kr., ef þeir dveija lengur. — Meðgjöflna á að greiða fyrirfram fyrir hverja 3 mánuði. — í aðra hönd fá sjúklingarnir alt, sem þeir þurfa með: hús, hita ogljós, hjúkrun, fæði og þjónustu, lyf og læknishjálp. Epigrainin. Ógeðslegt er eigin spýju’ að éta; en ennpá meira eðli svíns að eta spýju föður sins. I ,<>■»■> I I i á góðum stöðum í bænum, en þó með afar- lágu verði, geta þeir, sem byggja vilja, fengið hjá mjer. Borgunarskilmálar mjög aðgengilegir. Einnig tek jeg að mjer að gera teikningar af húsum og kostnaðar-áætlanir. Byggingar annast jeg sömuleiðis með hag- sýni og vandvirkni. Lítið á húsin, sem jeg hefi hygt hjer í bænum og munuð þjer þá sannfærast um, að þar eru vönduðustu, smekklegustu og fallegustu húsin. SVEINN JÓNSSON trjesmiöur. Bókhlöðustíg 10. Reykjavík. ° Úrsmíðastofan éI*inglioltBst.3, ltvíll. Huergi vandaðri úr. Huergi eins ódijr. Fullkomin ábyrgð. Stefán Runólfsson. cSo£Í cRrynjólfsson yfirréttarmálaflutningsmaður. Austurstræti 3. Heima kl. II—I* og 4—5. Talsíint 140. Gasáhöld og lampa ótvegar undirritaður, mjög1 vandað oi»' ó* dýrt. Sýnishorn og verðlistar til sýnis. Carl Bartels úrsmiður Laugaveg 5. Talsími 137. J^tbiL J$tbiL '<r 'o 'r rr ó i ð 'r '<r t'' Prentsmiðja D. 0STLUNDS tekur til prentunar: Allskonar bækur — sönglög — blöð — allskonar smáprent- anir — götu-auglýsingar, bréfhausa, reikninga, erflljóð o. m. fl. IVVerkið vandað, en mun ódýrara en hjá öðrum.'^E Talsími 27. Austurstr. 17. Endurskodunar-skrifstofa (Kevisioiis-koiitor) lí> 11 afnarstræti 10. Skrifstofa þessitekur a8 sjer að semja og endurskoða allskonar reikninga og skýrslur, gefur leiðbeiningar um bókfærslu, gerir upp hag einstakra manna og fjelaga og veitir allar upplýsingar, sem að verslun lúta. Einnig útvegar skrifstofan kaupmönnum góð og áreiðanleg sambönd við erlend verslunarhús. Skrifstofan verður opin hvern virkan dag frá kl. 11—2 og 5 —6 síðd. Reykjavík í Maí 1910. Jón Laxdal. €ggert Claessen, yflrréttarmálaflutningsmaður. Pósthúisitr. 17. Talsími 16. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. Aðalfundur Iiin* íslenzka náttúrufræðis- ffclai> s verður haldinn laugardaginn 2. Júlí n. k., kl. 8í Landsbóka- safnskúsinu. Lagabrey tinga-uppástungurnar frá sið- asta aðalfundi verða teknar til nýrrar meðferðar. O í i < * íi o nýkomið í H|F ,Só,pnliIÍ!sid‘ A.nsturstroeti 17. Kostar að eins kr. 1.50 pd. — Sá, sem einu sinni kaupir pað, kaupir ekki annarstaðar. t—3 s. Tækifæriskaup. 30. þ. m. koma 2—3 ágætir skagfirzkir reiOhestar, 6 & 7 vetra, sem seldir verða óvanalega lágu verOI. Uppl. gefur Ásgrímur Magnússon. 6 og ætlaði að fara að spyrja hana, hvort hún væri veik. En hún horfði svo kæruleysislega fram hjá mjer, yfir á veginn, sem lá út í skóginn, og sveiflaði körfunni, sem hún hjelt á í hendinni, svo ungæðislega kringum sig, að jeg gleymdi alveg að tala til hennar hluttekningarorðum þeim, sem jeg hafði hugsað mjer. »Mín er sæmdin, elskuverða frænka«, svaraði jeg. »Annars gæti jeg líka sparað þjer fyrirhöfnina, að ganga þennan langa veg, — vitjað hennar sjálfur, notað tækifærið sem ungur læknir, er hungrar og þyrstir eftir sjúklingum, og leyst þig þar með undan þvi leiðinda-starfi, að standa við sóttarsæng deyjandi manns, en---------« Hún yppti öxlum lítið eitt. »Mjer hafði einmitt dottið þetta sama í hug, og jeg hafði orð á því við hann föður minn«, mælti hún; »en gamla konan er svo sjervitur og þver, og hatar blátt áfram alla lækna, einkum og sjerstaklega unga lækna, svo að hún myndi að öllum líkindum alls ekki fást til þess, að taka inn meðul, sem þú gæfir henni, og þess vegna sagði faðir minn, að jeg mætti til að fara«. »Jeg á þá bara að fylgja þjer, til þess að verja þig gegn umrenningum, ræningjum, eða hvað það nú annars er, sem þú hefir ástæðu til að vera hrædd við? — Það er i sannleika traust, sem — —« »Já, því ekki það?« greip hún fram í fyrir mjer, og bjó sig til að halda af stað. »Þú ert hvort sem er allra mesta hetja, og — auk þess frændi minn«. Jeg hjelt af stað með henni, og — hver getur láð mjer það? — var mjög gramur i geði yfir dutlungum kvenfólksins almennt, og frænku minnar sjerstaklega. Jeg hefði helzt kosið, 3 Heitorð sín skyldi hver maður efna. Jeg skrifaði Friðu aldrei, jafnvel þótt jeg geti ekki neitað því, að fyrst i stað skrifaði jeg brjef á hverjum einasta degi; en mjer til ævar- andi sóma get jeg sagt það, að jeg reif þau ætíð sundur sam- stundis. Þessar brjefaskriftir veittu mjer töluverða hugsvölun, þótt þau færu aldrei annað en í ofninn, því að á þennan hátt gat jeg þó komið því út, sem annars ætlaði að sprengja brjóst mitt. En hinu vona jeg að enginn hneykslist á, þótt jeg reyndi að beita ýmsum brögðum til þess að fá frjettir af unnustu minni. Þannig skrifaði jeg t. d. blessuninni henni gömlu frænku, tilvonandi tengdamóður minni, ákaflega langt afmælisdagsbrjef. Áður hafði jeg ætíð látið það nægja á af- mælisdaginn hennar, að senda henni venjulegt heillaóskaspjald með blómum eða englamyndum. En nú skrifaði jeg og skrifaði og spurði um allt mögulegt og ómögulegt, og á milli línanna átti hún einnig að geta lesið spurningar um Fríðu. Frændi gamli las ætíð brjef þau, er konan hans fjekk. Jeg fjekk svar aftur, en því miður öðruvisi en jeg hafði vonazt eftir. Frænka gamla Ijet það nægja, að senda mjer stóran kassa, fullan af ýmiskonar slátri og bjúgum og öðrum ágætis- mat, og með »beztu kveðjum«. Hún hafði engan tima til að skrifa, hafði hún sett á hornið á fylgibrjefinu. Auðvitað voru bjúgun góð og ljúffeng og vel til búin, eins og vænta mátti frá annari eins húsmóður og frænka min var, en ekki get jeg sagt, að jeg væri samt vel ánægður með þetta svar. í vandræðum mínum skrifaði jeg þá frænda gamla brjef, og spurði hann ráða um eitt eða annað, sem mjer var auðvitað full-ljóst sjálfum. Og í þetta skifti fjekk jeg líka brjef aftur: »Góði drengur minn, hlífðu mjer við svona spurningum, jeg hefi ekkert vit á þessu — spurðu hann pabba þinn að því«. Á þessa leið var svarið. — Og sem síðustu

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.