Reykjavík - 18.02.1911, Blaðsíða 1
1R k í a v i h.
xii., 8
Laug'ardag' 18. Febrúar 1911
XII., 8
Vatnsveitan verður lokuð
Sunnudag'inn þ. 19. þ. m. frá kl. ÍO I. hád. til kvolds.
Stóra rýmingarutsalan
I»já
Arna Eiríkssyni
Austurstrœti 6,
steiidiir yíii* ennþá.
10-40S afsláttnr af ðllu.
Sjómenn.
Þegar þið nú farið til sjós, þó munið,
að þið fáið hvergi ódýrari Nærfatn-
að allan, Rekkjuvoðir og
Rhmteppi, en í
Útsölnnni hjá ýírna €iríkssyni.
A Iþingi.
i.
Alþingi var sett miðvikudaginn 15.
þ. m. eins og lög gera ráð fyrir.
þingmenn voru allir mættir.
KI. 12 á hádegi gengu þingmenn
i kirkju og hlýddu á messu. Síra
Björn Þorláksson á Dvergasteini
steig í stólinn, og lagði út af 1.
brjefi Jóhannesar III, 16.
Lflir messu söfnuðust alþingis-
menn saman í fundarsal neðri deild-
ar, og las ráðherra þar upp boð-
skap konungs um þingsetninguna.
Báðu þingmenn konung lengi lifa
með níföldu húrra-hrópi.
Aldursforseti sameinaðs þings, Júlí-
«s Havsteen, stýrði fundi meðan
forseti var kosinn.
Forseti sameinaðs þings var kosinn
Skúli Thoroddsen með 23 atkv.
Hannes Hafstein Qekk 13 og Ólafur
Briem 1.
Varaforseti var kosinn Sigurður
Gunnarsson með 20 atkv. Ólafur
Briem fjekk 1, og i8 seðlar voru
auðir.
Skrifarar i sameinuðu þingj kosnir
með hlutfallskosningu Sigurður Stef-
ánsson og Jón Ölafsson.
í kiörbrjefanefnd voru kosnir:
Kristján Jónsson, Jón Magnússon,
Sig. Stefánsson, Ben. Sveinsson og
L. H. Bjarnason.
Þá var fundi sameinaðs þings
slitið, en fundir settir í hvorri deild
um sig.
Forseti efri deildar var kosinn
'tieð hlulkesti Jens Pálsson, og fengu
peir gtj^yggQj jiann 0g Kristján
Jonsson.
\ ora/orsetar kosnir Stefán Stefáns-
son með 7 atkv. og Júlíus Havsteen
með 7 atkvæðum.
Skrifarar með hlutfallskosningu
^rislinn Daníelsson og Steingrímur
•^nsson.
Forseti neðri deildar var kosinn
Hannes Þorsteinsson við ítrekaða
kosningu með 14 atkv. Ólafur Briem
fjekk 12; fengu jöfn atkvæði (12
hvor), í fyrra sinni, 2 seðlar auðir.
Vara/orsetar Benedikt Sveinsson
með 14 alkv. við ítrekaða kosningu.
(Við fyrri kosninguna fékk Ól. Br.
2 og 12 seðlar voru auðir), og Hálf-
dán Guðjónsson með 14 atkv.
Skrifarar með hlutfallskosningu
Björn Þorláksson og Eggért Pálsson.
Ráðherra lagði fram stjórnarfrum-
vörp þau er áður hefir verið getið
um hjer í blaðinu, sín 12 í hvorri
deild.
Þá var þingstörfunum lokið þenn-
an fyrsta dag.
Næsta dag, fimmtudag, var eng-
inn fundur haldinn.
í gær voru svo fundir haldnir i
báðum deildum, og nefndir kosnar
í ýms mál.
f efri deild:
Viðskiftalaganefnd: Kr. Jónsson,
Gunn. Ólafsson, Jósef, L. H. B., Ág.
Flygenring.
Utanþjóðkirkjumenn: Sig. Stefáns-
son, Sig. Hjörleifsson, E. Briem, Kr.
Daníelsson, Stgr. Jónsson.
í neðri deild:
Fjárlaganefnd: Skúli Thoroddsen,
Pjetur Jónsson, Sig. Sigurðsson, Bj.
Sigfússon, Eggert Pálsson, Bj. Þor-
láksson, Jóh. Jóhannesson.
Landsreikninganefnd: Ól. Briem,
St. St. Eyf., sr. Hálfd. Guðjónsson.
Fjárkláðanefnd: Jón á Hvanná,
Einar Jónsson, Þorleifur, sr. Hálfd.
Guðj., Pjetur Jónsson.
Pingtimaflutningsnefnd: Jón Ól.,
Sig. Gunnarsson, Þ. Jónsson.
Pingmannafrnmvorp.
Frumvarp til bregttrar stjórnarslcr.
bera þeir fram Jón Þorkelsson og
Bjarni Jónsson.
Frumvarp til hafnarlaga fgrir Rvk.
flytja þeir Magnús Blöndahl og Jón
Þorkelsson.
Landbúnaðarnefnd. Sig. Sigurðs-
son, Ól. Briem og Jón á Hvanná
vilja láta skipa 5 manna nefnd til
þess að íhuga landbúnaðarmál.
Parft op ptt fyrírtæki.
Cand. mere. Rannveig Þorvarðsdótt-
ir, Þingholtsstræti 28, kennari í vél-
ritun í Verzlunarskólanum, hefir sett
upp vélritunarskrifstofu hér í bæ.
Hún vélritar (í íleiri samritum, ef ósk-
að er) alt, sem menn þurfa á að halda,
hvort heldur heima hjá sér, eða hún
tekur vélina með á skrifstofur manna.
Ungfr. Rannveig hefir vélritað fyrir mig
árum saman, og er mér ánægja að
segja, að hún er fljótvirkasti og vand-
virkasti vélritari, sem ég hefi þekt.
Hún gætir ströngustu þagmælsku um
alt, sem hún vinnur. Hún hefir vél-
ritað fyrir mig á ensku, dönsku, þýzku
og fleiri málum.
Hún hefir trygt sér aðstoð til þýð-
inga af útlendum málum og á þau,
og sérstaklega getur hún annast um
vönduðustu pýðing, sem hér mun kost-
ur á, á dómsgjörðum, sem fara eiga
fyrir hœstarétt. Einnig mun hún sjá
um þýðingar á verzlunar-bréfum og
reikningum.
Mér er því ánægja að mæla ið bezta
með henni við alla, sem þurfa á vél-
ritun að halda.
Jón Ólafsson, alþm.,
skrásetjari við Landsbókasafnið,
p.t. form. stjórnarnefndar Verzl.-skólans.
ijorjurnar á yJlþingi.
Menn munu hafa tekið eftir forseta-
kosningunum í efri og neðri þingdeild.
En það sem ménnum kynni að þykja
fróðlegt að vita, er það, að stjórnar-
flokkurinn ætlaði að gera Kristján
Jónsson að fors. í e. d. og Ólaf Briem
að fors. í n. d.; en stjórnarandstæðing-
ar og nokkrir óánægðir stjórnarflokks-
menn og utanflokkamenn ónýttu þau
ráð og réðu kosningum forsetanna.
í efri deild var séra Jens kosinn,
þótt lítt sé fær til forseta, til þess að
leikfjelag Reykjavikur:
Mffilíir í Nesi
(frumsaminn íslenzkur sjónleikur)
verður leikinn í kvöld (Laugardag
18. febr.) og Sunimdag; 19. febr.
kl. $ síöd. í Iönaöarmanna-
Iiúsinu.
eyða einu allra-blindasta fylgisatkvæði
ráðherra.
í neðri deild vildu stjómarliðar bola
Hannes Þorsteinsson, flokksmann sinn,
frá kosningu, að sumu leyti af orsök-
um, sem eigi verða hér nefndar að
sinni, en meðfram fyrir það, að allir
viðurkenna, að hann var á síðasta
þingi alveg óldutdrœgur forseti, en það
mælist illa fyrir hjá stjórnarliðum að
forseti sé réttlátur; þeir vilja hafa hann í
vasa sínum til að beita hlutdrægni.
Það er neðri deild til sóma, að í
henni fanst þó meiri hluti til að virða
réttvísi og óhlutdrægni, og er það góðs
boði.
Ólafur Briem er nú orðinn svo ríg-
negldur stjórnarflokksmaður, að hann
er kosinn í stjórn þess flokks. Forseta-
tignina sótti hann svo fast, að hann
greiddi sjálfum sér atkvæði á flokks-
fundi stjórnliða til forseta-efnis og kaus
sjálfan sig 1 deildinni — en misti
af hnossinu.
Séra Jens var kosinn sem neyðar-
úrræði í e. d. af andstæðingum sínum
aðallega, og svo — þakkaði hann
klökkur fyrir það traust(f) sem sér
hefði sýnt verið með kosningunni.
Mikill er urgur í stjórnarliðinu. Allir
vilja þeir nú losna við ráðherra, og allir
vilja þeir verða ráðherrar sjálfir—því
að það er aðal-óánæjuefni þeirra við
ráðherra, að þá langar alla i sæti hans.
Ekki er ólíklega spáð, að í nœstu
viku gerist þau tíðindi, að ráðh. fái
vantrausts-lýsingu.
Fundur Framfarafjelagsins
á Hótel Reykjavík sunnudaginn 19.
febr., kl. 6.
Umræðuefni: Skemtisamkoma.