Reykjavík - 11.03.1911, Page 1
1R cv fc j a v t k.
Lau^ardag^ 11. Marz 1911
XII., 11 |
„RKYKJAYÍK"
Argangurinn kostar innanlands 3 kr.; erlendis
kr. 3,50 — 4 sh. - 1 doll. Borgist fyrir 1. júli.
Augljjsinffor innlendar: á 1. *)'s' kr- 1.50;
3. O? 4. bls. kr. 1,95. — Ötl. augl- 33’/.°/. hærra.—
Afsláítur að mun, ef mikið er auglýst.
Ritstj. og ábyrgðarm. (AtotAn Runftlfsson,
Pingholtsstr. 3. Talsimi 188.
yí|greiðsla .Reykjavíkur'
er í
SJí^lastræti 3
(beint á móti verkfræðing Knud Zimsen).
Aígreiðsla blaðsins er opin kl. 9—12
árd. og kl. 1—6 síðd. - Talsími 199.
Ritstjórl er til viðtals virka daga
kl. 12—1. — Ping/holtsstr. 3.
A lþingi.
IV.
PingmannafrumYÖrp.
Þegar síðasta blað kom út, voru
frumvörp frá þingmönnum orðin 33
að tölu. Síðan hafa þessi bætzt við :
34. Frv. til laga um lækn-
ingaleyfi. Flm.: Jón Magnússon
(Á aö koma í veg fyrir háskalegt
lækningakák ólæknisfróðra manna).
35. Frv. til laga um breyt-
ing á lögum um stofnun
Landsbanka 18. sept. 188 5,
og lögum um breyting á þeim
lögum 9. júlí 190 9. Flm.: Björn
Kristjánsson. (Aðal-breytingarnar breyt-
ingar á stjórn bankans. Gæzlustjórar
afnumdir. Bankastjórar sjeu þrír, er
ráðherra skipar. Hafi tveir þeirra
6000 kr. hvor í árslaun, en sá þriðji
4000 kr. Bókari hafi 3,500, en fje-
hirðir 5,000 kr. í árslaun. — Ráðherra
skal láta rannsaka allan hag bankans,
að minnsta kosti á hverjum 5 ára
fresti. — Bankinn getur látið eigin
þjóna sína selja verðbrjef og annað
handveð við uppboð á þeim stað, sem
hentast þykir).
36. Frv. til laga um breyt-
ing á lögum um stofnun veð-
deildar í Landsbankanum í
Reykjavík 12. jan. 1900. Flm.:
Björn Kristjánsson. (Takmarkar gjald-
gengi bankavaxtabrjefanna).
37. Frv. t.il laga um breyt-
ing á lögum um vátrygging
fyrir sjómenn frá 3 0. júlí
19 0 9. Flm.: Sig. Sigurðsson, Sig.
Gunnarsson og Þorl. Jónsson. (Allir
Oskimenn á vjelabátum eða róðrarbát-
um, fjórrónum eða stærri, eru skyldir
að vera vátryggðir að minnsta kosti
eina vertíð á ári. Gjald 10 au. fyrir
viku hverja þann sama tíma. Drukkni
vátryggður sjómaður eða deyi af slys-
förum, fá eftirlátnir vandamenn 100 kr.
á ári í 4 ár).
38. Frv. til laga um við-
auka viö ]ög 14. des> i877
um ýmisleg atriði, er snerta
fjskiveiðar á opnum skipum,
og lög 10. nóv. 190 5] um við-
auka við4,nefn_d lög. Flm.: Sk.
Thoroddsen. (Samþykktir samkvæmt
nefndum lögum nái einnig til þiljaðra
vjelabáta, sem eigi eru stærri en 15
smálestir).
39. Frv. til laga um verzl-
unarlóðina í Vestmannaeyj-
u m. Flm.: Jón Magnússon. (Um
takmörk lóðarinnar).
40. Frv. til laga um lög-
gilding verzlunarstaðar í
Herdísarvík. Flm.: Sig. Sigurðs-
son.
41. Frv. til laga um sölu á
prestssetrinu Húsavík með
kirkj u j öfðinni Þorvaldsstöð-
u m. Flm.: Steingr. Jónsson. (Þegar
Húsavíkurkauptún er orðið sjerstakt
sveitarfjelag, má landsstjórnin selja
Húsavíxurhreppi prestsetrið Húsavík
að undanskyldu túni og húsum og
kirkjujörðina Þorvaldsstaði. Yerð eftir
mati dómkvaddra manna, þó ekki
undir 22,000 kr.).
42. Frv. til laga um breyt-
ing á 1. gr. laga 16. nóv. 1907
um skipun prestakalla. Flm.:
Sig. Gunnarsson. (1. Staðastaður:
Staðastaðar-ogBúðar-sóknir. 2. Mikla-
holt: Miklaholts-, Rauðamels- og Kol-
beinsstaða-sóknir. 3. Staðarhraun:
Staðarhrauns- og Akra-sóknir).
43. Frv. til laga um gjöld
til holræsa og gangstjettaí
Reykjavík o. fl. Flm.: M. Bl. og
J. Þork. (Húseigendur skyldir að gera
skolpræsi frá húsum síDum út í götu-
holræsi, þar sem það er. Kostnað við
holræsa-gerð greiðir bæjarsjóður að
mestu. Þó greiða lóðareigendur 2 af
þúsundi af brunabóta-virðingarverði
húseigna sinna við götu þá, sem hol-
ræsi er lagt í, og 45 au. fyrir hvern
meter af lengd lóðar þeirra meðfram
götunni. — Steinlímdar, hellulagðar
og aðrar jafn vandaðar gangstjettir
kostar bæjarsjóður að */s, en þeir, sem
lóðir eiga að götunni þeim megin sem
stjettin er, að f/s. — 10 ára gjaldfrest
getur bærinn veitt á gjöldum þessum.
— Sorphreinsun og salernahreinsun
getur bæjarstjórnin tekið að sjer í öll-
um bænum eða nokkrum hluta hans,
á kostnað húseigenda).
44. Frv. til laga um rjett
kvenna til embættisnáms,
námsstyrks og embætta. Flm.:
H. Hafstein. (Konur eiga sama rjett
og karlmenn til að njóta kennslu og
ljúka fullnaðarprófi í öllum mennta-
stofnunum landsins. t>ær eiga sama
rjett og karlmenn til hlutdeildar í
styrktarfje því, sem veitl er af opin-
berum sjóðum námsmönnum við æðri
og óæðri menntastoínanir landsins.
Þær hafi og sama rjett og karlmenn
til embætta, enda í öllum greinum,
er að embættisrekstri lúta, sömu
skyldur og karlmenn).
45. Frv. til laga um gerð-
ardóm í brunabó^tamálum.
Fim.: Jón Ólafsson, M. Blöndahl og
Ben. Sveinsson. (Ágreining um það,
hvort, að hve miklu leyti og hvenær
brunabótafjelagi beri að borga bruna-
bætur, skal leggja í gerð, ef vátryggj-
andi krefst, og nefnir hvor málsaðila
einn mann í gerðardóminn, en lands-
yfirrjettur þrjá. Oddviti skal vera lög-
fræðingur, og tiltekur landsyfirrjettur
hann. Gerðardómi verður ekki áfrýjað).
46. Frumv. til laga um for-
gangsrj9tt kandídata frá há-
skóla íslands til embætta.
Flm.; Jón Þork. og Bjarni frá Vogi.
(5 árum eftir að háskóli íslands tekur
til starfa, hafa þeir einir rjett til em-
bætta hjer á landi, sem tekið hafa
embættispróf við háskólann — ef sú
námsgrein, sem embættismannsefnið
þarf að hafa lokið prófi í, er þar kend.
Frá þessu má þó víkja, þegar um
kennaraembætti við háskólan sjálfan
er að ræða).
47. Frumvarp til laga um
stofnun fasteigna veöbanka.
Flm.: Bj. Kristjánsson. 4 (Fasteigna-
veðbanka skal stofna í Reykjavík undir
stjórn Landsbankans. Til að koma
honum á fót leggur landssjóður 10,000
kr., og til starfrækslu hans a/» miljón
króna lán, sem endurborgast ekki,
nema bankinn leggist niður. Bankinn
gefur út bankavaxtabrjef, en þó ekki
meira en nemur upphæð þeirri, er
hann á í veðskuldabrjefum. Hann
lánar fje gegn 1. veðrjetti í jarðeign-
um, erfðafestulöndum og húsum með
lóðum í kaupstöðum og sjóþorpum.
Lán út á eina fasteign má ekki fara
fram úr x/a virðingarverðs, en sjeu
minst 10 fasteignir settar að veði fyrir
einu láni, má upphæðin vera allt að
60% af virðingarverði þeirra allra.
Bankinn má greiða lánin í banka-
vaxtabrjefum sínum með ákvæðisverði,
og verður lántakandi að borga kostnað
þann sem leiðir af því, að koma þeim
í peninga, svo og verðfall. Auk vaxta
skal greiða ]/2 °/o af láninu til þess
að standast kostnað við bankann og í
varasjóð. Lán gegn veði í jarðeign
skal lokið á 50 árum, sje veðið nýtt
steinhús, eða steinsteypuhús, á 35 ár-
um, og sje það nýtt timburhús á 25
árum. — Þegar lán er fallið í gjald-
daga, má bankinn láta selja veðið eða
leggja sjer þaðút til eignar án dóms,sátt-
ar eða fjárnáms. Ráðherra skal árlega
iáta rannsaka allau hag bankans, og
greiðist kostnaðurinn við það úr lands-
sjóði).
48. Frumv. til laga um
breyting á lögum 9. febr.
1900 um horfelli á skepn-
u m. Flm.: Jón á Hvanná, Sig. Sig.
og Bjarni frá Vogi. (Hreppsnefnd getur
falið skoðunarmönnum hvenær sem er
að skoða hjá þeim, sem illa fer með
skepnur, áminna þá, og bæta úr illu
meðferðinni á þeirra kostnað, ef nauð-
syn krefur).
49. Frumv. til laga um
breytingar á lögum 16. nóv.
1 9 0 7 um skipun læknishjer-
aða. Flm.: Bjarni frá Vogi. (Dala-
læknishjerað verði tvö læknishjeruð,
og leggist tvær eyjar frá Flateyjar-
hjeraði við annað þeirra).
50. Frumv. til laga um
brey^ting á sveitarstjórnar-
XII., 11
lögum 10. nóv. 190 5. Flm.:
Kr. Daníelsson. (Sveitarútsvar má
leggja á sjómenn, sem róa á útveg
utansveitarmanna, eða eru formenn,
eða taka hlut sinn sjálfir, ef þeir dvelja
4 vikur af árinu í sveitinni. Sömu-
leiðis á menn er aðra atvinnu stunda,
reka verzlun eða búa á jörð, þótt ekki
sje nema 4 vikur af árÍDu).
51. Frumv. til laga um
breyting á lögum um kosn-
ingarrjett og kjörgengi í
málefnum kaupstaða og
h r e p p a. Flm.: Björn Þorláksson.
(Konum ekki heimilt að skorast undan
kosningu fremur en karlmönnum).
Pingsálykturartillðgur
voru síðast komnar 8 f neðri deild og
2 f efri deild. Þessar hafa bætzt við.
í neðri deild:
9. Þingsályktunartillaga
um rannsókn símaleiða.
Flm.: Sk. Thoroddsen. (Um að skora
á landsstjórnina að láta rannsaka,
hvað símalfna frá Arngerðareyri í
ísatjarðarsýslu út á Snæfjallaströnd,
og þaðan norður í Grunnavfk, muni
kosta).
10. Þingsál.till. umstrand-
g æ z I u. B'lm.: Skúli Thoroddsen.
Að stjórnin hlutist til um, að strand-
gæzla fyrir Vesttjörðum verði betri,
einkum fyrri hluta vetrar).
11. Þ i n g s á 1.1 i 11. frá Sk. Thor-
oddsen um fjölgun aukapóstferða og
póstviðkomustaða f Norður-ísafj.sýslu).
12. Þingsál.till. um rann-
sókn brúarstæðis. Flm.: Sk.
Thoroddsen. (Laugardalsá f Nauteyr-
arhreppi).
13. Þingsál.till um strand-
f e r ð i r. Flm.: Skúli Thoroddsen.
(Stjórnin hlutast til um að fjölgað
verði viðkomustöðum strandbátsins f
N.-ísafjarðarsýslu).
V i ð a u k a t i 1 1. frá Sig. Gunnars-
syni (um fjölgun aiðkomustaða á Snæ-
fellsnesi).
14. Þ i n g s á 1.1 i 11. frá Benedikt
Sveinssyni og Bjarna frá Vogi. (Skor-
að á stjórnina að gefa út frímerki
með mynd Jóns Sigurðssonar fyrir 17.
júní næstkomandi).
15. Þingsál. till. um skipa-
afgreiðslumenn. Flm.: Stefán
Stefánsson. Eyf. (Stjórnin hlutast til
um að fjelög, sem njóta styrks úr
landssjóði til strandferða eða millilanda
hafi afgreiðslumann á hverjum við-
komustad).
16. Þingsál. til. um strand-
f e r ð i r . Flm.: Þorleifur. Jónsson.
(Stjórnin annist um að viðunalegt skip
komi í stað »Perwie" og viðkomum
fjölgi á Suður og Austurlandi).
í e f r i d e i 1 d .
3. Þ i n g s á l.t i 11. um fjölgun
aukapóstferða f V.-ísafj.-
s ý s 1 u. Flm.: Kr. Daníelsson.