Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 29.07.1911, Blaðsíða 2

Reykjavík - 29.07.1911, Blaðsíða 2
126 REYKJAVÍK doktorsritgerð G. F. væri „afhent há- skólanum", og sagt, að hun hefði „hlot- ið mikið lof hjá tveim dómendunum, þeim prófessórunum H0ífding og Leh- mann“. [H0ffding er prófessor, en Lehmann dósent). Þetta hefði nú ekki verið neitt til- tökumál, e/ satt hefði verið. En svo leið og beið, unz aftur kom kom símskeyti um, að nú væri rit- gerðin tekin gild. Þá varð suuium að spyrja: þarf oft að taka hana gilda? Ég hefi nú óyggjandi heimild fyrir því liggjandi fyrir framan mig, að 26. f. m. var ritgerðin enn ekki tekin gild, en hitt er satt, að þrír háskólakenn- arar í heimspeki höfðu þá iátið í ijósi, að þeir mundu greiða atkvæði með því — eftir að sumarfrí háskólans er úti —, að taka hana gilda, ef nokkrar nánara tilteknar umbætur væru enn á henni gerðar (hr. G. F: hafði nefnilega sent hana þegar áður fyrir hálfu-öðru ári, en hún þá ekki verið tekin gild). Hr. G. F. er því væntaglega nú að umbæta hana á ný, og fær sjálfsagt að verja hana í haust. Það var nú auðvitað dálítið hégóm- legt, að vera að básúna doktorsritgerð sína í símskeytum og blöðum út um alt ísland meðan hún var enn ekki tekin gild. En það hefði samt ekki verið nema til að brosa að og varla vert að gera að blaðamáli, ef eigi hefði komið fram lygasaga um annan mann í sambandi við þennan básúnu- blástur Mag. G. F. Þeirri sögu hefir nefnil. verið haldið hér á loft síðan í vor (sumir segja hún hafi verið kveikt upp í Kaupmanna- höfn fyrir nokkrum árum), að eitt sinn hafi verið hafnað við Kaupmanna- hafnar-háskóla doktorsritgerð eftir próf. Agúst Bjarnason. Þessi saga er ósönn, því að hr. Á. B. hefir fram að þessari stund aldrei sent eða afhent neinum háskóla doktors-ritgerð, svo að þegar af þeirri ástæðu gat engri slíkri rit- gerð frá honum verið hafnað. Mér dettur ekki í hug, að saga þessi sé kveikt upp af þeim sem hafa haldið henni á loft hér, og ekki eigna ég hr. G. F. hana heldur. En sakir þess tilgangs, sem hún hefir verið notuð í hér nú, þykir mér rétt, að sannleikurinn í máli þessu verði heyrinkunnur. Því sem í myrkr- unum læðist, verður ekki hnekt til hlítar, nema það sé gert opinberlega. J. Ó. Spáddmar Edisons. Thomas Alva Edison er nú hniginn á efra aldur — 64 ára gamall. Hann hefir aldrei í skóla gengið um ævina, en lært alt tilsagnarlaust af bókum. Hann var sonur fátækra for- eldra og varð barn að aldri að vinna fyrir sér sjálfur : fyrst með þvi að seija blöð á strætum úti, síðar varð hann nýjunga-drengur á járnbrautalestum, seldi þar blöð, bækur og ávexti. Af sjálfum sér lærði hann að setja ietur og prenta; keypti sér eina af þessum litiu prentsmiðjum (hraðpressu, letur og áhöld), sem menn geta fengið í Ameríku fyrir 80—120 krónur; setti hann þá og gaf út lítið fréttablað, er hann seldi á járnbrautavögnunum. Síðan keypti hann sér lítið ritsíma- áhald, og iærði af sjálfum sér að síma. Svo fékk hann atvinnu við símritun. — Fróðleiksþorsti hans var óseðjandi, og las hann af kappi efnafræði og eðlisfræði. En ímyndunarafl hans og hagleikur var að sama skapi og var hann gæddur frábæru hugviti til upp- fundninga. Einkum hefir hann tekið ástfóstri við rafmagnið. Eftir að hann varð símriti, rak hver uppgötvunin aðra til endurbóta ritsímanum, og vakti hann fljótt athygii á sér, og loks urðu auðmenn til að styðja hann svo, að hann gæti varið ævi sinni eingöngu til tilrauna og uppfundninga. Upp- fundningar hans smáar og stórar eru óteljandi. Meðal inna helztu og al- kunnustu má nefna: telefóninn1), fónó- grafinn, fjórfeldis-áhaldið (quadruplex- apparatus), en með því má samtímis á sama þræði (síma) senda 4 skeyti í gagnstæðar áttir; hann var og sá sem gerði rafmagnsljósið nothæft. Edison er eiginlega fremur hugvits- maður en vísindamaður. Engin veru- leg vísindaleg uppgötvun liggur eftir hann, en því fleiri uppfundningar. Það er ekki of sagt, að hann er mestur uppfundningamaður síðustu 40 ára. Þetta verða menn að hafa í huga, er menn lesa það sem hér fer á eftir. Það eru spádómar eða draumar hug- vitsmanns, en ekki líkinda-áiyktanir vísindamanns. Edison hefir lítið sem ekki ritað um dagana. Hann hefir heldur ekki ritað þessa spádóma sína, heldur leyft manni frá amerísku mánaðarriti viðtal við sig og leyft honum að rita upp efni viðtalsins. Umtalsefnið var um þær breytingar og byltingar, sem við megum vænta á næsta mannsaldri sem árangri af vísindunum og uppfundningum. Meðal annars, segir Edison, er það ekki nema tíma-spurning, hvenær við verðum færir um að búa til gull úr öðrum málmum, og það fyrir verð, sem ekki fer fram úr $ 25 (95 kr.) fyrir tonnið, en það er lítið meira en járnið kostar nú. Alt efni, segir hann, er í rauninni eitt og sama. Munurinn t. d. á járni og guili er að eins fóiginn í mismunandi fjölda elektróna í ódeilis- ögnum (atómum) þeim sem mynda járnið. En það er hugboð manna eða getgáta, að rafmagnið sé myndað af örsmáum frumögnum, sem eigi tilveru hver út af fyrir sig og geti gengið í samband við ódeilisagnir efnisins. Þess- ar rafmagns-frumagnir eru það sem kallaðar eru elektrón. Þegar menn komast nú svo langt, að við getum breytt mergð elektrónanna, þá getum við gert járn og blý að gulli, og gull að járni eða blýi. Að vér komumst það bráðlega, efar Edison ekki. Segir að það geti orðið á morgun eða hvern dag sem verða vill. En mikil breyt- ing verður þá á heiminum, og um það hefir Jón Krukk aldrei dreymt. Eftir mannsaidur hér frá álítur Edi- son að roenn verði hættir að prenta bækur á pappír; þeir prenti þá á stál- blöð eða öllu heldur á nikkel. Eitt blað af nikkel (Vío^ooo þumlungs á þykt) er ódýrara, sterkara og mýkra i beyg- ingu eða voðfeldara en almennur pappír. Tveggja þumlunga þykk nikkel-bók verð- ur ekki nema eitt pund á þyngd, og í henni verða 40,000 blöð. Þessi 40,000 blöð get ég, segir Edison, búið til fyrir (4 kr. 70 au.). ‘) Bell fann hugmyndina (1876), en Edi- oon gerði hana nothæfa og kom henni í framkvæmd eftir eins árB óþreytandi vinnu (1877). Þá verður stál haft til flestra hluta í staðinn fyrir tré, biátt áfram af þvi1 að stálið er ódýara. Öll framtíðar- húsgögn vor verða úr stáli, og kosta að eins einn fimtung af því sem þau mundu kosta, ef úr tré væru. Verk- smiðja ein í New-York er þegar farin að smíða öll skrifstofu-húsgögn úr stáli; þau eru létt í meðferð, því að stálið er svo sterkt, að af því þarf tiltölu- lega lítið; húsgögnin úr stáli eru svo grannvaxin. Hins vegar telur hann víst, að menn hætti að n'ota stál til húsagerðar. Það er óðs manns æði, segir hann, að halda áfram að byggja hús úr steini með járngrind, þegar steinsteypa með járnþráðum í er bæði betri og ódýrari og getur svo að segja endst til eilífðar. Eftir þrjátíu ár munu öll hús verða úr þessu efni, jafnt smá-hús, skraut- legustu hallir og hæstu turnhýsi, 30— 40 lyftingar. Edison gerir sér ákaflega mikl- ar vonir um inn nýja rafmagns- geymi (storage battery) sem hann heflr fundið upp. Hann mun veita rekstrar- afl til hvers sem vera skal —til sauma- véla, íarmskipa og verksmiðja. Er einkanlega mun hann gera bylt- ingu í landbúnaðinum. Bóndinn mun framvegis hafa vísindalegri mentun en nú. Hver bóndi mun þá kunna jarð- vegsefnafræði og lífseðlisfræði jurta; bóndinn mun þá sitja á stálstóli sínum inni í stofu og iesa i nikkelbók, en þess á milli af og til þrýsta ýmist á lítinn hnapp eða taka í lítið hand- fang — í stuttu máli stýra innan úr stofu sinni öllum rafmagnsvélum, sem verða að verki á akri úti. Fátæktin hverfur úr heiminum á næstu hundrað árum, því að fátæktin kemur af því einu, að mennirnir nota hendurnar einar, en gleyma að nota heiiann. Þegar vér höfum fullkomnað vald vort yfir náttúrunni og öflum hennar, þá verður vinnan okkur skemt- un og ánægja, og þó að hver maður verði ekki milíónari, þá mun hver maður eiga kost á flestum þeim þæg- indum, sem milíónarar einir hafa nú á dögum. Þær vélar, sem nú virðast oss viðundur að flýti og afköstum, eru eins og ekki neitt hjá þeim vélum, sem upp munu koma á næsta manns- aldri; þá munu t. d. vélar spýja úr sér fataefni svo hratt og ódýrt, að jafn- vei inn fátækasti maður hefir efni á að kaupa sér 4—5 nýja fatnaði á ári o. s. frv. En það er ekki nóg með það að fátæktin hverfur; Edison segir, að styr- jaldirnar hverfi Jíka. Herflotastjórn Bandaríkjanna er einmitt nú að gera tilraunir með inn nýja rafmagnsgeymi Edisons, og hann segir sjálfur, afl- geymir þessi geri neðansjávarbátana eða kafskipin svo ógurleg viðureignar að það geti ekki svarað kostnaði framar að byggja fleiri „ódeiga“ („dread- naugts“), en svo nefnast skiptröllin nýju. Um flugvélarnar talaði hann líka og fiug-iþróttina. Kvað engan efa á því, að nú liði eigi á löngu að vér gætum allir farið að fljúga og flogið með 100 enskra mílna hraða á klukkustund (21 d. mílna). En áður en vér getum flogið langt og hættulaust, segir hann að vér verðum að gera nokkuð gagn- gerða breyting á flugvélunum. Auð- vitað eiga þær einar flugvélar fram- tíðina fyrir sér, sem fljúga með væng- jum. En mennirnir verða að læra af humla-býflugunni, segir Edison. Hún flýgur lóðrétt upp í loftið og niður aftur, og það án þess að bæra væng- ina; þeir standa beint út eins og vís- amir á klukku, þegar hana vantar 15 mínútur i 3. Það kemur af því, að sé loftið lamið nógu títt og þétt, þá er það hart sem stál, og humla- býflugan fer beint upp og niður án þess að bæra vængina, að eins með því að lemja loftið ótrúiega hratt með smáum „pinnafjöðrum", sem væng- irnir eru alsettir með á neðra borðinu. Slíkar fjaðrir verðum vér að smíða og fóðra með þeim undirborð vængjanna á flugvélunum, og láta þær slá eins hratt eins og þær gera á flugunni. Að vísu gera nú flugvólarnar all- mikinn skarkala eins og þær eru nú, og hann ykist að stórum mun með þessu móti og yrði lítt þolandi. En um það hugsar Edison ekkert. Hvað gerir það honum til, því að hann má heita alveg heyrnarlaus? Það er hann orðinn fyrir löngu í tilraunastofu sinni. Lesandinn verður að minnast þess, að það er ímyndunaraflið, sem hefir gert Edison að þeim hugvitsmanni, sem hann er — töframanninum mikla, En þegar Edison spjallar við blaða- menn, lætur hann hugann lljúga. Og þá getur verið, að ímyndunaraflið beri vísindamanninn ofurliða. (Þýð. J. Ó.). t Sigfívatur %Jlrnason fyrv. alþingismaðnr. Eins og skýrt var frá í siðasta blaði andaðist hann fimmtudaginn 20. þ. m. á 88. aldursári. Hann var fæddur 29. nóvember 1823 á Yzta-Skála undir Eyjafjöllum. Eor- eldrar hans voru Árni bóndi og sátta- semjari Sveinsson á Yzta-Skála, dáinn 1853, og kona hans Jórunn Sighvats- dóttir, dáin 1885. Sighvatur sái. byrjaði búskap 1843, tvítugur að aldri, í Eyvindarholti undir Eyjafjöllum, og bjó þar góðu búi í 58 ár, en flutti sig 1901 til Reykjavíkur, og var hjer eftir það til dauðadags. Hreppstjóri var hann undir Eyja- fjöllum 34 ár, sáttasemjari í 30 ár, og sýslunefndarmaður í 24 ár. En þjóðkunnastur var hann fyrir þingmennsku sína. Hann var þing- maður Rangæinga 1865—1867, 1. þm. Rangæinga 1875—1891, 1894 1902, 2. þm. Rangæinga 1893 og 1902. Sat alls á 18 þingum. — Hann þótti ætíð góður þingmaður, gætinn og til- lögugóður, frjálslyndur í skoðunum, en þó þjettur fyrir og einbeittur. Hann var á sínum tíma einn af allra beztu liðsmönnum og samherjum Jóns sál. Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttunni. Sighvatur sál. var ávallt mikils met- inn maður, enda sýnir það sig á því, hve mörg og mikilsverð trúnaðarstörf hann hafði jafnan með höndum. Og ávallt þótti samhjeraðsmönnum sjálf- sagt, að leita ráða hjá honum þegar um eitthvert vandamál var að ræða. Hjer í Reykjavík hafði hann lengst af á hendi bókavarðarstörf Alþýðubóka- safnsins, og Ijet sjer mjög annt um

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.