Reykjavík - 16.09.1911, Síða 2
156
REYKJAVlK
að liggja — og fer að halda
»franskar veizlur« eða ðnnur heim-
boð. Jeg vil að eins benda á ann-
að atriði þessu viðvíkjandi. Það
stendur, að þessar 1200 kr. eigi að
notast í sumar, þó er lagt til að
taka upphæðina á fjárlögin 1912—
1913, löngu eftir að hátíðin verður
um garð gengin. Hvernig hugsa
menn sjer, að upphæðin geti komið
í landsreikningunum 1911 ? Jeg
held, að þessi till. hafi komið ó-
vart fram hjer, eða vanhugsað.
Tillagan hefði átt að koma fram
við aukafjárlögin 1910—1911, eins
og styrkveitingin til mag. Guðm.
Finnbogasonar. Af hverju það hefir
ekki verið reynt veit jeg ekki. Nú
er eftir þingsköpum ómögulegt
að koma þessu að í fjáraukalög-
um lengur, því þau eiga að eins
eftir að fara í sameinað þing, og
þar komast nýjar tillögur ekki að,
eins og kunnugt er. En eins og
nú er komið, skil jeg ekki, hvernig
þessi fjárveiting kemur að gagni á
fjárlögum fyrir næsta fjárhagstíma-
bil, nema því að eins að sendi-
herrann kosti ferðina úr sínum
eigin vasa,og eigi svo endurgreiðslu-
rjett á því fje, þegar fjárlögin 1912—
1913 eru komin í gildi«.
Jón Porkelsson: »Jeg skal strax
drepa á þetla atriði. Við gleymd-
um að athuga það, að hjer þurfti
eiginlega fjárveitingu á fjárauka-
lögum. En fyrst það varð nú ekki,
verður að bjargast við það fyrir-
komulag, að forseti leggi sjálfur
fram fjeð fyrst og fái það svo
endurgreitt«.
Benedikt Sveinsson: »Jeg vil
minnast á breyt.till. á þgskj. 930.
Svo er mál vaxið, að á komanda
sumri eru liðin þúsund ár síðan
Göngu-Hrólfur tók ríki í Norð-
mandíi og verða þar hátíðahöld
mikil í minning þessa atburðar.
Forstöðunefnd hátiðahaldsins hefir
sýnt alþingi þá kurteisi, að bjóða
forseta sameinaðs alþingis að taka
þátt í hátíðinni, og fer hún fram
í Rúðuborg og l’arís 9.—11. júní
næstkomandi. Verður þar mikið
um dýrðir, fjöldi manna af Norður-
löndum og úr öllum áttum heims.
Mjer finnst þinginn ósamboðið að
hafna boði hátiðanefndarinnar, því
fremur sem það liggur íslending-
um nær en flestum öðrum þjóðum,
að minnast landnáms Norðmanna
á Frakklandi, því að það er svo
nátengt byggingu íslands. Löndin
byggðust, sem kunnugt er, á sama
tíma og af sömu þjóð, víkingunum
norrænu, og svo var frændsemin
náin, að meðal landnámsmanna
vorra var Hrollaugur son Rögn-
valds Mærajarls, bróðir Göngu-
Hrólfs, að þvi er hinir beztu fræði-
menn vorir hafa ritað í forneskju.
Það má meir að segja fullyrða, að
flestir íslendingar sjeu komnir af
Göngu-Hrólfi sjálfum, þvi að hann
var langafi Ósvifrshinsspaka Helga-
sonar og Einars skálaglamms, að
því er Landnámabók telur, en frá
ósvífi eru miklar ættir komnar. —
Frændur vorir í Norðmandí týndu
að vísu brátt tungu sinni, en engu
*að síður helzt lengi frændsemi og
vinátta með þeim og norrænum
mönnum. Áttu víkingar þar löng-
um friðland. Svo var um Ólaf
konung Haraldsson hinn digra, að j
hann hafði vetursetu með Rúðu-
jörlum, áður hann yrði konungur
í Noregi. Eldi og lengi eftir af
norrænu skaplyndi og fornum
háttum í Norðmandí, jafnvel til
þessa dags.
Jeg liefi minnst á þetla til þess
gð sýna að Jslendingar hafa alveg
sjerstaka hvöt til þess að gefa
gaum þessari 1000 ára hátíð og
sinna boðinu. Eru Islendingar
einnig sú þjóð, sem bezt hefir
haldið þjóðerni hinnar merku og
frægu víkingaþjóðar, er bæði lönd-
in byggði og verðnr því landi vorn
vafalaust sjerstakur ganmnr gefinn
við þetta tækifæri, einknm ef vjer
sendum þangað fulltrúa fyrir
þjóöarinnar liönd. En það er
ekki oft, sem svo ber undir, að
stórþjóðirnar minnast Islands á
allsherjar samkomum, sem athygli
vekja um allan heim.
Bent hefir verið á það, að annar
maður fari hjeðan af landi til há-
tíðarinnar, en það skiftir hjer engu
máli. Hannfersem »prívat«-maður,
en þó hefir efri deild nú ætlað hon-
um styrk til fararinnar. Það væri
ineiri fjarstæða að synja þeim
manni um styrk, sem beint er
boðið af nefndinni sem fulltrúa
þings og- þjóöar og jeg trúi því
ekki fyr en jeg tek á, að þingið
láti sig þann vansa henda.
Fjárveitingin hefði átt að koma
í fjáraukalögunum, en við flutn-
ingsmenn vissum ekki af boðinu
fyr en þau voru samþykkt í þess-
ari deild. En það kemur í einn
stað niður. Forsetinn leggur fjeð
til sjálfur í bráðina.
Atkvœðagreiðsla: Viðaukatillaga
þessi felld með 11 atkv. gegn 11.
Þrír greiddu ekki atkvæði.
Samkvœml þingsköpunum var
mál þetta þar með úr sögunni.
En svo komu fjáraukalögin fyrir
1910 og 1911 fyrir sameinað þing,
og þá komu þeir Jón Þorkelsson,
Bjarni Jónsson fráVogi, Jón Jóns-
son frá Hvanná, Jens Pálsson, Jósef
Björnsson og Benedikt Sveinsson
með svohljóðandi breytingartillögu:
»Síðasti liður 6. gr. orðist svo:
yyFerðastyrkur til þess fyrir
lantlsins iiönil að sækja þús-
und ára þjóðliátíð Normandís:
a. til forsela sameinaðs
alþingis............ 1200,00
b. til Guðmundar meist-
ara F'innbogasonar. . 1000,00
"2200,00
Um tillögu þessa, sem forseti
sameinaðs þings Iiefði átt að vísa
frá sem ólöglega framkominni,
urðu þessar umræður:
Bjarni Jónsson: »Enn fremur
ætla jeg að minnast á aðra breyt-
ingartill., sem hjer er til umræðu
á þingskjali 947, um að forseta
sameinaðs alþ. verði veittur 1200
kr. styrkur til þess að sœkja 1000
ára þjóðhátíð Normandis. Jeg hefi
hjer fyrir framan mig brjef, sem
hv. forseta hefir verið skrifað um
þelta. Öllum er kunn frændsemi
vor við þessa þjóð, og þarf jeg
ekkert að fara út í þá sálma. Nú
hefir forseta alþingis verið boðið
að laka þáll í fiátídalialdi í Par-
isarborg þ. 10.—11. júnimán. á
þessu sumri. Brjefinu fylgir skrá
yfir, hvað gera skuli. Og í niður-
Iagi brjefsins er forseti alþingis beð-
inn að gera bjóðendum þann
lieiönr að vera við hátíðahaldið.
»Sæti mun geymt yður til handa
við hina ýmsu liði hátíðarinnar«,
segir í brjefinu, og að síðustu
kveðja. Brjefið er stílað til forseta
sam. alþ. . og um leið til allra al-
þingismanna, í því trausti, að þeir
muni biðja forsela sinn um að
fara, og verða við hátíðina fyrir
liönd alþ. og landsíns. Jeg
sje ekki, að alþingi geti sóma síns
vegna látið hjá líða að veita fje til
fararinnar og sýna þar með frœnd-
rœkni þjóðarinnar og það, að hún
setji ekki fyrir sig smávægileg út-
gjöld í þessu skyni«.
Steingrímur Jónsson: »Þáertill.
á þingskj. 947 um ferðastyrk til
forseta sameinaðs þings til Rúðu-
borgar og sömuleiðis til magisters
Guðm. Finnbogasonar. Jeg álít að
fyrri liður tillögunnar geti alls ekki
komið hjer til umr., þar sem liann
aldrei hefir legið fyrir hv. efri deild«.
Forseti (Skúli Thoroddsen): »Út
af orðum hv. 4. kgkj. verð jeg að
geta þess, að tillagan er löglega
fiam komin.
Till. um Guðm. magister Finn-
bogason hefir ekki verið rædd i
hv. neðri deild, og það er auðsætt
að ekki getur gengið að sú deildin
sem síðast hefir málið, geti smeygt
inn á laun hverju sem henni
þóknast.
En samkv. 28. gr. stjórnarskrár-
innar*) er þetta sem nýtt atriði
sett inn.
Og með skírskotun til 30. gr.
þingskapanna**) úrskurða jeg þessa
br.till. löglega fram komna«.
Jón Ólafsson: »En jeg bað um
orðið aðallega lil þess að minnast
á eina tillögu, sem hjer liggur fyrir.
Jeg er einn í þeirra tölu, sem álíi
hana greinilegt þingskapabrot. Það
er ekki unt að koma till. að samkv.
30. gr. En jeg sje veg til að koma
kenni að, og þá beinlínis samkv.
*) Hin tilvitnaða 28. gr. [stjórnarskrár-
innar hljóðar svo:
„28. gr. Þegar lagafrumvarp er samþvkkt
í annari hvorri þingdeildinni, skal það lagt
fyrir hina þingdeildina í því formi, sem það
er samþykkt. Verði þar breytingar á gerð-
ar, gengur það aftur til fyrri þingdeildar-
innar. Verði hjer aftur gerðar breytingar,
fer frumvarpið að nýju til hinnar deildar-
innar: Gangi þá enn eigi saman, ganga
báðar deildirnar saman í eina málsstofu, °S
leiðir þingið þá málið til lykta eftir eina
umræðu. Þegar þingið þannig myndar eina
málstofu, þarf lil þess, að gerð vetði fulln-
aðarályktun á máli, að meira en helmingur
þingmanna úr hvorri deildinni um sig sjeu
á fundi og eigi þátt í atkvaeðagreiðsluuni;
ræður þá atkvæðafjöldi úrslilum um hin
einstöku málsatriði, en til þess að lagafrum-
varp, að undanskildum frumvörpum til fjár-
laga og fjáraukalaga, verði samþykt i heild
sinni, þarf aftur á móti að minnsta kosti, að
tveir þriðjungar atkvseða þeirra, sem greidd
eru, sjeu með frumvarpinu", — — £]ns 0g
sjest, er hjer ekki einn stafur, er styðji úr-
skurð forsetans.
**) Það ákvæði þingskapanna, Bem for-
setinn á við, hljóðar svo:
„Þegar lagafrumvörp koma í sameinað
þing, má pó olgi gera breytingartillögur
um önnur atriði en pau, er sú deildin,
er síðast hafði frumvarpið til meðferðar,
breylli við pú umrœöun.
52. gr. þingskapanna*) ef ráð-
herra leyfir«.
Jón Þorkelsson: »Þá sný jeg
nijer að breytingartillögu minni.
Eins og háttv. þingmenn vita, fer
hún fram á það að veita forsela
sameinaðs þings 1200 kr. iil að
fara lil Frakklands og vcra þar
við þúsuinl ára liátíð Norniandís.
Það hefir kornið boð frá forstöðu-
nefnd þessarar hátíðar, sem jeg
skal leyfa mjer að lesa upp í ís-
lenzkri þýðingu.
(Júlíus Havsteen: Megum við'ekki
heyra það á frönsku?).
Jeg hugsa h. háltv. þingmaður
skilji frakkneskuna ekki betur en
íslenzkuna. Að öðru leyti ætla jeg
mjer ekki að fara að standa neitt
»examen« fyrir liáttv. kgk. þm. nr.
1. Brjefið er svo í íslenzkri þýð-
ingu.
»Yjer biðjum yður, lierra forseti,
að gera liátíðanefnd okkar þá æru
að vera í París þá tvo daga, sem
Terða kóróna 1000 ára hátíðar
Normandís. Yður verða ætluð sæti
við liin ýnisu liátíðaliöld«.
Eins og menn vila, hefir eíri
deild að nokkru leyti viljað að
slíku boði væri sint, þar hefir ver-
ið samþyktur ferðastyrkur til eins
einstaks manns til Frakklandsferð-
ar. Hann var seltur þar inn við
síðustu umræðu málsins, og sá
liður hefir aldrei komið til umræðu
í neðri deild. Nú þykir mönnum
fara illa á því, þegar búið er að
veita einstökum manni styrk, að
þá sje neitað um styrk tií farar-
innar handa einumfmanni afþings-
ins liendi. Háttv. þm. Dal. (B. J.)
er að öðru leyti búinn að taka það
fram, sem hjer um þarf að segja,
því að það þarf ekki að skýra það
fyrir háttv. þingi, hvernig hjer stend-
ur á. Sumir landnámsmenn voru
náfrændur Göngu-Hrólfs, sem tók
tjen og ríki í Normandí fyrir 1000
árum. Bróðir hans var Hrollaugur,
sem nam Hornafjörð, og frá hon-
um er komið mikið kyn og merki-
legt. Af honum var komirin Ari
fróði, Gissur jarl, Oddaverjar og
Sturlungar. Frá Göngu-Hrólfi sjálf-
um eru og koninar miklar ættir
hjer á landi, og tjöldi manna þeirra
er nú eru hís vor á meðal, eru
niðjar hans, Ilestir i 30.—33. lið,
svo sem eg lók fram við umræðu
þessa máls i neðri deildinni.
Alkvæðagreiðsla um breytingartil-
lögu þessa við 6. gr. íjáraukalag-
anna: Stalliður a. var samþykktur
með 20 atkv. gegn 17 að viðhöfðu
natnakalli.
Stafl. b. álilinn samþykktur án
atkvæðagreiðslu.
*) Sú grein þingskapanna hljóðar svo:
„Þyki þingdeild eigi ástæða til að gera
ályktun um eitthvcrt málefni, gelur hlín
visað pví tit ráðherransv.
Hretnlee °0 dugleg stúlka getur
fengið góða vist frá 1, október.
Upplýsingar á skrifstofu Steinolíufjelags-
ins. [2]
Hvar á að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Ritstj. og ábyrgðarm.: Stefán Runólfsson.
Prentsmiðjan Gutenberg.