Reykjavík - 21.10.1911, Blaðsíða 3
REYKJAVlK
181
Silfurbergið
Í3EGAR að Sunlight-sápan er
notu6 vi5 þvottinn, þá verður
erfiðið við hann hreinasta
unun. Vinnan verður þá
bæði fljótt og vel af hendi
leyst, þið þurfið ekki að vera
hræddar við að þvo jafnvel hið finasta tau, ef
þið notið Sunlight-sápuna.
SUNLIGHT SÁPA
2238
Nú verðið þið kaupmenn að láta hendur
standa fram úr ermum og gera áminsta
landhreinsun samtaka og prettlaust.
Koma ykkur í samband við nýju þing-
mannaefnin 2 ágreiningslaust.
Samtaka sigrum vér, sundraðir föllum vér.
Innlagt7) er ætlað til útdreifingar um
kjördæmið.
Vinsaml. og virðinganfylst
Björn Jónsson.
Til margs evu þau „þénanleg" bréf-
in hans Björns míns.
Einn af öflugustu fyigismönnum
Jóns Olafssonar ritar honum þannig
11. þ. m.
„Kæri vin.
.............Bréf fyrverandi hágöfgi til
kaupmanna hér, sem þú hefir fengið í hend-
ur, hefi ég afritað og sent i jlesta hreppa
„með þar til þénaniegum11 skýringum. . . .“
Skaði, að blessaður karlinn skyldi
ékki skrifa enn fleiri slík bréf, sem
notuð yrði okkur Jónunum til meðmœla
meðal þeirra, sem þekkja okkur í
Suður-Múlasýslu.
Drottinn þekkir sina.
Og fjandinn þekkir sina.
En gamli Björn þekkir ekki sína —
ekki í Suður-Múlasýslu.
Sjálfsagt verður einhverjum „mokað
út i hafsauga" á Laugardaginn er
kemur.
En hverjir það verða — ja, það
fréttist f vikunni þar á eftir!
„Hælumst minst í máli,
metumst heldr at val feldanL
Björns Jónssonar og ’nans sinna alt
fram til 1903. En þá skildu leiðir.
En hvern dóm leggur hann nú á þenn-
an sinn gamla flokk?
Þá er hann hefir sýnt fram á helztu
syndir og svívirðingar óldarflokksins
meðan hann var við völd, segir hann:
»E/ þeir menn, sem hafa haft í
frammi allan þennan botnlausa ó-
sóma, ali þetta stjórnlausa rugl og
alla þessa ótrúmensku, eru sannir
fulltrúar þjóðar sinnar, — ef meiri
hluti síðustu alþinga er lifandi vott-
ur um þá rétllœtistilfinningu, sann-
leiksást, sjálfsafneitun og trúmensku,
sem íslenzka þjóðin á til, þá er
þessi þjóð illa farin. — Enginn
mci láta það villa sig þó að þessir
menn, margir eða allir, sé sjálf-
sagt taldir nýtir menn og vænir
menn í einkahags-lífi sinu; þeir eru
þó haldnir einhverjum þeim ann-
mörkum eða eru undir einhverjum
þeim áhrifum, að sem stjórnmála-
flokkur eru þeir til alls góðs verks
óhætílegir i'yrir þjóð sína! . . .
»£/ kjósendur landsins sjá sóma
sinn, þá eiga þeir að strengja þess
heit að láta ekki einn einasta af
þessum tnönnum ná kosningu til
Alþingis á þessu ári, og heldur
ekki áhangendur þeirrau.
Eðlilega yrði of langt mál hér, og
ekki rúm t.il nú rétt undir kosning-
arnar, að flytja langa útdrætti úr þessu
ágæta riti, og sýna röksemdaleiðslur
og Magnús Th. S. Blöndahl.
Hr. Magnús Blöndahl (með h í hal-
anum) kom nú í morgun með Botnia.
Það er einkar-heppilegt, að hann getur
þannig orðið á fundinum á morgun.
Því að ýmsir kjósendur — allir þeir
sem hann hafa ætlað að kjósa — munu
þreyja mjög að heyra andsvör hans í
silfurbergs-málinu.
Það heflr verið sýnt fram á það
með rökum í Lögrjettu og Þjóðólfi,
að auk margra annara stór-grunsam-
legra atvika, hafi silfurberg, það er
þeir fyrir landsjóðs hönd afhentu
Banque Francais, numið nær
2000 ® minna, en þeir áttu að af-
henda. Hvað varð af því?
Þessu verður hr. M. Bl. að svara á
morgun — ekki með stóryrðum, held-
ur með röksemdum, ef svarið á að
fullnægja sanngjörnum kröfum.
Og það er eitthvað fleira, sem hann
þarf að svara með fullum rökum í
silfurbergsmálinu.
Það er óþarfl að rifja það upp fyrir
honum í day.
Kjósendur gera það sjálfsagt á
morgun.
Hvernig á að kjösa.
Seðlarnir líta svona út:
o Guðmundur Finnbogason.
o Halldór Daníelsson.
o Jón Jónsson.
o Jón Þorkelsson.
o Larus H. Bjarnason.
o Magnús Blöndahl.
Kjósandi á að gera skákross innan
í hringinn framan við nafn þess sem
hann kýs, þannig: 0
Kjósandi verður að varast að álm-
urnar á krossinum nái út fyrir hring-
inn.
Og ekkert merki má hann setja á
seðilinn (því síður sitt nafn), því að
þá verður seðillinn ógildir.
‘ J. Ól.
Afmælisluigleiðingar
Sigurðar Þórðársonar sýslumanns
ætti hvert læst mannsbarn á iandinu
að lesa.
Það er rit um pólitíska stefnu Jóns
Sigurðssonar, þar sem sýut erfram á,
að barátta heimastjórnarmanna (og
bandamanna þeirra í sambandsmálinu)
sé beint áframhald af baráttu Jóns
Sigurðssonar; sýnt, hversu með því
hafi fengið verið allt það sem J. s.
fór fram á, og jafnvel meira, sýnt
hversu þjóðinni voru viltar sjónir 1908.
Bæklingur þessi er ritaður með mikl-
um alvöru-þunga og af heitum yl ein-
lægrar ættjarðarástar. Höf. er óvíða
stórorður, en því Þyngra falla svipu-
högg orða hans á bert. bak samvizku-
lausra stjórnmálaskúma.
Höfundurinn var samflokksmaður
7) P. e. prentuðu hirðisbréíin. Ú t g.
höfundarins.
Hver maður, af hvaða flokki sem
er, sá er sjá vill ylheit ummæli og
góðar rökleiðslur í máli, þarf að lesa
sjálfur alla bókina.
Hún á það skilið, þvi að hún er
eitt það sem bezt heflr ritað verið um
málið. Og enginn getur lesið það, ekki
einu sinni samvizkusamir mótstöðu-
menn höfundarins, án þess að hljóta
að fá mætur á höfundinum og virð-
ingu fyrir honum fyrir þá heitu
sannfæringu og brennandi föðurlands-
ást, sem lýsir sér í riti hans.
Ég segi ekki með þessu, að ég sé
samdóma hverju smáatriði eða auka-
atriði i ritinu. En slíkt er of litils-
vert að nrinnast á, þegar um svo á-
gætt rit er að ræða.
Jón Ólafsson.
ÍJ r^míðastoían
éÞ'intílioltsKt.S, lí vik.
Hoergi oandaðri úr.
Hoergi eins ódýr.
Fullkomin ábyrgð.
Stefán Runólfsson.
•-----------------------------------•
„Hver hefír sinn djöful að draga“.
í vor og sumar varð hr. Magnúsi
Th. S. Blöndahl (með h-ið í halanum)
einatt að orði:
„Já það er ekki gaman að ganga
til kosninga nú, og eiga að dragast
með hann Jón Þorkelsson eins og hlekk
um fótinn “.
Nú gengur Dr. Jón Þorkelsson um
og stynur við sína vini:
„Það er annað en gaman að ganga
til kosninga nú og eiga að velta and-
skotans silfurbergs-kössunum lians
Blöndalils á undan sér“.
Jónas H. Jónsson
dæmdur í hæstarétti.
5. þ. m. dæmdi hæstiréttur í saka-
málinu gegn Jónasi H. Jónssyni útaf eið,
er hann vann að róngum framburði í
fyrra sem vitni Björns Jónssonar (þá
ráðherra) í máli gegn Jóni Ólafssyni.
Jónas var dæmdur í undirrétti og
yfirrétti, en áfrýjaði til hæstaréttar,
sem staðfesti dóm yfirréttar (14 daga
fangelsi). _____________
t
Sig’Ms Eymundsson
bóksali
andaðist í gær að heimili sínu hjer í
bænum.
Hann var á 75. aldursári, fæddur
24. maí 1837.
Hans verður bráðlega minnzt nánar
hjer í blaðinu.
íjverja á að kjésa?
Auðvitað eiga allir heimastjórnar-
menn að kjósa þingmannsefni síns
flokks. Hvern annan sem þeir kjósa,
hvað góður maður sem er, þá er
það til þess gert að veikja flokk sinn
og efia óaldarflokkinn.
Óflokkbundnir menn, sem vilja kjósa
beztu og hæfustu þingmanns-etmn,
eiga að kjósa þá
Lárns H. Bjarnason prófessor og
Jón Jónsson dócent.
Þeir sem eru svo innrættir, að vilja
kjósa á þing langóhæfustu mennina
tvo, sem i kjöri eru á öllu landinu,
þeir eiga að kjósa þá Magnús Th. S.
Blöndahl (með h-ið í halanum) og dr.
Jón Þorkelsson.
Þeir sem vilja styðja M. Th. S.
Blöndahl og Jón Þorkelsson til að ná
kosningu, án þess þó að greiða þeim
atkvæði beinlínis, þeir eiga að kjósa
Guðmund Finnbogason og
Halldór Daníelsson.
t
Þorsteinn Egilsson
kaupmaður 1 Hafnarfirði
andaðist ,í gær, nærri sjötugur að
aldri, fæddur 5. janúar 1842. Helztu .
æfiatriði hans verður síðar getið hjer
í blaðinu.
Haukur, heimilisblað með
myndum, VII. bindi, nr. 19—21.
Efni: Hjarta-ás, frásaga með myndum,
eftir H. Hansen. (Framh.). — Xeistar. —
Æfintýri Sherlock Holmes, leynilögreglu-
sögur eftir A. Conan Doyle: Silfur-Blesi
(niðurl.). — Neistar. — Úr öllum áttum :
Fljótandi Berlinarbúar, með mynd. —
Friðarstytta, með mynd. — Búgarður Dio-
eletians, með 2 myndum: Búgarður Dio-
cletians, eins og hann var á hans dögum.
Súlnagarðurinn endurreistur. — Marokkó-
málið, með 2 myndum: Friðar-spillirinn við
Agadír. Þýzkaland hjálpar Frakklandi. —
Úr dýralífinu, með 2 myndum : Bolhundur
fóstrar ketling. Köttur fóstrar andarunga.
— Sólin og Satúrnus, ný kenning, með mynd.
— Mikilsháttar fornmenjafundur, með mynd.
— Baráttan gegn flugunum. — Sandkorn,
frásaga eftir Carit Etlar, með myndum eftir
Paul Steffensen (niðurl.).
Nöfii o>>- nýjung’ar.
Hlutaveltu heldur Prentarafjelagið
í kvöld og annað kvöld ti) ágóða fyrir
Sjúkrasjóð sinn. Menn ættu að fjölmenna
á hlutaveltu þessa, þvi að þar er fjöldi á-
gætra vinninga, núll færri en venja er til,
og ágóðinn ætlaður til styrktar góðu *g
þörfu málefni.
Skólarnir hjer í Reykjavík voru flestir
settir 2. þ. m.
H á s k ó 1 i n n . Þar voru innritaðir 41
stúdent. Af þeim eru 9 stúdentar frá í vor;
hinir eldri. í læknadeildinni eru 21, í laga-
deildinni 16, og i guðfræðisdeildinni 4. Sagt,
að fleiri muni bætast við i haust.