Reykjavík - 30.12.1911, Síða 2
224
REYKJAVIK
IVöfii og nýjungar.
Mauníl öldi Reykjavíkur reyndist
við manntalið 1. Nóv. þ. á. 13341.
TELEGRAM!
Enestaaende
Tilbud!
Ilúsbruni. Á Siglufirði varð það
tíðinda á aðfangadagskvöld Jóla, að eldur
kom upp í verzlunarbúð Gránufélagsins þar
(uppi á lofti ?). Það var einkennilegt, að
enginn átti að hafa komið í húsið næsta
sólarhring á undan. Húsið brann tiil kaldra
koia. Það var reist fyrir fáum árum.
Vi forœrer 2000 Kr. i Prœmier.
For at gore vore Varer bekendt overalt, bortgiver vi til enhver, som
kober hos os: et Anker-Remontoir Herre- eller Dameuhr eller en anden
værdifuld Genstand, paa Betingelse, at enhver vedlægger en Bestilling paa
en Fortrinlig Diana imit. Guldkæde og samtidig indsender Belobet derfor
teikjjelag Kcykjavíkur
eftir Jóliann Sigurjónsson.
Leikinn INýársclag- (1. ján.) og
2. janúar (Þriðjud.).
Laugavegur í Rvik er fult svo
fjölmennur sem allur miðbærinn.
1 Kr. 65 0re pr. Postanvisning eller i Frimærker.
■ ■ Forsendelsen sker altid aldeles omgaaende pr. Post.
Bæjarstjórn Reykjavíkur.
jii 11 ji-Kvviiiílm- var leikinn hjer
af Leikfjelagi Reykjavíkur í fyrsta skifti á
annan dag jóla. Allir aðgöngumiðar voru
seldir löngu fyrirfram. Siðan hefir hann
verið leikinu á hverju kveldi, og allt af
fyrir troðfullu húsí. Næst verður hann
leikinn á nýársdag. Dómur um leikinn
bíður næsta blaðs.
íkveikjutilraun. Á afangadags-
kvöld jóla var gerð tilraun til að kveikja i
húsi einu hjer í bænum, „Hotel Temperance“
(gamia „Hotel Reykjavik“). Pjölskylda sú
sem býr þar, var að heiman um kvöldið, en
er hún kom heim, var herbergi eitt fullt af
reyk, en eldur sást enginn. Rúða hafði
verið brotin. og logandi korkflá, vættri í
steinolíu, kastað inn um gJuggann. Glugga-
tjöld voru brunnin og veggjapappír að
nokkru, en vegna sagga í húsinu hafði eld-
urinn ekki fest tönn á öðru og drepíst
sjálfkrafa. Óvíst, hver verkið hefir unnið.
Botnvörpungur strandar.
Enskur botnvörpungur '„Golden Sceptre“,
strandaði rjett fyrir jólin nálægt Býjaskeri
í Rosmhvalaneshreppi. Menn björguðnst
allir. Björgunarskipið „Geir“ fór suður á
jóladaginn, náði botnvörpungnum af sker-
inu og kom með hanu hingað 27. þ. m.,
lítið (skemmdan. Eiskurinn úr honum var
seldur á uppboðf hjer í gær, og seldist háu
verði.
Landsbankabókarastaðan
var veitt 23. þ. m. Stöðuna hlaut Richard
Torfason, er settur var í vetur til að gegna
henni til bráðabyrgða.
Nýúrskappsnnd „Grettis“ hefst
kl. 10,45 árdegis, eins og vant er. Þetta er
í þ :iðja skifti, sem kept cr um nýársbikarinn,
og ætla nú miklu fleiri að taka þátt í sund-
inu en áður.
Husk, at der med enhver Forsendelse
medfolger gratis et Uhr eller en anden
vœrdifuld Genstand.
Forsendelsen sker franko overalt.
SST_ Vort store Pragt-Katalog over alle Arter Varer, yedlægges
enhver Forsendelse.
Skriv straks til:
C. Christensens Varehus,
Saxogade 50, Kobenhavn "V.
Grundlagt 1805. Grnm<U»gt 1805.
II----------------------------------------------------------------4|
Hinn heimsfrægi eini ekta
Kími-Ixííw-Elixír
frá Yaldemar Petersen, Kaupmannahöfn, fæst alstaðar á íslandi og kostar að eins
2 krónur flaskan.
Yarið yður á efttrlíkingum, gætið vel að hinu lögskráða vörumerki: Kin-
verja með glas í hendi ásamt firmanafninu Waldemar Petersen, Frederlkshavn,
Köbenhavn, og á flöskustútnum merkið v(,í’ í græuu lakki.
Xlœievæver €ðeling, Viborg, Ðanmark
sender portofrit 10 Alen sort, graat, inkhlaa, inkgrön, inkbrun flnulds Chevi-
ots Klæde til en flot Damekjole for kun 8 Kr. 85 0re, eller 5 Alen
bredt sort, inkblaa, graanistret renulds Stof til en solld og smuk Herre-
drafft for kun 13 Kr. 85 0re. Ingen Risiko! Kan ombyttes eiler tilbage-
tages. Uld köbes 65 0re pr. Pd. Strikkede Klude 25 0re pr. Pd.
Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Stefún Bunóllsson.
Prentsmiðjan Gutenberg.
Fundnr 7. desember.
[Niðurlag].
6. Rætt var við fyrri umræðu tilboð frá
Baðhúsfjelaginu um sölu ábaðhúsinu. Kosn-
ir í nefnd til að íhuga málið.
Knud Zimsen,
Halldór Jónsson,
Kristján Þorgrímsson.
7. Kröfu ólafs kaupmanns Árnasonar um
burtfellingu eða niðurfærslu aukaútsvars
hans þ. á. vildi bæjarstjórn ekki taka til
greina.
8. Erindi frá Ólafi Jónssyni Jögregluþjóni
um launaviðbót eða styrk til einkennisbún-
ingskaupa — var visað til fjárhagsnefndar.
9. Kosnir i nefnd til að gera tillögur um
salernahreinsanir:
Tr. Gunnarsson,
Knud Zimsen,
Kristján Þorgrímsson.
10. Brunabótavirðingar samþykktar: a.
Húseign E. Rokstad, Laugarnesveg, kr.
5,951,00; b. Húseign Pinnb. Lárussonar,
Bakkastíg 9. B, kr. 1,230,00.
fundin á Vitastíg.
Vitja má á Vitastíg nr. 17.
LiiftryggiO yOur í
Lífsábyrgðarfjelaginu ,DAN‘.
Fjelagiö er mjög útbreytt hjer á landí.
Umboðsm.: Pjetur Halldórsson bóksali, <
Hvar á að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
:iLr:;|BemstaMrl
Dularfullur farþegi.
1. kapítuli.
Á Atlantshaflnu.
Það var um borð f mannflutningaskipi einu miklu, er
var á leið frá New-York til Lundúna.
Frú Horner Joy var ekki laus við sjóveiki, og lá þess
vegna á legubekk einum í kvennasalnum. En allt í einu
hrökk hún upp við það, að dyrunum var lokið upp.
Hár og grannvaxinn maður kom inn.
Hver gat þetta verið?
Hún starði á hann, hún hafði ekki sjeð hann áður með-
al farþeganna. Hann var í gráum sportfötum. Andlitið var
náfölt og skegglaust, en augun svört eins og kol.
Frúin hjelt fyrst að hann væri að leita að einhverjum.
Hann stóð við dyrnar, eins og hann væri að hlusta eftir ein-
hverju, en vildi þó vera tilbúinn til að llýja, ef á þyrfti
að halda.
Það fór hrollur um frúna. En þegar hann að lítilli
stundu liðinni kom inn í salinn og nálgaðist legubekkinn
hennar, þá herti hún loksins upp hugann.
84
»Fyrirgefið — en með leyfi að spyrja, eruð þjer að
leita að einhverjum hjerna?«
Maðurinn starði á hana með svo hvössu augnaráði, að
henni fannst blóðið storkna í æðum sjer. En ekki svaraði
hann nokkru orði. í þess stað gekk hann aftur fram að
dyrunum, lokaði þeim á eftir sjer og hvarf sömu leiðina,
sem hann hafði komið.
Frú Joy skildi ekkert i þessu. ósjálfrátt spratt hún upp,
þrátt fyrir sjósýkina, og flúði til mannsins sins, er var í
reykingasalnum.
»Nú, já — og hvað svo meira?« spurði maðurinn, er
hún hatði skýrt honum frá þessu. Honum fannst sagan
ekki neitt sjerlega merkileg.
Við miðdegisverðarborðið litaðist frúin vandlega um
meðal allra, er þar voru, en hún gat hvergi komið auga á
þennan mann. Hann var þar alls ekki. Svo talaði hún við
skipstjórann.
»Hvað segið þjer, frú? Nei, drauga höfum við ekki
hjerna á skipinu, ha, ha, ha, þjer eruð bara sjóveik, það er
allt og sumtl« svaraði hann háðslega.
Og við það sat. Frúin hjelt í raun og veru, að
hún hefði sjeð draug, og næstu nótt hafði maðurinn hennar
lítinn frið til að sofa.
2. lfíipítnli-
Kynlegir endurfundir.
Nokkrum dögum eftir að komið var til Lundúna, voru
þau Joy og kona hans á gangi eftir Regentstræti. Það var
inndælt veður, mannþyrpingin gekk í bylgjum eftir strætinu,