Reykjavík - 09.03.1912, Page 4
4<)
REYKJAVÍK
Frá Indlandi. Öll blöð beimsins
hafa verið full af krýningardýrðinni á
Indlandi núna fyrir nýárið. Aldrei
hefir auði og oflæti verið hampað
hærra. Alt glóði þar af gulli og gim-
steinum á tugum þúsunda.
En úti í frá voru í þessu frjóasta
landi heimsins 100 miljónir manna
sem aldrei fá mettan kvið árið um
kring. Brezkir fræðimenn sem bezt
hafa kynt sjer hagi Indlands verða við
það að kannast, aÖ' á Indlandi er það
þriðji hver maður, sem ekki hefir af
því að segja, frá vöggunni til grafar-
innar, að vera saddur. Fleiri ganga
svangir að sofa á Indlandi á hverju
kveldi en alt mannfólkið í Bandafylkj-
um.
Allur þorri Hindúa lifir á akuryrkju,
en víða er bóndabýlið ekki stærra en
5 dagsláttur. Búslóð bóndans öll,
húsgögn og tæki, hverju nafni sem
nefnast, fer á 7 krónur. Fimm manns
í heimili og 14 krónur til framfærslu
um mánuðinn þykir meðalafkoma, og
víða er hún miklu lakari. Skrimtir
með hrísgrjón fyrir 5 au ra á munn
um sólarhringinn, en tíðum tekur fyr-
ir það líka. Þá hrynur fólkið niður,
og það svo að hleypur á miijónum.
Þetta gerist enn á 20. öld eftir
Krists burð, með alt gullið og gim-
steiDana hjá höfðingjunum innlendu,
og brezku heimsmenninguna að bak-
hjarli. (Nýtt Kirkjublað).
Glæpir í Ameríku. Alls konar
glæpir og afbrot fara sí og æ í vöxt
í Bandaríkjunum í Ameríku, hvað sem
sambandsstjórnin gerir til þess að draga
úr þvi, eða svo segist blöðunum í New
York frá.
10 síðastliðin ár hafa 86,934 menn
verið myrtir í Bandaríkjunum. Og á
þessu sama 10 ára tímabili hafa að
eins 1,149 morðingjar verið dæmdir
til dauða.
Árið 1909 voru framiu 8,103 morð,
og 107 morðingjar voru það ár dæmd-
ir til dauða. Árið 1910 voru 8,975
morð framin (872 morðum fleiri en
árið áður), en 104 morðingjar dæmdir
til dauða (4 íærri eu árið áður).
New-York-búar stæra sig af þvi, að
þar sje betri lögregla, heldur en nokk-
ursstaðar annarstaðar í heimi, en þrátt
fyrir það fjölgar morðum og alls kon-
ar glæpum ár frá ári. Það stoðar
ekki, þótt Ameríkumenn beiti strang-
leika í því að reka útlenda glæpamenn
af höndum sjer, og reyni að koma í
veg fyrir innflutning slíkra manna.
Þeir hafa meir en nóg af þeim sjálfir.
Og í Ameríku er lífið ekki álitið mik-
ils virði.
Góður húsbóndi. Skóverksmiðju-
eigandi eÍDn í Liancourt á Frakklandi,
Pelafour að nafni, hefir hætt verzlun,
og gefur nú verkafólki sínu verksmiðj-
una með vjelum öllum og vörum.
Gjöfin er meira en 3 miljóna króna
virði.
Nöfn og- nýjungar.
Rœningjarnip. Leikfjelagið hefir nú
sýnt þá í 4 kvöld, og hefir öll þau kvöld
verið húsfyllir. Framhald dómsins um þá,
er byrjaði í síðasta blaði, gat vissra orsaka
vegna ekki komizt í þetta blað, en kemur í
næsta blaði.
i,Sterling(< kom hingað á mánudags-
kvöldið og hafði raeðferðis póst og farþega
úr „Ceres“, eins og ráð var fyrir gert. í
gærkvöld tagði hann af stað til Breiðafjarð-
ar, en ætlaði fyrst að skreppa til ísafjarðar
Xlœðevæver €5eiing, Viborg, Danmark
sender portofrit 10 Alen sort, graat, inkblaa, inkgrön, inkbrun finulds Chevi-
ots Klæde til en flot Damekjole for kun 8 Kr. 85 0re, eller 5 Alen
bredt sort, inkblaa, graanistret renulds Stof til en solid og imuk Ilerre-
dragft for kun 13 Kr. 85 0re. Ingen Risiko! Kan ombyttes eller tilbage-
tages. Uld köbes 65 0re pr. Pd. Strikkede Klude 25 0re pr. Pd.
með fjölda farþega, sem höfðu ætlað sjer
vestur með BCeres“.
Snjóflóð fjell úr Bjólfsfjalli á Seyðisfirði
sunnudaginn 3. þ. m., tók vörugeymsluhús,
sem verzlunin „Framtíðin“ átti og fjirhús-
kofa. Kindur nokki ar fórust og eitthvað af
vörum, en manntjón varð ekkert.
Lótinn er nýlega síra Eyjólfur Kolbeins
Eyjólfsson prestur að Melstað. Hann var
fæddur að Melgraseyri 20. febr. 1866, sonur
sira Eyjólfs Jónssonar, er síðar var prestur
að Árnesi, (dáinn 1909), og konu hans, El-
ínar E. Björnsdóttur, en bróðir síra Böðvars
í Árnesi, Jóns gullsmiðs á ísafirði og þeirra
systkina. Síra Eyjólfur sál. var kvæntur
Þóreyju, dóttur Bjfirna frá Reykhólum, og
lifir hún mann sinn ásamt 10 börnum þeirra.
Tímarit kaupfjelaga og aamvinnu-
fjelaga, V. árs III. hefti, er nýútkomið,
og hefir það margt gott að flytja að vanda.
Fremst er grein um ull og ullarverkun eftir
Sigurð Jónsson, og er tekin upp i hana
skýrsla hr. Sigurg. Einarssonar til stjórnar-
ráðsins, sem áður hefir birzt hjer i blaðinu.
Greinin endar á leiðbeiningum um notkun
Og meðferð ullar, sem ætlazt er til að geti
komið aðgagni,meðanekki er öðru betra tilað
dreifa. — Þá er ágrip af verðiagsskrá Kaup-
fjelags Þingeyinga 1911. — Þvi næst er
hugvekja sem heitir „Fjárþröng og fram-
leiðsla“ eftir „n.“-(-„n.“, og er nokkuð af
henni tekið hjer upp í blaðið á öðrum stað.
— þá er skýrsla frá Kaupfjelagi Þingeyinga
1910. — Samtal við Yesturheimsmann eftir
Einar Sigfússon. — Verzlun og atvinnu-
fjelagsskapur ‘1911 eftir S. J. — Stundvisi
og skilsemi eftir sama. — Frá útlöndum,
frjettir af kaupfjelögum og samvinnufjelags-
skap ýmsra þjóða o. fl.
Skautakapphlaup verður á Melunum
á morgun kl. 2.
Bæjarstjórn Reykjavíkur.
Aukafnndur 23. febrúar.
Samþykkt, að leigja P. J. Thorsteinsson
& Co. Eiðsgranda til fiskverkunar um næstu
20 ár gegn 350 kr. árgjaldi.
Fnndnr 7. marz.
1. Byggingarnefndar-gerðir frá 2. þ. m.
lesnar upp og samþykktar. Þar með sam-
þykktur uppdráttur að slökkvitólabúsi, sem
á að standa á horni Ránargötu og Frara-
nesvegar og telst Brekkugata 2. Húsið á að
verða fimmhyrnt, mesta Iengd 10,65 m , breidd
7,50 m. — Björn Jónsson, fyrv. ráðherra,
hafði sótt um að mega reisa sjer íbúðarhús
sunnantil á erfðafestutúni sínu við Tjörnina,
næst fyrir norðan Laufástún, og að húsið
stæði neðarlega á túninu, hjer um bil 13 m.
fyrir ofan framlenging Fríkirkjuvegar, og
víldi fyrst fá hússtæðinu breytt í byggingar-
lóð. Byggingarnefndin gat ekki veitt þetta
leyfi, með því að það kom í bága við sam-
þykkt bæjarstjórnarinnar á fundi 4. febr.
1909, og lagði því til, að leitað væri sam-
ninga um kaup á neðri hluta túnsins eða
túninu öllu. — Hin tilvitnaða bæjarstjórnar-
samþykt frá 4. febr. 1909 hljóðar svo:
„Byggingarnefndin leggurtil að bæjarstjórnin
ákveði, að svæði við suðurenda Tjarnar-
innar skuli haldast óbyggt innan þessara
takmarka: Að sunnan fyrirhugaða hring-
brautin, að austan fyrirhuguð framlenging
Frakkastígs og gata hjer um bil 70 álnir
fyrir neðan Laufásveg; að vestan fyrirhuguð
gata suður frá Skothúsgötu, hjer um bil 80
álnir frá Tjörninni; að norðan Skothúsgata
og fyrirhuguð gata frá Laufásvegi að Tjörn-
inni fyrir sunnan hið nýbyggða hús Jóns
Þórarinssonar." — — Bæjarstjómin vísaði
þessari beiðni Bj. .Tónssonar til sjerstakrar
nefndar, og kaus í þá nefnd Jón Þorláks-
son, Knud Zimsen og Kl. Jónsson.------
Sarrþykkt, var að kæra Helga Hannesson úr-
smið fyrir að hafa breytt húsi sínu, Banka-
stræti 12, í leyfisleysi; sömul. stjórn íþrótta-
sambandsins fyrir að hafa byggt skála á
íþróttavellinum í leyfisieysi.
2. Fasteignanefndar-gerðir lesnar upp.
Borgarstjóri hafði tilkynnt, að hann hefði
fengið símskeyti frá Dowue i Lundúnum um
að leigja Elliðaárnar næsta sumar fyrir 400
sterlingspund. Nefndin lagði til, að boðinu
yrði tekið, og samþykkti bæjarstjórnin það.
— Emil Strand leigð lóð um næstu 6 mán-
uði austan við lóð þá, er sláturhús Jóns
Þórðarsonar stendur á, gegn 20 kr. eftir-
gjaldi. — Beiðni Vilhjálms Bjarnasonar um
að breyta í byggingarlóð 400 ferálnum af
erfðafestulandi Rauðarár. frestað enn vegna
vantandi uppdrátta.
3. Brunamálanefndar-mál. Lægsta til-
boð, er komið hafði í bygging slökkvitóla-
hússins í Yesturbænum, er kr. 3175,00.
Bæjarverkfræðingurinn álítur, að húsið muni
ekki kosta meira en kr. 3000,00, ef bærinn
sjálfur byggir það, og var því samþykkt, að
fela bæjarverkfræðingnum að sjá um bygg-
ing hússins — Nefndin áleit heppilegt, að
slökkviliðsstjórinn yrði látinn búa á slökkvi-
stöðinni (í Tjarnargötu) og lagði til, að bæjar-
stjórnin leigði honum þar 3 herbergi ásamt
eldhúsi til íbúðar og ákvæði leiguna. Sam-
þykkt, að hann fengi þar íbúð fyrir 25 kr.
á mánuði.
4. Fjárhagsnefndar-mál. Nefndin hafði
fengið tilboð frá Landsbankanum og íalands-
banka um lán að upphæð kr. 62000,00, er
bærinn þarf að taka á þessu ári, samkvæmt
fjárhagsáætluninni. Bauð Landsbankinn að
lána fjeð gegn víxlum, með bankans venju-
legu vöxtum, sem nú eru 51/4,°/o, og íslands-
banki sömuleiðis, hvort heldur bærinn vildi
gegn víxli eða sem reikningslán, en viðskifta-
gjald reikningslánsins er 9/s°/o hvert missiri.
Nefndin lagði tíl, að tekið yrði tilboði fs-
landsbanka um að fá fjeð sem reikningslán,
og að borgarstjóra yrði falið að undirskrifa
skuldabrjefið í umboði hæjarstjórnarinnar,
að fengnu leyfi stjórnarráðsins til lántök-
unnar. Tillagan var samþykt.
5. Kosnir i hafnarnefnd:
Klemenz Jónsson,
Jón Þorláksson,
Tryggvi Gunnarsson,
Ásgeir Sigurðsson,
Jón Ólafsson, skijjstjóri.
6. Kosning 6 innanbæjarmanna í lands*
dóm frestað til næsta fundar.
7 Tilkynnt brjef stjórnarráðsins um stað-
festing reglugerðar um mjólkursölu.
8. Tilkynnt samþykki stjórnarráðsins til
að kaupa Baðhúsið. Samþykkt að kjósa
nefnd til að taka móti Baðhúsinu og i nefnd-
ina kosnir:
Kristján Þorgrímsson,
Knud Zimsen,
Sveinn Björnsson.
9. Brunabótavirðingar lágu engar fyrir.
10 Lántaka til hafnargerðarinnar. Til-
lögur hafnarnefndar frá fundi 5 marz sam-
þyktar.
11. Tillaga frá L. H. Bjarnasyni: „Bæjar-
stjórnin skorar að gefnu tilefni á borgar-
stjóra, að gæta þess framvegis, að kjörskrá
til alþingis verði lögð fram á lögákveðnum
tíma.“
Tillaga frá Sveini Björnssyni: „Með því
að borgarstjóri hefir lýst yfir því, að hann
muni framvegis sjá um undirbúning kjör-
skrár í tæka tíð, tekur bæjarstjórnin fyrir
næsta mál á dagskrá.“
Tillaga Sv. Bj. felld. Tillaga L. H. B„
samþykkt.
Jarðarför Jensínu sál. Eyvinds-
dóttur, sem dó á Landakotsspítalan-
um 4. þ. m., fer fram frá fríkirkjunni
i Reykjavík þann 14. marz næstkom-
andi kl. 12 á hádegi. Þetta tilkynnist
vinum okkar og vandamönnum.
Rvík. 9. marz 1912.
Kristín Jensdóttir,
Eyvindur Eyvindsson.
é-
1 skófatnaðaryerzlnn Jöns Stefánssonar
Laugaveg 14
gerast þau beztu kaup, sem hægt, er
að fá i bænum. T. d.: Kvenstígvjel
á 5 kr. Karlm.stígvjel á 6 kr. 50 a.
Járnsteypufjelag Reykjavíkur
heldur aðalfnnd í húsi K. F. U. M.
mánnd. 18. niarz kl. 8. e. h.
Reikningar framlagðir, rædd fjelags-
mál, kosnir 3 menn í stjórn fjelagsins
og 2 endurskoðunarmenn.
Tr. Gnnnarsson.
IleilræOi.
I samfleytt 30 ár hefí jeg þjáðst af kvala-
fullum magasjúkdómi, sem virtist ólæknaudi.
Á þessum tíma hefi jeg leitað ekki færri en
6 lækna, og notað lengi meðul frá hverjum
þetrra um sig, en öll reyndust þau árang-
urslaus. Jeg fór þá að nota Waldemar
Petersens ágæta bitter, Kina-Lífs-Eliksírinn,
og er jeg hafði eytt úr 2 flöskum, varð jeg
þegar var við nokkurn bata, og þegar jeg
hafði eytt úr 8 flöskum, var heilsa mín
otðin það góð, að jeg gat neytt algengrar
fæðu, án þess það sakaði. Og nú ber það
að einB örsjaldan víð, að jeg finni til sjúk-
dómsins, og fái jeg mjer þá einn skammt
af bitternum, þá er lasleikinn horfinn þegar
næsta dag.
Jeg vil þess vegna ráðleggja öllum, er
þjást af samskonar sjúkdómi, að nota þennan
bitter, og munu þeir aldrei iðrast þess.
Veðramóti, Skagafirði, 20. marz 1911.
Björn Jónsson, hreppstjóri og d.br.m.
FrainfarafjclagiA heldur fund
í Iðnaðarmannahúsinu (uppi á lofti)
sunnud. 10. marz kl. 6 e. h.
Formaðurinn segir sögu.
}
(f3Reypís og án 6urd~
argjalésRröfu
sendist vor stóra verðskrá nr. 24 með 3000
myndum af eldhúsgögnnm. verkfærnm,
stálvörum, vopnum, hljóðfæruin, leður-
vörnm, nrkeðjum, hrjóstnálum, silfur-
vörnm, pípnm m. m.
Aö panta með pósti er hægasta leiðin
til að fá vörur sínar Lftið yfir verðskrána,
og ef þjer finnið nokkuð, sem þjer þarfn-
ist, þá skrifið það á pöntunarkortið, sem
fylgir í verðskránni. Sjeuð þjer ánægðir
með vörurnar, þá haldið þjer þeim, en
geðjist yður þær ekki, þá búið þjer vel
um þær og sendið oss þær til baka.
Skrifið eftir verðskránni og hún J
verður undir eins 3end yður ókeypis.
ínportaren A/S.
Kebenhavn K.
A Hwepfisgötu 27 er tekið við alls
konar saum.
St«jfa með fopstofuinngangi er til
leigu nú þegar. Upplýsingar í afgreiðsln
„Reykjavíkuv“._______
Silfupnsela fundin. Vitjist til Jarð-
þrúðar Bjarnadóttur, Þingholtsstræti 3.
Budda með gullhping i týudist á leið-
inni frá Bernhöfts bakaríi til nr.
16 á Skólavörðustíg. Finnandi skili á afgr.
„Reykjavíkur“ gegn fundarlaunnni._
Vindlar og Vindling;ar
í beistir og ódýrastir hjá
Jóni Zoi;g:i, Bankastræti 14.
Þar sem hljóðfæri er til, þurfa
líka Alþýðusönglögin hans Sig-
fúsar Einarssonar að vera til.
Fást hjá öllum bóksölum, kosta
kr. 1,25.
Munið að kaupa Bændaförina
1910; kostar kr. 1,50.
Fæst hjá bóksölum.
Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar.
livar a að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
Magasín.
Rit-atj. og abyrtrðarm.: Stefán Runolfsson.
Prentsm. Gutenberg.
i