Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 06.04.1912, Blaðsíða 3

Reykjavík - 06.04.1912, Blaðsíða 3
REYKJAVÍK 55 i SANNFÆRANDI Engin rök fyrir ágæti Sunlight- sápunnar geta verió meira sannfærandi en það, aó reyna sápuna sjálfa. SUNLIGHT SÁPA 2*286 Simskeyti Jrá konnngi, meðtekið 2. apríl. 1 Anledning af det sörgelige Bud- skab om Fiskekutteren »Geirs« Forlis, hvorved 27 Fiskere har fundet deres Död, beder jeg dem overfor de efterladte, al udtale min hjerteligste Deltagelse. Hvis Ind- samling foregaar önsker jeg at yde mit Bidrag. Frederik R. [Á íslensku: Vegna hinna hryggi- legn fregna um það, að fiskiskipið „Geir" hafi farist og þar druknað 27 fiskimenn, bið jeg yður að tjá hin- um eftirlatnu hjartanlega hluttekning mína; sje samskotum safnað, óska jeg að leggja fram minn skerf]. Þetta símskeyti Hans Hátígnar konungsins gjörist hjer með öllum hlutaðeigendum kunnugt. Kristján Jónsson. Hinn 3. þ. m. fjekk ráðherra aftur ■símskeyti frá konungi, og gefur hann, og drottningin, til samskotanna 2000 krónur. Nöfn og nýjung'ar. Látin er hjer í bae aðfaranótt 31. f. m. ungfr. Laufey Guðmundsdóttir, dóttir Guðmundar prófasts Helgasonar, tæplega hálfþrítug að aldri. Hún hafði verið kennari við Landakotsskólann, og var sjer- lega vel gofin stúlka og vel látin. Bankamálið. Jón Magnússon bæjar- fógeti hefir samkvæmt beiðni verið leystur frá rannsóknardómara-störfum í bankamál- inu nýja, vegna annríkis við önnur em- bættisstörf. í hans stað hefir stjórnarráðið skipað cand. jur. Magnús Guðmundsson, aðstoðarmann í stjórnarráðinu. Honum til aðstoðar við rannsóknina eru þeir Þorsteinn Þorsteinsson cand. polyt. og Georg Ólafsson cand. polyt. LetkhúsiO. „Ræningjarnir“ voru leiknir í síðasta skifti á sunnudaginn var, Nú er verið að undirbúa .Sherlock Holmes', leik sem bæjarbúum er kunnur áður og margir hafa óskað að sýndur yrði aftur. í ráði er að hann verði sýndur í fyrsta skifti á annan í páskum. Bjarni Björnsson leikur aðal-hlutverkið, Sherlock Holmes. Látin er hjer í bæ 28. f. m. frú Sig- ríður Þorkelsdóttir, ekkja sjera Þorkels sál. Bjarnasonar á Beynivöllum. Hún vur 77 ára að aldri. Larsen kjötsali fundinn. Þess hefir verið getið áður í blöðunum, að Larsen kaupmaður í Esbjerg hvarf nokkru fyrir jólin i vetur, og hugðu menn hann hafa fyrirfarið sjer. Nú er sagt að frjettzt hafi til hans suður i Ástralíu. Hann hafði á hendi sölu á íslenzku saltkjöti fyrir Slátur- fjelag Suðurlands og kaupfjelög ýms, og er sagt, að þau hafi átt hjá honum um 24,000 kr., þegar hann hvarf. Má sjálfsagt telja það fje tapað. Dáinn er 29. f. m. Ó 1 a f u r P j e t u r s- s o n stúdent, sonur Pjeturs Sigurðssonar í Hrólfsskála. Banamein hans var bei'kla- veiki. Hann varð stúdent 1907, og tók þá að lesa læknisfræði við háskólann í Khöfn. Hann var mesti efnismaður. „Bíó“. Þar verður byrjað að syna nýja mynd eftir hátíðina, sem án efa verður vin- sæl mjög. Það er mynd af Mormónapresti, sem ginnir unga stúlku til að fara með sjer til Utha. Sjerlega tilkomnmikil og hrífandi mynd; sjálfsagt bezta myndin, sem hjer hefir verið sýnd. Settur sýslumaður. SigurjónMarkús- son cand. jur. er settur sýslumaður í Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu. Bæjarstjórn Reykjavíkur. Fnndur 21. mnrz 15)12. (Niðui-h). 2. Fasteignanefndargerðix-. Samþykkt að mæla Sveini Jónssyni, Brekkustíg 10, út erfðafestuland, um 2 dagsláttur, austanvert við Kaplaskjól. Ræktunartími 5 ár og venju- legir erfðafestuskilmálar. — Beiðni Vilhjálms Bjarnarsonar á Rauðará um að mega breyta 400 ferálnum af Rauðarárlandi vestanvert við nr. 115 við Laugaveg, í byggincarlóð, og selja hana Kristni Asgrimssyni fyrir 75 au. feralin hverja, var samþykkt með því skilyrði, að 20°/o af andvirðinu greiðist í bæjarsjóð, og að lóðin verði ákveðin minnst 16 álnir meðfram götu og 25'/= alín á dýpt! -t---Samþykkt, að hafna forkaupsrjetti að erfðafestulöndunum Melstaðabletti og Bráð- ræðisbletti, sem Jóhannes Magnússou selur H. P. Duus með sama verði og hann hefir keypt þau, Melstaðablett fyrír 1000 kr. og Bráðræðisblett fyrir 950 kr.------Út af beiðni, sem komið hafði frá H. P. Duus um að mega breyta Bráðræðisbletti og Mel- staðabletti i fiskþurkunarreita, og byggja á þeim þurkhús til afnota við fiskverkunina og til fislcgeymslu, var samþykkt svohljóð- andi tillaga frá Jóni Jenssyni: „Bæjar- stjórnin leyfir að á landinu verði gerður fiskverkunarreitur, en að öðru leyti haldist erfðafestuskilmálar fyrir landinu óbreyttir með öllu. Um leyfi til byggingar á land inu verður ákveðið siðar, er tillögur frá byggingarnefnd liggja fyrir samkvæmt nýrri ákveðinni beiðni þar að lútandi“. 3. Hafnarmál. Fundargerðir hafnarnefnd- ar frá 13. og 19. þ. m. lesnar upp. Beiðni hafði komið frá Fiskveiðafjelaginu „Alli- ance“ um leyfi til að gera bátabryggju við lóð sína á Ananaustabletti, og lagði hafnar- nefndin til að leyfi þetta yrði veitt með þeim skilyrðum, að þegar höinin er komin upp, verði greidd öll hin sömu vörugjöld af þeim vörum, sem fluttar eru á land eða úr landi við þessa bryggju, eins og ákveðin verða af vörum þeim, sem fluttar verða í iand eða úr landi við höfnina sjálfa, svo og að almenningi sje heimil notkun bryggjunn- ar, að svo miklu leyti sem eigi kemur í bága við notkun eigendanna sjálfra. — Tillaga þessi var samþykkt.------H. P. Duus hafði sótt um leyfi til að gera bólverk fyrir fram- an Melstaðablett og bryggju þar. Hafnar- neíndin lagði til, að umsækjanda vrði leyft að gera bátabryggju á þessum stað með sömu skilyrðum og fjelaginu „Alliance“ (sjá hjer næst á undan), og að honum yrði leyft að gera bólverk undir umsjón bæjarverk- fræðingsins, með þoim skilyrðum, að bærinn eigi eftir sem áður landið frá núverandi mörkum og út að bólverkinu og undir því, og að óhindraður aðgangur verði meðfram sfónum á sama stað og nú. — Tillaga þessi var samþykkt. 4. Um hreinsun salerna. Álit og tillög- ur nefudarinnar lagt fram, en málinu frest- að til næsta fundar. 5. Kosning 6 manna í landsdóm. Kosn- ingu hlutu: Sighvatur Bjarnason, Sigurður Briem, Þorleifur Bjarnason, .Tón Gunnarsson, Guðm. Magnússon, Þorleifur Jónsson. 6. Úrskurður á kæru yfir kjörskrá. Sam- þykt að bæta 9 mönnum inn á'kjörskrá, og stryka 24 menn út af skránni. 7. Kosning nefndar til að semja auka- alþingiskjörskrá. Kosnir voru: Boi-garstjóri, Lárus H. Bjarnason, Jón Jensson. 8. Klemens Jónsson beiðist lausnar úr gasnefnd. Samþykkt að veita honum lausn, og kosinn í hans stað: Kristján Þorgrimsson. 9. Páll Magnússon og Kristján Sigurðs- son sækja um námurjettindi i Yatnsmýrinni. Vísað til fasteignanefndar. 10. Brunabótavirðing samþ.: Yerkstæði landsíjóðs kr. 7196,00. 11. Nefndarkosning viðvíkjandi Lækjar- torgi. Málinu vísað til veganefndar. Bmadarsamband Kjalarnessþings. Fyrsti aðalfandur „Búnaðarsam- feands Kjalarnessþings" verður haldinn í „Iðnó“ (Iðnaðarm.húsinu) í Reykja- vík, mánudag 20. maímán.næstkom., kl. 12 hád. Tekið fyrir: 1. Frumvarp til laga fyrir sambandið. 2. Inntaka félaga og einstakra manna. 3. Önnur mál, sbr. 6. gr. frv., 4.—9. lið. F. h. bráðab.stj. samb. Grafarholti, 2. apríl 1912. Björn Bjarnarson. Xolamanna-verkjallið. í morgun er símað frá Khöfn: „40,000 atkvæða meiri hluti móti verkfallslokum. Almenn vinnubyrjun væntist samt á næstunni eftir ráðum foringjanna“. Blöð og rit. Æskan, barnablað með myndum, XIII. árg. „Æskan“ er gott blað fyrir börn og unglinga. Hún flytur margar góður hug- vekjur og margt til skemtunar og fróðleiks. í þe8sum árg. eru milli 30 og 40 myndir, flestar ágætar. Allur frágangur blaðsins er mjög góður. „Ælskan“ er svo ódyr, að enga foreldra munar ura að gefa börnum sínum hana, og börnin mundu bæði hafa gaman og gagn af henni. Sögukort fyrir börn og unglinga til not- kunar við lestur mannkynssögunnar. Útg. Guðm. Gamalíelsson. Þetta eru 6 smá- uppdrættir: Heimurinn í fornöld, Evrópa á undan þjóðflutningunum, Evrópa um 600, helztu landkönnunarferðir á miðöldunum, Evrópa á siðabótartímanum og Evrópa 1815, Kort þessi eiga að fylgja mannkynssögu handa börnum og unglingum eftir Þorleif Bjarnason, en eru einnig höfð til lausasölu. Þau bæta úr brýnni þörf, því að hingað til hafa barna- og unglinga-skólar orðið að kenna sögu kortalaust. Þau eru gefin út með sfyrk úr landssjóði. 11 Jeg hafði naumast áttað mig á því, að hið þýðingar- mikla augnablik væri komið, þegar hún allt í einu fjell á knje írammi fyrir hörkulegum, hermannlegum gömlum manni, er sat á veröndinni á lágum, indverskum stóli. Jeg hatði hugsað mjer nákvæmlega, hvernig jeg ætti að koma fram, til þess að láta sjá á mjer þann rjetta iðrunarblæ, án þess þó að auðmýkja mig beinlínis eða gera á annan hátt lítið úr mjer. Fyrst i stað var lítið fyrir mig að gera, annað en það, að standa álengdar og dást með sjálíum mjer að því, hve ágætlega konan fór með hlutverk sitt. Annað augna- blikið grjet hún ákaft eins og barn, en hitt augnablikið hjelt hún þrumandi ræður yfir gamla manninum. En að lokum þagnaði hún í bili, og gaf mjer bendingu, og þá fjekk jeg tækifæri til að segja nokkur orð með fullri djörfung, en þó ákaflega kurteis og lotningarfullur. Og jeg get hrósað mjer af þvi, að það voru einmitt þessi orð, sem sigruðu gamla manninn að fullu. Jeg ætla ekki að þreyta þig á að segja þjer frá öllum smáatriðum leiks mins, en þú getur hugsað þjer hann af afleiðingunum. Tíu mínútum eftir að við hötðum farið inn í garðinn, sátum við sitt við hvora hlið hershöfðingjans, og höfðum bæði fengið fullkomna fyrirgefningu hans. Þessi nýi »tengdafaðir« minn er allra mesti heiðurs- maður, hörkulegur, hermannlegur og auðsæilega funi i skapi, reglulegur »þrumu- og eldinga«-maður, eins og Þjóðverjar komast að orði, en — sem sagt — allra mesti sómakarl. Og þegar hann hafði á annað borð fyrirgefið okkur, þá þótt- ist hann aldrei geta verið nógu góður við dóttur sína — Ellu kallaði hann hana — og við mig. Hann vildi gera allt til þess að skemmta okkur, og láta okkur í ljósi ást sina, alúð

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.