Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 29.06.1912, Qupperneq 3

Reykjavík - 29.06.1912, Qupperneq 3
REYKJAVlK 103 SUNLIGHT-SAPAN gjörir erfiðið við þvottinn ljett og hugð- næmt. Hreinlæti og þrifnaður rikir á heimilinu, þegar Sunlight-sápan kemur til hjálpar. SUNLIGHT SÁPA innlendar og útlendar. B Æ KUR =-------------------- - Pappir og Ritföng. — Watermans-sjálfblekunga. Þetta kaupa allir í Bókaverzlun §igfúsar Kyiniindssonar Lækjargötu Mjólkurbrúsar og garðkönnur stórt úrval hja Jes Zimsen. inu, og Ásgrími tókst að bjarga lionum, með þvi að fleygja sjer í sjó- inn, því að í hjásetunum hafði hann lært af sjálfum sjer, að fleyta sjer í vatni. Maður þessi var námspiltur aí Flensborgarskólanum; varð hann mikill vinur lífgjafa síns, og hvatti •hann mjög til að hætta sjómennsku, en ganga í þess stað á Flensborgar- skólann, og reyna að mentast sem bezt. Ásgr. sál. gat þá hvorki heit- ið læs nje skrifandi, en á skólann komst hann þó, með því að þar var ekkert inntökupróf. Hann átti ein- ar 30 krónur, en var fatalaus og alls laus. Bað hann þá ríka frænd- ur sína liðsinnis, en fjekk hjá þeim gamla svarið, að honum væri ekki vandara um en öðrum að vinna, og að bókvitið yrði ekki látið í askana. Einhvern veginn komst hann þó gegnum báðar deildir skólans, án þess að njóta nokkurs styrks, og út- skrifaðist úr kennaraskóladeildinni 1897. Fór hann þá norður í Þing- eyjarsýslu, og giftist þar 18. júní 1899 Hólmfríði Þorláksdóttur frá Snartarstöðum í Núpssveit, er lifir mann sinn. Þeim varð ekki barna auðið, en eitt fósturbarn hafa þau alið upp. Var Ásgr. sál. í 6 ár barnakennari þar nyrðra, fyrst í Presthólahreppi, en siðan á Þórs- höfn á Langanesi. Sumarið 1903 fluttust þau hjón hingað til Reykja- víkur. Var Ásgr. sál. timakennari einn vetur við Mýrarhúsaskóla, en stofnaðí sjálfur barnaskóla haustið 1904, og var forstöðumaður hans til dauðadags. Fyrsta árið voru 42 börn á skólanum, og kenndi hann þá einn. Hafði hann þá keypt hús- ið nr. 3 við Bergstaðastræti fyrir 9000 kr., og þar hafði hann skól- ann. Aðsókn að skólanum varð brátt svo mikil, að helmingur um- sækenda komst ekki að. Árið 1907 lagði hann aðrar 9000 kr. í það að stækka og endurbæta skólahúsið, og þann vetur voru 165 börn í skól- anum. Þá voru 6 aðstoðarkennar- ar, auk konu Ásgr. sál, er ávallt var upptekin af starfmu, og hjálpaði manni sínum trúlega með ráðum og dáð. Síðustu árin hafði hann og unglingaskóla samhliða barnaskól- anum; var aðsókn að honum jafn- an rneiri en hægt var að taka á móti, og fór sivaxandi. Siðastliðinn Vetur voru t. d. 76 nemendur við þann skóla, og 5 kennarar auk Ásgr, sál. Á fundi kennara og nem- enda í vor var samþykkt, að breyta nafni skólans úr Ungmennaskóla í Lýðskóla, og jafnframt, að stofnað yrði samlagsbú við skólann fyrir nemendur næsta vetur, til þess að gera þeim dvölina hjer ódýrari. Sumarið 1908 sigldi Ásgr. sál. til Danmerkur, og gekk þar á kennara- háskóla, og sumarið 1910 sótti hann kennarafundinn í Stokkhólmi. — Það sem sjerstaklega einkenndi Ásgr. sál., var dæmafár kjarkur, áhugi og dugnaður. Hann var prúðmenni í framgöngu, glaðlyndur og góðlynd- ur og iðjumaður mesti. Á sumrum ferðaðist hann oft víðsvegar um land í ýmsum umboðserindum fyr- ir kaupmenn og íleiri. Hann var um mörg ár Góðtemplari, og vann með áhuga að Reglumálum eins og öðru. Sumarið 1905 var hann Regluboði í Múlasýslum, og frá 1901 —1907, mætti hann sem fulltrúi stúku sinnar á öllum Stórstúku- þingum. Kunnugur. Nöfn og nýjung'ar. Handan um haf. í sumar en meira um kynnisferðir landa vestan hafstil „gamla landsins“ en nokkru sinni fyr. Fyrir skemmstu komu um 20 manns og með „Ceres“ kom annar hópur. Hingað til bæjarins komu: Guðm. Jóns- son klæðskeri og Stephan B. S. D. Stephans og kona hans frá Leslie, Sask., og Mr. og Mrs. Chiswell. Sjera Rögnvaldur Pjetursson únítaraprest- ur i Winnipeg ásamt konu sinni og mág- konu komst ekki með skipinu frá Kaup- mannahöfn vegna þrengsla. Hans er von með næstu ferð. Arinbjörn Bardal útfarar- stjóri í Winnipeg fór í land á Húsavík. Með honum er kona hans og ein dóttir. Frú Sofl’ia Bildfell, kona Jóns Bildfell fasteignasala i Winnipeg, þess er hingað kom fyrir þremur árum, kom til Akureyrar. Á ísafirði staðnæmdust þeir Sigfús Ander- son málari og Jón Thorsteinson reiðhjóla- sali, báðir frá Winnipeg. Þessara allra er von hingað síðar í sumar. Knattspyrnumót svonefnt er háð hjer þessa dagana. Þrír flokkar keppa: 2 úr Reykjavík og 1 úr Vestmanneyjum. í gær áttust Reykjavikurflokkarnir við og bar hvorugur af öðrum. Sigurður Hjðrleifsson læknir tekur við ritstjórn „ísafoldar“ nú um mánaðar- mótin. Hann kom alkominn hingað til bæjarins með Ceres nú i vikunni. Ólafur Björnsson verðsr meðritstjóri blaðsins. Embsettispróf í lœknisfrœði luku við háskólann hjer 25. þ. m.: 3 herbergi og elðhús óskast til leigu frá 1. október. Afgr. vísar á. Árni Árnason með I. eink. (205*/* stig). Konráð Konráðsson með I. eink. (163 stig). Björn Jósefsson með II. betri eink. (119 stig). Heimspekisprófi við Khafnarháskóla hafa lokið nýlega: Einar Jónsson með I. eink. Hjeðinn Yaldemarsson með I. eink. Gunnar Sigurðsson með II. eink. Vesturfarar milli 20 og 30 fara með Ceres á morgun. Þar á meðal Andrjes Þorbergsson frá Húsavík með konu og 3 börn. Guðm. og Bjarni Guðmundssynir, bræður tveir í Víðidal, með konur sínar og 11 börn, Þorbjörn Tómasson skósmiður af ísafirði með konu og börn. Prófessor E. Mogk frá Leipzig nafn- kunnur norrænufræðingur og heiðursfjelagi Bókmenntafjel., er nýlega hingað kominn og ferðast hjer um land í sumar. Fimmtán ára stúdentsafmseli halda í dag þeir, sem útskrifuðust úr latínuskól- anum 1897. Þessir sækja mótið: Árni Pálsson, sagnfr. Ásgeir Torfason, efnafr. Böðvar Bjarnason, prestur. Eggert Claessen, yfirdómslögmaður. Einar Gunnarsson, ritstjóri. Gísli Skúlason, prestur. Guðm. Guðmundsson, skáld. Halldór Gunnlaugsson, læknir. Jón Proppé, kaupm. Jón Þorláksson, verkfræðingur. Ólafur Briem, prestur. Ólafur Dan Daníelsson, Dr. phil. Sigurbj. Á. Gíslason, cand. theol. Sigurjón Jónsson, læknir. Fjærstaddir eru hjer á landi, sem ekki gátu komið: Eiríkur Kjerúlf, læknir. Sigfús Sveinsson, kaupm. Erlendis eru: Elinborg Jakobsen. Jóhannes Jóhannesson (Dalland). Sig. Júl. Jóhanne88on, læknir í Canada. Einn er dáinn: Bernhard Laxdal. 6amlar venjur i jloregi. Svo er sagt að enn finnist á nokkr- um stöðum í Noregi trjehús frá dög- um Hákonar gamla og jafnvel Sverris konungs. Þar sem heitir á Skörum í Harðangri stendur enn „stofa", sem sögð er 700 ára gömul; hún er öll úr eikarbolum og eru veggirnir alin á þykkt. Fyr meir voru engir gluggar á þeirri stofu, heldur Ijóri á þili og arinn eða hlóð á miðju gólfi; dyr voru bogadregnar að ofan með útskornum körmum eða dyrabröndum. Ekki var hún stærri en 8 álnir á hvorn veg, en þó höfðust þar við tvö heimili, og var engin önnur milligerðin, heldur en skora í gólfið. Seinna reistu ábúend- ur hver sitt íbúðarhús og höfðu stof- una fyrir eldhús; hún var svo rifin fyrir tæpum mannsaldri og byggð upp á öðrum stað. í Harðangri eru marg- ar gamlar stofur þessari líkar og hafa verið hafðar fyrir eldhús eða skemmur um langan aldur, þó upphaflega hafi verið notaðar til íbúðar átvíbýlisjörðum. Þessar stofur hafa tekið miklum breytingum eftir því sem stundir liðu fram. Fyrst var í þeim moldargólf, svo öldum skifti; seinna var gólfið flór- að með stórum hellum, og var það að vísu þrifalegra, en ærið kalt. Lítið, kringlótt gat var á þaki, kallað Ijóri; yfir það var þaninn líknabelgur, eða stundum himna utan af kindarvömb, er kallaðist skjár, og inn um það kom birtan. Seinna meir tóku menn það upp, að gera ferskeytt gluggagat á hlið stofunnar og höfðu í því smáar gler- rúður, felldar í blý. Hlóðin voru fyrst framan af á miðju gólfi, en þegar hellugólf tókust upp, voru þau flutt út í eitt hornið, helzt það, sem næst var dyrum, og þar kom, að þau voru múruð og hlaðið vand- lega í kringum þau. Bekkir voru með- fram veggjum, fylltir með mold, til þess að halda úti kulda. Þegar kveikt- ur var eldur, varð kafið oft svo mikið, að ekki sá veggja á milli; ef ekki þótti við vært, þá var ljórinn opnaður, með þar til gerðum útbúnaði, og hurðin sett á hálfa gátt; við það þynntist kafið, svo að líft varð inni, með því að ganga hálfboginn. Á vetrum voru dyrnar ekki opnaðar fyr en í fulla hnefana, og kusu flestir að þola reykinn held- ur en að fá frostkuldann inn á sig; af því stafaði megn höfuðveiki og augn- veiki, sem þá var almenn. Hvergi voru moldargólf í baðstofum, í þeirra manna minnum, sem nú lifa, en margur man enn eftir skjágluggum og „skjástöng", og einkanlega er mörgu gömlu íólki minnisstæður kuldinn á hellu-gólfunum, frá því þeir voru börn og sátu þar og rísluðu sjer. [Niðurl. næst]. Góðar Kartöflur fást ávalt hjá JES ZIMSEN.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.