Reykjavík - 17.08.1912, Blaðsíða 3
REYKJAVÍK
131
XREGT gengur fljóðum
verk að vinna, segir málshátturinn,
en þegar Sunlightsápan kemur til
hjálpar við þvottinn, pá vinnst
þeim verkið fliótt. Ohreinindi
hverfa fyrir Sunlight sápunni eins
og döggin fyrir hinni upprennandi sóí.
SUNLIGHT SÁPA
særði þó Redmond lítið eitt á gagn-
auganu. Kvöld eitt átti að halda fund
í stærsta leikhúsi borgarinnar og As-
quith að tala þar. Kvöldinu áður var
leikið í húsinu, og sat þá kona í einni
stúkunni. í leikslokin sáu menn, að
hún helti úr flösku í tjöldin kring um
stúkuna, og kveikti síðan í þeim,
þau fuðruðu upp. Það var snarræði
nokkurra ungra manna í leikhúsinu að
þakka, að ekki kviknaði í því til fulls.
Þetta var kvenréttinda kona, sem ætlaði
að brenna húsið, svo ekki yrði hald-
inn þar fundurinn kvöldið eftir.
Það er mælt að leynilögreglumenn
haldi stöðugt vörð kring um bústaði
ráðherranna, því að kvenréttinda konur
eru sérstaklega sólgnar í að brjóta
rúðurnar hjá þeim.
Látnir raenn.
17. Júlí síðastl. andaðist stærðfræð-
ingurinn Henri Poincaré, frændi for-
sætisráðherrans í Frakklandi, sem nú
er. Ilann var stjörnufræðingur og
heimspekingur, og er að honum mikil
eftirsjón. Hann mátti enn heita á
bezta aldri, 58 ára gamall.
Nýlega er og látinn Latham, flug-
maður nafnkunnur.
Olympínjararnir.
Ólympíufararnir komu hingað í vik-
unni. Með „Botníu" komu þeir Axel
Kristjánsson, Guðm. Kr. Guðmundsson,
Kári Arngrímsson, Magnús Tómasson
og Sigurjón Pétursson, en Hallgrímur
Benediktsson og Jón Halldórsson komu
með „Vestu“. Halldór Hansen varð
eftir í Khöfn vegna veikinda.
Þess heflr áður verið getið hér í
blaðinu, að þeir glímdu á Stadion
7. júlí. Var þar þá fát.t áhorfenda,
en glíman féll mönnum svo vel í geð
að afráðið var að þeir glímdu aftur,
og fór sú glíma fram 15. júlí, og var
þar kept um bikar þann er landar í
Danmörku höfðu gefið. í þetta skifti
voru áhorfendur um 20,000, og var
glímumönnunum tekið með miklum
fögnuði. Hallgrímur vann bikarinn.
17. júlí fóru þeir til Málmhauga og
vora þar í 3 daga. Voru boðnir þangað
til að glíma á iþróttamóti er þar var
haldið. Þrenn verðlaun voru þar fyrir
íslenzka glimu. Vann Hallgrímur 1.,
Sigurjón 2. og Guðm. Kr. Guðmunds-
son 3. verðlaun. Svíum hefir fallið
íslenzka glíman mjög vei í geð, og
hafa mikinn hug á að læra hana.
Strákarnir í Málmhaugum voru farnir
að glíma hver við annan þar á göt-
unum. — í Málmhaugum vann Sigur-
jón 2. verðlaun í grísk rómv. glímu,
og átti þar þó við sér þyngri menn.
Pess hefir áður verið getið hér í
alaðinu að sundurþykkja kom upp
milli Dana og íslendinga á Ólympíu-
mótinu. Síðan hafa Danir ekki gjört
það endaslept að reyna að beita ísl.
ójöfnuði. Danski sendiherrann í Stokk-
hólmi kærði glímumennina og einkum
Sigurjón fyrir utanríkisráðherranum
danska. Sakarefnið var einkum það,
að þeir hefðu neitað að þeir væru
danskir. Sigurjón svaraði með því að
kæra Frits Hansen, foringja Dana í
Ólympíuleikunum, fyrir utanríkisráð-
herranum fyrir rangindi og ójöfnuð.
Danir sendu langflesta menn í leikinn,
en hafa eigi unnið sigra að sama
skapi. Ein 1. verðlaun fengu þeir, og
eitthvað af 2. og 3. verðlaunum.
Glímumennirnir glímdu hér á íþrótta-
vellinum á mánudagskvöldið, og var
þeim fagnað vel af áhorfendum. Sama
kvöld var þeim haldið samsæti í Iðnó.
Guðm. landlæknir Björnsson og Axel
Tulinius töluðu fyrir glímumönnunum
og Sigurjón og Hallgrímur töluðu af
þeirra hendi.
Ólympíufararnir láta hið bezta af
för sinni. Viðtökur þær er þeir fengu
hjá Svíum segja þeir að hafi verið
ágætar. Þeir hafa séð margt og lært
margt í íþróttum í förinni, sem eflaust
verður íslenzku íþróttalífi til gagns og
framfara.
járnbrant austur.
Frá því hefir áður verið sagt hér i
blaðinu, að verið væri að rannsaka
brautarleið austur í sýslu, og að komið
hefði verið til Þingvalla.
í vikunni kom Þórarinn verkfræð-
ingur Kristjánsson að austan, og átti
„Reykjavik“ þá tal við hann.
Frá Þingvöllum kvaðst hann hafa
hugsað sér að brautin lægi yfir
Hrafnagjá hjá Gjábakka, en þaðan í
suðaustur fyrir endann á Miðfelli og
svo beina leið í Klifið hjá Soginu, væri
Kliflð bið mesta happ og mikill sparn-
aðarauki. Síðan liggur leiðin með
Soginu, en náJægt Sogsbrúnni beygir
hún í austur fyrir sunnan Norðurkot
og Öndverðarnes og yfir Hvítá rétt
fyrir ofan ferjustaðinn. Lengia kvað
innlendar og útlendar.
B Æ KUR =--------------------
- Pappír og Ritföng. — Watermans-sjálfblekunga.
Þetta kaupa allir í
BóKaverzlun §igfnsar Eyinnnduonar
Lækjargötu ð.
hann ekki verða rannsakað í sumar,
nema hvað hann hefði lauslega litið
eftir hvar hentast mundi brúarstæði
yfir Þjórsá, væri það líklega skamt
fyrir ofan þar sem brúin er nú.
Hvað um kostnaðinn ?
Það er ekki hægt að segja neitt um
hann enn, hann reiknast síðar. Á
leiðinni frá Þingvöllum og austur er
ekki um neina sérlega erfiðleika að
tefla.
Yerst upp Mosfellsheiðina?
Já. Eg fer aftur í dag eða á morg-
un til að vita, hvort eg get ekki fund-
ið betri leið upp úr Mosfellssveitinni,
en þá sem eg hefi skoðað.
Mætti ekki leggja brautina austur
Hellisheiði?
Nei. Það verður ekki gjört vegna
Kambanna.
Hrakningar.
Hermann Stoll, Svisslendingurinn,
sem hér hefir ferðast undanfarin sum-
ur, kom með Ingólfi á mánudaginn frá
Borgarnesi. Þegar kuldakastið skall á
um daginn, var H. Stoll staddur norð-
vestan undir Eiríksjökli einn síns liðs
og langt frá mannabygðum. Gerði
kafaldsbyl þar uppi á fjöllunum, en
Stoll hélt samt fyrst í stað áfram aust-
ur með Langjökli norðanverðum, en
varð innan skamms að snúa við og
leita bygða, því veðrið hélt áfram og
haglaust var orðið með öllu fyrir hesta.
Tók hann stefnuna til Húsafells og
varð svo að halda ferðinni áfram í
65 klukkust. Mestalla leiðina varð
hann að ganga og teyma hestana og
fór ófærðin vaxandi eftir því sem
lengra leið. Fór hann yfir þvert Hall-
mundarhraun og var það torfært og
hættulegt, er snjór lá í öllum sprung-
um. Matarlaus var hann mestan þenn-
an tíma. Loks komst hann til Húsa-
fells og var þá nær dauða en lífi. Var
hann kalinn mjög á báðum fótum.
Fékk hann góða aðhlynningu á Húsa-
felli og lá þar í nokkra daga. Læknir
var sóttur niður í Borgarnes. Hr.
Stoll liggur nú hér í bænum, en von
er um, að hann verði jafngóður af
kalinu.
Tóbaksiðnaður.
D. Thomsen konsúll hefir sent al-
þingi erindi þess efnis, að hann hafi
leitað samninga við 2 öflugustu tó-
baksgerðarmenn í Khöfn, E. Nobel og
Chr. Augustinus, og séu þeir fúsir á,
að koma hér upp tóbaksverksmiðju
fyrir alt að x/s milj. kr., er veiti 50
manns stöðuga atvinnu. Vilja þeir fá
20 ára einkarétt til innflutnings og til-
búnings á tóbaki á íslandi, gegn því
að greiða landssjóði 3 kr. af hverju
kíló af öllu tóbaki og vindlum. Lofa
þeir að vinna að eins góðar tóbaksteg-
undir og selja þær með innkaupsverði
að viðbættu landssjóðstillaginu og starfs-
kostnaði. — Landssjóður á kost á að
kaupa verksmiðjurnar hvenær sem
hann vill með kostnaðarverði.
Augustinus hefir nú sent son sinn
hingaÖ með Sterling til samninga um
málið.
O H/F Sápuhúsið o
Austurstræti 17,
mai'gar tegundir
rússneskar cigarettur
nýkomnar.
Ovenju ó d ý r a r.
Nöfn o*»" nýjungar.
Steinolia hsekkar ■ verði. Síðari
hluta vikunnar hækkaði steinolíufélagið verð
á olíu hjá sér um 5 kr. á fati. í Kaup-
mannahöfn kvað verðhækkunin hafa numið
12 kT. á fati. Hækkandi skipaleigu er kent
um að einhverju leyti.
Úr bréfi úr Þingeyjarsýslu 8. ág.
„ — — Nú hafa verið hér bleytuhríðar í
viku. Fé fundist fent heim undir bæjum í
íteykjahverfi, og ekki hægt að eiga við slátt
fyrir fónn á túnum. — Reykjaheiði og Tungu-
heiði ófærar fyrir snjó, verður að fara kring-
um Tjörnes. — —“
Guðmund Diðriksson. sem drukn-
aði í vor (31. maí) af vélarbát vestur undir
Mýrum, rak að landi í Knararnesi 10. þ. m.
Var komið með hann hingað suður á laug-
ardaginn var, og var líkið iítið skaddað.
Jarðarförin fer fram næstk. þriðjudag (20.
þ. m.).
Mistur hefir verið óvenjumikið í lofti í
sumar, einkum síðari hluta vikunnar. Það
er haft fyrir satt, að það stafi frá eldgosum
í Alaska; hafa menn veitt þessu eftirtekt í
fleiri löndum.
Sklpaferðir. B o t n í a kom á laugar-
daginn var og fullskipað hvert farþegarúm.
Mest voru það útlendir ferðamenn, þar á
meðal Mrs. Disney Leith. Olympíufarar 5,
Bjarni Sæmundsson, skólakennari, Oddur
Gíslason, yfirdómslögm. og kona Jians, Bogi
Th. Molsteð, magister, Halldór (Jakobsson)
Gunnlögsson. Frá Vestmannaeyjum: land-
ritari úr eftirlitsför og Jóhann Jósefsson.
Vesta kom síðar það sama kvöld, Með
henni Axel Tulinius, yfirdómslögm., 2 Ólpm-
píufarar o. fl.
Skagafjarðarsýsla er veitt frá 1.
September Magnúsi Guðmundssyni, cand.
juris. Magnús flutti sig búferlum norður
með Vestu á þriðjudaginn, en kemur aftur
um miðjan Seftember að dæma í gjaldkera-
málinu.
Á mótorbát til islands. Kapt. Trolle
er nýlega farinn frá Gautaborg við þriðja
mann og ætlar að halda til Reykjavíkur. í
bátnum er Hexamótor.
Þorwaldur lœknir Pálsson, sérfræð-
ingur í magasjúkdómum, er heim kominn með
Sterling.
Látinn er fyrir skömmu Björn bóndi Ás-
mundsson á Svarfhól í Borgarfirði, faðir
Guðmundar sýslumanns, Jóhanns hreppstjóra
á Akranesi og Jóns kaupmanns i Borgar-
nesi.
Vestur-islendingar ailmargir eru
staddir hér i bænum um þossar mundir.
Hafa ferðast um átthagana fyrir norðan og
vestan í sumar og eru nú komnir á leið
heim. Alt eru það Winnipeg-búar. Arin-
björn Bárdal útfararstjóri, kona hans og
déttir, Jón Thorsteinson reiðhjólasali, séra
Rögnvaldur Pétursson, kona hans og mág-
kona, Sigfús Anderson, málari.
Landar taka próf. Nýkomið Lög-
berg segir að um 20 landar hafi lokið undir-
búningsprófi við háskólann í Manitoba. Þar
hefir einn skarað fram úr öllum öðrum, sam-
löndum og annara þjóða mönnum. Hann
heitir J. S. Jóhannsson, sonur Eggerts Jó-
hannessonar, er eitt sinn var ritstjóri Heims-
kringlu.