Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 14.09.1912, Qupperneq 3

Reykjavík - 14.09.1912, Qupperneq 3
REYKJAVÍK 147 |3EGAR að Sunlight-sápan er notuð við þvottinn, þá verður erfiðið við hann hreinasta unun. Vinnan verður þá bæði fljótt og vel af hendi leyst, þið þurfið ekki að vera hræddar við að þvo jafnvel hið finasta tau, ef þið notið Sunlight-sápuna. SUNLIGHT SÁPA >'öfii o<»‘ nýjungar. Gránufélagið. Siðasti aðalfundur þess félags var haldinn 12. f. m. á, Akureyri, og var þar bundið enda á sölu félagseignanna til Fr. Holme stórkaupmanns, er átti meira en hálfa miljón króna hjá því. Félagið var orðið yfir 40 ára gamalt, stofnað fyrir for- göngu Tryggva Gunnarssonar, og var hann framkvæmdarstjóri þess um mörg ár. Fé- lagsmenn eiga að fá 15 krónur fyrir hluti sína og hlutabréfin að vera komin fram fyrir árslok. Mörg þeirra munu nú glötuð. Verðlaun fyrir fiskafurðir. Á fiski- sýningunni í Khöfn í sumar fengu þessir verðlaun fyrir íslenzkar fiskafurðir : Verðlaunapening úr gulli: H/f P. J. Thorsteinsson og H. P. Duus verzlun. Verðlaunapening úr silfri: Th. Thorsteinsson kaupm. og Gísli Johnson konsúll i Vestraanneyjum. Verðlaunapening úr bronce: Niðursuðuverksmiðjan „ísland" á ísafirði fyrir niðursoðinn fisk. Popps-verzlun seld. Popps-verzlun á Hofsós er sögð seld. Kaupandinn er Eggert Jónsson verziunarmaður á Sauðár- króki, ungur og ötull dugnaðarmaður. Vesturfarar. Með Ceres fóru um dag- inn 14 manns til Vesturheims. Þar á meðal Pétur Þórðarson skipstjóri og Sigurður Þórð- arson með fjölskyldu sína. Þeir eru bræður Guðmundar Thordarsonar bakara í Winni- peg, sem hingað kom í kynnisferð í sumar. Tvö síðastliðin ár hafa í við fleiri farið héðan af landi til Ameríku en árin þar á undan. Ætla sumir það komi til af því, að þessi ár hafa margir landar komið kynnis- ferðir að vestan, og vilji því altaf slæðast með einhverjir vestur aftur með þeim. Umboðsmaður Arnarstapa og Skógar- strandarumboðs og Hallbjarnareyrar er skip- aður Magnús hreppstjóri Blöndal í Stykkis- hólmi. Silfurbrúðkaup sitt héldu á sunnu- daginn var þau Frans Simsen fyrrum sýslu- maður og kona hans Þórunn. Skipaferðir. Ceres fór til útlanda á mánudaginn var og með henni milli 80 og 90 farþegar. Meðal annara: Einar Bene- diktsson og frú, frú Netvmann, séra Rögn- valdur Péturssou og frú og mágkona, Jónas Pálsson söngfræðingur og kona hans og börn, Magnús Blöndahl, Helgi Zoega og sonur hans o. fl. o. fl. Sterling kom á fimtudaginn, með því: Ingibjörg H. Bjarnason forstöðukona Kvenna- skólans, Fjóla Stefánsdóttir kenslukona, frú Oktavía Smith, L. Möller verslunarstj. hjá Braun og frú hans, frú Þóra Gíslason og fáeinir útlendingar. Perwie kom úr strandferð á fimtudag, með þvx Ásgrímur Jónsson málari, sem verið hefir í sumar í Hornafirði. Hafnarnessvitinn. Af þvi að ekki var allskostar rétt sagt frá honum sagt í síðasta blaði, er hér tekin auglýsingin um hann eins og hún er birt í Lögbirtingablaðinu: Á Hafnarnesi sunnanmegin Fáskrúðsfjarðar verður í haust, væntenlega 15. Sept., kveikt á vita, sem sýnir fast hvítt ljós með myrkv- um hér um bil 25 á minútu. Vitinn stend- 2i3S ur yst austanvert á nesinu; hæð vitabygg- ingarinnar 4 m., hæð logans yfir sjávarmál um 15 m.; vitabyggingin er hvít.ur stein- stöpull. Ljóskróna 5. flokks. Ljósmagn og sjónarlengd 10 sml. Logtími frá 1. Ág. til 15. Maí. Kampavín. Mælt er að verið sé að kaupa allar kampavinsbirgðir kaupmanna, og sagt að það muni stafa af því, að menn vilji eiga eitthvað af þeirri vöru ef fagnaður yrði hér næsta surnar. Prestskosning er nýlega um garð gengin á Sandfelli í öræfura. Séra Har- aldur Jónasson aðstoðarprestur áKolfreyiu- stað var einn í kjöri. Hann fékk aðeins 27 atkv., en móti honum voru greidd 54 atkv. Vilja Öræfingar fá séra Gísla Kjartansson fyrir prest. Hann hafði ekki komíst á skrá, en hefir haft prestsverk á hendi þar eystra um stund. Látinn er á miðvikudagsmorgun í þess- ari viku séra JóhannLúterSvein- bjarnarson (Magnússonar frá Skáleyj- um) prófastur að Hólmum í Reyðarfirði. Sjera J. L. S. var fæddur 9. Marz 1854. Hann hefir lengi verið prestur að Hólmum, fyrst aðstoðarprestur séra Öaníels Halldórs- sonar. Lik rekið. Um síðustu helgi rak lík á land inn hjá Kleppi. Það var svo torkenni- legt, að ekki var hægt að sjá hver það var. Forsteck, norskt fiskitökuskip til Thor- steinsonsbræðra, er hér. Það tók fisk á Patreksfirði fyrri part vikunnar. Með því komu þá að vestan frú Þóra Björnsson og Pétur A. Ólafsson ræðismaður. Botnvörpungar eru nú hættir síldveið- um nyrðra og eru að koma hingað þessa dagana. Byrja nú að fiska í ís. Spitalaskip enskt hefir legið á höfninni nokkra daga. Það er lítil seglskúta. Jón í Nlúla fór með Austra síðast heim til sín. Greenlandsfarar. Hingað kom um siðustu helgi eitt af skipum Grænlandsversl- unarinnar dönsku frá Grænlandi. Það lá hér nokkra daga og fór svo vestur aftur. Með skipiuu komu hingað 4 svissneskir landkönnunarmenn, sem verið hafa á Græn- landi frá því í vetur. Formaður fararinnar er Dr. de Quervain. Þeir félagar gengu á jökla norðar en menn hafa áður gjört og þvert yfir landið. Voru mánuð á því ferða- lagi. Þeir hafa fundið eitthvað af fjöllum, sem áður voru óþekt, og eyjar. Þeir bíða hér skips út. Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal hefir verið all-ijölsóttur þessi ár, sem hann hefir starl'að. Vér höfum nýlega fengið þaðan skýx-slu xim árin 1910—1912. 1910— 11 voru þar 30 nemendur, 1911—12 44, Þar af voru nýsveinar fyi-ra veturinn 18, síðara veturinn 27. Auk hins reglulega skólahalds er þar og haldið uppi á vorum unglinganámsskeiði og bændanámsskeiði. Stjórnif sambandsflokksins og heima- stjórnarflokksins hafa kosið menn til fram- kvæmda fyrir sig. Jón Magnússon bæjar- fógeti er foi’maður beggja flokksstjórnanna og Jón alþm. Ólafsson skrifari i báðum. Sig. ritstjóri Hjörleifsson er gjaldkeri í sam- bandsflokknum, en Eggert yfirdómslögm. Claessen gjaldkeri hjá hinum. B Æ KUR innlendar og útlendar. — Pappír og Ritföng. — Watermans-sjálfblekunga. Þetta kaupa allir í Bókaverxluu §igfú§ar Eymnndssonar Lækjargöta S. •) Stór títsala. Allskonar vefnaðarvara — Tilbúinn fatnaður — Vetr- arfrakkar og -jakkar — Regnkápur (Waterproof), fyrir konur og karla — Hálslin — Slipsi og Slaufur — Skó- fatnaður allskonar o. m. fl., selst með afarlágu verði. 10—40S afsláttur. Sturla Jónsson. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Kaupmannahöín Gothersgade 14. Stofnað 1870. ^ \V . ^dxafer Oo. % Skófatnaðarverksmiðja og stórkaupaverzlun. Allar almennar teg- ^ undir af karlmanna- kvenna- og barnaskóm, skóhlífum, flókaskóm. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦♦ Sterkt og vandað. ♦♦ Fallegt lag. ♦♦ Lægsta verð. ------.. . Plentug sambönd fyrir seljendur. — ----- ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Jarlers Antikvariat. Leverandor til Biblioteket i Isaljord. Stort Lager af brugte Boger. - Kataloger sendes gratis. Udenbyes Ordre ekspederes med storste Omhu. 61. Xongevej 134. Kebenhavn V. Afli þilskipa við Faxafióa á fyrri sumarfei'ð 1912: H. P. Duus Ása.................... 32,500 —— Björgvin............... 22,500 ---- Hafsteinn.................. 26,000 ---- Hákon ..................17,500 ----íhó..........................15,000 ---- Keflavík............... 26,500 ----Milly....................... 25,000 ----Sigurfari................... 22,000 ----Sæborg...................... 24,000 Hvert skíp að meðaltali 23,333 Alls 211,000 Th. Thorsteinsson Guðrún Sophie . 24,000 ---- Sigríður . . . 28,000 Hvert skip að meðaltali 26,000 Alls 52,000 P. J. Th. & Co. Björn ólafss. . . 23,000 ---- Gréta .... 18,000 ---- G. Gufunes frá 14/& 23,000 —— Langanes . . . 25,000 ---- Ragnheiður . . 20,000 ---- Sléttanes . . . 17,000 Hvert skip að meðalt. 21,000 Alls 126,000 H/f Sjávarborg Elín................9,500 ---- Fríða.............. 20,000 ---- Gunna .... 14,000 —— Guðrún Zoega . . 21,600 ---- ísabella ... 12,000 ---- Josephine . . . 21,500 -—— Morning Star . . 18,000 ---- Robert .... 27,000 ---- Sjana.............. 26,000 Hvert skip að meðalt. 18,778 Áíls 169.000 P. J. Tborst. Ester ... . 19,000 Guðm. Ól. Bergþóra .... 21,000 L. Tang Haraldur .... 19,000 Ein. Þorgilss. Surprise .... 27,000 (r,Ægir“). Horfur á Balkanskaganum. Búlgarar vilja óðir og uppvægir berja á Tyrkjum, en stjórnin vill ekki segja þeim stríð á hendur að svo komnu máli. Miklar grimdarsögur sagðar af Tyrkjum í Makedoniu, skjóta þar kristna menn og brenna hús þeirra. Æsir þetta kristnar þjóðir á skaganum enn meir til ófriðar gegn þeim. Stórveldin vilja að friðurinn standi, og sagt að útsendarar þeirra neiti allra bragða til að fá stjórnir Balkanríkjanna til að segja ekki sundur friönum. Tyrkir eru nú aðþrengdir á marga lund, og því eru fremur góðar horfur á að endi verði bundinn á ófriðinn milli þeirra og ítala. Er mælt að Austurríkisstjórn sé milliliður. Kartöflur og Laukur bezt og ódýrast hjá Jes Zimsen. Qfn, fremur lítill, brúkaður, óskast leigður vetrarlangt, eða keyptur gegn mánaðar- afborgunum. Afgr. vísar á. L

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.