Reykjavík - 19.10.1912, Qupperneq 1
1R k j ax> t k.
XIII., 43 Laugardag 19. Október 1913 XIII., 43
n [j=r.
□
Allar bækur, innlendar og er-
lendar kaupa menn helzt í
Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar,
Lækjargötu 2.
Ritföng og
skóla-nauðsynj ar.
1
□
Ritstj.: DSjörii I*álssou
cand. jur.
Talsími 215. Kirkjustræti 12.
Pósthólf A 41.
Heima daglega kl. 4—5.
Osómi.
IV.
Oþverra-auglýsingar.
Ég held hreinlífls-mærin Ingibjörg
Ólafsson hefði þótst finna feitan bragð-
bita af siðspillingunni í Reykjavík, ef
hún hefði lesið tölublaðið af „Vísi“,
aem kom út 8. þ. m. Þar stendur
nefnilega svolátandi auglýsing :
„Ðáindismaður erlendur, sem
leiðist, æskir eftir að kynnast
gjafvaxta konu eða mey af skárra
taginu, sjálfum sér og henni til
dægrastyttingar. „Diskretion“
sjálfsögð. Bréflegar upplýsingar
sendist til A. B., poste restante,
Rvík“.
Af því að stúlkan átti að vera af
skárra taginu, hefir henni verið ætlað
að skilja útlenzka orðið „Diskretion",
sem þýðir þagmælska.
Auglýsing þessi er ekkert annað en
saurlífis-auglýsing. Slíkar auglýsingar
eru all-tíðar í sumum blöðum í stór-
borgum erlendis. Hingað til hefir
slíkur ósómi ekki sézt í íslenzkum
blöðum. „Vísir“ er fyrsta blaðið, sem
reynir að innleiða þær hór á landi.
Þessi auglýsing er með ósvífnara
orðalagi, en ég minnist að hafa séð
áður í slikum auglýsingum. Auglýs-
andinn talar um „gjafvaxta" konu eða
mey, og sýnir með því, að hann á við
ógiftan kvenmann. En þar sem hann
nefnir „konu eða mey“, þá lætur
hann í ijós að sér sé sama, hvort hún
sé óspjölluð eða ekki. Og þetta leyfir
hann sér að bjóða stúlkum „af skárra
taginu“. Væntanlega kann heldra
kvenfólk í Reykjavík að meta þann
sóma, sem þetta blað („Vísir“) sýnir
þeim. Væntanlega lítur engin þeirra
framar við þessu blaði, og væntanlega
munu heimilisfeður sjá um, að blaðið
komi ekki inn fyrir húsdyr í neinu
heiðvirðu húsi, fyrri en útgefandinn
lieitir því opinherlega í hlaðinu, að
láta það ekki framar flytja saurlífis-
auglýsingar.
Það má búast við því að fólk eins
og IngibjörgÓlafsson hrópiReykjavíkur-
kvenfólk í ritum og blöðum út af þess-
ari auglýsingu. Hún verður tekin sem
vottur þess, að svo sé Reykjavíkur-
kvenfólkið spilt, að slíkar auglýsingar
þrífist hér; því að ekki myndu þær
birtar, ef ekki væri búizt við árangri
af þeim. En ég held þó 'að þetta væri
harla fljótfærnisleg ályktun. Ég efa
ekki, að augiýsinguna hafi skrifað ein-
hver nýkominn útlendingur, sem ekki
þekkir fólkið hér, og hefir ímyndað
sér, að slíkur agnbiti gæti orðið veiði-
sæll hér eins og í spillingu stórbæj-
1 anna erlendis. Reynslan hefir nú án
efa fært honum heim sanninn um það,
að slíkar veiðibrellur eru árangurslausar
meðal heiðvirðra stúlkna í Reykjavík.
J. Ó.
,Pukrið‘.
Málgagn skilnaðarmanna, „Ingólfur",
er aftur og aftur að bregða oss sam-
bandsmönnum um pukur, og reyna að
telja þjóðinni trú um, að samninga-
tilraunir vorar í sambandsmálinu sé
einhver drottinssvik eða glæpsamlegt
athæfi, og dregur það einkanlega af
því, að vér birtum ekki og gerum
ekki að blaðamáli þau samningsatriði,
sem vér erum að leita hófa um við
Dani.
Já, það er dagsatt hjá bróður
„Ingólfi", að vér birtum ekki almenn-
ingi efni eða orðalag þess, sem vór
viljum að geti orðið að samningi mill-
um vor og Dana. Það er satt, að
vér „pukrum" með þetta, dettur ekki
í hug að birta það, og dettur heldur
ekki í hug að fyrirverða okkur fyrir
þessa pukurs-aðferð.
Þetta er ekkert undarlegt og ekkert
fágætt. Það liggur blátt áfram í eðii
allra slíkra samninga-umleitana, að
svona verður að vera.
Ef ég sendi mann fyrir mig norður
i land til að kaupa þar jörð eða skíp,
þá byrja ég ekki á því, að auglýsa í
blöðunum, að sendimaður minn eigi
ekki að ganga frá kaupinu þó að jörðin
eða skípið kosti þessa eða þessa upp-
hæð, og nefni til hæsta verðið sem ég
vil gefa; nei, ég segi umboðsmanni
mínum í trúnaði, hvað hann megi hæst
fara í boðum, en segi honum jafnframt,
að ég vonist til að fá betri kaup en
þetta, ef þess sé nokkur kostur. Selj-
andinn byrjar væntanlega ekki heldur
á því, að gera heyrinkunnugt og básúna
út um alt, hvað hann vilji selja jörð-
ina eða skipið lægst. Setjum svo að
ég mundi ekki ganga frá jörðinni fyrir
8000 krónur og að seljandinn mundi
heldur láta hana fyrir 6000 krónur en
að sitja með hana. Ef hann segði
frá því í öndverðu, þá dytti mér ekki
—= Axisturstrseti 19 ~ ■
er lirval af FATAEPNUM og tilbúnum Karl-
mannafötum, yfirírökkum o. m. fl.
Komið meðan nóg er til. *^HI
Jón Ilallgrínisson.