Reykjavík - 19.10.1912, Page 3
REYKJAVlK
169
EGAR að Sunlight-sápan er
notuð við þvottinn, þá verður
erfiðið við hann hreinasta
unun. Vinnan verður þá
bæði fljótt og vel af hendi
leyst, þið þurfið ekki að vera
hræddar við að þvo jafnvel hið finasta tau, ef
þið notið Sunlight-sápuna.
UNLIGHT SÁPA
mm
Bókinni íylgir eftirmáli, ritabur af
Guðmundi Finnbogasyni, doktor i heim-
speki, og endar hann með þessum fal-
legu orðum : „Ég fyrir mitt leyti væri
þakkiátur fyrir það, ef þeir menn sem
draumspakir eru, eða fengið hafa vitr-
anir á annan hátt, vildu skýra mér
frá reynzlu sinni, einkum ef þeir hafa
sagt öðrum frá henni um leið og þeir
fengu hana, og geta vottfest það.
Mundi ég reyna að gjöra úr því efni,
þó ekki væri nema lítinn stein í- þann
sjónarvarða, sem mennirnir eru nú að
reisa, til að skygnast yflr hin svefni
kringdu undralönd sálarlífsins".
Draumunum mun verða vel tekið,
eins og þeir eiga fyllilega skilið. Og
gleðilegt er til þess að vita, að pró-
fessot í guðfræði og doktor í heimspeki
skuli birta viðbætir og eftirmála, svo
úr garði gjörða, sem þessir eru, við
bók slíks efnis. Annað eins mundi
ekki hafa getað átt sér stað hér á landi,
fyrir 10 árum, svo ekki sé farið
lengra aftur í tímann. En þoku kreddu-
blindninnar og bókstafstrúarinnar er
smátt og smátt að létta, sem betur fer.
Bárður.
Húsbruni.
Menn meiðast.
Aðfaranótt fimtudags kom upp eldur
í húsi þeirra bræðra Sturla og Frið-
riks Jónssonar, kaupmanna, við Hverfis-
götu. Fólkið í húsinu komst með
naumindum út fáklætt. Þau mæð-
ginin frú Sigþrúður Friðriksdóttir og
Friðrik Jónsson meiddust.
Eldsins varð vart klukkan að ganga 4
um nóttina. Stóð þá brátt alt húsið niðri
í björtu báli. Fólkið svaf uppi og
varð ekki komist niður stigana. Þeir
bræður leituðu útgöngu út á svalir
hússins, og móðir þeirra, ftú Sigþrúður.
Var hún Játin síga ofan í lökum, en
þau biluðu áður en hún kom niður;
meiddist hún þá eitthvað við fallið og
var flutt í hús Jóns bæjarfógeta Magn-
ússonar, tengdasonar síns, sem þar er
skamt frá. Var henni þá orðið kalt,
en hún kona á níræðisaldri. Andaðist
hún þar næst.a morgun klukkan 9. Það
er haft eftir lækni, að meiðsli hafi
ekki orðið orsök að dauða hennar,
heldur hafi henni orðið svo mjög um
þenna atburð.
Friðrik Jónsson leitaði niður af svöl-
unum, en skar sig þá allmikið í lóf-
ann á rúðubroti, og brendi sig líka.
2'j88
Sturla bróðir hans komst niður án
þess að sakaði.
Um þetta leyti var fólk komið að, og
var þá reistur stigi upp að húsinu, og
þeim bjargað, sem eftir voru inni.
Slökkviliðið kom að síðar, og stóð
þá húsið alt í björtu báli. Það var
auðvitað ekki viðlit að bjarga húsinu
úr því sem komið var, en þó tókst að
slökkva eldinn von bráðar, og hrundu
útveggir aldrei til fulls.
Það er mælt, að það hafi aukið mjög
eldinn, að gas lá inn i húsið. því að
þegar pípurnar tóku að bráðna, stóðu
langir eldlogar út úr þeim víða, en
ekki hægt að loka fyrir það, fyr en
höggin var upp jörðin ofan að gas-
pípunni og hún skorin sundur. Segja
menn, að nú komúþað í ljós, að gajji
sé á gaslagningu í bænum, þar sem
ekki sé til „stopphanar" fyrir utan
húsin, eins og á sér ^tað um vatns-
veituna. Þannig hagar til í útlendum
bæjum, svo sem til dæmis í Kaup-
mannahöfn.
Húsið var vátrygt, svo sem önnur
hús hér í bæ og innanstokksmunir vá-
trygðir fyrir 8,000 kr. að sögn. Var
það hvergi nærri nóg, svo þeir bræður
hafa beðið mikið eignatjón við brun-
ann, auk þess, sem þeir hafa látið
marga ómetanlega gripi.
Ekki vita menn enn neitt um upp-
tök eldsins, og er verið að halda próf
um það bæði í dag og í gær. Það
gerir Jón Hermannsson skrifstofustjóri.
Menn þykjast þó hafa komist að raun
um það, að eldurinn hafi byrjað í
norðanverðu húsinu niðri.
Árbók Háskólans.
Fyrsta árbók Háskólans er komin út,
og prýðilega úr garði gerð.
Er þar fyrst drepið á sögu Háskóla-
málsins, og sagt frá stofnunar-hátíð
hans; ræða rektors Háskólans (B. M. Ó.)
við það tækifæri er þar prentuð, svo
og kvæði Þorsteins ritstj. Gíslasonar.
Kemur svo yfirlit yfir störf Háskólans
á þessu fyrsta ári hans.
Um afstöðu hans út á við má geta
þess, að auk þess sem hannfékk boð og
þáði um að senda mann til að vera við
aldarafmæli Háskólans í Kristjaníu, þá
fékk Háskólinn í sumar boð frá Rice
Institute í Houston í Texas um að
senda mann til stofnhátíðar sinnar
10—12 Október. Er boðsbréfið hið
skrautlegasta. Enginn var sendurhéðan,
sem vonlegt var.
Þá eru í bókinni Háskóla-lögin og
innlendar og útlendar.
H ÆIIZTJ H =------------------
- Pappir og Ritföng. — Watermans-sjálfbiekunga.
Þetta kaupa allir í
Bókaverzlun Sisfúsar Eymnndssonar
Lækjargötu 3.
lögin um laun Háskóla-kennaranna, og
auk þess ýms önnur skjöl, svo sem
t. d. erfðaskrá prófessors Finns Jóns-
sonar, þar sem hann gefur Háskólan-
um eftir sinn dag alt bókasafn sitt.
Loks fylgir bókinni Stíifs saga, og
er hér gefin út í fyrsta sinn, eftir hand-
ritum. Hefir prófessor Björn M. Olsen
búið hana undir prentun. Er hér fundin
hin sérstaka Stúfs saga, sem Stúfs-
þáttur er ritaður eftir, sá sem flétt-
aður er inn í Haraldssögu hins harð-
ráða. Söguna telur próf. B. M. Olsen
vafalaust eldri og réttari en þáttinn,
enda skýrast ýmisleg orðatiltæki í þætt-
inum þegar sagan er lesin.
miklar birgðir nýkomnar.
Bæjarins besta úrval.
Síuría cJónsson.
llr bréfi úr Álftafirði eystra.
.... Fátt ber vanalega til titla og
tíðinda héðan úr hreppi; lífið líður
áfram þetta sinn vanagang, og fátt
verður til að trufla værðina. Á póli-
tík vil ég ekki minnast, fæst orð hafa
minsta ábyrgð. Þó vil ég geta þess,
að alment hér gjöi-a menn sér vonir
um, að smátt og smátt fari að breyt-
ast eitthvað til batnaðar, úr því vor
liprasti samningamaður og eindregnasti
föðurlandsvinur, H. H., aftur komst í
ráðherrasætið. Þær vonir mega heldur
ekki bregðast, ef vel á að fara.
Tíðarfarið í sumar kalt, en þurt;
heyfengur í betra meðallagi hér víðast
í hrepp.-----■—
Nöfn o*»' nýjungar.
Fypiplestrar um ísl. bókmentasögu.
Fyrirlestrar próf. B. M. Olsens um bókmena-
sögu íslands byrja kl. 5 í dag.
Látinn er i Washington Island í Banda-
rikjunum Jón Gislason kaupm. frá Selalæk.
Hann mun hafa verið einhver fyrsti íslenzkur
landnemi er fór vestur um haf. Fór þangað um
1870. Hann var bróðir séra ísleifs Gíslasonar.
Kipkjur á íslandi. Þær eru samtals
277. Þar af eru 247 timburkirkjur. Stein-
kirkjur eru 22 að tölu, 17 nýbygðar. Torf-
kirkjurnar eru 8, og eru þessar:
Á Norðurlandi :
Víðimjrarkirkja i Skagafirði.
Árbæjarkirkja.
Saurbæjarkirkja í Eyjafirði.
Á Austurlandi:
Víðirhólskirkja á Fjöllum.
Brúarkirkja á Jökuldal.
Húsavikurkirkja.
Hofskirkja í öræfum.
Sandfellskirkja í öræfum.
Göngustafir
nýkomnir.
Sturla Jónsson.
o H/F(Sápuhúsið o
Austurstræti 17,
margar tegundir
pússneskar cigapettup
nýkomnar.
Óvenju ó d ý r a r.
Keyfengup á norðuplandi. Úr bréfi
úr Húnavatnssýslp. Tíðin hefur verið góð
hjer norðanlands í sumar að undanskildu
hretinu í byrjun Ágústmánaðar. Þur en
heldur köld. Grasspretta var tæplega í
meðallagi, en nýting á heyjum hin besta,
svo að heyíengur manna mun vera með
allra besta móti. Hjer í Húnavatnssýslu
voru menn víða búnir að slá upp engjar
sínar fyrir göngur og margir þá búnir að
þekja hey sín og gera upp að þeim.
Karlmanna-
fatnaðir,
mörg hundruð, komu nú með »Ceres«.
Stærsta úrval bæjarins.
V etr arfrakkar
og
Jakkar.
Hvergi eins ódýrt.
Síurla Sónsson.
Sigupðup skáld Jóhannesson.
Hann kom hingað til bæjarins með .Vestu
siðastl. hefur verið á ferðalagi um Norður-
land seinni partinn í sumar. Hann fór
hjeðan með Austra skömmu fyrir lok ágúst-
mánaðar til Akureyrar ’og hitti þar góða og
gamla kunningja sína. Hann fór inn í fjörð-
inn og segist hafa komið þar á það mesta
myndarheimili sem hann haldi að til sje á
íslandi, en það er á Grund hjá Magnúsi
kaupmanni Sígurðssyni. Frá Akureyri fór
hann til Sauðárkróks og hafði þar nokkurra
daga viðdvöl og ferðaðist þar lítilsháttar um
Þaðan vestur í Húnavatnssýslu og dvaldi
þar lengstum, er hann þar frændmargur og
vinmargur og ferðaðist milli góðbúanna.
Segir hann menn þar alstaðar hafa borið
sig á höndum sjer, og biður hann blaðið færa
skyldum og vandalausum innilegustu þakkir
fyrir viðtökurnar. Sigurður hefur í hyggju
að halda heimleiðis vestur um næstu
mánaðamót.
Skófatnaður,
afarvandaður og ódýr,
margar tegundir.
Nýtt með hverri ferð.
Mikill afsláttur.
Stnrla jónsson.
Bpuni. í vikunni brann hús Olgeirs
Júlíussonar bakara á Siglufirði, var óvátrygt
að sögn.