Reykjavík - 14.12.1912, Page 3
REYKJAVlK
205
Glaðlyndi og ánægja eru
samfára notkun Sunlight
sápunnar. Eins og sols-
kinið lýsir upp og fjörgar
náttúruna, eins gjörir
Sunlight sápan bjart yfir
erfiði dagsins.
SUNLIGHT SÁPA
"* __ 2'240
Kvikmynd,
sem mjög bráðlegra yerðnr sýnd í
Gamla Bíó.
1. mynd. Skrifstefa almennings. Kon-
súllinn situr í stólnum við skrifborðið.
Biblían liggur opin fyrir framan hann, og
stór flaska — Hklega blekflaska — stendur
á borðinu. Fyrir ofan skrifborðið hangir í
dökkri umgjörð allstór mynd af sóknarnefnd
Reykjavíkur. Nefndarmennirnir eru mjög
meðhjálparalegir útlits. Þeir eru búnir í
svarta lafafrakka með hvítar slaufur og
lianzka, nýgreiddir og sleikt niður hárið.
2. mynd. Barið að dyrum. Inn kemur
•maður nokkuð lotinn í herðum, kiðfættur
og goggslegur í framan. Það er Samson.
Hann er með handrit í hendinni. Jafnskjótt
og hann rekur nefið inn fyrir dyrnar, snýst
myndin af sóknarnefndinni við. Konsúllinn
lokar biblíunni, stendur upp og leiðir Sam-
son til sætis. Samson kemur auga á blek-
fiöskuna, þrífur hana og teiga/ drjúgum úr
heiini. Þegar hann tekur liana frá munn-
inum stendur blár loginn út úr honum.
Konsúllinn tekur handritið og les það. Að
því búnu klappar hann Samson á öxlina og
stingur að honum dal. Svo réttir hann
Samson blekflöskuna. Hann teigar og blái
loginn gýs aftur upp úr kokinu á honum.
Samson fer.
3. mynd. Konsúilinn einsamall. Hann
setur blekflöskuna undir borðið, opnar
bibiíuna og snýr myndinni aftur við.
4. mynd. Ástvaldur kemur inn. Hann
hlammar sér niður í hægindastól og þurkar
svitann af enni sér með stórum rauðdröfn-
óttum vasaklút. Konsúllinn lítur ekki upp
úr ritningunni.
Innskotsletur. Nú er ég búinn að
hendast um bæinn þveran og
endilangan í samfleytta níu
daga og hefi fundið þrjátíu og
sex hneyxlanleg. Við verðum
að útvega sannanir í nótt.
Konsúllinn stendur upp, hægt og með
hátíðlegu yfirbragði. Hann gengur að Ást-
valdi, leggur báðar hendur sinar á höfuð
honum og blessar hanu. Síðan blessar Ást-
valdur konsúlinn, en hann krýpur á meðan
niðurlútur og með handleggina krosslagða
á brjóstinu. Ástvaldur kveður og fer.
Tveggja mínútna hlé.
5. mynd. Seinni hluti dags. Sóknar-
nefndarmennimir á ferð einhversstaðar í
útkjálka bæjarins. Þeir ganga þar að litlu
húsi, fylkja sér undir glugganum, tylla sér
svo allir á tær og gægjast inn. Síðan læð-
ast þeir að skúrnum, opna hann varlega og
laumast inn hver af öörum.
6. mynd. Svefnherbergi. Eitt rúm,
einn stóll, eitt næturgagn. Sóknarnefndar-
mennirnir — sem eru á lafafrökkum allir,
nema konsúllinn, sem er i einkennisbúningi
með þrístrendan hatt og sverð við hlið —
skríða allir inn undir rúmið, en fella um
leið næturgagnið. Andlitin á þeim sjást
snöggvast koma fram undan rúminu. Þeir
eru grettnir mjög í framan og hrækja á báða
bóga.
7. mynd. Maður og kona koma inn í
herbergið. Konan heldur á logandi kerti í
hendinni. Þau hátta og slökkva ljósið.
8. m y n d. Svarta myrkur.
9. m y n d. Aftur bjart. Sóknarnefndar-
mennirnir skriða undan rúminu. Þeir standa
fram á miðju gólfi í reigingslegum stelling-
um, hver við hliðina á öðrum eins og her-
menn. Ástvaldur otar visifingrinum að
manninum og konunni í rúminu.
Innskotsletur. Hver h e f i r h e i m i 1-
að ykkur þetta? Fram með gift-
ingarvottorðið !
Iniiskotsletur. Ekki til, góði!
Höfum lifað samauí 24 ár, og
átt 1 2 b ö r n. Farið þið norður
o g n i ð u r.
Konsúllinn potar í manninn með korðan-
um, og vill reka hann upp úr rúminu.
Maðurinn þybbist við. Sóknarnefndarmenn-
irnir vappa út hver á eftir öðrum. Ást-
valdur rekur lestina og steytir hnefann
ógnandi framan í manninn um leið og hanu
gengur út.
10. mynd. Sóknarnefndin úti. Þeir
ganga hús af húsi, læðast að gluggunum,
hlera og gægjast inn. Ástvaldur er með
pappirsörk í hendinni, og skrifar á hana
við annaðhvert hús. Þeir eru að þessu alla
nóttina, og fara loks heim undir morgun
með alskrifaða örkina.
11. mynd. Næsta dag. Skrifstofa al-
mennings. Sóknarnefndarfundur hjá kon-
súlnum. Örkin á borðinu. Ástvaldur les
upp skjal, sem þeir síðan allir skrifa undir.
IuivskotsmyHd- Stórt umslag. Utan á
stendur t T i 1 S t j ó r n a rráðsins.
1 2. m y n d. í Stjórnarráðinu. M. V. í
djúpri samræðu við Kl. J- og E. B. — M. V.
sendur a stað með stórt gult embættisbréf.
Innskotsmynd. Stórt umslag. Utaná-
skrift : Til sóknarprestanna.
13. mynd. M. V. kemur aftur með
bréf mikið í hendinni. Hann afhendir
E. B. bréfið. E. B. opnar það og les.
Innskotsletur. Alveg á sama máli
o g s ó k n a r n e f n d i n.
Ekkert að frétta. Aellíðan.
Virðingarfyllst
Sóknarprestarnir.
Cróðar jólagjafir
Watermans lindarpennar,
þeir fást á kr. 10,00, lí5,00 og 18,00, í
Bókav. Sigf. Eymundssonar, Lækjargötu %£. •)
Lesið bókaauglýsinguna a annari blaðsiðunni.
Vindlar í 1i \ & \ kössum.
Með iimkaupsverði
Seljast meðan birgðir endast, í
M
Verzluninni „SIF .
Laug'aveg 19. Talsími 339.
14. mynd. Þorvaldur og Páll með
stóreflis skjal inni á skrifstofu almennings.
Þeir lesa það hátt fyrir sóknarnefndinni,
sem þar er stödd. Þegar lestrinum er lokið
liggja nefndarmennirnir allir í ómegin á
gólfinu.
Innskotsletur. Það verður að álíta full-
sannað, að þessar ógiftar persónur hér í bæ,
A. B. C. D. E. F. G. H. I. .T. K. L. M. N.
O. P. Q. R. S. T. U. V. X. Y. Z. Þ. Æ. Ö.
lifi saman sem góð hjón, hvort öðru trú, í
sátt og samlyndi, og að þetta hafi hneyxlað
einstöku frómar sálir í bænum.
Því úrskurðast:
Kærendurna, sóknarnefndar-
menn Reykjavíkur, á að setja
í svartholið um óákveðinn tíma
fyrir rangan sakaráburð.
í svartholinu mega þeir ekki
neyta áfengis.
Yirðingarfyllst
HANNES.
Ingimundur.
Jólin nálgast.
Munið að eklii síður
en undanfarið, verða heppi-
legust kaup á Jólavindlunum
í Tóbaksverzlun
R, P. Leví.
o H/F Sápuhúsið o
Austurstræti 17,
margar tegundir
rússneskar cigarettur
nýkomnar.
Óvenju ó d ý r a r.
Kvenréttindakonur á Englandi.
Þeir sem móthverttr eru því, a&
konur fái jafnrétti við karlmenn, mega
hrósa happi yíir því, hvernig kvenrétt-
indakonur á Englandi hegða sér um
þessar mundir. Þær eru að missa
samúð flestra manna. Síðastliðið ár
heflr varla verið haldinn opinber fundur
á Englandi svo kvenréttindakonur hafk
ekki gjört þar fundarspjöll, ráðherrun-
um hafa þær sýnt banatiiræði, og
reynt til að kveikja í fundarhúsum.
Minna má og á það, að eigi alls fyrir
löngu gengu þær með bareíli um helztu
götur Lundúnaborgar, og brutu rúður
í búðargluggum, þar sem þær fengu til
náð.
Fyrir skömmu átti Lloyd George að
halda ræðu í Aberdeen á Skotlandi.
Áður en hús var opnað, var það rann-
sakað, og fundust þá tvær konur þar
undir kassa uppi á efsta lofti. Voru
Húfur.
brúkuð íslengnls, alls-
konar borgar enginn
betur en
Helgi Helgjason
(hjá Zimsenj
Reykjavík.
Eigulegar
Jólagjafir
eru:
góð Reykjarpipa
og Vinðlamunnstykki.
Hvergi stærra urval aí þeim
vörum en í
Tóbaksverzlun
“R. P. Leví.
Stórt úrval
Sturla <36nsson.
þær handsamaðar og fanst á þeim
sprengiefni, er þær höfðu ætlað að
nota á fundinum. Þykir það mesta
lán að stúlkurnar íundust, því mikið
manntjón hefði getað orðið af þvi, ef
felmtri hefði slegið á menn í troðfullu
húsi.
Ekki er alt úti með þessu.
í lok siðasta mánaðar gjörðu kon-
urnar samtimis árás á póstkassa í
mörgum helztu borgum Englands. En
það gjörðu þær á þann hátt, að þær
stungu í kassana flöskum eða pokum
með ýmiskonar sýrum og uppleysandi
efnum. Eyðilögðu þær með þessu
margar þúsundir bréfa. Hefir það
valdið talsverðri truflun á viðskiftalíft
manna. Eru menn nú svo hræddir,
að konurnar endurtaki þetta, að vörður
er settur við hvern kassa. Fólk lætur
bréf sín miklu síður í kassana nú en
áður, heldur skilar þeim beint á póst-
húsin, en við það verður þar mikil
þröng, einkum nú um jólaleytið.