Reykjavík

Eksemplar

Reykjavík - 21.12.1912, Side 1

Reykjavík - 21.12.1912, Side 1
k j a v t k. XIII., 55 Laug'ardag 31. Desember 1913 XIII., 55 Ritstj.: Björn IPálsson cand. jur. Talsími 215. Kirkjustræti 12 Pósthólf A 41. Heima daglega kl. 4—5. Toll-lögin endurskoðuð. Dr. Woodrow Vilson hinn nýkjörni forseti Bandarikjanna heíir lýst yflr því, að hann muni kveðja kongressinn saman til aukafundar undir eins og hann taki við stjórn, sem verður 4. Marz næstkomandi. Hann gerir það til þess, að flokkur hans geti sem fyrst komið á endurbótum þeim á toll- iöggjöf landsins, sem lofað var fyrir kosningarnar, en það var að lækka tolla yfirleitt. Áttu demokratar mikið að þakka fylgi sitt, stefnu þeirri, sem þeir höfðu í toll-málunum. Þegar úrslit forsetakosninganna frétt- ust til Filippseyja, varð mikill fögnuður hjá landslýð, og voru marger fagnaðar- samkomur halduar. Krefjast Filipps- eyjarbúar, að þeim sé veitt algert stjórnfrelsi, og hyggja þeir, að demo- kratar muni gera það. Sá flokkur var mjög mótfallinn því, að Bandaríkin legðu eyjarnar undir sig, en voru ekki við völd þá né síðan, fyr en nu. jjruni enn á ^kureyri. Klukkan um 3 aðfaranótt sunnudags 15.þ.m. kom upp eldur í heyhlöðu sem Höepfners-verzlun átti á Akureyri, og brunnu þar tólf hús, eða það sem eftir varð af gamla bænum í stóra brun- unum eftir aldamótin. Ekkert af húsum þessum var í- búðarhús, en eitt var stór vefnaðar- vörubúð, Gudman’s Efterfölger. Hin ellefu voru flest eldgamlir kofar, sem hafðir vpru til vörugeymslu. Múgur og margmenni þusti að, og þótti auðsætt að eldurinn yrði ekki slöktur. Var þá snúist að því að verja íbúðarhús þau sem næst voru bruna- svæðinu. Tókst það með ötulli fram- göngu nokkurra manna. Á næsta í- búðarhús (H. Schiöth’s fyrv. bankagjk.) var breitt segl, og stöðugt dælt vatni á það, en samt brann seglið og logaði um stund í mæni hússins, en varð þó slökt. Alt var borið út úr þessu húsi og húsi St. Stephensens banka- gjaldkera og úr Apótekinu, sömuleiðis úr húsum Sigmundar Sigurðssonar úrsmiðs og Guðm. Vigfússonar skó- smiðs, og urðu talsverðar skemdir á munum manna. Um kl. sjö um morguninn var eld- urinn slöktur eða orðinn viðráðan- legur; höfðu þá brunnið öll hús á svæðinu milli Breiðagangs og Búðar- lækjar, Hafnarstrætis og Aðalstrætis. í vor höfðu brunnið 3 hús á þessu svæði, er 0. Tulinius átti. Brunar á Akureyri eru næsta tíðir og til mikils tjóns fyrir alt landið, og er talið að vátryggingargjald hér á landi sé orðið svo hátt og nú er, ein- mitt þeirra vegna. ♦♦ ♦ X. u s t u r s t r æ t i 6. ♦♦ ♦ ■v* Jólasalan -wm hjá > U $ Árna Eiríkssyni, Z X Ansturstræti 6. rf s ■u X Bæjarins mcsta og bezta .I ÓLASALA ! “5 X = -éj Frain aö ISTýsiri gefur verzlunin gfódar g'jafir þeim, s * sem hitta á óskastundina samlcvæmt hlutkcsti. 11 Gjafir þessar eru frá 3—80 króna -viröi — til dæmis barna-hjólhestur sterkur og vandaður. — Ilvern dag eru gefnar] SS til 3 gjafir, og eru þær auglýstar fyrirfram í búðarglugganum. • X usturstræti (J. ♦ 1 ♦♦ I Austurstræti 17. Laugaveg 40. Vanilliu bökunarduft. Sítrónudropar á 10—30 a. gi. Florians-eggjaduft, Vanillíudropar. (hver pakki á við 6 egg). Kardemommudropar. Kardem. heilar og steyttar. Möndludropar. Sukkat. Ilmvötii frá 10 a. tíl 3 kr. gl. Grænsápa 4 teg. 15 til 22 a. Allir vita, að hvergi er meira úrval af handsápum öllum tegundum. jVíargt fsst hentngt til jólagjafa. 3 pð. af sóða ern selð fyrir 1ð a. til jéla. Munið, að hvergi eru betri vörur, hvergi ódýr- ari vörur, og hvergi betra að verzla, en í SápuhúsinuSápubúðinni Austurstræti 17. Telef. 155. Laugaveg 40. Telef. 131. Ritfregn. Knut Hamsun: Viktoria. Astarsaga. Jón Sigurðsi son frá Kaldaðarnes- þýddi með leyfi höfund- arins. (Bókaverzlun Sig- fásar Eymundssonar). Rvík. 1912. Því er stundum slegið fram, að við íslendingar viljum nú orðið ekki annað lesa, en neðanmálssögur úr „Heims- kringlu" og „Lögbergi", og annað þess háttar góðgæti. Það er sárt til þess að vita, að á uppboðum hér í höfuð- staðnum skuli oft boðnar margar krónur 1 útlenda „reyfara*, þótt á islenzku sé, en ekki nema fáeinir aurar i bækur eftir íslenzka höfunda, t. d. bók eins og „Upp við fossa“. Ekki er þó öll- um svo farið, sem betur fer, og þeir munu vera viðar og fleiri en margur heldur. Mentamaður héðan úr bænum var á ferð í Norðurlandi í haust, og gisti á bæ fram til dala. Um kvöldið segir bóndi, að gesturinn muni víst þurfa eitthvað að lesa undir svefninn, og að það sé víst ekki til neins að bjóða Pan, hann hafi víst lesið þá bók. Mmifl eftir hinum 6 ágætu Jólagjöfum í Vöruhúsinu. Hver verðar heppnastur! Gesturinn svaraði, að þó að hann hefði lesið margar bækur eftir Hamsun, þá hefði hann þó aldrei lesið Pan, og léki sér hugur á að lesa þá bók. Hneig þá tal þeirra að bókum Hamsuns, og hafði bóndi þá nýlega keypt Viktoríu, og þótti mikið til koma. Höfundur Viktoríu er nú fyrir löngu orðinn frægur fyrir skáldverk sín, og skipar öndvegi meðal norskra skálda, er nú lifa. Hann heitir Knut Peder- sen, en tók sér snemma nafnið Ham- sund, er hann stytti síðar í Hamsun. Hann er fæddur í Vom í Guðbrands- dal árið 1860. Fjögra ára gamall fiuttist hann norður til Lofoten, og var þar fram undir tvítugt. Er talið að veran þar hafi sett mót sitt á hann. Einhverja beztu sögu sína iætur hann gjörast þar, en það er Pan, hreinn bókmenta-gimsteinn. Þegar Hamsun var 17 ára, var hann sendur suður í land að nema skóara- iðn, en undi því námi illa. Hvarf frá því og gjörðist ferðalangur, ekki þó í venjulegri merkingu þess orðs. Varð Hamsun að hafa ofan af fyrir sér með vinnu sinni, enda fór hann víða um Noreg, og fékkst við margt, skógar- högg, vegagjörð o. s. frv. Nám stundaði hann um tíma í Kristjaníu, og átti þar við þröngvan kost að búa, og hvarf loks til Ameríku þaðan. Kom heim og fór aftur vestur, og var þá meðal annars 3 ár á Newfoundland við fiski- veiðar. Hamsun fékkst við margt í Ameríku, eins og oft vill verða um þá menn er þangað fara. Vann hann hjá bændum út á landi, en var annað veifið í borgunum, og meðal annars farseðlasali á sporvagni. Þótti honum ekki láta það starf, að því er hann sjálfur segir frá, enda eiga þau tvö störf ekki saman, skáldsagnaritun og sporvagnavinna. En Hamsun hafði snemma farið að fást við skáldskap. Hann gaf út kvæðabálk og sögu eftir sig 18 ára gamall, og þótt margt megi að þeirri ungdómssmíð hans finna, þá bregður þar þó fyrir því sem mest þykir sérkennilegt við Hamsun, en það er einkennilegur still og fram- setning. í Minneapolis ritaði hann sögu, er hann nefndi „Sult“, og er lýsing á baráttu stúdents í Kristjaníu við fátækt. Kom kafli af henni út í tímariti einu á Norðurlöndum, og vakti Hamsun þá fyrst eftirtekt á sér. Þegar bókin kom öll út, varð hann frægur fyrir hana. Rétt eítir að Hamsun kom heim í síðara skiftið, gaf hann út bók um andlegt ’ líf í Ameríku (Det moderne Amerikas Aandsliv). Er hún ádeilu- rit um mentunarástand Vesturheims- manna, snildar vel skrifuð og sönn lýsing á lífinu þar að mörgu leyti, þótt ýkt sé sumstaðar.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.