Reykjavík


Reykjavík - 01.03.1913, Blaðsíða 3

Reykjavík - 01.03.1913, Blaðsíða 3
REYKJAVÍK 35 SUNLIGHT SOAP Sunlight sápan er áreiðanlega hrein og ómenguð og engin önnur sápa getur jafnast við hana til þess að hreinsa fat- naðinn, spara tímann og gjöra vinnuna við þvottinn auðveldari. Sunlight sápan er afkastamikil og sparar yður peninga. Ef þjer ekki eruð þegar farinn að nota Sunlight sápuna, þá byrjið að gjöra það nú þegar. y/irlit yfir árið 1912. Portúgal. í ársbyrjun leit fremur illa út fyrir hinu nýstofnaða iýðveldi. Erkibiskup í Lissabon og ýmsum prestum hafði verið vísað úrlandi vegna mótþróa þeirra við skilnaðarlögin, en íhaldssamari iýð- veldismenn þyktust við af því. Verka- menn voru mjög óánægðir með kjör sín, og gjörðu mörg verkföll og ó- eirðir, og varð stjórnin víða að sker- ast í leikinn með hervaldi. í Júni- mánuði var komið svo mikið ósamlyndi í ráðaneytinu milli þeirra sem lengst vildu ganga, og íhaldsmanna, að stjórnin varð að segja af sér. Var þá myndað samsteypuráðaneyti, og fyrir því Duarte Leite íhaidsmaður. Fám vikum seinna gjörðu konungssinnar, í þriðja sinn á árinu, innrás i landið. Fyrir þeim var hershöfðingi einn, Couceiro að nafni. Hann hafði safnað saman yfir sex hundruð manns yflr á Spáni, og viðað að sér fáeinum fallbyssum. Stjórn- inni hafði komið njósn um þessa árás og voru uppreisnarmenn flestir teknir höndum. Uppreisn þessi varð til þess að gefa þeim mönnum vind í seglin, er harðast vildu ganga fram gegn konungssinnum. Hófust þá ofsóknir gegn nær öllum, sem minsti grunur lék á um að væru fylgjandi konungsætt- inni gömlu, vorn þá svo margir teknir höndum og hneptir í fangelsi, að þau urðu öll meir en full. Fjárhagur rík- isins var og í mestu óreiðu, og ekkert gjört af stjórnarinnar hálfu til að bæta úr kröggunum. Spánn. Um miðjan Nóvember síðastl. ár var Canalejas forsætisráðherra myrtur á götu í Madrid af stjórnleysingja. Hann hafði verið forsætisráðherra í nærri því 3 ár, og þótti ágætur maður í sinni stöðu. Romanones greifi, frjálslyndur maður, varð eftirmaður hans. Handaríkin. Árið 19 L2 fór fram forsetakosning í Bandarikjunum, og þau árin hverfa venjulega önnur mál fyrir henni. Dr. Woodrow Wilson, ríkisstjóri í NeW Jersey, hlaut kosningu. Hann var Magdeborger brunavátryggingarfélag Viölagasjóður í árslok 1911 meira en 18 milj. ,króna. Tryggir gegn bruna hús og húsgögn m. m. Aðalumboðsmenn félagsins á íslandi er Firmað O. JOHNSEN & KAABER. forsetaefni sérveldismanna, en þeir hafa verið í minni hluta síðastliðin 16 ár. Síðari hluta sumars og haustið var kosningabaráttan orðin feykilega hörð, svo að sjaldan heflr hún verið rammari. Afstaða flokkanna var ekki ólík því sem var árið 1896, er Bryan klauf flokk sinn með silfurmálinu. Nú klauf Roosevelt samveldismenn með brýn- ingum sínum til alþýðu um að ganga milli bols og höfuðs á auðmönnum og auðfélögum. Þ6 var sá munur á af- stöðunni, að árið 1896 var Bryan til- nefndur á flokksfundi sérveldismanna, en Roosevelt var hafnað á flokksfundi samveldismanna, en Taft tiinefndur sem forsetaeíni hinna „reglulegu" sam- veldismanna. Roosevelt varð því að stofna nýjan flokk, og kallar sá flokkur sig framsóknarflokk, og við kosning- arnar kom í ijós, að hans flokkur var öflugri en gamli samveldismannaflokk- urinn. Skömmu fyrir kosningarnar var Roosevelt veitt banatilræði, særðist hann í brjóstið, en varð þó jafngóður. Forsetakosningin fór fram 5. Nóvbr. Dr. Wilson hlaut þá 442 kjörmanna- atkvæði, Roosevelt 77 og Taft 12. Við kosningarnar til sambandsþingsins, sem fóru fram samhliða, urðu sér- veldismenn i meiri hluta í báðum deildum, og ráða þar lögum og lofum. Um sumarið samþykti sambands- þingið lög um Panamaskurðinn og var þar sagt, að strandferðaskip Banda- ríkjamanna skyldu eigi þurfa að gjalda siglingatoll um skurðinn. Englend- Biblíufyrirlestur í Betel Sunnudag 2. marz kl. 6V2 síðd. Efni: Minnist konu Lots. Allir velkomnir. O. J. Olsen. Ágætar kartöflur fást hjá <3es SEimsen. fískburstar °e fiskhníjar þeir beztu, sem til landsius flytjast, eru nú aftur komnir til c3es SEimsen. ingar segja að með þessu séu brotnir þjóðarsamningar við þá, og viija að öllum skipum, hverrar þjóðar sem eru, sé gjört jafn hátt undir höfði. Hefir utanríkisráðherra Breta mótmælt lög- um þessum, og krafizt þess að málið yrði lagt í gjörð, ef Bandaríkjamenn vilji eigi afnema þetta ákvæði laganna. Bandaríkjamenn tóku því í fyrstu fjærri, að leggja málið í gjörð, en undir ára- mótin kom lát á þá með það, og lét Taft forseti í ijósi, að hann væri því hlyntur að málinu væri vísað til gjörðar 18 »Nei, ég tek hana með mér þangað sem við förum«, svaraði hún. »En nú er ég tvísæl fyrir að við höfum séð þessa dýrð saman«. Þeim þótti fyrir að hætta að horfa á norðurljósin, en kirkjuklukkan minti þau á að framorðið væri og mál að fara heim. Þau lögðu því heimleiðis yfir hjarnið á Landakots- túninu, þegjandi bæði og full fjálgleik. Síðan kom honum aldrei svo í hug nóttin þegar hún gaf honum hjarta sitt, að honum ekki kæmi aftur i hug hið sama, að þar hefði hann leitt hana inn gólfið í kirkju alföður, og hún hefði staðið þar skrýdd til viðhafnar trygðaböndum þeirra. VII. Daginn eftir skifti um veður, eins og við var að búast eftir norðurljósaganginn. Hann hljóp í austur með hráslaga- veðri, suddi og grenjandi bleytuhríðar tóku við eftir frostin. Máfarnir svifu fram og aftur með sjónum, argandi og garg- andi, en hrafnarnir hópuðu sig saman á túnunum, og hýmdu þar rennblautir. Heimili Steinunnar var eins og veðrið úti, meðan Kol- beinn Jónsson var þar á jólakynni sínu. Honum þótti sjálfum sér stórum misboðið, að hún skyldi hafa tekið danskan mann fram yfir sig, og sárnaði honum nú enn meir að sjá liggja vel á Steinunni, þvi hún gai ekki dulið fögnuð sinn. Ólund hans og skenz við Steinunni gjörði hann raunar ekki geðfeldnari í hennar augum, en það opnaði augu foreldra hennar. Móðir hennar hafði verið svo lasin í seinni tið, að hún gat varla fylgt fötum, og nú fyltist hún angri og kvíða við að hugsa til ófriðarins, sem hún ætti nú í vændum á heimilinu. Hún þekti hvað maður hennar var ráðríkur, og vissi af því að fá- 15 »Máttirðu ekki vita, að ég mundi einmitt vilja dansa við þig þennan dans, og mér ber hann þó líklega fremur en danska drjólanum«, sagði hann með þykkju. »Ég býst við að ég eigi með sjálfa mig, Kolbeinn«, sagði Steinunn stokkrjóð i framan. »Og svo mikið get ég sagt þér, að heldur sit ég hjá, en að dansa við þig«. í því bili kom Hansen aftur, og ætlaði auðsjáanlega að bjóða Steinunni i dans að nýju. Kolbeinn snerist við hon- um, heiftin brann úr augum hans, og svipurinn var eins og hann ætlaði að mylja hann mjölinu smærra. Og það er bágt að segja hvernig farið hefði, ef Guðbjörg hefði ekki gripið það til bragðs, að standa upp og þrifa í handlegginn á Kolbeini, og segja: »Við skulum dansa þennan dans, Kolbeinn«. Hann stiltist ósjálfrátt við orð hennar. — »Jæja, hana þá«, sagði hann, og rauk eins og vindhviða út á gólfið með hana, en hvesti þó um leið augun reiðilega á eftir Steinunni, sem óðara hafði tekið boði Hansens. Upp frá þessu var ljótt að sjá aðfarir Kolbeins. Hann hvolfdi í sig hverju vínstaupinu á fætur öðru, hamaðist að dansa svo hann varð allur i einu kófi, og öllum stúlkunum stóð stuggur af honum. Það var ekki nóg með að Steinunn liði önn fyrir hann, heldur bættist það oían á að hann vakti athygli manna á henni með því að vera að blína á hana og kalla til hennar. Guðbjörg reyndist henni aftur vinur í raun, henni tókst með lagi að stilla Kolbein, þó óstýrilátur væri, ýmist með gamni eða alvöru, en samt rak að því að Stein- unni varð með öllu óvært á dansinum. Hún stóð því upp, og gekk út úr salnum til að fara heim. Þegar hún var búin að láta sjalið á sig, og var á förum, kom Hansen til hennar. »Farið þér ekki, Steinunn«, sagði hann.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.