Reykjavík


Reykjavík - 10.05.1913, Blaðsíða 2

Reykjavík - 10.05.1913, Blaðsíða 2
76 REYKJAVlK liiblíuíyrirlcstur í Betel á Hvítasnnnudag kl. 7. síðd. Efni: Heilagur andi, starf hans og eSli. Andinn sem fulltrúi frelsara vors á pess- ari jörðu pangað til hann kemur. Á annan í Hvítaaunnu kl. 7 síðd. verður svarað ýmsum tviræðum spurn- ingum i Biblíunni. Allir velkomnir. O. J. Olsen. á hendur. Sat enn í þófi um þetta í nokkra daga, og var talið líklegt að til allsherjar ófriðar mundi draga. Á Miðvikudaginn var kom svo símskeyti hingað, um að Svartfellingar hefðu af- salað sér Skutari. Það er líklegt að þeim hafi verið heitið einhverju í sára- bætur, löndum eða fé. Á vettvangi gerist fátt til tíðinda. Búlgarar og Tyrkir gerðu með sér tíu daga vopna- hlé í Aprílmánuði, og síðan hefir ekki verið barist. Stórveldin hafa nú tekið að sér að koma á friði. Fjárlagafruravarp Breta. Lloyd George, fjármálaráðh. Breta, hefir nýlega lagt fjárlagafrv. stjórnar- innar fyrir þingið. Gjöldin eru áætluð 195,640,000 sterlingspund, og eru meiri en nokkru sinni fyr; samt von- ast hann eítir að tekjuafgangur verði ooooooooooooo 0 , l oo 0 0 o 0 alls konar er lang-ódýrastur í ^ O Skóverzlun ións Stefánssonar o 0 Laugaveg 14. 0 Y Vatnsstfgvél (hnéhá) 0 ▼ seljast á Kr. 16,75. ▼ 0 Allar viðgerðir fljótt og vel gerðar. ^ oooooooooooo A Hiiar ooo á þessu fjárhagsári. Enga nýja skatta ætlar stjórnin að fara fram. á í ár. Síðan Lloyd George varð fjármálaráðh. fyrir eitthvað 5 árum, hafa útgjöld ríkissjóðs vaxið um liðugar 40 þúsund miljónir sterlingspunda. Hrs. Pankhurst var látin laus úr fangelsinu í 15 daga til þess að hún gæti jafnað sig, en hún hafði svelt sig meðan hún sat inni. Þegar átti að flytja hana aftur í fangelsið, var hún enn svo veik, að læknir réð frá • að fara með hana þangað, er hún því enn úti sér til hressingar. Verkfallinu í Belgíu, sem getið var um í síðasta tölubl., er nú lokið. Stjórain hafði áður haft góð orð um að leggja fyrir þingið frv. um rýmkun á kosningarrétti, en leik- urinn til þess gerður með verkfallinu, að fá kosningalögunum breytt. Uraræður skornar niður. Neðri deild Canadaþings hefir sam- þykt breytingu á þingsköpum sínum, svo að nú er hægt samkv. þeim að skera niður umræður, sem svo er kallað. Það var samþ. með 108 atkv. móti 73, og skiftust atkvæðin eftir flokkum, líberalar allir á móti. Erfðaskrá Morgans er nú orðin heyrinkunn. Gefur hann þar feiknin öll ejnstökum mönnum og stofnunum, t. d. eiga allir starfsmenn hans að fá heils árs laun, en þjónar hans 1000 dollara hver. Börn hans fá 3 miij. dollara í peningum, en sonur hans allar aðrar eignir, þar á meðal listasöfn Morgans, sem vart verða metin til peninga. Hinn 13. maí næstkomandi verður verulega gaman að lifa þvi þá byrjar feikna-mikil og- merkileg1 útsala í fatasöludeild EDINBORGÁR.I Heðal ófalmargs annarg má af kjörkaupunuui þar benda á: Áður: Nú: Stór sjöl ...... 31,00 — 19,00 .... 28,00 — 15,00 ............... 18,50 — 9,25 Dömukápur ....... 42,00 — 21,00 ............ 22,00 — 11,00 ............. 30,00 — 15,00 Telpukápur ...... 11,00 — 5,50 ............... 9,35 — 4,75 _______________ 7,00 — 3,50 Áður: Nú: 8,50 — 4,25 19,25 11,00 7,00 Drengjakápur ....... Karlmannakápur...... 32,25 — Drengjaföt ........... 16,50 — Drengja sportföt.... 18,85 •— — — .... 6,25 — Kjólatau .............. 1,70 — Karlmannafatatau .. Manchettuskyrtur .. Karlmannshattar..... 6,50 — 4,25 — 3,00 — 3,95 1,00 3,50 2,00 1,00 Skófatnaður næstum geflns, Alllar vörur á útsölunni verða seldar með frá 30% til helmings afslætti frá vanaverði, og er því um meira en vanalegan hvalreka að ræða. Útsölur vorar frá fyrri árum eru góðkunnar, og allir hafa hlakkað til þeirra eins og stórhátíða. En ekki mun þessi útsala standa þeim fyrri að baki. Bókafregn. Eftír »Lögréttu«. Jón Ólafsson: Orðabók íslenzkrar tungu að fornu og nýju. í fjórum bindum. 1. hefti. Rvík 1912. Fyrsta spurningin, sem mér varð á vörum, þegar ég sá þessa bók, var: Er þetta söguleg orðabók ? Fyrirsögn- in virtist benda á það, að hér væri orðaforði tungunnar að fornu og nýju. Og ennfremur úði og grúði bókin af tiJvitnunum frá ýmsum tímum. Og þar að auki sá ég heilt kerfi af merk- jum, all-flókið, til að greina aldur orð- anna í málinu, rétt mál og rangt o. s. frv. Ég var þó ekki lengi að komast að raun um, að svo er ekki; þó þetta alt, sem nefnt er, gefi bókinni eitthvað vís- indalegri blæ en almennar handorða- bækur handa alþýðu hafa, þá hefir það ekki verið tilætlun höf., að hún ætti að vera fyrst og fremst vísindaleg eða söguleg orðabók. Þetta varð mér Jjóst, þegar ég sá, hvernig hann hafði farið að semja bókina, og sá listann yfir heimildarrit hans. Það væri líka harla djarft að fara að semja sögulega orðabók yfir íslenzka tungu. Fað er enn varla kominn tími til þess. Að vísu eru til ágætar orða- bækur yfir fornmálið og ýms góð orða- söfn, prentuð og óprentuð, yfir málið á okkar tímum. En yfir málið frá því um 1500 og fraro að byrjun 19. aldar er engin brúkanleg orðabók til, og enginn einn maður getur enn hugs- að til að semja orðabók yfir ritin frá því tímabili. Flest af þeim eru enn óútgefin ; í söfnunum í Rvík og Khöfn liggja hópum saman annálar, kvæði, rímur, bréf, ritgerðir um lögfræði, guð- fræði, sögu, og margt og margt annað, frá þeim tímum, sem nauðsynlega þyrfti að fá út í áreiðanlegum útgáf- um, áður en byrjað væri á slíku. Frá því tímabili er og hin mikla orðabók Jóns Ólafssonar Grunnvíkings, sem að sjálfsögðu þyrfti vandlega að kanna. Hún er enn óútgefin í Árna safni. Og svo er alt það, sem prentað er. Mér vitanlega hefir enginn enn farið gegn um meginið af ritunum frá þeim tíma til að orðtaka þau, það tekur mikinn tíma, og er ekki líklegt, að aðrir vilji fást við slíkt en þeir, sem hafa nóg af honum, og mikla þolinmæði að auk. En einmitt á þessum tíma koma fram rit, sem hafa mjög mikla þýðingu fyrir sögu málsins. Ég skal hér að eins nefna Guðbrandsbiblíu. íslenzkt guð- fræðismál síðari tíma er bygt á þeirri bók, beinlínis eða óbeinlínis, og mál- færi hennar hefir líklega haft áhrif á ýmsum öðrum sviðum. Ekki er hægt að semja sögulega orðabók nema þess konar grundvallandi rit séu orðtekin vandlega1). 1) Dr. J. Þ. rektor hefir nokkuð orð- tekið gl.test. i Guðbrands-biblíu. Dr. Sche- ving hefir orðtekið alla Waisenhúsbibl. (Kh. 1747), en á henni er að miklu lejti mál Guðbr.-bibl. Aí/is. y. Ó. Af því að saga málsins er óljós og lítt rannsökuð, og engin orðabók til yfir það um svo langt skeið, leiðir aftur það, að enn er ekki með vissu hægt að segja um aldur fjölda orða í nýja málinu, og verður því að íara mjög varlega með notkun merkja til að ákveða, hvað sé gamalt og hvað sé nýtt. Þó eitthvert orð ekki finnist í útgefnum fornritum, og þar af leið- andi ekki í orðabókum þeim, sem yfir þau eru til, þá er ekki þar með sagt, að það sé nýtt í málinu. Vel getur verið, að það t. d. finnist fyrst í prent- uðum bókum á 19. öld, en í óprent- uðum ritum frá því um 1500. Og eins verður að vera varkár með að merkja orð sem úrelt. Það er oft að orðin eins og liggja í dái, koma upp aftur og aftur, en hverfa á milli. Þeir, sem þekkja sögu latínunnar, vita t. d. hvernig forn-latnesk orð frá dögum Catös eldra alt í einu fara að tíðkast á dögum Antonínanna, hér um bil 300 árum seinna. í íslenzku á sér líkt stað. Fjöldi orða úr fornmálinu er lítt eða alls ekki notaður á tímabilinu 1500— 1800, en rís aftur úr dái á 19. öld- inni, og er nú á hvers manns vörum. Ég þykist geta talað um þetta af tals- verðri reynslu; ég hefi í nokkur ár verið að semja orðabók íslenzk-danska, en með alt öðru sniði en þá, sem hér er um að ræða; hvað eftir annað hefir það komið fyrir mig, að ég hefi rekist á orð í íslenzku alþýðumáli, sem ég hafði haldið að væru löngu dauð og úrelt, og hins vegar líka fundið, að

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.