Reykjavík - 09.08.1913, Page 4
130
REYKJAVlK
Bezta Hvítölið
framleiöir ölg’eröin
„Egill Skallagrímsson44.
Talsími 300.
Mestu birgðir af vélnm. og áhöldum til land-
búnaöar og garöyrkju, af beztu tegund og hagkvæmustu
gerðum. — Verðlistar sendir, ef skrifað er eftir þeim.
C. Tli. Rom «fc Co., Köbenhavn B.
Verzlmar- og ílólarMsiJ
»Garðar« á Húsavík (áður hús Jóns Á. Jakobssonar) er til
sölu nú strax. — Húsinu hefir verið haldið vel við, það
liggur vel við verzlun og því fylgir mikil og góð lóð. —
Góðir borgunarskilmálar, lágt verð. — Umboðsmaður St.
Stephensen og málfl.m. Vald. Thorarensen á Akureyri gefa
nánari upplýsingar og semja um sölu. —
Akureyri 23. Júním. 1913.
Stephán Stephensen.
Umhverfis ísland.
Hamri í Hainariirði. Oddur M. Bjarnason skrifar þaðan: Jeg er
74 ára að aldri, hefi í mörg ár þjáðst af magaveiki, slæmri meltingu og njrnaveiki,
og reynt marga lækna árangurslaust. En eftir að jeg hefi notað 5 flöskur af hinum
heimsfræga Kína-lifs-elixír, er jeg mikið betri. Jeg flyt verksmiðjueigandanum hjer
með innilegt þakklæti mitt.
I*j órssítrliolti. Sigríður Jónsdóttir, Þjórsárholti, sem nú hefir flutt sig til
Reykjavíkur, skrifar: Eftir að jeg hafði frá barnæsku þjáðst af langvinnu hægða-
leysi og andþrengslum, reyndi jeg að lokum hinn alkunna Kína-lífs-elixír, og varð
jeg þá betri til heilsu, en jeg hafði nokkurntima áður verið á minni 60 ára löngu æfi.
ReykjaTík. Guðbjörg Hansdóttir, Kárastíg 8, skrifar: Jeg hefi í tvö ár
verið mjög lasin af brjóstveiki og taukaveiklun, en eftir að hafa notað 4 flöskur af
Kina-lífs-elixír, líður mjer mikíð betur, og jeg vil þess vegna ekki án þessa góða
bitters vera.
TV jálssitöðum, IIúnavatnssýslii. Steingrímur Jónatansson skrif-
ar: Jeg var í tvö ár mjög slæmur af illkynjaðri magaveiki, og gat mjer aldrei batnað
til fulls; jeg reyndi þá nokkrar flöskur af hinum alkunna Kína-lífs-elixír, og batnaði
þá æ betur og betur. Jeg vil nú ekki án hans vera, og gef öllum, sem þjást af
líkum sjúkleika, það ráð, að reyna þennan ágæta bitter.
Siml>a,lcoti, Eyrarbakka. Jóhanna Steinsdóttir skrifar: Jeg er
43 ára, og hefi í 14 ár þjáðst af nýrnatæringu og þar af leiðandi veiklun, en af
öllum þeim læknislyfjum, sem jeg hefi notað, hefir ekkert styrkt mig og fjörgað eins
vel, og hinn frægi Kina-lífs-elixír.
Reykj a'vílc. Halldór Jónsson, Hlíðarhúsum, skrifar: í fimmtán ár hefi jeg
notað hinn heimsfræga Kína-Hfs-elixir við lystarleysi og magakvefi, og mjer hefir ætíð
fundist jeg verða að nýjum manni, er jeg hefi neytt elixírsins.
Hinn eini ó STini Kína-lífs-elix£r* kosfar að
eins 2 kr. flaskan, og fæst alstaðar á íslandi, en ósvik-
inn er hann aö eins búinn til af Waldemar JPeter-
sen, I-1''rederikshavn, Köbenhavn.
brúkuð íslensk alls-
konar borgar enginn
betur an
Helgi Helgason
(hjá Zimsen)
Reykjavík.
J. Kjarval listmálari sýnir i Iðnskólan-
um myndir, er hann hefir málað. — Það er
auðsætt að hann hefir tekið stórmiklum
framförum í listinni nú á síðasta ári og er
því öll ástæða til að ætla að hann láti eigi
þar við staðar numið.
f Ólafur Arinbjarnarson verzlunar-
stjóri Brydesverzlunar í Vestmannaeyjum
andaðist snögglega 5. þ. m. Hann var
kvæntur Sigríði dóttur Eyþórs Felixsonar
kaupmanns og lifir hún mann sinn.
Hraun-áburðurinn. Ekki er enn af-
ráðið hvort úr því verði að verksmiðja sé
sett á stofn til þess að vinna áburð úr
hraunum hér — og þá helzt Hafnarfjarðar-
hrauninu. Þeir útlendingar, sem vm þetta
sýsla hafa nú beðið um ný sýnishorn tekin
í mismunandi dýpt, Ekki er því enn von-
laust um að eitthvað kunni úr þessu að
verða með tímanum.
Baðhúsið. Margir sem 1 baðhúsið
koma, sakna þess að ekki skuli vera þar
vog eins og tíðkast í baðhúsum erlendis til
notkunar þeim, sem baða sig, þesskonar
vogir eru fremur ódýrar og borga sig
smámsaman því að hver sem vill vita þyngd
sína verður ae gjalda fyrir það, vénjulega
5 aura.
Hefir bærinn ekki ráð á að fyrir þessu
sé hugsað bráðlega?
Skógræktin.
Hann kvartaði sáran yfir því í vor
í „ísafold" skógræktarstjórinn hve
mjög við nögl sér þingið hefði undan-
farið skorið styrkinn til skógræktar
hér á landi. Hann kvartaði, og það
var von að hann gorði það. En kvein-
stafir hans hafa víst ekki borizt til
eyrna stjórnarinnar, því að jafnvel
mestu óvinir hennar munu eigi geta
fundið henni til foráttu eyðslusemi í
þessum efnum, minsta kosti ekki beina
eyðslusemi. Svo er lítil og aumingja-
leg fjárveiting sú, er hún vill að þingið
skamti til eflingar skógræktinni á næsta
fjárhagstimabili.
Hún ætlast til að veittar séu 13,000
kr. árlega, og er gert ráð fyrir að af
þessari upphæð séu greidd laun skóg-
ræktarstjórans og skógvarða, og mun
til þess fara tœpur helmingur allrar
hinnar fyrirhuguðu fjárveitingar.
Hér getur ekki verið nema um eitt
af tvennu að ræða: vantraust á skóg-
ræktarstjóranum eða vantraust á sjálfu
skógræktarmálinu. Hinu, að stjórnin
hafi eigi álitið landssjóð mega missa
nokkrum þúsundum króna meira á ári
til þessa, ef hún hefði álitið það nauð-
synlegt og heppilegt — þarf ekki að
gera ráð fyrir.
En hafi hún það álit á því hvernig
skógræktinni er hagað, að betra sé að
vinna eigi að henni (en hvort hún getur
haft nokkra ástæðu til slíks álits er
mér ókunnugt um, en hygg að svo sé
eigi) — er henni þá ekki betra að fá
sér annan mann til að vinna að þessu
þýðingarmikla verki, mann, er hún
þykist mega treysta, heldur en að
leggjast á það með undanförnum þing-
um að gerast níðhöggur skógræktar-
málsins á þann veg, sem nú er stofn-
að til.
Það virðist líka óneitanlega kostað
nokkuð miklu til mannahalds við
skógræktina þegar það er borið saman
við það, sem skógnum sjáifum er
ætlað. Ekki svo að skilja að ég álíti
of miklu fé varið til að borga starfs-
mönnum hans, en það álít ég, að betra
sé að gera þá alls ekki út, heldur en
að veita svo lítið fé til skógræktar-
innar, að þeim verði lítill eða enginn
starfi ætlaður. Að þingið veiti ár eftir
ár jafn lítið til skógræktar og raun
hefir orðið á, það er að kasta því á
glæ sem veitt er, og það er að gera
tilraun til þess að eyðileggja mál, sem
ég er viss um að á miklu meira ítak
í hjörtum vorum en mörg önnur fram-
faramál vor, þótt þeim sé meiri gaumur
gefinn og betur undir þau ýtt, vegna
þess að meiri fjárgróðavon virðist í
skjótu bragði vera þeim samfara.
Það er sannarlega illa farið að þing
og stjórn skuli ganga fyrir að kæla
áhuga manna á þessu máli. Því eigi
getur hjá því farið að áhugi margra
dofni ef þingið sinnir því jafn lítið
framvegis og það áður hefir gert.
Og víst er það, að alveg er það ó-
þarfi að vantreysta skógræktarmálinu,
og óttast að hér geti eigi komizt upp
skógar að gagni. Enda munu þeir
fáir, sem bera þennan kvíðboga, og
ég vona að enginn þingmanna verði í
þeirra tölu.
En um það þarf eigi að fjölyrða hve
ómetanlegir skógarnir mundu verða
landinu. „Glögt er gestsaugað“ segir
máltækið, og ég tel mikinn vafa á því
að Friðrik konungur YIH. hefði getað
valið peningum sínum hér betri stað
en er hann gaf þá til skógræktarinnar.
Og það er í sannleika misþyrming
á fósturjörðinni að hlúa eigi að minsta
kosti af fremsta megni að leyfum þeim,
sem þrátt fyrir hina hörmulegu með-
ferð skóganna að fornu og nýju enn
bera vott um hvað landið var og hvað
það getur orðið.
Þarf að rökræða þetta ?
Þarf að benda á, að þó oss sé, ef
til vill, enn um megn að færast veru-
lega í fang að gróðursetja nýja skóga,
þá er það oss þó að minsta kosti innan
handar að láta þá þróast og vaxa, sem
til eru. Að vér erum ekki þeir aum-
ingjar að vér eigi höfum ráð á að
vernda þá bletti, sem forsjónin sjálf
hefir tekið ástfóstri, sjálf hefir friðað
eftir mætti.
ísland skógarlaust er eins og fagurt
andlit, sem aldrei sézt á bros.
ísland viði vaxið er fegurðin sjálf
með skínandi bros á vanga.
Kostakjör.
1400—2900 % gróði.
Landeign mín í Vallanesi, með mann-
virkjum, fæst keypt. Landið — eftir
síðasta mati, 7300—14,600 kr. virði —
fyrir 500 kr., byggingar fyrir sannvirði
eða eftir mati byggingameistara, og
önnur mannvirki fyrir sannvirði. —
Tilboð eins og óskað er í grein hér í
blaðinu.
Vallanesi, ">/« 1913.
Hagnús Bl. Jónsson.
€ggerl Claessen,
yflrréttarmálaflntningsmaðnr.
Póathússtr. 17. Talsíml 16.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
Sveinn Björnsson
yfirdómslögmaður.
er fluttur i Hafuarstrseti 22.
Skrifstofntími 9—2 og 4—6.
Hittist venjnlega sjálfur 11—12 ogr 4—5.
Hvaða mótor er ódýrastur, bestur
og mest notaður?
Gideon-mótorinn.
/
Einkasali
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Stmnefni: Verslun.
Terzlun Jóns Zoéga
selur ódýrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsími 128, Bankastræti 14.
Hvar á að kaupa
öl og vín ?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prentsmiðjan Gutenberg.