Reykjavík


Reykjavík - 23.08.1913, Page 2

Reykjavík - 23.08.1913, Page 2
136 REYKJAVIK hættu stafa af að allir fái kosningar- réttinn þegar í stað, sem hann er ætlaður, og heldur ekki skoðar hann það kost, að reynt sé að gera efri deild íhaldsama með kosningafyrirkomu- laginu. Þetta, sem vér síðast nefndum, mun að líkindum vera það, sem hættast er við að mönnum greini á um. Og góð rök máli sínu geta sjálfsagt fært bæði þeir, sem vilja slaka á klónni og hinir, sem ekki þora að sigla jafn djarft. En þó vér heldur hefðum kosið að betur væri siglt, þá er þó öll ástæða til að fagna því að stefnt er burt frá því fyrirkomulagi, sem nú er, og að hin- um konungkjörnu er kastað útbyrðis. Annars verðum vér að fallast á athugasemdir minni hlutans um frá- vikningarrétt stjórnarinnar. Því að með þessum lögum er ekki tjaldað til einnrar nætur, og enginn veit „hvernig hér hagar til* einhvern tíma þegar fram í sækir. Heldur ekki sjáum vér neinn hag í að fresta því, sem fram á að koma um aukna kjósendatölu — enda þarf varla að óttast að mikill hluti þeirra, sem atkvæðisrétt hljóta, noti hann fyrsta kastið. Adríanópel. Og bæði Frakkar og aðrar þjóðir eiga svo mikið fé hjá Tyrkjum, að þeir vilja ekki að þeim sé hnjaskað fram úr hófi. skáld og mentaskólastjóri andaðist af heilablóðfalli á Fimtudag- inn 21. þ. m. Hafði gengið út sér til skemtunar og var þá alhress. Gekk upp í Rauðarárholt, en varð þá lasinn og fékk uppköst. Bar þar að konsúl Kr. Zimsen og ók hann Steingrími til heimilis hans. En skömmu á eftir fékk hann slag og misti meðvitundina. Var hann látinn að fáum mínútum liðnum. Steingrímur heit. var fæddur 19. Mai 1831, og hafði því liðugt tvo um áttrætt er hann andaðist. Hans verður nánar minst í næsta blaði. fjárlögin. annars staðar frá). Til Sambands ísl. samvinnufélaga og Sláturfélags Suður- lauds til þess að launa erindreka er- lendis (þó eigi yfir helming, af launum hans og ferðakostnaði) alt að 4000 kr. hvortárið, og sama upphæð til erind- reka, er hefir með höndum sölu- og útbreiðslu á íslenzkum sjávarafurðum erlendis. Til Sveins Oddssonar til þess að halda uppi vöru- og mannflutning- um á bifreiðum til og frá Reykjavík 5000 kr. f. á. Handa Ungmennafélagi íslands til eflingar líkamlegra íþrótta og til skóggræðslu 1,500 kr. hvort árið. Til Þór. Túlinius, til að halda uppi reglubundnum flutningum með sjálf- renningi (Automobil) 1200 kr. hvort árið, gegn því að Múlasýslur leggi til 800 kr. Til lánveitinga úr viðlagasjóði heimilast stjórninni: Alt að 10,000 kr. hvort árið til lánveitinga handa bændum og samgirðingafélögum eftir tillögum landbúnaðarfélagsins til að kaupa fyrir girðingarefni frá útlöndum gegn ábyrgð sýslunefnda. Alt að 5000 kr. hvort árið til lán- veitinga handa þurrabúðarmönnum ut- an kaupstaða, til jarðræktar og húsa- bóta. 1. Til sýslufélaga, sem leggja fram áskilið framlag til landsímalagningar, gegn 4% i ársvöxtu, og endurgreiðslu á 18 árum. Til lána þessara má verja alt að 15,000 kr. 2. Alt að 5,000 kr. til stofnunar smjörbúum (rjómabúum) og ostagerða- búum. Lán þessi veitast eftir með- mælum Búnaðarfélags íslands og gegn ábyrgð sveita- eða sýslufélaga. 3. Sýslufélögum má lána úr við- lagasjóði alt að 5000 kr. hvort árið, til þess að koma upp kornforðabúrum til skepnufóðurs, þar sem hætt er við að sigling geti tepst af ísum. 4. Rangárvallasýslu má lána úr við- lagasjóði alt að 14,000 kr. til að kaupa jörðina Stórólfshvol með hjáleigum, fyrir læknissetur, og til þess að hafa þar sjúkraskýli. 5. Hóishreppi í Norður-ísafjarðar- sýslu má, gegn ábyrgð sýslunefndar- innar í Norður-ísafjarðarsýslu, lána alt að 20 þús. kr. úr viðlagasjóði, til framhalds brimbrjótinum í Bolungar- víkurverzlunarstað. 6. Hvammshreppi í Y.-Skaftafells- sýslu má lána úr viðlagasjóði alt að 5000 kr., gegn ábyrgð sýslufélagsins, til að raflýsa Vík i Mýidal. 7. Hvanneyrarhreppi í Eyjafjarðar- sýslu má lána úr viðlagasjóði 18.000 kr., til þes3 að raflýsa Siglufjarðar- kauptún. 8. Úr viðlagasjóði má lána Jóni Björnssyni & Co. í Borgarnesi 7000 kr. til byggingar ullaiþvottahúss. Hvala-frlðun. Stórþingið norska hefir samþykt lög um að framlengja um 10 áru bil friðun hvala þar við land, þannig, að bannað er að skjóta, drepa eða gera að hvöl- um á norsku landhelgissvæði við Nordland-Tromsö og Finnmarken Ömt og sömuieiðis að færa hval á land í þessum ömtum. Með konungs-úrskurði má láta. lögin ná til annara svæða í Noregi. Af þessu má sjá, að Norðmönnum hefir þótt hvalafriðunarlög sín frá 7. jan. 1904, að gagni koma, og ætti þetta að ýta undir að vér einnig fengjum þess konar lög. Dimkirkjatt. Til viðgerðar á Reykjavíkur-dómkirkju eru á fjörlögunum veittar 20,000 kr. Breytingar þær, sem í hyggju er að gera eru þessar helztar: Gólfið á að taka upp og leggja steini, laga bekkina þannig að bökin hallist meir aftur á við og þeir verði þægi- legri. Útgangsdyr á að gera nýjar út að Pósthústorginu og vita þær að Oddfellowa húsinu. Ennfremur á að búa til ganga niður af loft-pöilunum ofan í sjálfa kirkjuna, svo komizt verði hjá þrengslum þeim og troðningi, er svo oft er í kirkjunni þegar íjölment er í henni. Loks er í hyggju að setja miðstöðvarhitun í kirkjuna. Bitlingar. Við 2. umr. fjárlaganna í Neðri deild og atkvæðagreiðsiuna þar, kom það í Ijós, að niðurskurður og lækkun styrkja til lista og vísinda er ofarlega á baugi hjá allmörgum þingmönnum. Það komu fram hjá sumum mjög fárán- legar skoðanir á gildi þessara menn- ingagreina fyrir þjóðfélagið. Benti Bjarni frá Vogi vel á það í ágætri þingræðu um hina svonefndu „bitlinga", hve fjarri sanni er, að hér sé um neinar óþarfa greiðslur að ræða og á, að landinu er eins gagn að því að uppörfa listir og vísindi og t. d. að hjálpa landbúnaðinum. Hvorttveggja er nauðsynlegt til þess að vér skipum sómasamlega bekk vorn í félagi menn- ingarþjóðanna. Hvorttveggja er, rétt á litið, framleiðsla — sín á hverju sviði. Enda er varia hinni andlegu fram- leiðslu gert of hátt undir höfði, þótt hún fái eitthvað af molum þeim, er detta af borði hinna verklegu fram- kvæmda. Og hvað sem öðru liður, þá er þessi barátta um fárra hundraða króna lækkun á styrkjum til manna, sem allir játa að hafa gert landinu gagn og sóma með ritum sinum — vér nefnum sem dæmi E. Hjörleifsson, Guðm. Magnússon og Heiga Jónsson — vottur um meiri umhyggju fyrir fó landssjóðs en góðu hófi gegnir, og meiri nurlara-háttur en vér annars eigum að venjast af aiþingi ísiendinga. Hér skulu taldar nokkrar styrkveit- ingar, er samþyktar voru við umræð- urnar: Til að semja skrá um handritasafn Landsbókasafnsins 1500 kr. hvoit árið. Til Jóns Ólafssonar 3000 kr. árlega í' næstu 8 ár til að halda afram að semja íslenzka orðabók. Skáldast.yikir: Einar Hjöileifsson, Guðm. Magnússon og Þorst. Erlingsson 2000 kr. hver fyrra árið, Valdimar Briem 1600 kr. fyrra árið, Guðm. Guðmundsson og Guðm. Friðjónsson 1200 kr. hvor fyrra árið. Helgi Jónsson 1500 kr. hvort árið. Heigi Péturs8 2000 kr. Rikarður Jónsson 1000 kr. íyrra árið, Kjarval 800 kr. fyrra árið. Eggert og Þórar- inn Guðmundssynir 1600 kr. Til að kaupa íslenzk myndhöggvaraverk voru veittar 2400 kr.. en til að kaupa ís- lenzk málverk 2000 kr. Gísli Guð- mundsson fékk 1500 kr. fyrra árið til geilarannsókna erlendis, og Jón Jónsson 1200 kr. f. á. til að rannsaka skjöl á erlendum söfnum. Til Guð- jons Samúelssonar 600 kr. áriega til að ijúka námi í húsgerðalirt og 800 kr. síðara árið til Steingríms Jónssonar til þess að halda afram námi við fjöllista- skólann. Önnur umræða um málið var á fiimtudag og föstudag, og tóku margir til máls. Voru menn yfirleitt sam- þykkir tillögum meiri hlutans, nema um skipun Efri deildar, og aðhyltust þar vara-tillögu minni hlutans um að í stað hinna 6 konungkjörnu komi þingmenn, sem kosnir eru hlutfalls- kosningu, en að öðru leyti sé kosið til deildarinnar eins og nú. Var málinu síðan vísað til 3. umr. friðnrinn á Jalkan. Skilmálarnir. Eins og símskeyti áður í blaðinu hermir, sömdu Rúmenar, Grikkir, Serbar, Búlgarar og Montenegrobúar frið með sér í Bukarest snemma í þessum mánuði. Urðu Búigarar að sæta all-illum kostum, en þó fengu Rúmenar gert þá betri þeim en hinar þjóðirnar höfðu kosið. Samkvæmt skilmálunum er ætlast til að íbúatala ríkjanna verði því sem næst, er hér segir: Rúmenía 7,600,000 Búlgaría 5,000,000 Grikkland 4,500,000 Serbía 4,000,000 Albanía 2,000,000 Montenegro 500,000 Landamæri Serbíu, Búlgaríu og Grikklands mætast rétt austur af vatn- inu Doiran. Skilur þá Serbíu og Grikk- land lína dregin í suðvestur til Vodena og þaðan í vestur að suðurenda vatnsins Prespa. En Serbíu og Búlgaríu skilur landið þar sem eru upptök ánna Struma og Vardar. Grikkland og Búlg- aríu skilur fyrst Belashitza-fjallgarður- inn og síðan lína að stað þeim við ána Mesta, sem járnbraut nú liggur að. Tyrklandi er ætluð lítil sneið af landi, og eru þar takmörkin lína dregin frá Midia við fevartahaf til Enos við Ægea- hafið. Gera má ráð fyrir að einhver verði önnur hin endanlegu landamæri, þegar stórveldin koma til sögunnar, og efalaust munu Tyrkir una illa sínum hag, þar sem þeir nú eru seztir að í Eftir 2. umr. í Neðri deild er þetta ætlað til vegabóta: Borgarfjarðarbraut 15,000 kr. f. á. 5000 kr. s. á. Reykjadalsbraut 15,000 kr. f. á. Eyjafjarðarbraut 10,000 kr. hvort árið, Húnvetningabraut 15,000 kr. hvort árið, Skagfirðingabraut 10,000 kr. hvort árið og Grímsnes- braut 10,000 kr. hvort árið, Stykkis- hólmsvegur 8000 kr. hvort árið. Þjóð- vegur í A-Skaftafellssýslu 5000 kr. síðara árið, Akvegur í Svarfaðardal alt að 2000 kr. hvort árið. Til brúa: Brú á Eystri-Rangá 18,000 kr. f. á., á Ljá í Dalasýslu 3000 kr. s. á., til brúar á Fáskrúð í Dalasýslu og vegar frá henni yfir á þann veg, sem nú er, 10,000 kr. f. á., brú á Hamarsá 11,000 kr. s. á., brú á Síká í Hrútafirði 4,000 kr. s. á., brú á Langadalsá 8000 kr. lil gufubátaferða og mótorbata eru ætlaðar 35,150 kr. hvort árið, er sundurliðast þannig : 1. Til Faxaflóabáts.............12,000 2. Til Breiðafjaröarbáts . . . 4,000 3. Til ísafjarðarbáts.......... 5,000 4. Til Eyjafjarðarbáts .... 10,000 5. TilmótorbátsferðaáBreiða- firði........................ 1,000 6. Til mótorbátsferða milli Vestmannaeyja og lands 1,500 7. Til mótorbátsferða upp eftir Hvítá.................... 600 8. Til mótorbátsferða upp í Hvalfjörð...................... 400 9. Til mótorbátsferðaáLagar- fljóti......................... 250 10. Til mótorbátsferðá í A.- Skaftafellssýslu............... 400 Nýjir vitar. Til Svörtuloftavita og breytingar á Öndverðarnesvita 18,000 kr. f. á. Til Ingólfshöfðavita 16,000 kr. s. á. Til verklegrar kenslu og fyrirtœhja eru veittar kr. 366,820. Þar á meðal til Búnaðarfélags íslands 54,000 kr. hvort árið, til annara búnaðarfélaga 22,000 kr. hvort árið. Til framhalds brimbrjótinum í Bolungarvík 10,000 kr. hvort árið. (Styrkveitingin er bundin þeim skilyrðum, að verkið sé fram- kvæmt eftir fyrirsögn verkfróðs manns, og að lögð sé fram eigi minni upphæð

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.