Reykjavík - 04.10.1913, Blaðsíða 4
162
REYKJAVlK
*
Með því að nú verður að álíta það trygt að hœgt sé að stofna h/f Eimskipafélag Islands, er ákveðið að
stofnfundur félagsins verði haldinn i
/ðnaðarmannahúsinu í fíeykjavík
laugaréaginn 1%. Janúar 1914 fil. 12 á fíáóagi.
Fyr en hlutaféð er innborgað, er eigi hœgt að semja um byggingu þeirra tveggja skipa, sem ráðgert er að
byrja með. Vér teljum því nauðsynlegt, til þess að semja megi um skipabygginguna þegar eftir stofnun félagsins,
að innheimta nú þegar hlutaféð. Það er því hér með skorað á alla hluta/jársafnendur, að byrja nú þegar að
innheimta alt hluta/éð og senda gjaldkera sem fyrst.
Ennfremur eru menn beðnir að draga ekki lengur að skrifa sig /yrir hlutum, ef þeir eiga það ógert eða
vilja auka við það, sem þeir ha/a áður ritað sig fyrir. Vér teljum nauðsynlegt að sem mest safnist, svo félagið
verði sem tryggilegast grundvallað og sem minst háð lánum.
Reykjavík 1. október 1913.
Cggert Qlaassan. c3ón %Zjörnsson. dón Qunnarsson.
Svcinn tSjörnsson. cTfíor cJcnscn.
Sláturtíðin heimtar:
Rúgmj öl,
krydd o. m. fl.
Pær vörur eru hvergi betri né
ódýrari en hjá
JÓNI ZOEGA.
3. ttts litaíisltar
eru opnaðar á Staðastað og Búðum og 2. flokks landssímastöð í Ólafs-
vík. Eftir ca. viku verður opnuð 3. flokks landssímastöð á Sandi. —
Allar í Snæfellsnessýslu.
Reykjavík 30. september 1913.
Forberg*
Pjóðhátíðarhald.
Það var fremur lítið um þjóðhátíðarhöld
hér á laiidi í sumar. Hér í Reykjavík var,
eins og kunnugt er, enginn þjóðhátíðar-
dagur — enda hefði orðið mönnum til lít-
illrar ánægju, jafn rigningarsamur og hann
eflaust hefði orðið! Vestur-íslendingar
héldu aftur á móti þjóðhátíð sína — íslend-
ingadaginn — í sumar og höfðu allmikinn
viðbúnað. Setjum vér hér ýmsar íþjóttir, er
þeir héldu þann dag og teljum líklegt að
mörgum þætti góð skemtun ef líkt fyrir-
komulag væri einhverntíma haft hér á sum-
um íþróttunum og þar var haft. Sérstak-
lega, kunnum vér vel við samkeppni þá,
sem komið er á stað milli ógiftra kvenna
og giftra, og ókvongaðra manna og kvong-
aðra. Það er ávalt nokkur rigur milli þess-
ara mannfélagsmeðlima og mun eflaust
mikill metnaður allra aðila að bera af hin-
um. Og ekki er það síður lofsvert að hafa
verðlaunin lág, svo vissa sje fyrir því, að
menn keppi heiðursins vegna, en ekki af
vesallri auragirnd!
íþróttunum var hagað þannig:
íslenzk glíma.
1. verðl. $ 3.00, 2. verðl. $ 2 00, 3. verðl.
$ 1.00.
Aflraun á kaðli.
Milli 7 giftra manna og 7 ógiftra, verðl.
$ 7.00.
Kapphlaup.
Drengir til 16 ára — 1. verðl. $ 2.00, 2.
verðl. $ 1.00.
Karlmenn, 1 míla — 1. verðl. $ 3.00, 2.
verðl. $ 2.00.
Knattleikur.
(Base Ball) — verðl. $ 9.00.
Dans kl. 7.30 að kveldi.
Yals — 1. verðl. $ 3.00, 2. verðl. $ 2.00,
3. verðl. $ 1.00.
K a p p h 1 a u p kl. 9 að morgni.
1. Stúlkur frá 6 til 9 ára, 60 yards — 1.
verðl. 40 c., 2. verðl. 30 c., 3. verðl.
20 c.
2. Drengir frá 6 til 9 ára, 50 yards — 1.
verðl. 40 c., 2. verðl. 30 c., 3. verðl.
20 c.
3. Stúlkur frá 9 til 12 ára, 50 yards —
1. verðl. 50 c., 2. verðl. 35 c., 3 verðl.
25 c.
4. Drengir frá 9—12 ára, 50 yards — 1.
verðl. 60 c., 2. verðl. 35 c., 3. verðl.
25 c.
5. Stúlkur frá 12 til 16 ára, 100 yards —
1. verðl. 60 c., 2. verðl. 50 c., 3. verðl.
40 c.
6. Drengir frá 12 til Í6 ára, 100 yards —
1. verðl. 60 c., 2. verðl. 60 c., 3. verðl.
40 c.
7. ógift kvenfólk, 100 yards — 1. verðl.
$ 1.00, 2. verðl. 75 c.
8. Ógiftir karlmenn, 100 yards— 1. verðl.
$ 1.00, 2. verðl. 75 c.
9. Gift kvenfólk, 100 yards — 1. verðl. $
1.00, 2. verðl. 76 c.
10. Giftir karlmenn, 100 yards — 1. verðl.
$ 1.00, 2. verðl. 75 c.
S t ö k k.
1. Langstökk, jafnfætis — 1. verðl. $
1.00, 2. verðl. 75 c.
2. Langstökk, tilhlaup — 1. verðl. $ 1,00,
2. verðl. 75 c.J
3. Hástökk — 1. verðl. $ 1«00, 2. verðl.
75 c.
4. Hoppstigstökk — 1. verðl. $ 1.00, 2.
verðl. 75 c.
5. Hástökk á staf — 1. verðl. $ 1.00, 2.
verðl. 75 c.
Kappsund.
1. verðl. $ 3.00, 2. verðl. $ 2.00, 3. verðl.
$ 1.00.
Steinolíu
Og
Lampag-lös
fá menn ódýrast
i verslun Jóns Zoega.
Sveinn Björnsson
yfírdómslögmaður.
er iluttnr- i Hafnnrstræti SS.
Skrifstofntími 9—2 og 4—6.
Hittist venjulega sjálfur 11—12 og 4—5.
Ileilræði.
í samfleytt 30 ár hefi jeg þjáðst af kvala-
fullum magasjúkdómi, sem virtist ólæknandi.
Á þessum tíma hefi jeg leitað ekki færri en
6 lækna, og notað lengi meðul frá hverjum
þeirra um sig, en öll reyndust þau árang-
urslaus. Jeg fór þá að nota Waldemar
Petersens ágæta bitter, Kína-Lífs-Eliksírinn
og er jeg hafði eytt úr 2 flöskum, varð jeg
þegar var við nokkurn bata, og þegar jeg
hafði eytt úr 8 flöskum, var heilsa mín
orðin það góð, að jeg gat neytt aigengrar
fæðu, án þess það sakaði. 0g nú ber það
að eins örsjaldan við, að jeg finni til sjúk-
dómsins, og fái jeg mjer þá einn skammt
af bitternum, þá er lasleikinn horfinn þegar
næsta dag.
Jeg vil þess vegna ráðleggja öllum, er
þjást af samskonar sjúkdómi, að nota þennan
bitter, og munu þeir aldrei iðrast þess.
Veðramóti, Skagafirði, 20. marz 1911.
Bjttpn Jónsson. hreppstjóri og d.brm.
Verzlun Jóns ho'éga
selur ódyrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsími 128. Bankastræti 14.
Hvaða mótor er ódýrastur, bestur
og mest notaður?
Gideon-mótorinn.
Einkasall
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: Verslun.
Prentsmiðjan Gulenberg.