Skeggi - 10.08.1918, Page 3
SKEGGI
Vestmannaeyjar.
SÐ heiman á brunandi bifreið jeg þaut,
frá barni og konunni vænu,
í emjandi veinandi umgerð svo flaut,
til Eyjanna fögru og grænu.
þar standa flugaberg fásjeð í kring
með fögrum og heillandi línum,
um borgina mynda þau hugljúfan hring
með höfnina í faðminum sínum.
f norður er Heimakletts hátign að sjá,
en Háin og Dalfjall í vestur,
í suðri er Helgafeli heiðríkt á brá
og hjá því býr Eyjanna prestur.
í Elliða- og Bjarnarey Austri nam land
við auðuga dulræna sæinn,
en drjúgasta hlutinn hann sendir í sand
og seiðir mest lífið í bæinn.
Hafmeyjum finnst það hið fínasta hnoss
að fá kring um Eyjarnar sprettinn,
en rauðhærðir marbendlar ræna sjer koss,
og rjettlætið ber undir Klettinn.
þar hamast hann Skeggi við hengiflugs berg,
og Heimaklett lyftir á bakið,
og eg verð að kalla það ósvikinn merg
að iðka það forynju takið.
En ei skaltu rjála við risanum þeim
þó rymji hann fast margan daginn,
því þá færðu að kenna á krumlunum þeim
er kasta þjer langt út á sæinn,
En bændunum kennir hann karlmensku og þrótt,
og konunni hugrökk að þreyja,
þó varla sje prúð sjerhver vertíðar nótt
þá vábylgjur fæðast og deyja.
En æfintýr gefast í Eyjunum mörg
ofin úr gleði og raunum,
ef málfæri ættu hin eldgömlu björg
við eignuðumst sögur að launutn.
Fuglinn er Eyjanna fínasta skraut
fleyginn og meyjanna ljóminn,
en ef að hún frænka mín flytur á braut,
þá finnst mjer að skarði í blómin.
RikarÖur.
Símstöðin opin virka daga kl.
8 árd. tillOsíðd. Helga daga
10-7.
Póstafgr. opin alla virka daga kl.
10—6.
Lyfjabúðin alla daga kl. 9—10.
íshúsið alla virka daga kl. 4—7
síðd.
Sýslubókasafnið sunnud. 9—11
árd.
Hjeraðslæknirinn heima daglega
12-2.
eða kostnað við hana. En sýslu-
maður lýsti þvi yfir að lands-
sjóður tæki á sig þann halla, sem
verða kynni á útgerð bátsins.
þótti mönnum þá vænkast ráðið
og var svo samþykt að stofna
fjelagið og safna stofnfjenú þá
þegar á fundinum. Mikill meiri
hluti fundarmanna skrifaði sig
fyrir ákveðnum upphæðum, að-
eins nokkrir menn sem ekki
gátu ákveðið sig þegar í stað;
þótti þeim undirbúningurinn ó-
nógur og aðferðin skrítin. Safn-
aðist alls á fundinum nær 30
þús. kr. og vonandi bætist mikið
við það enn.
í stjórn til bráðabirgða voru
kosnir: Karl Einarsson (form.),
Jóh. þ. Jósefsson, Árni Filippus-
son, Gísli Lárusson og þorsteinn
Jónsson.
það leyndi sjer ekki á fund-
inum að menn vildu umfram alt
að fjelagið kæmist á stofn sem
allra fyrst, svo að skipið gæti
komið fyrir næstu vertíð, og
vildu mikið á sig leggja til þess.
Sýnir það fremur öllu öðru að
mönnum er fyllilega ljóst um
hve mikla nauðsyn er hjer um
að ræða. „Skeggi* hefur reyndar
daufar vonir um að skipið geti
komið fyrir næstu vertíð, en vel
má vera að úr því greiðist ef
hart er rekið á eftir með fjár-
framlögum og öðru. það væri
„Skeggja" hið mesta fagnaðarefni
að geta skýrt frá því fyrir ára-
mótin næstu, að skipið sje komið
albúið á höfnina. Yfir því mundu
allir góðir menn iagna og engu
síður þeir, er á fundinum vildu
frest til umhugsunar.
Um miðja vikuna hjelt bráða-
birgðastjórnin fund, og hafði þá
bætt við sig þeim Gísla J. John-
sen konsúl og Sig. Sigurðssyni
lyfsala.
Verður nú tekið að undirbúa
málið sem best, og eflaust gert
það sem mögulegt er, til að
hrinda því fram hið fyrsta.
Málefni þetta er þess eðlis, að
því er engin varanleg framtíð
frygð nema vakin verði almennur
áhugi kringum alt landið. Slysin
verða árlega með öllum ströndum
og þess vegna má ekki dragast
lengur að afstýra þeim. Sjó-
niannastjettin, stjórn og þing
verða að fylgjast þar að einu
máli.
Slægjuland.
Mjólkurmálið er að verða eyjar-
búum áhugamál eins og mörgum
öðrum kaupstaðarbúum. Til þess
liggja ýmsar ástæður, og ekki
síst sú að tryggja ungbörnum og
sjúklingum hoila næringu hvað
sem öðru líður. Er því meiri
þörf á þessu hjer, fyrst þriðjungur
íbúanna eru börn 10 ára og
þaðan af yngri. Upplýsingar eru
fengnar um það að kýrnar ættu
að vera drjúgum helmingi fleiri
en þær eru. Að því siefnir líka
túngræðslan og hagur manna
yfirleitt.
Horfur með heyskapinn þetta
sumarið spá þó alt öðru. Fyrir-
sjáanlegt að kúm verður að fækka
til muna, bæði vegna vöntunar á
fóðri og ýmsum öðrum ástæðum,
sem raunar standa að nokkru
leyti í sambandi við skort á heyi
og hagbeit.
Undanfarin sumur hafa menn
keypt mikið hey „af landi" og
bjargast við það, en nú horfir
þunglega við með þau heykaup.
Grasbrestur er sagður um allar
sveitir og bændum erfitt að halda
kaupafólk. þeir verða fáir af-
lögufærir með hey í haust. Nú
skyldi maður vona að betra
sumar komi næst, en þá er aö
því að gæta, að bændum er að
verða kaupafóikshaldið um megn
og næsta óvíst hvort hey verður
fáanlegt er fram í sækir, nema
þá frá útlöndum. Flestir mundu
heldur kjósa gott innlent kúahey,
ef fáanlegt væri. Um þetta eru
menn þegar farnir að hugsa, en
framkvæmdirnar dragast, og
stafar það sennilega af því að
ekki er á vísan að róa um slægju-
lönd þau mátti raunar fá í
Landeyjum fyrir fáum áruin, en
nú eru þau sund lokuð.
þaö er sannast að segja, að
vegirnir til útræða standa ekki
opnir nú sem stendur. þar fyrir
er þó ekki loku fyrir það skotið
að fá mætti nokkurt slægjuland
með tímanum, ef sætt væri lagi
með það. Jarðir hækka hræði-
lega i verði með hverju árinu og
hvenær sem eigendaskifti verða,
svo að dráttur í þessu efni verður
ekki til bóta ef nokkuð er nú að
hafa.
Eyjafjallasveit hefur verið aðal-
bjargvættur Vestmannaeyja um
heysölu síðustu árin, en svo
gæti bústofn aukist hjer, að hún
gæti ekki miðlað því, sem hingað
þarf að flytja. Liggur þá næst
að hugsa til Flóaáveitunnar miklu
á sínum tíma. Sá hængur er þó
á með hana, að hún er ekki
komin og harla óvíst hvenær hún
i kemur. Mörg ár geta liðið
i þangað til. Heysala er nó ekki
! svo mikil í Flóanum að þangað
S sje mikið að sækja sem stendur
J og stundum jafnvel ekki neitt.
Sá kostur fylgir því að sækja
heyið þangað, að lending er þar
hóti skárri en „fyrir Söndum“,
svo að flutningar verða greiðari
þaðan þó leiðin sje lengri og
lendingin nógu ill.
Nærsveitirnar verða þá að vera
hjálparhellan fyrst um sinn sem
til þessa, ef þar er annars nokkuð
að hafa. Úrræðið er að tryggja
sjer land í tíma, ef falt væri;
það er það eina sem treystandi
er á.
Góðir menn og framsýnir ættu
að athuga þetta ráð og láta það
ekki gleymast, því enginn græðir
á tómlætinu. Túnræktin er góð,
því er ekki að neita, en svo
best blessast hjer kúarækt og
hrossa, að eitthvað sje fleira til
að slá en þessir hálfræktuðu
túnskækiar, sem eru að teygja
sig út í móana og upp undir
Fellið.
það er ekki ósennilegt að barið
verði á bæjarstjórninni tilvonandi,
til að bæta úr mjólkurskortinum
hjer sem í öðrum kaupstöðum
landsins. Skemtilegast væri, ef
svo framtakssamir menn væru í
hjeraði að aldrei þyrfti til þess
að koma, því að í nógu mun
hún hafa að snúast sú góða bú-
stýra, þó ekki verði bætt á hana
búrverkunum líka.
Galv.
bátasaumur
2 - 7” og
spíkarar
ódýrast í verslun
S 3* 3o«xtvs^,