Suðurland

Ataaseq assigiiaat ilaat

Suðurland - 06.01.1911, Qupperneq 1

Suðurland - 06.01.1911, Qupperneq 1
SUÐURLAND. II. árg. Eyrarbakka 6. janúar 1911. Landsímastöðin á Kyrarbakka er opin frá kl. 8Va—2. og 3lk—8 á yirknm dögum. Á helg- um dögum frá kl. 10 — 12 f. hd. og 4—-7 o, hd. Einkasíminn er opinn á saraa tíma. Sparisjóðup Árnessýslu cr opinn hvern yirkan dag frá kl. 3—4 e. hd. Lestrarfélag Eyrarbakka lánar út bœk- ur á sunnudögum frá kl. 9—10. f. hd. Gleðilegt nýár! „Traustir skulu hornsteinar hárra sala.“ —o---- (Frnih. Sjá 20. tbl.) Hyrningarsteinn þióðargæfunnar er and- leg og líkamleg menning einstaklinga þjóð- arinnar. Það verða menn þeir að muna, sem ganga eiga undan öðrum með góðu eftirdæmi. Það hljóta blaðamennirnir að vita, mennirnir „sem inóta iýðsins vilja". Hætt er við því, að þeir muni það ekki allir, eða vilji ekki minnast þess, þegar „bsita" þavf einhvern „landsjóðsöngulinn", og flska skal feitan drátt eða þegar þeim finst að þörf só að blása sem best að sundrungarglæðunum, til þess að geta því betur komið ár sinni fyrir borð. Allir hugsandi menn hljóta að sjá og viðurkenna það, að blaðagreinar, sem vekja reiðihug og sundrung, eru „steinar í göt unni“ á leið þjóðarinnar til þroska og gæfu. Þeim steinum þarf að ryðja burt. Er það auðsótt verk? Síður en svo. Framkvæmanlegt er það samt. Hver ráð skai hafa? Hætta að kaupa og iesa stjórnmálabiöðin? Eigi mundi þýða að ráðleggja slíkt, enda er það ekki, að minni hyggju, besta ráðið, en maklegt væri það. Hagkvæmara hygg eg að sé að reyna að kveða niður þann „iila anda“, sem birtist í blaðagreinum þeirra stjórnmálamanna, sem ár og sið og alla tið reyna til að sverta og svívirða mótstöðumenn sfna með öilum þeim brögð- um, sem flokksrígurinn og valdafíknln blæs þeim i brjóst. Andi sá þolir eigi Ijós menningarinnar og kristindómsins. Pví er það ráðlegast að beina starfinu í þá átt og keppa af öll- um mætti að því þarfa og háleita takmarki: að gera þjóðina sannmentaða oq sannkristna. Þegar því takmarki er náð, mu i sundrung- in hverfa eins og ís í sólbráð, því ljósi sannrar menningar og trúar fylgir ylur, sem megnar að verma hið visna ög kalda í þjóðlífl voru. Það er sannfæring mín og trú. Andlátsorð Göethe, þýska skáldkonungs- ins, voru: „Meira ljós!“ (Mehr Licht). Sama andvarp hefir stigjð upp frá brjóstum ótölulegs fjölda manna, sem fund- ið hafa sárt til þess, að versta ánauð, sem þjáir manninn og þjakar, er ánauð fávisk- unnar og lastanna, ánauð sem er mörgum sinnum verri en ilt stjórnarfyrirkomulag. Óstjórn og kúgun eru að vísu tálmanir á framsóknarbraut þjóðarinnar, sem geta um stund, hamlað framförum hennar, en hugga mega menn sig við það, að engin þjóð býr til lengdar við stjórn, sem hún ekki á skilið. fað er dómur mannkynssögunnar, stað- festur af reynslu liðinna alda. Enginn taki orð mín svo, að eg vilji að lagðar sóu algjörlega árar í bát í stjórn- frelsisbaráttu þjóðarinnar. Nei, langt frá því, en muna ættum vér það, „að varðar mest til allra orða, að undirstaðan rétt sé fundin". Og undirstaða þjóðfrelsisins er ekki stjórn- málaþref og biaðadeilur, heldur traust þjóð- leg menning, bygð á kristilegum grundvelli. Gleðilegt er, að nú þegar er byrjað að starfa í þessa átt, og mikið hefir áunnist á síðustu árum og má þakka það, að miklu leyti, auknum, andlegum þroska þjóðarinn- ar, fræðslulögunum nýju og ungmennafé- lögunum. Skammt er síðan að fræðslu- lögin nýju gengu í gildi og ungmennafélög- in byrjuðu starf sitt, en þó hygg eg að talsverðir ávextir sjáist af áhrifum beggja, erida þótt st.arf þeirra og áhrif séu að rnestu hulin fræ, sem bíða síns tíma. Sumir af lesendum þessa blaðs raunu, ef til vill kunna því illa að fræðslulögin nýju skuli vera talin að hafa blessunarrík áhrif á landslýðinn, því mér er kunnugt urn, að margir voru þeim óvinveittir í fyrstunni. Þau hafa sína ófullkomleika og galla eins og önnur mannaverk, en það er eg sann- færður um, að fá lög munu verða íslend- ingum til jafnmikillar blessunar og þau, ef rétt er á haldið. Margir hafa óttast að lýðskólarnir og aukin alþýðufræðsla yrðu til þess að ala leti og ómennsku hjá þjóðinni. Menn hafa ímyndað sér, að bókleg þekking og verk- legar framfarir gætu ekki samrýmst. Margt sannar, að slíkt sé háskaleg villa og ein- ber ímyndun. Fyrri mótbáran er mjög veigalítil og fellur, svo að segja, um sjálfa sig, því reynsla annara þjóða og vor eigin, þó stutt sé, sannar ótvírætt að aukin lýð- fræðsla lamar ekki framkvæmdaþrekið, held- ur eykur það að miklum mun. Vér þurfum eigi annað en minnast Norður-Ameríku — „landskólanna" — til þess að sjá, að síðari mótbáran er röng, því óviða mun skólum og skólamáium betur á veg komið en þar, og hvergi á bygðu bóli eru eins miklar verklegar fram- kvæmdir. 32. blað. Eg gæti ekki óskað þjóðinni neins betra en þess, að hún ætti sem flesta og bezta skóla, — skóla sem þroskuðu líkama og sál nemeudanna í íullu samræmi, — skóla sem öllum stæðu opnir, — skóla, sem runnir væru af instu rótum þjóðareðlisins cg samrýmdust kröfum framtíðarinnar. Hvers þörfnumst vér sérstaklega til efl- ingar alþýðumenningunni? Feirri spurn- ingu er fljótsvarað. Vér þörfnumst góðra lýðháskóla. — Eg skil eigi hvað þjóðin hefir lengi getað verið án þeirra. Lýðhá- skólarnir hafa þó markað dýpst framfara- spor í líf frændþjóða vorra og þeir eru runn- ir af norrænuin rótum og er það kunnara en frá þurfi að segja, að forvígismenn þeirra voru mjög hrifnir af Eddunum og öðrum forníslenskum bókmentum. Því ættu lýð- haskólar, þó sniðnir væru eftir erlendu lýð- háskólunum, að eiga einkar vel við þjóðar- eðli vort og háttu. Eg veit það, að lýð- háskólar nútímans eru talsvert ólíkir fyrstu skólunum sem stofnaðir voru af lærisvein- um Grundtvigs, en vonandi liftr „andinn" enn hinn sami, þó tímarnir hafi breyzt og mennirnir líka. — Lýðháskólamálið má ekki deyja. Það verður að lifa og komast í framkvæmd. Allir sem vilja að lýðháskóli verði stofn- aður á Suðurlandsundirlendinu — í „hjarta landsins" — verða að taka höndum sam- an og starfa að því af heilum hug með ó- skiftum kröftum. Fað mál verður að vera ofar allri sundrung og flokkadrætti. Þegar barnaskólar eru stoínaðir alstaðar, sem hægt er, í sveitum landsins og sjó- þorpum, 2—3 unglingaskólar í hverri sýslu og lýðháskóli i landsfjórðungi hverjum, þá eru lýðfræðslumál iandsins komin í gott horf. Pað er hætt við, að langt verði að bíða þess að skólamál landsins komist á þenna rekspöl, sem eg hefi bent á, en óskandi væri að þess yrði ekki mjög langt að bíða. íslendingar eru fáir, fátækir og smáir, því verður ekki neitað. Því meiri ástæða er fyrir þá að hlúa sem best að öllu sem hefir gróðrar og þroska skilyrði hjá einstak • lingunum. Og það er hka ástæða fyrir þá að vera á verði og leitast við að uppræta hvert illgresi, sem reynir að þroskast í þjóðlífsakrinum, því þaðan en ekki að utan ógnar mesta hættan. Sundrungin er versta illgresið. Reynum að rífa hana upp með rótum. Þegar það hefir tekist „munu bætast harmasár þess horfna, hugsjónir rætast, þá mun aftur morgna". Þorsteinn Friðriksson. —----0*OK>------

x

Suðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.