Suðurland

Ataaseq assigiiaat ilaat

Suðurland - 06.01.1911, Qupperneq 3

Suðurland - 06.01.1911, Qupperneq 3
SUÐUR’LAND 125 eru í voða, þarf ekki að breiða nema fyr- ir dyr og glugga, en réttast er samt að kæla járnið með vatni. 3. Springi lampi og eldurinn læsi sig í oliuna, er sjálfsagt að viðhafa sömu aðferð og að framan er nefnd, nefnilega að kæfa eldinn með fötum eða öðiu því um líku, sem hendi er næst. Þegar slökkt er á lampa er hættuminst að skrúfa kveikinn dálítið niður, taka glas- ið af lampanum og blása síðan hægt á ljós- ið. Hættulegt getur verið að blása ofan í glasið ef lítil olía er á lampanum, einkum ef kveikurinn er of mjór og fyilir ekki út í pípuna. 4. Ef að kviknar í fötum manns, má ekki hlaupa til að leita sér hjálpar, því hætt er við að eldurinn blossi úpp í föt- unum, og maðurinn missi meðvitundina. fegar svo ber undir, á að kæfa eldinn með því sem hendi er næst, svo sem rúmföt- um og því um líku, fleygja sér niður og velta sér um gólflð. Sé vatn við hendina er ágætt að hella því á gólfið og velta sér svo upp úr því. Séu fleiri menn viðstadd- ir, er oftast hægt að kæfa eldinn þannig og að ná í vatn svo fljótt sem. unt er til þess að kæla fötin og slökkva eldinn al- gert. P. Nielsen. *—— -<XK----— Skemtanir á Eyrarbakka. Það kom að því, að lifnaði yfir skemt- unum Eyrbekkinga. Enda var daufc yfir Eyrum lengi fram eftir. Fyrst reið á vaðið verkmannafélagið „Báran". Efndi það til almennrar skemt- unar 17. des. Hófst hún með tölu, er formaður félagsins, hr. Bjarni Eggertsson hélt; var á eftir sungið nýtt kvæði. Rá var sýndur gainanleikurinn „Gamli Toggi“, og tókst eftir vonum. — Þá sönga karla- kór, undir stjórn hr. guðfræðings Jóhanns Briem. Þótti söngurinn takast vel. Þá flutti Einar E. Sæmundsen, skógvörður, er- indi „um lestur fornsagna." Yar það erindi hið bazta og að ágætum haft af öllum er á hlýddn. Aftur söng karlakórinn, og þar á eftir sýndu tveir menn bendingaleik (Pantomime). Var því tekið með dynjandi lófaklappi. Þá var farið að dansa og skemtu menn sér við hann fram á morgun. Þótti skemtun þessi hin besta. 28. des. var skemtun hjá „kvenfélagi Eyrarbakka". Hófst hún moð erindi er Einar E. Sæmundsen flutti um starf iélags- ins, líknaistofnanir, kvenfrelsi o. fi. Þótti öllum það erindi gott og mætavel flntt, (Væri æskilegt að Suðurl. flytti einhvern útdrátt úr þessum fyrirlestri við fyrsta tækifæri). Þá söng kvennakór: „Kvennaslag" Guðm. Guðmundssonar, undir stjórn hr. Jóh. Briem, ótti það vel takast. Þá voru sýndar skraut- sýningar: 1. Fjallkonan, 2. Ingibjörg í Baldurshaga, er hún syrgir burtför Friðþjófs, 3. Særður hermaður. Góður rómur var gjör að sýningum þess- um, þóttu þær allvel takast. Næst á eftir söng frú Eugenia Nielsen einsöng, þótti þar unun á að hlýða, enda heflr frúin fögur og mikil hljóð, og ekki er á þeim að heyra, að frúin sé við aldur. Pá söng kvennakórinn aftur nokkur lög og tókust þau fremur vel, þótti þó áskorta, að sumar raddirnar beittu sér nóg. Þá hófst uppboð mikið á „bögglum". Varð þar bráttt fjör á ferðum. Stóð það yflr nokkra stund. Kunnu menn vel að meta tilgang félagsins með bögglauppboð - inu, og buðu óspart í, — því margir voru bögglarnir og seldust þeir allir. Eftir það hófst dans, stóð hann fram undir morgun. Eitt sinn um nóttina, er hlé varð á dans- inum, söng séra Ólafur Magnússon í Arn- arbæli nokkur smálög; var að þeim góður rómur gjör. Skemtun þessi var mjög vel sótt, enda þótti hún hin besta er hér heflr lengi ver- ið haldin. þeir, sem hér hafa brotið ísinn. Verður þetta vonandi i fyrsta en ekki siðasta sinn, að sýnt verður hér kappsund, enda óviða betur lagað við sjóinn en hér innan skerj- anna. Eftir hádegið hafði skotfólagið" æflngar úti, þusti þangað margt manna að horta á, þótti þeim gaman að. En varlega þarf að fara við slík tækifæri, svo ekki verði slys að. Félag þetta er aðallega stofnað í því skyni að vekja áhuga á íþróttum, sérstak- lega skotflmi. 4. janúar var jólatrésskemtun hjá Báru- félaginu, var hún fjölsótt. 5. janúar héldu álfar nokkrir blysfarir og brennu var dansað á eftir, Pótti mörgum lítið til koma og kölluðu slíkt hégóma einn. Samskonar blysför og brenna var og á Stokkseyri. í kvöld (6. jan.) verður jólat.résfagnaður barnastúkunnar „Gleym mér ei“, verður þar ýmislegt til skemtunar haft. 30. des. heimsóttu okkur Eyrbekkinga nokkrir Stokkseyringar og buðu á sjónleik í Fjölni. Þustu þangað margir, — en því miður brugðust mönnum vonirsínar. Pótti leikur þessi stórum mun lakari en þeir leikir er Stokkseyringar hafa sýnt hér und- anfarna vetur. Efnið virtist að vera þeim um megn. Enda ekki kostur á því hér að sýna leik- rit, sem mikinn umbúnað þarf til og bún- inga, og er það vorkunn nokkur, þótt þar sé ábótavant. En málið á leik þessum þótti svo vont, að hörmung var að heyra. Á því skeri verða þeir að vara sig næst er þeir láta þýða fyrir sig leikrit úr útlendu máli. Á gamalárskvöld var veður hið bezta. fá var og gleðskapur margskonar um hönd hafður, Leikfimisflokkur U. M. F. E. undir stjórn hr. kaupfélagsstjóra Guðm. Guð- mundssonar sýndi leikflmi í garðinum við „Húsið“. Voru fyrir þeim borln blys, en öðru hvoru lýst upp sviðið með allavega litum skrautljósum. Flugeldar þutu fram og aftur um loftið og logandi vígahnettir sveimuðu yflr höfðum manua. Púðurkerl- ingar kváðu og við raust og þeystu úr sér eldi og eimyrju og huldu áhorfendur í reyk og svælu. Mest gekk þó á um kl. 12. Kveðja gamla ársins, — og velkomendakveðja hins nýja árs. — Þótti öllum gott þarna að vera og vav líka viðstatt fólk svo hundr- uðum skifti, enda var veður hið bezta. Nýjársdagurinn byrjaði með þvi áð 5 ungir menn þreyttu kappsund frá Einars- hafnarbryggjunni, um 25 faðma. Varð þar skarpastur Ingvar Loftsson, synti hann leið þessa á 57 sek. og fékk að launum blek byttu úr slípuðum kristalli (um 6 kr. virði). Hinir sem tóku þátt í sundinu voru: Ás- grímur Guðjónsson, Gísli Jóhannsson, Val- geir Jónsson, Jón Tómasson. Piltar þessir hafa engrar kenslu notið, en hafa þó reynt að nema sundið af sjálfu sér. í sjó hafa þeír farið daglega í vetur. Má búast við að þetta verði fyrirboði meiri framfara í þessari þörfu og heilnæmu íþrótt hér á Bakkanuin. ileiður og þökk eiga Nýkominn til Þórðar Jóns'sonar á Stokks- eyri „Bændaförin", ferðasaga norðlenzku bændanna, og kostar kr. 1,50 með nokkr- um myndum. Verður getið nánar í næsta blaði. -------------- Sundið á nýjársdag í Reykjavík. Fljótastur varð Erlingur Pálsson, synti 25 faðma á 37 sek. Fljótastur allra, er reynt hafa sig í Reykjavík. Fundarboð. Laugardaginn 20. jan. n. k. heldur „Suðrafélagið“ fund að Þjórsártúni. Byrj- ar kl. 12 á hádegi. Að kvöldi sama dags og á sama stað verður skemtisamkoma. Til skenstunar verðuv Ræðuhöld, málfund- ir og ef til vill fyrirlestrar o. fl. Aðgangur 25 aurar. þjórsártúni 28. des. 1911 Ólafur Isleifsson, Undirskrifaður afturkallar hér með öll þau ærumeiðandí orð, er eg í ölæði hefi haft um verslunarmann Jón Sigurðsson á Eyrarbakka. Norðurkotifd. jan. 1911 Jón Jónsson. AðaJfndur „Prentfélags Árnesinga" verður haldinn í Fjölni á Eyrarbakka laugardaginn 6. febr. kl. 12 á hádegi. Kosin ný stjórn. Lagðir fram reikning- ar félagsins. Ennfremur verða lagðar fyrir fundinn ýmsar lagabreytingar. 7. febrúar 1911 Stjórnin. Utgefandi: Prentfólag Arnesinga. Abyrgðarmaður: Karl H. Bjarnarson Prentsmiðja Suðurlands.

x

Suðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.