Suðurland


Suðurland - 23.09.1911, Qupperneq 1

Suðurland - 23.09.1911, Qupperneq 1
SUÐURLAND. II. árg. Eyrarbakka 2B. seftcmbcr 1911. 15. blað. Auglýsingaverð. Þumluuguriun af meginmálsletri kostar 1 krönu, miðað við eina d&lksbreidd í blaðinu. Fyrir BmáleturBauglýBÍngar (potit eru teknir 3 aurar fyrir orðið. 0 Só auglýst að mun er mikill afBlft,ttur geíinn. % Landsimastöðin á Eyrarbakka cr opin frá kl. 8V2—2. og 3ya—8 á virknm dögum. Á helg- um dögum frá kl. 10—12 f. hd. og 4—7 e. hd. Einkasíminn cr opinn á sama tíma. Spapisjóðui' Árnessýslu cr opinn hvcrn virkan dag frá kl. 3—4 e. hd. Lestrarfélag Eyrarbakka lánar út bæk- ur á sunnudögum frá kl. 9 —10. f. hd. Til kaupendanna. Gjalddagi“„Saðurlands“é"er 1. nóvember í haust. Þá eiga blaðgjöldin að vera greidd. Heiðruðu kaupendur hér í nærsýslunum! Gerið svo vel að muna eftir blaðinu ykkar nú í haustkauptiðinni, að borga það. Til- vera blaðsins í framtíðinni er undir því komin, að þér reynist skilvÍ3Ír við það. Vér erum þess fullvissir, eftir þeim mót- tökum, sem blaðið heíir fengið hjá yður, að þér viljið hlynna að þessu eina blaði, sem gefið er út á hinu víðlenda og fjöl- bygða Suðurlandsundirlendi, — héraðsblað- inu gkkar, — það hafið þér sýnt með því að gerast mjög alment kaupendui ’þess, og sýna því ýmsan hlýleik og vináttumerki á annan hátt, svo sem margir hafa gert. Biður nú Suðurland ykkur að vera sam- taka um, að greiða blaðgjaldið nú í haust- kauptíðinni, því í haust þarfnast blaðið allra sinna peninga, því mörg eru útgjöld- in. Verið þess fullvissir, að “Suðurland mun verða þeim mun betur úr garði gert framvegis, sem þér hlynnið betur að því. Og væri það ekki sæmdar og metnaðarauki fyrir yður, sem í þessum héruðum búið, að blaðið gæti stækkað og orðið fjölbreytt- ara að efni en það nú er, — langstærsta og besta héraðsblaðið á landinu, í lang- stærstu og bestu héruðunum. — Kæmi það ekki vel heima? Sökum anna á prentsmiðjunni í sumar, verður ekki tilbúið sögusafn II. árg. í haust, en verður prentað fyrri part vetrar. Valin verður góð og skemtileg saga og fá hana allir skilvisir kaupendur. Verður auglýst í blaðinu þegar lokið er prentun hennar. Blaðgjöldin greiðist til gjaldkerans, Guðm. Jónssonar í Heklu. Eitinig má borga þau við verslanir hér og á afgreiðslu blaðsins. Kaupendur Suðurl. í Rvík og grend, eru vinsamlegast beðnir að borga blaðgjöld sin til Ögmundar Ögmundssonar við verslun »Björn Kristjánsson8. Heyvinnuvélar og notkun þeirra. Eftir beiðni hr. Guðm. ísleifssortar Stóru- Háeyri, vil eg segja nokkur orð um vélar þær, er hann heflr látið nota í sumar og undanfarin sumur, nefnilega heyvinnuvél- arnar, sláttu- og rakstrarvól. Um sláttuvélar skal eg vera fáorður, því þær eru orðnar svo kunnar og útbreidd- ar meðal almennings, að kosti þeirra sjá og vita allir sem annars hafa séð eða reynt þær. Eg ætla því ekki að tala neitt frek- ar um nytsemi þeirra, en um notkun þeirra vil eg fara fáum orðum. Bar eru að mínu áliti ýmsir agnúar á, t. d. að maðurinu situr ekki á vólinni og munu þess víða dæmi, o. fl. Með því að sitja ekki á vél- inni, getur maður ekki haft nægilegt vald yflr bæði vélinni og hestunum og er það til stórtafar, auk þess sem það er óverk- legt og vélin verður framþyngri og þar af leiðandi erfiðari en ekki hægari hestunum. Heyrt hefi eg um einn af okkar bestu bændum, að hann hafi notað sláttuvél í sumar, án þess nokkurntíma að leggja Ijá- ina á. Betta dæmi, sem mun koma bæði af vanþekkingu og hugsunarleysi, hvetur mig til þess að taka það skýrt fram, að undantekning er, ef ekki þarf að leggja Ijá- ina á daglega. Hitt mun til lengdar ofraun fyrir hestana og þarafleiðandi vinnutöf. 1 sambandi við þetta vil eg leiða athygli manna að vél (kostar 22 kr.). er Guðm. ísleifsson hefir fengið til að leggja Ijáinn á; gjörir hún það bæði fljótt og vel, er handhæg og auðveld og ætti að mínu á- liti áreiðanlega að fylgja sláttuvélunum. Menn ættu þá er þeir eru á ferð á Eyr- arbakka, að fá að líta á vél þessa, þar eð hún er óþekt hér á landi. Rakstrarvélina er þörf að minnast á, því eg hefi orðið þess var, að menn bera vantraust til hennar. Hún á undir öllum kringumstæðum að fylgja sláttuvélinni. Kostar kringum 145 kr. og mun engu sið- ur borga sig en sláttuvélin og gengur all- staðar að er sláttuvél er notuð, mjög auð- veld í notkun og létt einum hesti. Vil eg lauslega minnast á heppilegasta notkun hennar að mínu áliti, og ýms önnur atriði í sambandi við hana. 1. það þarf að raka tvisvar með henni sama stykkið, annars rakar hún ekki nægilega vel; rakar hún alt fyrir það á við 5—6 stúlkur, sé röskur hesturfyr- ir henni á sæmilegum sléttum. 2. Heppilegast, tel eg að láta heyið liggja í ljá þar til það er orðið þurt. — Hitt getur líka gengið að raka í flekki, að öðru leyti en því, að vélin breiðir ekki á heyinu. Bað ættu menn ekki að gjöra í þurkatíð. 3. í pöntuninni þarf að taka það fram, að vélarnar séu þétt tannaðar (ekki meira en 2 þuml. milli tanna) og að tannirn- ar séu kantaðar en ekki sívalar. Eg hætti svo að þessu sinni með ósk um aukna vélanotkun á landi voru. Mun best fyrir bændur að fá vana menn til að koma vélunum á stað og kenna þeim mönnum er þær eiga að nota, en vera ekki að burðast við það án þess að fá tilsögn, því það er auk þess að vera stórskaði fyr- ir eigendurna sjálfa, rækilegt meðal til að koma vantrausti og óhug inn hjá öðrum er þeir sjá að vélarnar ganga illa. Jbn Briem Aðf lutningsba nnið. Mér likaði ekki vel þegar eg las síðasta tbl. Suðurlands og sá að aðflutningsbannið var gjört að umræðuefni í sambandi við næstu kosningar, því eftir því máli ber alls ekki að fara þá. Að kosningar fara fram er af vænfanl. stjórnarskrárbreytingu, og eftir skoðunum frambjóðenda á því máli ber að fara, þótt meir muni ráða hvaða stjórnmálaflokki þeir tilheyra, en ef svo líka verður farið eftir skoðun þeirra á að- flutningsbanninu, þá er það til þess, að ýmist er farið eftir stjórnarski'ái breyting- um, flokkapólitík eða aðflutningsbanninu, og er slíkt besta leiðin til að sundra og er þá ílt verk unnið. Aðflutningsbannið er ekki flokksmál, og því ekki rétt að blanda því saman við þau, enda vafasamt að því væri sigur í því, því hjá flestum mun meir ráða stjórnmálaskoðanir en það. Bótt að- flutningsbannið verði tekið til umræðu á næsta þingi, er ástæðulaust að ímynda sér að það verði gjört á annan hátt en þann, að það verði lagt undir þjóðaratkvæði aftur, því fyrst það er orðið til á þann hátt, verð- ur það eigi numið úr gildi nema á sama hátt, og aðrir en æstir bannmenn munu eigi amast við því, enda er það í fylsta máta réttmætt, því nú er málið betur rætt frá báðum hliðum en 1908, og er ólíklegt að bannmenn álíti að fylgi sitt hafl þverr- að við það, og oflítill meiri hluti þá til þess að það hafl verið réttmætt að lögleiða það og með því að gengið só til atkvæða um það aftur, er fenginn um það endilegur úrskurðurá þann hátt, sem vera ber. Læt eg svo staðar numið, enda er Suð- urlandi ekki holt að ræða mikið þetta þaul- rædda mál. Þ. * * * Suðurland er ekki svo ófrjálslynt, að það vilji ekki taka aðrar greinar en þær, sem eru samhljóða skoðun ábyrgðarmannsins, einungis að þær séu kurteysar og ræði málefni en ekki mann.

x

Suðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.