Suðurland


Suðurland - 30.11.1912, Page 3

Suðurland - 30.11.1912, Page 3
SUÐURLAND 99 viðskiftum vorum þangað sem oss er hagkvæmast, þvi okki geta þeir gert kröfu til þess að vér af einskærri umhyggjusemi fyrir hag danskra kaupmanna látum verslun vora vera í þeirra höndum. Yér eigum þeim ekki svo mikið gott að launa. Gott væri að kaupmenn vorir og fésýslumenn láti málið í fullri alvöru til sín taka. Úr þeirri átt ætti helst að mega vænta bæði þekkingar og nokkurs máttar til umbótatilrauna. Mun að þessu nánar vikið siðar. Kosningar i Noregi. Nýafstaðn- ar kosningar í Noregi hafa gengið mjög vinstrimönnum í hag. Kosn ingar hafa verið sóttar af miklu kappi. Hafa bændur lagt sig mjög fram um að stjaka hægrimönnum frá kosn- ingu. Eru það einkum fossalögin og hinn taumlausi yfirgangur útlends fjármagns er hægrimenn hafa unnið sér mest til óhelgi með. Þykir bændum hætta á fetðum af ráðs- mensku þeirra, og þeir hafa tekið í taumana og það rækilega. Til Munda. Eg bið Suðurland að skila til Hall- mundar, að grein hans í 20. tbl. verð- ur ekki gerð að umtalsefni af mér. Ef mér findist eg hafa ástæðu til að hefna mín á honum, mundi eg opin- bera hans rétta nafn, en það væri of illa með hann farið eins og nú er komið fyrir honum. Eg þekki nafn hans eins vel og hann mitt, sem honum er svo munntaint, enda er hann gamall kunningi minn, og þó honum gangi illa að selja hunda- þúfuna sína, þá er það ekki eins mikið mér að kenna og hann heldur. Samt má hann skemta sér við þá hugsun svo lengi sem honum likar. En eg leiði hann hjá mér fram- vegis. Kolbeinn Eiriksson. Reykjafoss með húsi og tóvinnu- vélum hefir Árnessýsla nú keypt af hlutafélagi því, er átt hefir og starf- rækt tóvinnuvélarnar. Sýslunefndin var í ábyrgð fyrir láni fyrir félagið, og þóttu nú þau úrslitin best, að sýslunefndin hirti alt saman. Liklegt er að sýslunefndin reyni nú að hressa þetta fyrirtæki við með einhverju móti. Aldarafmæll Péturs Guðjónsens organista í Reykjavík var í gær. Hann var með réttu talinn „faðir söngs á ísamold". Var einhver hinn fyrsti brautryðjandi þeirrar fögru list- ar hér, og eigum vér honum mikið að þakka í því efni. I Reykjavík átti að minnast 100 ára afmælis hans með samsöng í dómkirkjunni, og víðar um land hafa verið ráð gerðir kirkjusamsöngar o. fl. til há- tíðabrigða. Fréttabréf. —o— Meðallandi 5. nóv. 1912. Iíeiðraða Suðurland! Loksins eítir lauga bið sting eg nú niður pennan- um til að hripa þér fáar línur, en eg býst nú við að það verði fáort og efnislítið, vegna þess, að hér ber svo nauðafátt til tíðinda, Tíðarfar i sumar ágrett yfirleitt. Jörð spratt óvanalega snemma, varð grasvöxtur góður á túnum, en a á- veitulausum mýrum tæplega í með- allagi. Sláttur byrjaði fyr en venju- lega og nýttist heyafli mjög vel, mátti segja að óslitinn þerrir væri dag eftir dag frá byrjun sláttar og til septern bersbyrjunar; var það mjög heppileg tið á mýrlendi, en seigbeitt mun hafa verið á vallendi. Siðan gerði stór felda rigningarrosa um langan t.íina; áttu þá flestir hey úti, og hröktust þau mjög, en náðust um síðir. Með vetrarbyrjun gerði nokkurt frost, sem hélst vikutíma, en nú er aftur komin þýða. Heyskapur mun hér alment í betra lagi. Uppskera úr kálgörðum í meðal- lagi, kannske vel það sumstaðar. — Rekalaust með öllu hér i sumar. Heilsufar manna alment heldur gott í sumar og yflrleitt góð líðan það eg veit, Fremur virðist hér dauft yflr fé- lagslífl, verður lítið úr framkvæmdum hjá þeim félögum sem hér starfa. Hygg eg að orsökin liggi hið innra hjá einstaklingunum í félögunum, samúð og ábyrgðartilfinningu fyrir skuldbindingu og lögum félaganna virðist víða vanta, en maður vonar að þetta lagist, og að félögin rísi nú upp, eftir sumarhvildina, með fullum krafti til starfs og framsóknar. Lýk eg svo máli mínu að þessu sinni og óska þér og lesendum þín- um góðs og gleðilegs vetrar og allra heilla. Yirðingarfylst Einar Sigurfinnsson. Keflavík 18. nóv. 1912, Herra ritstjóri Suðurlands: Héðan er ekkert nýstárlegt að frétta. Allmikla eftiitekt vakti hjá mér og öðrum greinin í Suðurlandi um raf- lýsingu. Hér heflr raflýsingarhug- sjónin komist á hreiflngu 1 kauptún- inu, en af framkvæmdum ekkert orðið en. í hvorum staðnum sem er, virtist þó eitt áhæti ulítið og nauð- synlegt., sem sé, að fá sérfræðing í þeirri grein til þess að dæma mál efnið til lífs eða dauða. Eg mun hlusta nákvæmlega eftir því hvað þið Eyrabúar gerið í þessu efni, og hvernig þið fáið hreifiaflið. Vindmyllufyrirmynd hefl eg til, sem er þeim kosti búin, að geta gengið i hvaða vindstöðu sem er, án þess neitt þmfl að breyta henni. Lítið vafamál er það, að all oft mætti nota vindinn, en vafalaust þyrfti þó annað afl í forfðllum hans. Heilsufar er hér fremur gott al- ment. Atvir.nulaust hjá þorra fólks nú um stundir, og ekki litið til sjáf- ar. Nýlega dáiníVogum: Elín Bjarna- dóttir húsíreyja og Steingiímur Stein- grímsson 83 ára gamall. í Hávarð- arkoti í Njarðvíkum María kona Guð- inundar bónda þar. yígúst Jónsson. Ráðherra fót- til Kristjaníu um mánaðarmótin síðustu, til að eiga tal við norsku stjórnina um tollsamn inga. Danska blaðið Riget segir að þegar hann komi aftur til Hafnar, muni standa til einhverjar ráðagerðir um sambandsmálið. Raflýsingar. —o-- „Neyðin kennir naktri konu að spinna", segir málshátturinn og er svo að sjá, sem hann sé að rætast nú um raflýsingu í húsum manna hér. Aflið til raflýsingar 6igum vér viða til, en því hefir verið lítill gaum- ur gefinn, en nú er okurverðið á steinolíunni að kenna mönnum að líta í kring um sig. SigJfirðingar hafa nú nýverið látið verkfræðing undirbúa raflýsingu hjá sér. Isflrð- ingar eru að taka raílýsingu á dag- skrá, og hérna eystra er að koma dálítil hreyfing í þá át.t, fyrir Stokks- eyri og Eyrarbakka. Er það hér mrsta nauðsynjamál að þetta sé tek- ið til athugunar, þar sem nokkrar líkur eru til að því verði við komið. Hví skyldum vér að nauðsynjalausu gerast féþúfur erlendra okurfélaga. ? Stærsta brú á Norðurlöndum er nýlega fullgevð í Sviþjóð yfir „Ánger manelven" við Forsmo. Var hún tekin til notkunar 1. þ. m. Hún er 262 metrar á lengd og vegur 1200 tonn. Hæðin frá vatnsfleti upp að brúargólf- inu er 49 metrar. Brúin er bygð á Motala verksmiðju í Svíþjóð. Pykir hún hin mesta listasmíði, en dýr er hún, kostar 398,900 kr. Hraðskreitt herskip. Nýr bryn dreki er Englendingar eiga, hið mesta heljarbákn, fer 29,7 til 31,7 mílur á vöku. Skip þetta heitir Princes Royal. Ameríkst gjaldþrot. Alt er stór- felt hjá Ameríkumönnum — gjald, þrotin lika. — Eitt stórfélag þar, er var samsteypa af mörgum verksmiðj um er smiðuðu olíuhreifivélar, og nefndist „United States Motor Comp- any“ er nýlega orðið gjaldþrota og eru skuldir þess 150 milj. kr. Timatal Gyðinga. Nýársdagur þeirra var 15. sept. og ártal það er þeir nú rita er 5678. Trúaðir Gyð- ingar halda heilagt um áramótin í 2 daga. Tíu dögum síðar hafa þeir föstuhald í 24 kl.tíma— það er að segja þeir sem vilja, — hinir éta óátalið eins og lystin leyflr. Friðarhorfur. —0— Nú dregur að leikslokum. Tyrkir eru að þrotum komnir og hafa leitað um frið. Hitt er og víst; að Búlgarar veita ekki vopnahlé nema óskoiið sé gengið að þeim kostum, er þeim líkar. Fólkorustan við Lule Burgas hefir ráðið úrslitum. Tyrkjaher hefir ekki borið sitt barr síðan. Bardagi þessi jafnast við þær fólkorustur, er frægastar eru í sögum og skift hafa sigrinum meðal heilla þjóða, svo sem orustan við Wateiloo, Sadowa eða Sedan. Með orustu þessari hefir Tyrkjaveldi í Norðurálfu liðið undir lok og má Tyrkjum gott þykja, ef þeir fá að halda Miklagarði með litl- um landskika umhverfls, og íáða því þá viðsjáv stórveldanna en ekki mátt- ur sjálfra þeirra. Ófriður þessi er einhvar hinn merkilegasti, er háður heflr verið á vorum dögum. Enginn hefir orðið með jafnskjótum úrslitum nema óftiður Pjóðverja og Austurríkis- manna 1866. En Bismark barðist þá ekki til lands. Hann lét sér nægja að Austurriki hóldi öllu sínu nema Feneyjum, er þegar voru orðnar lausar í hendi og þá fengnar Ítalíu. Ef Bismark hefði krafist mikis hluta af landeignum Austurríkis, þá hefði styrjöld sú staðið miklu lengur. En í þessum ófriði verður sú nýlunda, að heilu keisaradæmi eru örlög sköp- uð á tæpum þrem vikum. Pví að hversu sem veltist, þá er það vist, að Tyrkir halda engum landeignum hér í álfu, er nokkru nema, þegar friður verður saminn. (Ingólfur). .....------ -- • Eftirmæli. Eins og getið var hér í blaðinu, andaðist á Stokkseyri 8. þ. m. hús- frú Kristín Þórðardóttir, eftir langa sjúkdómslegu. Banamein hennar var krabbamein í maganum. Kristín sál. var fædd 27. júní 1860 á Mýrum í Villingaholtshreppi. For- eldrar hennar voru meikishjónin Þórður Eiríksson og Helga Sveins- dóttir, er þar bjuggu — bæði dáin 1908. Eftirlifandi manni sínum, Jóni Þorsteinssyni járnsmið giftist hún 1. des. 1888. Bjuggu þau hjón fyrst í Kolsholtshelli í Villingaholtshreppi, en fluttust til Stokkseyrar árið 1893 og áttu þar heima síðan. Þeim hjón- um varð 5 barna auðið, lifa 4 þeirra, 2 dætur komnar yfir fermingu og 1 yngri, og 1 sonur, Pórður, bókhald- ari við Ingólfsverslun á Stokkseyri. Kristin sál. var mæt og góð kona, hjartagóð og hjálpfús, góðlynd og glaðlynd, og ávann sér vináttu og vitðingu allra, er henni kyntust. Bðrnum sínum var hún ástrík og umhyggjusöm móðir og iækti heim- ilisskyldur sínar með hinni mestu kostgæfni. Hún var ein af þessum konum, sem ekki gera neitt til þess að vekja athygli á sér útávið, en rækja sitt kyrláta starf inuan heimilisveggjanna með ræktarsemi og umönnun íyrir heimilinu og góðvild og hjálpfýsi við aðra, og það er gott og nytsamt æfl- starf. Dökkjarpur licstur, 8 vetra gamall, vakur, mark blaðstýft fr. h., biti eða fjöður fr. v., tapaðist í haust frá Asgautsstöðum. Hesturinn var i góðum holdum, viljugur tii reiðar, styggur i haga. Sá er hitta kynni hest þennan, geri undirrituðum við- vart. Jón Jónatansson.

x

Suðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.