Suðurland - 09.03.1914, Qupperneq 1
SUÐURLAND
Alþýðublað og atvinnumála
IY. árg.
Eyrarbakka 9. marz 1914.
Nr.
38.
Suðurland
keraur út cinu sinui i viku, á
laugardogum. Argangurinn kost-
ar 3 krónur, erlendis 4 kr.
Ititstj Jón Jónatansson á
Ásgautsstöðum.
Innheimtumenn Suðurlands eru
hér á Eyrarbakka: skósmiður
Guðm. Ebenezerson og
verzlm. JónAsbjörnsson(við
verzl. Einarshöfn). í Reykjavík
Ólafur Gíslason verslm. í
Liverpool
Auglýsingar sendist í prent-
smiðju Suðurlands, og kosta:
kr. 1,50 fyrir þuml. á fyrstu síðu,
en 1,25 á hinum.
CiriRur Cinarsson
yfirdóinslögmaður
Laugaveg 18 A (uppi) Bcykjavík.
Talsími 433.
Flyt,ur mál fyrir undinétti og yfirdómi.
Annast kaup og sölu fasteigna. Venju
lega heima kl. 12—l og 4—5 e. li.
)
Alþingiskosningar í Arnessýslu
frá 1844 til 1911.
Nii þegar kosningar fara í höud,
rnun mönnum þykja fróðleikur i, að
rifjuð séu upp úrslit alþingiskosninga
þeirra, er fram hafa farið í Árnes-
sýslu frá því er alþingi var endurreist
og fram á þennan dag, að meðtalinni
kosningunni 1911. Hér fer þá á
eftir upptalning á þessum kosningum,
ásamt stuttri skýrslu um úrslitin,
atkvæðatölu o. fl. — alt samkvæmt
bestu heimild, gjörðabók kjörstjórn-
aiinnar:
r Kosning aft Hróarsholti 20. maí
1844. Viðstaddir kjósendur 37. A1
þingismaður kosinn Jón .lohnsen,
yflrdómari i Reykjavik, meft 23 atkv.
og varaþingmaður Magnús Andrésson,
óðalsbóndi í Syðra Langholti með 14
atkv.
2. Kosning aft Hróarsholti 10. maí
1850 á tveim þjóftfundarfulltrúum.
Kosningu hlutu Porleifur Gudmunds
son Repp, túlkur í Kaupmannahöfn,
tneð 271 atkv. og Jóhann Kr. Briem,
prófastur i Hruna, með 258 atkv.
3. Kosning að Hróarsholti 2. júli
1851 á einum fulltrúa til þjóðfundar-
ins s. á. í stað í’orleifs Repps, er
hafði afsakaft sig frá aft koma á þjóð-
fundinn. Kosinn var Gísli skóla-
kennari Magnússon í Reykjavík með
70 atkv.
4. Alþingiskosning að Hróarsholti
30. sept. 1852. 23 menn greiddu
atkvæði. Alþingismaður kosinn
Magnús Andrésson í Syði a-Langholti
dieð 19 atkv. og varaþingrnaður
Gísli Magnússon í Reykjavík með 14
atkv.
5. Kosning að Vælugerði 2. nóv.
1858. 75 kjósendur greiddu atkvæði.
Alþingismaður kosinn Magnús And
résson í Syðra Langholti með 70 atkv.
en varaþingmaður Jón Jónsson, silfur-
smiður á Kíhrauni, (síðar bóndi í
Skeiðháholti), meft 56 atkv. Við þessa
kosningu bauð sig fram Arnljótur
Ólafsson, cand. phil. i Kaupmanna
höfn (síðast prestur á Sauðanesi) og
mælti með kosningu hans Jón Guð
mundsson Þjóðólfsritstjóri. Arnljótur
fékk 3 atkv.
6. Kosning að Vælugerði 25. okt.
1864. 92 atkvæði greidd. Alþingis-
maður kosinn Benedikt Sveinsson á
Eiliðavatni með 22 atkv. og vara-
þingmaður Pórður Guðmundsen, kamm
erráð á LitlaHrauni með 23 atkv.
8. Kosning að Hraungerði 28. okt.
1874 á 2 alþingismönnum. Kosningu
hlutu Benedikt Sveinsson (þá settur
sýslumaður í Þingeyjarsýslu) með 43
atkv. og Þorlákur Guðmundsson á
Miðfelli, með 39 atkv. af 51 greiddum
atkv. í kosningargjörðinni er þess
getið, að Jón Jónsson, landshöfðingja
ritari, „nú væri hingað kominn í því
skyni að láta kjósa sig“. Hann fékk
11 atkv. Ennftemur hlaut Þorkell
hreppstjóri Jónsson á Ormsstöðum 5
atkv., Þórður kammerráð Guðmundsen
3 og Jón hreppstjóri Árnason i Þor-
lákshöfn 1 atkv.
9. Kosning að Hraungerði 3. sept.
1880. Frambjóðendur aðeins 2:
Magnús Andrésson, kandidat í Reykja-
vík (nú prestur á Gilsbakka) og séra
Valdimar Briem í Hrepphólum. Þeir
voru síðan kosnir með 51 atkv. hvor,
Nokkiir viðstaddir kjósendur greiddu
ekki atkvæfti. Kjðrstjórnin getur
þess, að kosning hins hins síðarnefnda
sé mjög tvísýn, þar eð framboðið
hefði komið of seint og maðurinn
væri ekki sjálfur viðstaddur kosning-
arathöfnina.
10. Kosning að Hraungerði 18. júni
1881 á 2 þingmönnum í stað Magn
úsar Andréssonar og Valdimar Briem,
er sagt höfðu af sér þingmennsku
sakir formgalla á kosningunni. Nú
bauð sig aftur fram Magnús Andrés-
son og ennfremur Þorlákur Guftmunds
son í Hvammkoti. Síðan segir í
fundargjörðinni: „Þar bæði þessi
þingmannaefni eru utan sýslu, skorafti
Jón Jónsson í Skeiðháholti á oddvita
kjörstjórnarinnar (þ. e. Stefán sýslu-
mann Bjarnarson), að gefa kost á
sér til þingmennsku, og veitti oddviti
þessari áskorun jákvæfti." Kosningu
hlutu l’orlákur Gnðmundsson með 52
atkv. og Magnús Andrésson með 32
atkv. Stefán Bjarnarson fékk 29
atkv.
11. Kosning aft Hnuingerði 9. júri
1886. Kosnir: Þorlákur Guðmundsson
í Hvammkoti með 108 atkv. og
Skúli Þorvarðarson á Berghyl með 77
atkv. Séra Jens Palsson á Þingvöl!
um fékk 31 atkv.
12. Kosning að Hraungerði 24.
sept. 1892. Kosnir: Þorlákur Guð-
mundsson með 163 atkv. og Bogi Mel
steð cand. mag. í Khöfn með 122
atkv. Tryggvi kaupstjóri Gunnarsson
hlaut 52 atkv.
13. Kosning að Hraungerði 9. júni
1894. Kosnir: Tryggvi bankastjóri
Gunnarsson með 115 atkv. og Þor-
lákur Guðmundsson með 103 atkv.
Hannes ritstjóii forsteinsson hlaut
75 atkv. og Bogi Melsteð. 67 atkv.
14. Kosning að Selfossi 22. sept,
1900. Kos^irr Hannes Porsteinsson
og Sigurður, búfr. Sigurðsson, hvor
með 154 atSv. Pétur kennari Guð-
mundsson hlaut 125 og séra Magnús
Helgason 113 atkv.
15. Kosning að Selfossi 2. júní 1902.
Kosnir: Hannes Porsteinsson með 189
atkv. og Eggert Benediklsson með 169
atkv. Pétur Guðmundsson hlaut 161
og séra Ólafur Ólafsson 145 atkv.
16. Kosning að Selfossi 3. júní 1903.
Kosnir: Hannes Porsteinsson með 209
atkv. og séra Ólafur Ólafsson með
179 atkv. Eggert, Benediktsson hlaut
172 og Pétur Guðmundsson 154 atkv.
17. Kosning í hverjum hreppi 10.
sept. 1908. Atkvæði talin saman af
yflrkjörstjórn á Eyrarbakka 14. s. m.
Kosnir: Hannes I'orsteinsson ineð 335
atkv. og Sigurður Sigurðsson með
341 atkv. Bogi Melsteð hlaut 182
og séra Ólafur Sæmundsson 174 atkv.
9. kjörseðlar ógildir.
18. Kosning í hverjum hreppi 28.
okt. 1911. Atkvæði talin á Eyrar
bakka 1. n. m. Kosnir: Sigurður
Sigurðsson^ með 401 atkv. og Jón
Jónatanssou meft 344 atkv. Séra
Kjartan Helgason hlaut 298 og Hannes
Þorsteinsson 277 atkv. 18 kjörseðl-
ar ógildir.
HafvatnssuðuYél.
Norsk blöð geta um merkilega upp
götvun, er gert hefir norskur verk
fræðingur, Saxegaard aft nafni. Það
er ný vél til rafsuðu, sem kemst af
með afar veikan en stöðugan straurn,
en áður hefir sá galli þótt á vera
suðu við rafmagn, að þurft hefir
sterkan straum og suðan því orðið
dýr.
Þessi nýja vél er mjög einföld, lítur
út að utan sem lokaður kassj. í
kassanum er eiihylki og trékassi utan
um það til þess hitann leggi síður
út. í eirhylkið er látið vatn og vatn
ið síðau hitað með rafmagnskólfi uppí
suðuhita. Pottarnir sem á að sjóða
i eru settir ofaní vatnið, og standa
á grind sem er lítið eitt undir vatns
yfirborðinu. Nú er vélinni lokað og
pottarnir látnir eiga sig uns fuilsoftið
er. Suðan er svo hæg, að engiii
hætta er á að uppúr sjóði né heldur
að brenni við. í eirhylkinum er sér-
stakt hólf fyrir þvottavatn. Sé það
hólf fylt að kveldi á að mega taka
þar heitt vatn eftir þörfum daginn
eftir. Ýmsan mat er talið hentara
að sjóða ekki í vatni, og má það
takast í vél þessari, er þá maturinn
Játinn í pottinn án vatns, en soðnar
af hitanum af vatninu sem er utan
um pottinn.
Hitinn helst við í vél þessari all-
lengi þegar einu sinni er búið að
hita vélina, geti hún verið nothæf úr
því hvenær sem er þann tíma sólar-
hringsins sem nota þyrfti rafmagnið
iil annars, og megi þá að skaftlausu
minka strauminn til vélarinnar og
jafnvel Joka alveg fyrir hann um stund.
í vélinni er sem sé umbúnaður til
hitageymslu, ekki ósvipað því sem
gorist við raoðsuðu. Steikja má í vél
þessari, bæði í sérstökum steikarofni
og á pönnu. Steikarofninn má einnig
nota til gufusuðu.
Af þessaii nýju vél er mikið látið,
og reynist bvo sem sagt er. Er það
heldur ekki að ástæðulausn, hún hefir
í för með sér svo mikil þægindi og
sparnað, og ekki er það síst kostur,
að hún getur komist af með svo lít-
inn rafmagnsstraum.
Getið er í norskum blöðum annar-
ar uppgötvunar, sem sýnist muni
koma sér vél í sambandi við þessa.
Það er ný vél til framleiðslu rafmagns
úr vatnsafli. Segir þar svo um þetta,
að þessi nýja vél sé lítil fyrirferðar
og megi tengja hana við venjulega
vatnsleiðslu í húsum. Er sagt að ef
þessi nýja vél er tengd við venjulega
vatnsleiðslupípu sem hefir um 50 m.
fallhæð, geti vélin framleitt um 1000
Volt.
Báðar eru uppgötvanirnar að líkind-
um enn átilraunaskeiði, en gleðitiðindi
eru þær samt. Og vera má að þess
sé nú skamt að bíða, að rafmagns-
öldin renni upp hér á íslandi, og að
híð máttuga undraafl, rafmagnið,
verði hlýðinn og auðsveipur þjónn,
jafnvel á kotungsheimilinu, þegar búið
er með ódýru móti að beisla bæjar-
lækinn.
------o*o*<>---
Um Surmlendinga
á miðri 18. öld.
Til gamans og fróðleiks biitist hér
í þýðingu stuttur kafli úr hinni nafn-
kunnu bók Eggerts Ólafssonar um
feið hans og Bjarna landlæknis Pals-
sonarum íslandáárunum 1752—1757.
Eins og kunnugt er, er bók þessi
eitthvert merkasta og margbreyttasta
verk, sem um ísland hefir verið ritað,
og er enn ótnissandi heimildanit um
íslensk efni á flestum sviðum. Bókin
kom fyrst á dönsku (Rejse igennem