Valurinn


Valurinn - 06.07.1907, Page 2

Valurinn - 06.07.1907, Page 2
196 VALURINN 84. Guðmundur Finnbogason cand. mag. 85. Jón Magnússon bóndi frá Bráðræði. 86. Magnús Blöndahl trésmið- ur. 87. Ottó N. Þorláksson stýrim. 88. Sveinn Sigfússon kaupm. 89. Þórður Guðmundsson út- vegsbóndi. 90. Magnús Benjamínsson úr- smiður. 91. Jón Þórðarson kaupm. 92. Sig urður Jónsson kennari. Árla um morguninn kvaddi Bjarni frá Vogi menn til göngu til Lögbergs hins forna. Gengu menn þangað í fylkingu og báru íslenzka fánann, enda veifaði hann víða um Þingvöll. Höfðu ýmsir haft með sér fána, bæði á vögnum og reitt þá með sér. Var það fögur sjón, að sjá hinn fagra íslenzka fána blakta yfir vænum hóp röskra Islendinga og bera við blá fjöll og hvítan snæ. Er á Lögberg var komið kvaddi Bjarni sér hljóðs, og talaði snjalt erindi um íslenzka fánann, og »lög- helgaði« hann á Lögbergi hinu forna um leið og hann reysti hann þar hæzt á gjárbarmin- um. Var gerður hinn bezti rómur að máli hans. Lék hornleikaraflokkurinn fánalag Sigfúsar á eftir. Að þessu loknu héldu menn aftur til búða. Klukkan tólf fylktu menn sér aftur og gengu til Lögbergs, var síðan settur fundur. í íundarbyrjun flutti Björn ritstjóri Jónsson langt erindi og snjalt fyrir hönd fundarboð- enda og var að þeirri ræðu lok- inni kosin stjórn fundarins. Forseti var kosinn Sigurður prófastur Gunnarsson í Stykk- ishólmi, en varaforsetar Björn Jónsson ritstj. og Ari Jónsson ritstj. Fundarskrifarar voru kosnir Sigurður ritstj. Hjörleifs- son og Benedikt ritstj. Sveins- son. Að því loknu var nefnd kos- in i sambandsmálið og hlutu þessir kosningu: Bjarni Jónsson frá Vogi. Björn Sigurðsson bóndi á Kornsá. Einar Hjörleifsson. Guðmundur Friðjónsson. Guðmundur Guðmundsson frá Gufudal. Kjartan Helgason prestur í Hruna. Magnús Blöndahl húsa- smiður. Því næst var hlé á fundin- um meðan nefndin lauk starfa sínum. Kl. 4 hófst fundurinn aftur, og hóf þá Einar Hjörleifsson ritstj. umræðurnar um sam- bandsmálið, sem framsögumað- ur nefndarinnar. Mæltist hon- um vel að vanda. Hófust sið- an umræður og tóku þessir fulltrúar til máls: Jónas Guðlaugsson ritstj., Guðm. Guðmundsson fyrrum prestur,HaraldurNíelsson cand. theol., Gísli lögfr. Sveinsson, Jósep skólastjóri Björnsson, Árni bóndi Þorkelsson frá Geitaskarði, Guðmundur Finn- bogason heimspekingur, Ágúst bóndi Jónsson frá Höskuldar- koti, Þórður prestur ólafsson, Jens prófastur Pálsson, Eyj- ólfur bóndi Guðmundsson, Guðmundur skáld Friðjónsson, Lárus bóndi Helgason og Ein- ar ritstj. Hjörleifsson. Allir voru ræðumenn sam- mála um, að halda fram ítr- asta rétti lands vors og þjóðar, og frá öllum ræðumönnum kom fram ákveðinn vilji, að gefa ekkert eftir af landsréttind- um vorum fornum og nýjum. Var eins og öll flokkaskifting i landinu væri horfin, og menn hefðu það eitt fyrir augum, sem vissi til heilla fósturjörðinni. Að loknum umræðum voru samþyktar svohljóðandi tillög- ur frá nefndinni í einu hljóði: 1. a. Fundurinn krefst þess, að væntanlegur sáttmáli við Dani um afstöðu land- anna sé gerður á þeim grundvelli einum, að ís- land sé frjálst land í kon- ungssambandi við Dan- mörku, með fullu jafnrélti og fullu valdi gfir öllum sínum málum. En þeim sáttmála má hvor aðili um sig segja upp. — Fund- urinn mótmœlir allri sátt- málsgerð, sem skemra fer, og telur þá eigi annað fgr- ir höndum en skilnað landanna, ef eigi nást slík- ir samningar, sem nefndir voru. b. Fundurinn telur sjálfsagt að ísland hafi sérstakan fána, og felst á tillögu Stúdentafélagsins um gerð hans. c. Fundurinn krefst þess, að þegnréttur vor verði ís- lenzkur. 2. Sökum þess að Alþingi var eigi rofið, þegar afráðið var að skipa samninga- nefnd í sjálfstœðismálinu, skorar fundurinn á Alþingi og stjórn að sjá um, að nefndin verði eigi skipuð fyr af íslands hálfu, en kosið hefir verið til alþing- is af nýju. Að umræðunum og sam- þyktunum i sambandsmálinu loknum var fundinum slitið. Þingvallafundurinn markar nýtt tímabil í sögu landsins. Hann rekur smiðshöggið á þá sjálfstæðisstefnu, sem ólgað hef- ir í ýmsum myndum í hug- um manna hér á landi undan- farin ár. Hann sameinar hin- ar ýmsu stefnur, og setur bar- áttu vora ótvirætt yfir á grund- völl fornra landsréttinda. Blaða- mannaávarpið var undanfari Þingvallafundarins, og það sem mönnum kann að hafa þótt tvírætt í því, ætti nú að standa öllum ljóst. ísland á að vera »frjálst land í konungssambandi við Danmörku með fullu jafn- rétti og fullu valdi yfir sínum málum«. Þetta tekur af allan vafa um það, hve langt blaða- mannaávarpið fór, og að í því voru falin full landsréttindi ís- lands, en engin innlimun. Um þetta eru nú allir flokkar í landinu sammála, nema ef vera kann eitthvert lítið flokksbrot, vörður hins heilaga grautar- Grals,1 og lífvörður stjórnar- innar. En vonandi sjá þó þess- ir íslenzku Gral-riddarar, að ekki tjáir að spyrna á móti broddunum, ekki tjáir að rísa öndverðir móti einhuga kröf- um vaknandi þjóðar. Því vak- andi er sú þjóð, sem bindur það fastmælum, að sækja full- an, eðlilegan og sögulegan rétt sinn í hendur erlenda valds- ins, vakandi er sú þjóð, sem lætur engar fortölur hindra sig frá því, og enga erfiðleika standa sér þar í vegi. Vak- andi er sú þjóð, sem segir: »Annaðhvort fullkominn rétt minn eða ekkert samband. Eg er ekki fær um að gefa neitt eftir af því, sem mér ber, eg þarf á fullu frelsi mínu að halda!« Og þettá hefir íslenzka þjóð- in nú gert. Sjálfstæðisstefnan hefir unnið hinn glæsilegasta sigur í hugum landsmanna; hún hefir dreyft allri innlim- unarþoku og komið i veg fyrir alt draumfálm eftir réttarbóta- hálmstráum, sem oft hefir nær því orðið hinni íslenzku þjóð að fjörtjóni. Allir sannir íslendingar hljóta að gleðjast yfir þessum fregn- um, og allir þeir dansklund- aðir íslendingar, sem klístrað hafa ættjarðarmiðanum utan á sig, neyðast nú til að koma fram úr skúmaskotum sínum og sýna sig í dagsbirtunni. Héðan af ætti greinarmunur- inn að verða ljós milli sannra íslendinga og danskra íslend- inga. Og það má vera þjóðinni mikið gleðiefni, því skæðastir eru þeir úlfarnir, sem bezt hafa lag á þvi, að bregða yfir sig sauðargærunni. Nú fyrst getum vér íslend- ingar stært oss af því, að vér áttum frjálsa feður, þegar vér höfum hafið það verk, er feður vorir létu niður falla. Vér ættum ekki lengur að þurfa að minnast þeirra með kinnroða ættlerans. Tekur islenzka þjóðin því von- andi undir með því, sem ýms- ir fulltrúarnir sögðu, er þeir höfðu lokið starfi sínu, og rendu auguin sínum yfir hinn forna helgistað allra íslenzkra minninga: »Pelta er sá gleðilegasti dagur, sem eg hef lifaðfc Vér teljum vist, að svo verði. 1 Heilög skál, sem fræg helgisaga er um. Ef horfi eg í augu þér. Eftir Heine. Ef horfi eg í augu þér, þá óðar burtu sorgin fer, en kyssi eg munninn, kæra, þinn, eg kraft í æðar streyma finn. Og hallist þú að hjarta mér, mér himinsæla búin er, en mælir þú: »Þér ann eg æ«, eg ekki gráti varist fæ. J. Guðlaugsson. Alþingi var sett 1. júlí kl. 12 á hádegi. Sra Friðrik Friðriksson hélt þingsetningarræðuna og talaði vel. Þá hófst sameinað þing, og eftir að ráðherra hafði lesið upp opið bréf konungs um setning Alþingis og Tryggvi Gunnarsson húrrað tyrir kong- inum, var tekið að kjósa for- seta. Forseti sameinaðs þings var sra Eiríkur Briem kosinn með 23 atkv. (Jóh. Jóh. fékk 11). Varaforseti: Lárus H. Bjarna- son 23 atkv. (St. St. Sgf. 12 at- kv.) — Ritarar: Hannes Þor- steinsson með 22 atkv. og Guðm. Björnsson með 21 atkv. (sra Sig. Stefánsson fékk 13 atkv. Sig. Jensson 12). , Forseti neðri deildar var Magn- ús Stephensen uppgjafalands- höfðingi kosinn með 16 atkv., og varaforsetar þeir Magnús Andrésson með 16 atkv. og Tr. Gunnarsson með 15. Skrifarar: H. Þ. og Jón Magnússon með 17 atkv. Forseti efri deildar Júlíus Havsteen. Varaforsetar Jón Jakobsson og Guðjón Guðlaugsson. Ritarar B. M. ó. og Sig. Jens- son. Nefndarskipanir. Fjárlaganefnd: TryggviGunn- arsson, Jón frá Múla, Skúli Th., Eggert Pálss., Þórh. Bjarnar- son, Stefán Stefánsson þm.Skgf., Árni Jónsson. Yfirlitsnefnd landsreikninganna 1904—5: ólafur Briem (23 at- kv.), Guðl. Guðmundsson (20) og Magnús Kristjánsson (16). Skattanefnd: Lárus H. Bjarna- son, Pétur Jónsson, Björn Kristjánsson, Guðm. Björnsson, Hermann Jónasson, Ólafur ól- afsson, Ól. Briem. Lœknaskipunarmálið falið 5 manna nefnd: Guðm. Björns- syni, ólafi Thorlacius, Jóhann- esi Ólafssyni, Stefáni Stefáns- syni þm. Eyfirðinga, Guðlaugi Guðmundssyni. Almennur ellistgrkur. Kosin 5 manna nefnd: Björn Bjarnar- son, Lárus H. Bjarnason, Magnús Andrésson, Pétur Jóns- son, Hermann Jónasson. Landsdómurinn var ruddur í efri deild Alþ. í fyrradag, og var þessum rutt: Eirin r Benediktsson sýslumaður Jens Pálsson próf. í Görðum

x

Valurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valurinn
https://timarit.is/publication/214

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.