Verkamaðurinn - 30.10.1919, Page 2
88
VERKAMAÐURINN.
m
VERKAMAÐURINN
keniur út á hverjum Fimtudegi 48—50 blöð
til ársloka 1919. Árgangurinu kostar 4 kr.
Gjalddagi 1. júlí.
Útgefendur: Verkamenn á Akureyri.
Ábyrgðarmaður: Halldór Friðfónsson.
Afgreiðsla hjá
Finni fónssyni, Kaupfélagi Verkamanna.
--V$A K$*— —4*—
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Mér kemur í hug frásaga er eg las fyrir mörgum
árum. Kona vildi ná ástum karfmanns, en gat ekki
vegna þess að önnur kona átti ást og aðdáun hans.
Sú kona var forkunnar fögur ásýndum, göfug að
eðlisfari og falslaus. En kvenskassið hugði að alt
stæði og félli með fegurðinni. Það lét þræla sína
misþyrma konunni fögru, spilla útliti hennar og leit-
ast við að kasta skugga á ættgöfgi hennar og mann-
orð. Að því búnu var hún leidd fram fyrir' mann-
inn og honum gefinn kostur á að kjósa.
Bannmenn starfa að því að breyta lögunum í
sama horf og til var ætlast, þegar þjóðin játaðist
undir þau. Skerpa eftirlitið með lögunum, afnema
konsúla og skipaáfengið og draga úr núsnotkun
lækna á leyfi til úlgáfu áfengisseðla. Peir vilja
styðja bannlögin og bæta þau, svo þau verði sem far-
sælust fyrir þjóðina. Andbanningar, þeir er nokkuð
ber á, vilja ekkert gera til þess að bannlögin geti
komið að íullu gagni. Peir vilja ekki spyrja þjóð-
ina hvort hún vilji bannlög, sem fá að njóta sín í
friði og óáreitt. Nei, hugsjónin er ekki stærri, há-
fleygari né göfugri en það, að þeir vilja láta þjóð-
ina velja um, hvort hún vilji bannlögin, þegar þeir
andbanningar og þjónar þeirra, hafa svívirt þau og
afskræmt á allan hátt, eða ríkiseinkasölu á áfengi.
Findi Björn Líndal og aðrir andbanningar það
hjá sér, að þeir væru svo siðferðislega þroskaðir,
gæddir þeirri víðsýni, göfugmensku og mannkær-
leika að þeir gætu boðið þjóðinni sig sem umbóta-
menn, myndu þeir ekki kjósa leiðina sem andbann-
ingar bentu á á þingi í sumar. Pá myndu þeir
spyrja þjóðina; Hvað af þessu þrennu kýst þú,
áfengisbann, framkvæmt efiir hugsjón bannvina, á-
fengisbann, afskrœmt og lamað, eða ekkert áfengis-
bann, en rikiseinkasölu á áfengi. En andbanningar
vilja ekki spyrja á þenna hátt, þeir vita vel að þjóð-
in myndi svara á þá leið að hún vildi óskorað og
öflugt áfengisbann. En af hólminum þeim rennur
þingmannsefnið á Svalbarði og aðrir audbanningar.
Til þess að vinna að uppfyllingu þeirrar óskar þjóð-
arinnar, eru þeir alt of miklir þrælar fýsna sinna,
skortir manngöfgi og umbótaþrá til þess að starfa
fyrir heill ineðbræðranna og vilja heldur vega aftan
að þjóðinni en að snúast í lið með henni.
Bannmálið er ágætur prófsteinn. Eftir því má
mikið mela gildi þingmanna. Peir sem ekki hafa
hug til að hjálpa þjóðinni til að varpa af sér áfeng-
isokinu, eru ekki líklegir til að fara vel með um-
boð sitt á öðrum sviðum. Þeir eiga að sitja heima.
Þeir sem fjandskapast við og reyna á allan hátt að
svívirða og misþyrma einu lðgunum, sem þjóðin
hefir óskað eftir með eigin atkvæði, eru og verða
böðlar þjóðarviljans. Það er skylda allra kjósenda
áð neita þeim um fylgi á kjördegi.
Birni Líndal hefir verið hælt fyrir hreinskilni í
þjóðmálum. í bannmálinu bpestur hann hreinskiln-
ina. Þar kýs hann krókaleiðina. Jafn gáfaður mað-
ur og B. L. er, skilur það og veit að það er móðg-
un við þjóðina að biðja hana að fella atkvæði um
bannið á jafn óheilbrigðutn grundvelli og andbann-
ingar fara fram á.
Eyfirskir kjósendur, sem unna bindindis- og bann-
málinu, ættu að launa Líndal »þessa hreinskilni« með
því að láta hann sitja heima.
Bannmaður.
Útlendar fréttir.
Hafnarverkfallinu í New York lokið.
Mótmælaverkföll hafin í héruðum sem
Belgía á að fá í Þýskalandi.
Bandamenn neita að verða við kröfum
Rúmena um landaukning vestur á bóginn.
Portúgalar leyfa Bandaríkjunum að hafa
flotastöð í Azoreyjunum.
Bolchevickum veitir betur. Hafa þeir teflt
fram kvenherdeild Petrograd til varnar.
Finnland neitar um stuðning.
Feinflokkurinn magnast í írlandi. Breskir
embættismenn þar hræddir um líf sitt.
Kolaskortur í Pýskalandi.
(Fréttaritari V.m. Rvik).
Irmlendar fréttir.
29/io
23. Okt. s. 1. fórst seglskipið Activ frá
Marstal undir Knararnesi á Mýrum. Allir
menn tíndust.
Tímakaup verkamanna í Reykjavík nýlega
hækkað upp íl kr. og 16 auraum tímann.
Alþýðuflokkurinn byrjaði í dag að gefa
út dagblað á stærð við »Dvöl«
Ólafur Friðriksson ritstjóri.
(Fréttaritari V.m. Rvlk.)
Hljótt
er nú um kosningar í Akureyrarbæ. Kjósendur
bíða eftir M. K., vonast eftir að þegar hann er kom-
inn, muni þingmannaefnin leiða saman hesta sína
frammi fyrir kjósendum, og nægur tími að berjast
úr því. Flogið hefir fyrir, að Sig. dýral. þættist
eiga ítök í hugum verkamanna. Hefir máske þótst
vinna til fylgis þeirra með framkomu sinni í dýr-
tíðarmálum bæjarins undanfarin ár og yfirleitt allri
baráttu gegn öllum áhugamálum verkamanna.
Annars mun það sanni nær, að hinir fáliðuðu
fylgismenn Sigurðar séu hér að fleypra með stað-
leysur fyrir hans hönd, einungis til að bera sig
mannalega meðan hæfilega langt er til kjördags.
Geldur Sigurður hér sem oftar sambands við sér
verri menn.
Kvöldskemtun
hélt kvenfélagið »Framtíðin« á Sunnudagskvöldið
var. Var þar til skemtunar, tvísöngur, gamanvísna-
söngur, lúðraspil og upplestur. Bögglauppboð —
og dans á eftir.
»Kora«
koqi á Mánudaginn, tók hér kjöt til útflutnings.
Fór um kvöldið áleiðis austur um land og út. Er
þetta siðasta ferð Koru hingað til lands þetta ár.
»Firda«,
norskt flutningaskip, kom hingað seint í fyrri viku
með vörur til kaupsýslumanna. Fór héðan vestur til
ísafjarðar á Mánudaginn var.
»ísland«
væntanlegt um helgina kemur.
Aflalaust
hér inn á firðinum, en töluverður fiskur úti fyrir
þegar á sjó gefur. Verð á nýjum fiski, slægðum,
hér í bænum 50 aurar kg.
Tíðin stilt síðan um helgi. Væg frost og þur-
viðri,
Bókavinir,
lesið þetía!
— Ca. 200 bækur til sölu. —
Margar æfisögur, og bækur ýmislegs efnis. Bæk-
urnar verða seldar með vægu verði. Bókasöfnum og
einstökum mönnum verða seld eitt eða fleiri eintök
— eftir óskum.
Er daglega að hitta kl. 4 — 6 e. h.
Öllum spurningum viðvíkjandibókunum verðursvarað.
Kristian Johnsen,
Hjálprœðisherinn »Laxamýri«.
Ath. Gítarstrengir og tónblístrur til sölu.
Versl! „Brattahlíð“
Kaffi, besta teg. kr, 4.00 kg.
Export, kannan, kr. 2.20 kg.
íslenska smjörlíkið.
OMA-margarínið, Ostar ágætir, Rúsín-
ur, Sveskjur, Mjólk, Kakaó Súkkulaði-
og margt fleira.
Brynjólfur E. Stefánsson.
Bæjarsvörður.
Pað síðasta af honum verður
afhent á MÁNUDAGINN og
PRIÐJUDAGINN 3.og4. Nóv-
ember n. k.
30. Okt. 1919.
Stefán Melstað.
FDNDDR
verður haldinn í Trésmiðafélagi Akur-
eyrar Sunnudaginn 2. Nóv. n. k. hjá
Sig. Fanndal og byrjar kl. 4 e. h.
Tvö stórmál á dagsskrá.
3%0 1919.
Stjórnin.
Reyktóbak, (í baukum og pökkum)
Munntóbak,
Vindlar.
Cigarettur,
nýkomið í
versl. „Brattah/íð“
Brynjólfnr E, Stefánsson,