Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 08.11.1921, Side 2

Verkamaðurinn - 08.11.1921, Side 2
VERKAM AÐURINN 9 Verkamaðurinn kemur út á Laugar- dögum. 60 — 70 tbl. um árið. Kostar fimm krónur árgangurinn. Gjalddagi 15. Júní. Uppsögn bundin við áramót, sé komin til afgreiðslumanns fyrir 1. Nóvember. Ábyrgðar-, afgreiðslu- og innheimtumaður Halldór Friðjónsson. Talsími 110. Laknarnir hafa fengið haekkað taxta sína að miklum mun. Einkum eru höf- uðstaðarlæknar dýrir á verkum sínum. Föst laun laekna úr ríkissjóði ættu því ekki að vera há. Annars vil eg geta þess, að eg tel báðar þessar tegundir 'embættismamia mjög þarfar, og um fækkun á þeim er ekki að tala frá því sem orðið er. Aftur á móti hafa sumir talið hægt að fækka, sýsíumönnum. En eg býst við að það sé mjög hæpið. Umdæmi þeirra eru nógu stór, og starfsemi þcirra marg- brotin og umfangsmikil. En Iaun þeirra með prósentum af innkölluðum tekjum ríkissjóðs, uppboðshöldum etc. verða all-álit!eg og hjá sumum óþarflega mik- il. Mætti klípa dálitia ögn af launum þeirra margra, og þeir þó fullsæmdir af. Rað má enginn skilja orð mín svo^ að eg öfundi embæftismennina af laun- um þeirra. Langt í frá. En vér höfum ekki ráð á að borga þeim svona mikið. Embættismerm margra erlendra ríkja hafa hin síðari hörmunga ár lifað við mjög lág laun. Og sumstaðar svo lág að þe.r geta ekki af þeim liíað. En hér hefir aldrei verið tiltölulega eins vel launað opinberum starfsmönnum ríkisins og nú. Meraileg ráðstöfun. Líklega óaðgæsla. Ætti að k ppa þessu í lag á næsta þingi. Setja launin niður um lji og spara með því eina miljón. Keyna síðan að kasta henni i Englendinga, og reýná að losna úr skuldaklöfunum smátt og smátt og þá hækkar gengi peninga vorra, en það er mikils vert. Ymsir vambsíðir vitnngar eru stund- um að áminna alþýðuna í ræðu og riti um að spara. Hún getur lítið sparað. því hún kemst yfir lítið ár 'nvert og hana vantar ýms þægindi. En hún þarf að vera hagsýn. Reykja pípur en ekki si- garettur, eta fisk en ekki ket, ganga á klossum en ekki lakkskóm o: s. frv. 12—1800 kr. árstekjur má ekki alla vega leika sér með. Rað segir sig sjálft. En þessir »stóru« sparnaðarspekingar eyða sjálfir fleiri þúsundum árlega. Eg man eftir einum, sem skrifaði síðasta vor langa sparnaðarhugvekju, en fór svo í fleiri vikna »listitúr« suður um land fáum dögum seinna. Hugvekjur slíkra manna hafa lítil áhrif. Menn þurfa að fá fyririnyndir. Ekki pappírsfyr- irmyndir. \ — »Aumt er ísland, ef enginn réttir þess stand.« fóh. Sch. fóh. Aths. Verkam. sá ekki ástæðu til að neita ofanritaðri grein um rúm í blaðitm, þó hann sé greinarhöf. ósammála í flestu. Fækkun embættismanna og launalækkun þeirra er ekkert aðalðtriði, heldur það, að embættismennirnir ræki störf sín svo að þjóðinni sé að gagni. Góðum starfs- mönnum, hvort sem þeir eru í þjónustu einstaklinga eða 'þjóða, er aldtei of laun- að. ITitt er aftur rétt, að eitt verður ytir aiU' stéUir þjóðfélBgama að ganga ef á að rétta við fjárhaginn með spar- semi og ráðdeild. Rar sem greinarhöf. er að tala um að landið eigi ekki ‘að verslá, en vill þó að það sé að vasast í verátmarmálum, byrgja upp vissa bluta landsins og fyrir- byggja okur, fer hann með hreinasta bull. Trygging sérstakra landshluta, sem eiga örðugt aðstöðu, fæst best með landsverslun, og okur á lífsnauðsynjum verður best fyrirbygt á sarna hátt. Að einstaklingum helst uppi að okra á ónauðsynlegunj vörum er almenningi að kenna. Hann getur ósköp vel neitað sér um kaup á þeim. Verkamaðurinn telur það ekki sóma- samlegt fyrir landið að svelta starfsfólk sitt, en sómasamlegast telur hann að segja hverjum þeim þjóni upp vistinni sem aðeins situr í embætti til að hirða launin, og því miður munu margir slík- ir finnast meðal íslenska embættismahni. Príma Karlmannaskinnhúfiir á kr. 9,75, Prima Drengjaskinnhúfur á kr. 8,50 og Prima dömu- og telpu-Piydshúfur á kr. 7,25 og 8,50 nýkomnar til Baldv. Ryel. Bankabygg, Rísgrjóh, Heilbaunir, Sago- grjón, Kartöflumjöl, Rúsínur, Sveskjur, Natron, Cfemotartari, nýkomið í Kaupfélag Verkaraanna. Símfréttír. ✓ Rvik i dag. Frakkar hóta að gera Jtýska ríkið gjaldþrota, ef þeir fái ekki stríðsskaðabæturnar greiddar á réttum tíma. Karli keisara hefir verið bægt frá konungdómi yfir Ungverja- landi með lögum. Hersöfnun gegn Ungverjum hætt. Lloyd George vill frið við Ira fyrir hvern mun. Ætlar heidur að segja af sér en að taka á sig ábyrgð borgarastríðs. Norðmenn neita að viðurkenna yfirráðarétt yfir öllu Grænlandi. Dönsk blöð stórreið. Rússar hafa keypt síld í Nor- egi fyrir 4 miljónir króna. Frttiar. Vm. Rvík. Spánarsamningurinn. Samkvæmt fregn frá sendi- herra Dana hér, hefir eftirfarandi grein staðið í »Börsen«: »Að gefnu tilefni skulum vér tilkynna, fyrir milligöngu utan- ríkisstarfsemi Dana, að Island hefir gert bráðabirgðasamning við Spán, þannig, að í raun og veru er um ákveðið fyrirkomu- lag að ræða, sem má skoða sem framlenging á bráðabirgðasamn- ingum frá í sumar. — A engan hátt er hægt að setja samning- inn í samband við ósamkomulag á verslunarsviði milli Spánar og Islands. Spánn gerir yfir höfuð ekki fasta verslunarsamninga, þar eð í ráði er, að breyta öllu tolla- kerfinu. • Ekkert liggur fyrir frá Portúgal, sem bendir til, að breyta eigi verslunar-pólitíkinni gagnvart ís- landi«. Brúna á Eyjafjarðará er í ráði að byggja á næsta sumri. Á að undirbúa verkið í vetur, með því að aka möl að brúar- stæðinu. Margir hafa gert sér von tim að bæjarmenn mundu geta haft gott af þessu. Mundu fá þarna vetrarvinnu. Svo er þó ekki. Mölina á að taka úr melhól yfir hjá Rverá á Staðarbygð og er það svo langt frá að ekki er Viðlit fyrir bæjarmenn að sæta þeirri vinnu, enda er um lítið að gera, þar sem ekki á að undirbúa vegalagningu, eða flytja að grjót. Brúin á að verða steinbrú. Tombólu og kvöldskemtun héldu tfemendur Gagnfræðaskólans í samkomusal skólans s. 1. Laugardag. Rann ágóðinn i fána- sjóð skóians. >Island« kotn í gærmorgun vestan um. Með skipinu voru ymsir kaupsýslumenn á leið til útlanda. Einnig Jóh. Kjarval málari. Hingað komu frá Reykjav'k, Vernharður Rórsteinsson, Ingólfnr Jóns- son stud. júr. með heitmey sinni og dvelja þau hér um tíma, og frá Siglu- firði Guðmundur Friðjónsson skáld. »ísland« kom hingað með töluvert af vörum og tekur hér síld til útflutnings. Fer í kvöld. Fyrirlestur flytur Guðmundur Friðjónsson í Sam- komuhúsinu í kvöld kl. Fyrirlest- urinn heitir: »lnn í blámóðu aldanna,« og hefjr sérstaklega verið til hans vand- að. Guðmundur flutti fyrirlestur á Siglu- firði nú í þessari ferð og var það ætl- un hans að dvelja hér nokkra daga, en tafðist vegna illveðra vestur frá. Fer hann heimleiðis með »Sírius« á morgun. Ræfa fæst í Kaupfél. Verkamanna. PrujtsnHðja Bjéi »»s JéiMseHftr. Kartöflur, Rísgrjón, Sagógrjón, Baunir, Kartöflumjöl, Rúsínur, Sveskjur, Krydd allsk. VERSL. Kartöflur komu með »íslandi« í Kaupfélag Verkamanna. Nb. Reir sem hafa pantað kartöflur hjá félaginu, vitji þeirra tafarlaust. Skófatnaðar nýkominn í Kaupfélag Verkamanna. Dúnn jí fæ í Kaupfél. Verkamanna. Margarine, Alfa og Ljónið á kr. 2,80 kg. lsl. Smjorlíki á kr. 3,00 kg. Kaupfélagi Verkamanna.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.