Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 28.03.1922, Qupperneq 2

Verkamaðurinn - 28.03.1922, Qupperneq 2
18 miklu Ieyti sem hann getur og ástaeð- ur leyfa. Pað getur hver maður með sæmi- legri dómgreind skorið úr því, hver þessara tveggja kaupsýslumanna er þjóðinni þarfari, og verðskuldar frekar nafnið,^kaupsýslumaður þjóðar- innar. Og líka er ekki erfitt að segja um það, hver þjóðin ætti frekar við- reisnarvon, sú er ætti marga Árna- líka í kaupsýslumannahópi, eða sú, er væri háð aðgjörðum Sveinanna. Af reynslunni verður ekki annað séð, en mörgum kaupsýslumönnum sé það hulið, hve mjög fjárhagslegt gengi þjóðarinnar er háð athöfnum þeirra, og einnig það, að því meira sem þjóðin leggur í vald þeirra, því þyngri þjóðfélagsleg skylda hvíli á herðum þeirra — skyida við með- brœðurna. Sorglegar slysfarir. Vélsk. »Talisman« strandar. Tólf menn farast. Fjórir bjargast nauðuglega. Eins og getið var um í siðasta blaði, lagði vélskipið »Talisnian,« eign Ás- geirs Péturssonar kaupm., af stað héð- an fyrra Sunnudag, Ætiaði skipið suður fyrir land á þorskveiðar og var hlaðið frystri síld tii vertsöðvanna þar.syðra. Pegar út fyrir land kom, hrepti skipið mótvind og sneri við inn á Siglufjörð. Gerði skipið aðra tiiraun en fór á sömu ieið, enda varð þá vart við lítilsháttar dekkleka og vélbilun. Var gert að hvor- tveggja á Sigiufirði. Á Fimtudaginn var brá til norðaustanáttar og samtímis dimdi að með hríð. Lagði skipið þá út af Siglufirði vestur á leið. Um kvöld- ið skali á stórhríð og tók raenn strax að ugga um afkomu skipsins. Fréttist ekkert til þess, þar til um miðjan dag á Sunnudaginn var, að eiganda skips- ins barst simskeyti um að það hefði strandað á Laugardagsnóttina á Sauða- nesi milli Súgandafjarðar og Önundar- fjarðar, 12 menn hefðu farist, Símasamband við vesturland var mjög slæmt eftir hríðina, sneri blaðið sér þvi til trúverðugs manns á Önundarfirði og bað hann að gefa sér (í símskeyti) uppiýsingar um þenna atburð. Skeytið fékk blaðið í gærkvöldi, og einnig hafði blaðið sfmtal við ísafjörð í morgun, og hafði upp úr þessu eftirfarandi frásögu um þenna sorglega atburð. Eins og áður er getið, lagði skipið út af Siglufirði kl. 10 f. h. s. 1. Fimtu- dag. Þegar það var komið vestur í Húaflóa, varð það fyrir stórsjó, er braut káetukappann og skolaði honum út, misti skipið þar annan áttavitann, sjó- kort og fléira. Stóðu skipverjar eftir það við dælurnar, þar tii skipið strandaði. Dreif nú skipið fyrir sjó og vindi, þar til öndverða Langardagsnótt, að skip- verjar sáu til vita, er þeir álitu Straum- nesvita; ætluðu þeir þá að hleypa inn á ísafjarðardjúp. En þetta reyndist viti vestan við ísafjarðardjúp og lenti skip- ið^því of nærri landi og strandaði kl. 12 um nóttina norðaná Sauðanesi, milli SÚgandafjarðar^og vjnundarfjarðar. Brim VERKAMAÐURINN var mikið, stórhríð og náttmyrkur og varð ekki komið við björgunartækjum. Klukkan 5 um morguninn brotnaði stór- siglan fyrir borð. Komust 7 menn á hana og fleyttust með henni til lands. Nokkru síðar liðaðist skipið sundur. Mennirn'ir, sem af komust, vissu ekki hvar þeir voru staddir og lögðu af stað vestur um nesið til að leita bæja, Uppgáfust 3 þeirra á göngunni og voru andaðir er mannhjálp kom. Fjár- leitarmaður úr 0nundarfirði hitti svo skipsbrotsmenn af tilviljun ca. 1 mílu frá bygð á Laugardagsmorguninn og sótti menn til bjargar. Voru þá boð sent inn á Flateyri og margir menn brugðu þegar við og fóru á mótorbát- um út að strandinu;’ var læknir í för með þeim. Þegar á strandstaðinn kom, voru lík þeirra er druknuðu rekin í land og voru þau flutt að Stað í Súg- andafirði. Lik hinna voru flutt til Fiat- eyrar og þeir fjórir, er af komust, eru þar. Segir Iæknirinn Ifðan þeirra góða og þá úr allri hættu. Á skipinu voru 16 menn og fórust þessir: Mikael Guðmundsson skipstj. Akur- eyri, frá konu og 3 börnum. Þorsteinn jónsson frá Grímsnesi stýrim., ókvæmtur. Stefán Ásgrímsson vélam. Akureyri, frá konu, 5 börnum og aldraðri tengda- móður. Stefán Jóhannesson Nunnuhóli, ó- kvæntur. Sæmur.dur Friðriksson Holti, frá konu og 4 börnum. Benedikt Jónsson Akureyri, frá konu og 4 börnum. Sigurður Porkelsson Sigiufirði, ó- kvæntur. Jóhannes Jóhannesson Kúgili, ókvæntur. Ásgeir Sigurðsson Alcureyri, unglings- piltur. Bjarni Emilsson Hjalteyri, unglings- piltur. Gunnar Vigfússon Siglufirði, ung- lingspiltur. Sigtryggur Davíðsson Dalvík, frá konu og 3 börnum. Pessir fjórir komust lífs af. Einar Guðbjartsson Grenivík. Jóhannes Sigvaldason Byrgi, Jakob Einarsson Akureyri. Arinbjörn Árnason Skriðulandi. Eins og búast mátti við, hafa alskon- ar kynjasögur um þennan atburð geng- ið manna á milli, en það sem hér hefir verið sagt er eftir þeim bestu gögnum, sem hægt er að fá að svo stöddu. Skip og farmur voru óvátrygt. Engan sérstakan hægt að saka um þessa atburði. Fólkið vestur á fjörðunum hefir sýnt frábæra hjálp og hluttekningu við þetta tækifæri. Hefir óskað eftir að mega veita þeim dánu síðustu hjálp, en það mun ekki ráðið enn hvort hægt er að verða við þeirri ósk. Líklegt að líkin verði flutt hingað. Pessir atburðir hafa gengið bæjarbú- um hér og mjög að hjarta sem von er. Menn hafa staðið á öndinni eftir fréttum. Fánar blöktu á hálfa stöng yfir öllurn bænum í gær. U. M. F. I. I. S. /. Iþróttamót fyrir Norðlendingafjórðung verður haldið á Akureyri, að tilhlutun U. M. F. A., 17. og 18. Júní n. k. Kept verður í þessum íþróttum: I. Islensk glíma. II. Hlaup: 100 m., 800 m. og 5000 m. III. Kappganga: 2000 m. IV. Stökk: Hástökk (með atrénnu). Langstökk (með atrennu) og stangarstökk. V. Reipdráttur: (8 manna sveitir). VI. Sund: Fyrir konur 50 m. sund. Fyrir karla 50 m. og 100 m. sund. Sundleikni. VII. Knattspyrna: Öilum félögum innan í. S. í. er heimil þátttaka í mótinu. Ber þátttakendum að gefa sig fratn við stjórn U. M. F. A. eða einhvern undirritaðra fyrir 10. Júní n. k. Akureyri 21. Mars 1922. f íþróttanefnd U. M. F. A. Ole Hertevig. Gunnar Sigurgeirsson. Óskar Gíslason. Svanbjörn Frímannsson. Axel Friðriksson. Símfréttir. Rvík i gœr. Alsherjarverkfall í Randers. Þjóðhjálp starfar undir herverði. Englandsstjórn leggur til að Bandamenn gefi hverir öðrum upp herskuldir, skaðabótaskylda Þýskalands verði 65 milljarðar gullmarka, og setulið Banda- manna verði flutt ur Þýskalandi. Amerika styður þessa tillögu. Frakkar hissa. Umfangsmikil verkföll í suður Þýskalandi. Milljón kolamanna í Ameríku hejir gert verkfall. Lloyd George vill að Bretland semji eitt við Sovjetrússland, geti Bandamenn ekki orðið á- sáttir á Genuafundinum. Grikkir verða á brott úr Asiu og láta Tyrkjum hana eftir. »Svalan« slitnaði upp hér á höfninni á Laugardaginn, talin ósjófœr, var vátrygð. Maður druknaði á Eyrarbakka og annar af mótorbáti i Vest- mannaeyjum á Þriðjudaginn var. Á Föstudaginn var datt bónd- inn í Helgajelli í Mosfellssveit niður af bita i húsi og rotað- ist til dauðs. Afar fjölmennur borgarafund- ur hér í gcer, mótmcelti hvers- konar undanhaldi í Spánarsamn- ingamálinu. Fiárlögin eru til þriðju um- rœðu í neðri deild. Tekjuhalli um 150 þúsund. Kaupdeila byrjuð hér. Verka- menn vilja hafa sama kaup og áður. , (Fréttar. Vm.) Ólafur Túbals málari kom hingað með »Sterling« og dvelur hér í bænum þangað til »Goða- foss« gengur um. Hefir hann i hyggju að hafa málverkasýningu á Hótel Akur- eyri og verður hún opin í fyrsta sinn á Fimtudaginn kemur. Hr. Ólafur sýndi málverk sín í Reykjavík s. 1. haust, og fóru sunnan blöðin mjög hlýum og góð- um orðum um málverkin og málarann. Nú síðast hafði hann sýningu á Húsa- vik og hlaut ágætis aðsókn. Ólafur er ætlaður frá Múhkoti í Fljótshlíð, fædd- ur dáandi íslenskrar náttúrufegurðar. Flestallar myndir hans eru landlagsmyndir frá Fljótshlíð, Vestmanneyjum og víðar. Listelskir ménn og konur líta óefað inn til Ólafs meðan sýningin verður opin. Jarðarför Jóhanns heitins Olafssonar fer fram á morgun (Miðvikudag 29 þ. m.) og hefst með húskveðju á heimili hins látna (Hafnarstræti 91) kl 1. e. h. Jarðarförin gat ekki farið fram á Laugardaginn vegna óveðurs. Dánardægur. Nýiega er Iátinn Halldór bóndi Stef- ánsson á Skútum á Pelamörk, aldur- hniginn maður hagorður. I. O. G. T. Stúkan Ísafold-Fjallkonan hcfir fund í bæjarstjórnarsalnum kl 8 í kvöld. Nýir félagar teknir inn. Hagnefndin skemtir. St. Brynja hefir fund annað kvöld kl. 8. Tekur inn nýa félaga. Reglusyst- kini, mætið á fundinum. »SterlIng« kom hingað á Miðvikudagskvöldið var og fór kl. 1 daginn eftir vestur á leið. Lá skipið á Siglufirði yfir stórhríðina. »lsland« fór á Sunnudaginn frá Kaupmanna- höfn. Verður væntanlega hér 7. næsta mánaðar. Vlnnukonu vantar á gott heimili í Skagafirði. Hátt kaup. Fó I kráðni ngastof an. Smásíld hefir veiðst í landnætur hér á Pollin- um. Hafa fleiri hundruð strokkar verið lásaðir inni. »Goðafoss« verður hér litlu síðar en »ísland.« Kaupakona óskast vestur Skagafjörð, Gott kaup. Gott heimili. Fólkráðnlngastofan. Prentsrniðja Björns Jónssonar.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.