Verkamaðurinn - 19.09.1922, Síða 1
QEiKðinaUHlllH
Ritstjóri: Halldór Friðjónsson.
V. árg.
Steinolían.
»Verkamaðurinn og steinolían« heitir
6 dálka grein í »íslendingi«, 38. tbl.,
innblásin af Karli Nikulássyni og Jóni
Bergsveinssyni, en skrifuð af Tryggva
litla. Grein þessi er næstum ein-
göngu lofsöngur um Steinolíufélagið
akaemda, og er ekki haft minna við
en það, til þess að kara þetta óska-
barn þeirra Karis og Jóns, að snúið
er út úr samanburði á verði á stein-
olíu Landsverslunarinnar og Stein-
olíufélagsins síðastliðið ár, sem birt
var í Verkamanninum, 33. tbl. Segja
þessir þremenningar að Verkamaður-
inn beri saman verð á olíu Steinolíu-
félagins í Mars við verð Landsversl-
unar í Ágúst o. s. frv., en steinolíu-
verð hafi farið lækkandi alt árið. Það
sjá lesendur »ísl.« og Verkamannsins
nú, sem þeir hafa ef til vill ekki vit-
að áður, að »ís!endings«-þrenningin
umtalaða er ekki læs á einfalt mál,
því hefði þrenningin verið læs, þá
hefði hún hlotið að veita því eftir-
tekt á verðsamanburðinum, að 16.
Mars er Steinolíufélagið 12 aurum á
kg. ofan við Landsverslun 1. Mars
og 24. Nóv. 7 aurum á kg. ofan við
Landsverslun 22. Okt. En reyna
verður allar blekkingar, sem hugsan-
legar eru, til þess að fá hreinan blett
á skjólstæðingi þeirra Karls og Jóns.
En þeir Karl og Jón eru hér sérstak-
lega við þetta mál kendir af því, að
ritstj. »ísl.« kvartaði undan því svo
margir heyrðu eftir að umrædd grein
var rituð, að hafa þurft að skrifa all-
an þann vaðal, sem þeir K. og J.
höfðu knúð hann til að birta í blað-
inu. En aumingja ritstjórinn er eins
og aligæsin, verður nauðugur viljug-
ur að kingja öllu því, sem- ofan í
hann er hnoðað af húsbændunum.
Annars er hér í blaðinu birtur sam-
anburður á olíuverði Landsverslunar
og Steinolíufélagsins frá ársbyrjun
1921 til Ágústloka 1922, gerður af
Sigurði Jónassyni cand. jur. í Reykja-
vík. Eru þar tilgreindar tegundir á
olíunni ásamt verðinu, svo þýðingar-
laust er fyrir þá Karl og Jón að halda
því fram, að samanburður sé tekinn
á lökustu tegund Landsverslunar og
bestu tegund Steinolíufélagsins, þeg-
ar verðið er borið saman. Annars
er fremur hjákátlegt stagl »íslendings«
um það, að Steinolíufélagið flytji inn
betri olíutegundir heldur en Lands-
verslunin, þar sem vitanlegt er, að
olían er svo lík hjá báðum þessum
innflytjendum, að ekki verður gert
upp á milli þeirra, t. d. Hvítasunna
hjá LandsversUm og Sólarljós hjá
Steinolíufélaginu og Mjölnir hjá Lands-
Akureyri, Priðjudagipn 19. September 1922. 34. tbl.
Landsverslunin. Hið ísl. stcinolíuhlutafélag.
Hvítasunna Mjölnir Sólarljós óðinn
(Water White) (Standard White) (Water White) (Standard White)
Tunnan 150 kg. nettó Tunnan 150 kg. nettó Tunnah 150 kg. nettó Tunnan 150 kg. netto
1921
Janúar (miðjan) . . » » 138,00 kr. 135,00 kr.
— (seint) . . » » 123,00 — 120,75 —
Febrúar .... » 105,00 kr. 118,50 — 115,50 —
Ágúst 108,00 kr. 105,00 — 129,00 — 121,13 —
September. . . . 87,00 — 82,50 — 93,75 — 90,00 —
Október .... 76,50 — 72,00 - 93,75 — 90,00 —
Desetnber.... 75,00 — 72,00 — 85,50 — 82,50 —
1922
1. Jan. til 1. Maí . 75,00 — 72,00 — 85,50 -- 82,50 —
Maí 69,00 — 66,00 — 82,50 — 78,75 —
Júní 69,00 — 66,00 — 76,50 — 72,00 —
Ágúst 63,00 — 60,00 — 72,00 — 66,00 —
verslun og Óðinn hjá Steinolíufélag-
inu. Pessi endalausi lofsöngur »ísl.«
um Steinolíufélagið og vöru þess
kemur hálf illa heim við ummæli
blaðsins og Jóns Bergsveinssonar
um, að þeim sé ekki ant um Stein-
olíufélagið. Peir »ísl.« og Jón við-
urkenna það svo sem, að Steinolíu-
félagið sé ekki gott í viðskiftum, en
sé sýnt fram á það með óhrekjan-
legum tölum, að það félag hafi selt
olíu sína mikið dýrar en aðrir, sem
þá vöru hafa flutt til landsins, þá
vígbúast þessir kappar með liðveislu
Karls Nikulássonar til varnarþessum
skjólstæðingi þeirra félaga. Annars
er þess vert, í sambandi við olíu-
gæðin, að minna þremenningana á
það, að »Kattarhlandsolían« svokall-
aða var flutt inn löngu áður en
Landsverslun tók til staifa, svo ann-
aðhvort á Steinolíufélagið heiðurinn
af innflutningi hennar eða einhver
þessara frjálsu keppinauta, sem »ísl.«
er altaf að syngja lofsöng sinn um.
Hálf skoplegt er skraf þrenningar-
innar um það, að Landsverslunin hafi
ekki orðið fyrst til þess að flytja til
landsins steinolíu í stáltunnum; jjað
hafi kaupmenn orðið fyrstir til að
gera; og verður þrenningin helduren
ekki háleit, þegar hún hefir fundið
þetta út. En rétt á eftir kemst hún
að þeirri niðurstöðu, að það geti svo
sem verið varhugavert, að Lands-
verslurfin flytji olíuna í stáltunnum,
því þá verði ekki til neinar tunnur í
landinu til þess að flytja í út úr
landinu lýsi og annað, sem út þarf
að flytja í olíutunnum. Svo geti stein-
olían »geymst vel í límbornum eikar-
artunnum«. En hvers vegna hefir
skjólstæðingur þrenningarinnar, Stein-
olíufélagið, ekki flutt inn olíuna í
þessum »límbornu eikartunnum« all-
an þann aldur, sem það félag hefir
skapað sér einkasölu á olíunni hér
á landi? Gerir það það bara að gamni
sínu, að láta olíuna* renna niður í
malarkambinn hérna út og niður á
Eyrinni og víðar eða á kostnað
kaupendanna? Kanske eikartunnurn-
ar límbornu haldi ekki sem best olí-
unni nema þegar þrenningin segir
frá. Annars er ekkert annað auð-
veldara en það fyrir einkasöluna, að
fiytja olíu inn í eikartunnum eins og
þörfin krefur, til þess að fá nægar
umbúðir utan um lýsi og annað, sem
út þarf að flytja úr landinu í eikar-
tunnum, og verður það sjálfsagt gert,
þegar þörf krefur. En hálf óviðfeldið
er það fyrir þrenninguna, að kaup-
menn skuli hafa orðið fyrri til en
Landsverslunin, að flytja olíuna inn
í stáltunnum fyrst það er varhuga-
vert að hennar dómi. Pað er alt að
einu eins og kaupmönnunum geti
yfirsést og þrenningunni líka með
því að vera að benda á þessa yfir-
sjón kaupmannanna.
trausti á Forberg landsímastjóra út
af veitingu Borðeyrarstöðunnar.*
Björn Kristjánsson hefir samið
árásarrit á Sambandið og kaup-
félögin.
(Fréttar. Vm.)
Símtréttir.
Rvtk 18. Sept.
Fregn frá London segir rrrrkið
uppistand í Konstantínópel. Brezki
yfirforinginn Harington hótar að lýsa
borgina í umsátursástandi. Miðjarð-
arhafsfloti Breta lagður á stað þangað.
Búist við ófriði milli Tyrkja og
Búlgara annarsvegar, en Grikkja, Rú-
mena og Júgóslava hinsvegar. Júgó-
slavar hafa kvatt saman herlið sitt
gegn Tyrkjum. Blóðugir bardagar á
landamærum Grikkja og Búlgara.
Bylting hafin á eyjunum Cios, Myte-
lenc, Epirus og í Makedoníu.
Hlutafé Landmandsbankans er aukið
um 100 miljónir í forgangshlutum
bankanum til viðreisnar. Hluthafar
eru ríkissjóður, Pjóðbankinn, Stóra
norræna og Austur-Asíufélagið.
Félag símamanna hefir lýst [van-
Hásetafélagið.
Nú eru skipin hér við fjörðinn óðum
að hætta veiðum, eða flest hætt. Tíl
næstu vertíðar verður langur tími, og
sjómennirnir verða að ganga atvinnu-
lausir, eða vinna landvinnu, ef nokkur
fæst.
Hásetaíélag Akureyrar var stofnað í
vor, sem kunnugt er, Fyrsta deila þess
við útgerðarmenn varð ósigur fyrir fél-
agið að nokkru leyti, sem vonlegt var,
því heita málti að það væri varla kom-
ið á laggirnar, og sambandsleysi við
stéttarbræður í öðrum landsfjórðungum
var ekki nægilega sterkt og samvinna
enginn.
Sumarið er ekki hentugt til þess að
halda uppi félagslífi, en áhugasamir
menn nota sumarið til þess að efla fél-
agsskapinn, með því, að vekja athygli
félaga sinna á honum og gagnsemi hans.
Hásetafélagið var stofnað af beinni nauð-
syn. Af því að sjómenn höfðu um langt
skeið orðið svo hart úti í ósamtaka við-
skiftum sínum við útgerðarmenn, að þeir
voru farnir að finna nauðsyn þess, að
samtök þyrftu, ef kjörin ættu að batna.
Pó félag hafi nú verið stofnað meðal
sjómanna, er enginn von til þess, að
það verði þegar í stað svo ölfugt, að
það ráði til fulls hvernig viðskiftunum
lýkur; en því samheldnari og áhuga-
samari, sem sjómennirnir verða og því
víðtækari og almennari sem verkalýðs-
samtökin um land alt verða, þvi meiru
ræður verkalýðurinn yfirleitt um kjörsín.
*) Formaður símafélagsins í Rvík var einn
af þeim, er sóttu móti Eggert Stefánssyni
um veitingu Borðeyrarstöðvarinnar.
Ritstj,