Verkamaðurinn - 19.09.1922, Qupperneq 2
68
VERKAMAÐURINN
34. tbl.
Vertíð er lokið þvf sem næst. Þá er
tækifæri fyrir sjómennina að skjóta á
fundum, og Ijúka við stofnun Háseta-
félagsins, sem þeir stofnuðu til í vor.
Rað er ekki nóg, þó stjórn félagsskapar-
ins og fáir menn með henni séu áhuga-
samir, hver einasti féiagsmaður verður
að taka þátt í starfinu eftir bestu getu,
og gleyma því aldrei, að hann er liður
í keðju, sem bæta á kjör stéttarinnar
og jafnframt þjóðarinnar í heild.
í Nóvember í haust verður haidið
sambandsþing Alþýðusambandsins. Pá
þarf Hásetafélag Akureyrar að vera kom-
ið svo vel á veg, að það geti sent
þangað fulltrúa, til þess að tala máli
norðlenskra sjómanna við sunnlensku
stéttarbræðurnar.
Oerið Hásetafélagið að fyrirmyndar-
félagi, og sigurinn er vís.
Rafveitan.
Á Sunnudaginn var bæjarstjórninni
boðið upp að rafstöðinni til þess að
vera viðstödd þegar að rafmagnsvél-
arnar yrðu reyndar í fyrsta sinn eftir
að búið var að ganga frá þeim til fulln-
ustu. Var það sannarlegt ánægjuefni að
vera þar viðstaddur, og sjá hversu traust-
lega og vel var frá öllu gengið. Herra
O. Sandell, sem haft hefir aðal verk-
stjórn á hendi við byggingu rafveit-
unnar, hélt þar ræðu á sænsku, um leið
og “ hann lýsti því yfir, að hann hefði
lokið starfi sínu, sem verkstjóri við raf-
veituna. Ragnar Ólafsson þakkaði verk-
fræðingnum fyrir vel Unnið starf í þágu
rafmagns-málsins og var undir ræðu
hans afhjúpuð mynd af herra O. Sand-
ell, sem bæjarstjórnin hafði látið gera
til minningar um verkfræðinginn, og á
myndin að hanga þar uppi í stöðvar-
húsinu.
Á Sunnudagskvöldið bauð bæjarstjórn-
in verkfræöingunum Sænsku sem unnið
hafa að byggingu rafveitunnar, til kvöld-
verðar í samkomuhúsi bæjarins. Var
þar lesið upp yfirlit yfir allan kostnað
við rafveituna, og undirbúning rafveitu-
málsins frá byrjun, og var kostnaður all-
ur með áætlun yfir það, sem enn er
ógert og áætlun gengismunar á danska
láninu upp undir 350 þúsund kr. Eru
þar meðtaldar leiðslur frá staurum inn
í húsin, og rafmagnsmæiirar og það,
sem þeim tilheyrir, sem alt mun kosta
um 30 þúsund kr. En Hnur þessar voru
ekki meðtaldar eða mælirar, þegar hin
upphaflega áætlun var gerð. Má því
telja að rafveitan sé að minsta kosti 50
þús. kr. ódýrari en áætlað var í fyrstu.
Eyjafjarðarbrúin.
Byrjað er nú að undirbúa smíði brú-
arinnar á Eyjafjarðará, eftir að smíðin
hefir verið dregin ár frá ár. Petta verð-
ur mikið verk og veitir ekki af að vanda
vel til smíðinnar, því þó áin sé fremur
straumlítil á þeim stað, sem brúað er,
verður vatnsþunglnn mikill þegar vöxtur
hleypur í ána. Samfara smíði þessari er
bráðnauðsynlegt og alveg sjálfsagt, að
gera veginn yfir Vaðlaheiði bílfæran.
Eins og hann er nú, er hann oft varla
fær gangandi mönnum, hvað þá ríðandi.
Og ókleyft er að flytja á vögnum eftir
honum; því bæði er hann brattur og a|-
veg óruddur á pörtum. Vegurinn þarf
að færasí til bæði vestan og austan í
heiðinni, þegar á næsta sumri, og má
vænta þess, að þ ngmaður Akureyrar
og þingmaður S.-þingeyjarsýs!u vinni að
þvf, að verkið verði framkvæmt, þv*
umferð um þennan veg hiýtur stórum
að aukast, jafnskjótt og brúin á Eyja-
fjarðará verður tilbúin.
Kolakaup ríkisins.
»íslendingur« fyllist vandlætingu yfir
því, að Vm. skyldi skýra frá kolakaup
um ríkisstjórnarinnar og víta hana fyrir
að kaupa kol hjá heildsala, þegar hún
hafði bein sambönd og betri sambönd
en heildsalinn t l kolakaupa. »fsl« heldur
að hann hafi himininn höndum, tekið er
hánn birtir skýringar Garðars Gíslason-
ar, en hann athugar ekki, að með því
gerir hann Vm. greiða, því hver heil-
skygn maður sér, að »Skýringar« eru
klaufalegt fálm út i loftið, til þess að
verja gerðir stjórnarinnar Petta vissi
»ísl.« vel, en hann skákar í því skjól-
inu, að lésendur hans sjái ekki Alþbl.
og í síðari viðskiftum hefir Garðar farið
enn ver út úr því. Og hefir hann ekk-
ert hrakið af ummælum blaðsins, heldur
miklu fremur sannað þau. — Hvað við-
víkur viðbót »ísl« um vilja síðasta þings,
þá eru þær ráðstafanir stjórnarinnar, að
kaupa dýrari kol til opinberra stofnana,
en þörf er á, jafnvítaverðar; og frá
sjónarmiði almenuings er mesta glap-
ræði, að láta landsverslun hætta kola-
versluninni, þó þingið, fyrir áhrif reik-
vískra kolakaupmanna samþykki að hætta
henni.
Tíðin
hefir verið stirfin seinni hluta Ágústm.
og það sem af er Sept. J nótt snjóaði
niður í sjó, en rofaði til með morgni.
Hey munu enn mjög víða óhirt og ekki
séð hvernig tekst að ná því heyi inn,
sem nú hefir lent undir snjó, þó eldri
menn telji það góðs vita ef snemma
snjóar að hausti. Vonandi rætist framúr
með nýtingu heyjanna, þó illa líti út
eins og stendur.
CÖ
cd
>
T3
C
<
cö
C
O
J*
e/>
15
bJD
O
u.
a
b/3
c
'Sh
bJ)
-*-»
co
c
Lm ’
cO
-O
c3 i
E -
ty
>
bfl
re
-C
bB
:Q
ce
Xi.
C!
v 31
<o
cð
</)
<u
l/>
lO
3
öfl
\ c S
' 5a a
* b:o
"S cv 3
rt E c ^ö3 ö
C 3w*<
.E >
c/) 'ct3
bJD
3
a
•se
|s
__________
■s
•> ^5 bfl to bfi c
- § O Sg ’Z'15 ro J
. u- E t/5
«-SiS§ÍE='~
bfl >> > ■
>> s- jx
»S.í
‘5b_ bfi'<u
gflio boja. _
>»S >©
— S io
■2|
<1
r- = !° S ,
Sd3»0 c:
bfi o 3-<«
bfi-C 32
>»J
c
c
B E
“O
l—
vs Cfl
‘53
>
bfl-d
c bflg
c 5 ». — c
c
3 ■*- rs
£ bfl E
O
■p
« a
<u o
> U
3
IQ
>>
O
c
c
>>
'xí
Prentsmiðja Björns Jónssonar,
Gagnfræðaskólinn
á Akureyri
verður sökum viðgerðar og rafmagnsinnlagn-
ingar ekki settur fyrr en Mánudag 9. Okt.
Sigurður Guðmundsson.
af bárðdælsku fé verður til sölu í sláturhúsi okkar
á Akureyri næstkomandi Laugardag 23. þ. m.
Petta verður eini dagurinn á haustinu, sem við
höfum bárðdælskt kjöt, notið því tækifærið.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Skrá yfir aukaniðurjöfnun í Akureyrarkaupstað fyrir árið 1Q22
liggur frammi — almenningi til sýnis — á skrifstofu minni, dag-
ana frá 14. til 28. þ. m,
Kærum út af skránni sé skilað til formanns niðurjöfnunarnefnd-
ar innan lögákveðins tíma.
Bæjarstjórinn á Akureyri 13. sept. 1922.
Jón Sveinsson,
Auglýsing.
Samkvæmt auglýsingu Stjórnarráðsins 13. þ. m. er gerð und-
anþága frá gildandi reglum um deyðing sauðfjár, þannig að
Ieyft er að nota helgrímu eða annað nothæft rotunaráhald við
deyðinguna.
Petta birtist hér með til eftirbreytni.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar, 14. sept. 1922.
Steingrímur Jónsson.
Útsala á vítium frá
,.Áfengisverslun
ríkins“
er opnuð í Strandgötu 35 (fyr sölubúð
J. V. Havsteens). Par fæst m. a.:
Portvín rautt Verð: 6,25- 10,25
Portvín hvítt — 6,25- 7,50
Madeira — 7,00— 8,75
Sherry — 7,00- 8,25
Malaga 8,25
Hvítt borðvin — 4,75- 7,00
Rautt borðvín - 4,75- 6,25
Rínarvín — 6,50- 7,50
Kampavín — 10,00- 26,50
Útsalan er opiu kl. 9-12 ár-
degis og kl. 1—8 síðdegis.
Nýjar kartöflur
aftur í
Kaupfélag Yerkamanna.
Herbergi óskast handa
einhleypum reglusömum manni,
helst í útbænum, upplýsingar í
Kaupfélagi Verkamanna.
ísl. smjörlíkið
kom nieð »Siriusi« í
Kaupfélag verkamanna.
gpNokkur eintök af Tarzan
enn óseld. Ingólfur fónsson.