Verkamaðurinn - 12.06.1926, Page 1
9ERK9Mð9URIHH
Útgefandi: VerklýðssambandpNorðurlands.]
IX. árg. ;;
Akureyri Laugardaginn 12. Júní 1926.
43. tbl.
m—mamm^*~ NYJAj Bj(Ó. *+wmmmmm—mm
Laugardagskvöld kl. 8V2:
I HRINOIÐU STÓRBOROARLIFSINS.
Kvikmynd í 8 þáttum eftir skáldsögu Blanche Upright. — Aðalhlutverkin
leika: Norma Shearer, Mary Alden, William Collier og Huntly Gordon.
Afar spennandi rcynd, efnisrík og vel leikin.
Leiðbeiningar handa
kjósendum.
Sókum þess hve margir verða aö
vera fjarverandi frá beimilum sinum,
í atvinnuleit, eöa af öörum ástæöum,
þykir viö eiga að Verkamaöurinn
gefi bendingar um, hvernig kjós-
endur geta notað atkvæöisrétt sinn
viö landskjörið 1. Júlf, ef þeir geta
eigi sótt kjörfund f hreppi þeim
eöa kaupstaö, sem þeir eru búsettir í.
Ef einhver kjósandi þarf aö fara
að heiman, og býst ekki við að
verða kominn heim aftur eöa geta
sótt kjörfund l. Júlí, er einfaldast
aö hann kjósi áöur en hann fer að
heiman. Þarf hann þá ekki annaö
en fara til kjörstjóra, og beiðast
þess að fá aö kjósa. Lætur þá
kjörstjórinn (hreppstjóri, sýslumaöur
eða bæjarfógetí) honum f té at-
kvæöaseöil, og skal kjósandinn skrifa
á hann bókstaf þess lista, er hann
vill kjósa. Vilji kjósandinn t. d.
kjósa lista alþýöuflokksins, skrifar
hann aðeins eitt A á seðilinn og
lætur hann siöan innan i umslag,
sem til þess er ætlað, og kjörstjóri
ieggur til með seölinum, lokar um
slaginu og skrifar siðan dagsetn-
ing og nafn sitt undir fylgibréf,
sem fylgja á atkvæðaseölinum.*
Siöan afnendir kjósandinn kjör-
stjóranum bréfið lokað, og geymir
kjörstjóri þaö til kjördags.
Sé kjósandinn farinn aö heiman,
og eigi hann ekki afturkvæmt fyrir
kjórdag, getur hann kosiö á sama
hátt hji hreppstjóra eða sýslumanni,
hvar sem hann er staddur, en þá
verður hann sjálfur að sjá um að
* En kjörstjórinn vottar að kjósandinn hafi
ajálfur og I einrúmi útfylt -kjörseðilinn
og að dagsetningin sé rétt.
bréfiö, með atkvæöaseðlinum f kom-
ist fyrir kjördag til kjörstjórnar i
beimilishreppi hans eða kaupstaö.
Ennfrcmur getur kjósandinn geng-
ið til kosninga ákjördegi hvar sem
hann er staddur, ef hann hefir i
höndum vottorð frá sýslumanni eða
hreppstjóra um að hann standi á
kjörskrá. Vottorð þetta eiga menn
heimtingu á að lá sent simleiðis,
en greiða verða þeir þá sjáifir
simakostnaðinn.
Skípstjórum á islenskum skipum
ber skyldrtilað hafa meðferðis svo
marga kjörseöla, að allir atkvæðis-
bærir skipverjargeti kosið um borð,
ef þörf gerist. Er þá skipstjórinn
kjörstjóri, en með honum skrifar
einn skipsmanna undir hvert fylgi-
bréf, sem vltundarvottur. Kjörseðlana
verður siðan að senda til kjörstjórnar
fyrir kjördag.
Alþýðukjósendum er það lang-
erfiöast að nota atkvæðisrétt sinn á
kjördegi um þetta leyti árs, og er
þeim þvi nauðsynlegt að athuga
vel þær leiölr, sem þeim standa
opnar, til þess aö geta kosið. Munið
þvi eftir þessum reglum, alþýðu
menn og konur.
Ei þið farið að heiman, þá kjósið
áður en þið farið. Þó þið ætlið
ykkur að vera komin aftur fyrir 1.
Júlí, þá kjósið samt, ef hugsanlegt
er að heimför ykkar geti tafist.
Ef þið eruð farin að heiraan, þá
kjósið sem allra fyrst hjá sýslumanni
Hér með tilkynnist vinum og
vandamönnum, að jarðarför litla
drengsins okkar, Ouðmundar Eggerz,
sem andaöist 7. þessa mánaðar, er
ákveöin Þriðjudaginn 15. þ. m. kl.
1 e. h. frá heimili okkar Oránu-
félagsgötu nr. 11.
Stefanía SigurQardóttir.
Eggert QuDmundsson.
þeirn, eða hreppstjóra, sem þið náið
til, og sendið kjörseðilinn til réttrar
kjörstjórnar fyrir 1. Júli.
E( þið treystið ykkur ekki tíl að
koma atkvæðaseðiinum heim i tæka tið,
þá verðið ykkur úti um vottorð um
að þið séuð á kjörskrá, og gangið
með það i höndum upp að kjör-
borðinu, hvar sem þið eruð stödd
1. Júli.
Séuð þiö i vafa um hvernig þið
eigið að að fara, þá snúiö ykkur
til stjórna verklýðsfélaganna, sfmleiðis
eða á annan hátt, og biöjið um
aöstoð.
Þrautalendingin.
Verkalýöurinn islenski er að vakna
til meðvitundar um köllun sína. 1.
Júli gefst bonum færi á að sýna
hve vel hann er vaknaður. Ea tim-
inn er óhentugur. Atvinnutfmi is-
lenskrar alþýðu er stuttur og menn
verða að lcggja sig aila iram, ti