Verkamaðurinn - 12.06.1926, Blaðsíða 2
2
VERKAMAÐURINN
#-#-# -#-#--#-#-##-# f f •-#
þess aö bera aem mest úr býtum.
A þeim tfma er lftill friður til að
hugsa um alþjóðarmál. En aivara
tímanna heimtar þó. að verkalýður-
inn sé vakandi á veröi. Togaraflot-
inn sunnanlands liggur allur bundinn
i höfn, atvinnuvegirnir i kaldakoli,
og hungurvofan fyrir dyrum þeirra
manna, sem eiga alt sitt lffsuppeldi
undir því, að eitthvað aflist úr sjón-
um. Ekki eru nú verkföliin að
svifta almenning atvinnu og aflafé,
beldur eru það stórútgerðarmennirnir,
sem rýna þaðfverkinu, að þeir eru
ekki að halda úti togurunum fyrir
fólkið, sem á þeirn eða við þá vinnur,
heldur fyrir hlutabaéfin, sem þeir
sjálfir eiga. Alþýðuflokkurinn setur
það fram sem sýna kröfu, að öll
atvinna sé miðuð við velferð fólks
ins, alþýðunnar i landinu, en ekki
viðgróða sárfárra hlutabréfaeigenda.
En sú krafa verður að engu höfð,'
fyr en alþýðuflokkurinn fær svo
mikið atkvæðamagn á kjördegi, að
auðvaldinu standi stuggur af. Ekkert
mun reynast áhrifameira, til að opna
augun á auðvaldsblindaðri íhalds-
stjórn, tiiaðrumska við singjörnum
atvinnustjómendum, en það, að iisti
alþýðuflokksins verði lang atkvæða-
flestur við landskjörið 1 Júlf. Þess
vegna ber hverjum alþýðumanni og
konu skylda til aö láta ekki úr
höndum dragast að neyta atkvæðis
sins og greiöa fyrir þvi eftir megni
aö aðrir alþýðukjósendur geti kosið.
Sigur alþýðunnar er kominn undir
árvekni hvers einstaks kjósanda.
Blandað haff'i
frá kaffibrensiu Reykjavíkur ér besta kaffið, sem selt er hér á
landi. Það er blandað saman af mörgum kaffitegundum, og sett f það
kafflbætir eftir settum reglum. Það þarf þvf ekki annað en láta það i
könnuna eins og það kemur fyrir frá kaffibrenslunni. — Það er
bragðbetra og sterkara en kaffi eins og gerist.
Meðmæli liggja bjá verksmiðjunni frá ölium stéttum manna, vetkamönn-
um, skipstjórum, bændum, brytum, hásetum, kaupmönnum, embættismönn-
um og konum þeirra, — Meðmælin verða augfýst siðar meir.
Biöjið þvf kaupmenn um blandað kaffi frá
Kaffibrenslu Reykjavíkur.* %
Tilkynning.
Þokulúðurinn á Dalatanga er í ólagi, verður
lagaður hið fyrsta. Petta tilkynnist sjómönnum,
F. h. Vitamálastj.
Bæjarfógefinn.
Ur bæ og bygð.
Nýja feíó sýnir i kvöld »í hringiðu stór-
borgarlffsins*. Myndin sýnir baráttu göfagr-
ar konu fyrir velferð og heiðri 'manns
sins og barna, sem stórborgarlífið er að
ieiða á glapstigu.
Verið er sem óðast að búa undir kon-
« ungskomuna. Á að skreyta innri hafnar-
bryggjuna, þar sem konungur og drotning
eiga að sttga á land, og verka mestu óþrifin
af opnum svæðum við göturnar. Hið sfðara
er þarft, en hið fyrra barnaskapur, sem
engin lfkindi eru til að konungshjónin hafi
annað en raun af.
Heyrðu kunningi!
Kaupir þú ALÞÝÐUBLAÐIÐ ? Ef ekki
þá reýndu eina mánaðarútgáfu. Hún kost-
ir ekki nema elna krónu Argangurinn
kostar 12 krónur. Aiþýðublaðið er besta
dagblað landsins og verðskuldar að vera
lesið af öllum hugsandi Islendingum. A
Akureyri geturðu fengið Alþýðublaðið
Hafnarstræti 99.
Vai)n Drangeyjaregg eru seld á
Torfunefsbryggjunni i dag.
Nokkrir hestar fást leigðir í
lengri og skemrl ferðir. Einnig
tveir hestar til sölu.
Upplýsingar gefur
Jón Kristjánsson
Hótel „Goöafoss «j
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Halldór Friðjónsson,