Verkamaðurinn - 28.12.1927, Blaðsíða 3
VERKAMAÐURINN
3
,að jafnvel bændur fari að snúast
með honum líka, af andstöðu við í-
haldsstjórn auðmanna. Bregður
Fascisminn oft yfir sig slíkri
»vinstri«-grímu, þegar hann er að
ná völdum og blekkir með því al-
þýðu til fylgis. Bak við »Carlism-
ann« standa hagsmunir Englands
•og Italíu, en Frakkland hefir hingað
itil ráðið mestu í Rúmeníu.
------o---r-
\
Fjársjóður á hafsbotni,
er það orðinn fyrir okkur íslend-
inga, allar þær upphæðir sem
greiddar hafa verið fyrir útlendan
kaffibætir. Pví það hefir verið bent
á, af mikilsmetnum fjármálamönn-
um og hagfræðingum, að þeir pen-
ingar sem greiddir eru út úr land-
inu, koma aldrei til fslands aftur.
»Já, en ef þetta væri rétt,« mun
«inhver vantrúaður spyrja, »þá væri
landið fyrir löngu orðið peninga-
laust fyrir látlausar greiðslur til
útlanda, fyrir þarfar sem óþarfar
vörur.«
Nei, svona fer það ekki nema
fram úr hófi keyri, því að alt af
skapa menn nýja peninga með
vinnu sinni, hyggjuviti og sparnaðh
En það sjá nú allir, að þjóðar-
auðurinn vex ekki sem skyldi, ef
stöðugt er tekið mikið af honum
og varpað í sjóinn að óþörfu.
Förum því að dæmi annara
þjóða, íslendingar góðir, og notum
óspart áeggjan þeirra til almenn-
ings: »Notið innlenda vöru«. Ins.
(Sjá augl. hér á eftir).
Islenski kaffibætirinn
reynist bestur — fæst alstaðar.
ÍBÚÐ ARHÚSIÐ
nr. 91 við Hafnarstræti, er til sölu, eins og það stendur nú.
Parf að vera farið af lóðinni á næsta vori. — Tilboð óskast
send á skrifstofu okkar fyrir 10, Janúar næstkomandi.
KAUPFÉLAG BYFIRÐINGA.
Trés k u rðarnám s ke i ð
verður haldið að tilhlutun U. M. F. A. hér á staðnum, á tíma-
bilinu frá 15. Janúar til 28. Febrúar n. k.
Kennari er ráðinn Geir G. Þormar, myndskeri. Kenslugjald 15
kr. fyrir allan tímann. Umsóknir séu komnar til einhvers af
undirrituðum fyrir 10. Janúar n. k. Húsrúm er takmarkað og
því hyggilegra, að sækja um í tíma.
Akureyri 22. Desember 1927.
Tryggvi Jónatansson. Jónas Kristjánsson.
Jóhann Frímann.
Kaupið
Lesið og
útbreiðið
VERKAMANNINN.
við góðri skemtun. Dansað verður ð eftir.
Fær almenningur þarna gott tækifæri til
að slá tvær flugur í einu höggi |— skemta
sér vel og styðja gott málefni.
Búist er við, að fyrir næsta Alþingi
verði lagt frumvarp til laga, er veiti ríkis-
stjórninni heimild til að stofnsetja og reks
útvarp hér á landi.
Nýlega hafa birt trúlofun sína: Ungfrú
Ouðrún Jóhannsdóttir og Þorsteinn Bene-
diktsson múrarl Litla-Oarði; ungfrú Ólöf
Þórðardóttir og Svan Jóhannsson prentari;
ungfrú Halldóra Jóhannesdóttir og Friðgefr
Sigurbjörnsson trésmiður; og ungfrú Anna
Friðriksdóttir og Jón R. Nikodemusson
mótoristi.
Úr bœ og bygð.
Á Þorláksdag andaðist hér á sjúkrahús-
inu Friðgeir Jónsson starfsmaður við
Klæðaverksmiðjuna Gefjun, sá er slasaðist
þar um daginn. Friðgeir sál. var miðaldra
maður, vel látinn og vandaður: Hann var
giftur Maríu Emilsdóttur. Áttu þau engin
börn. /
Fund heldur Verkamannafélag Akureyrar
í »Skjaldborg« í dag. Byrjar hann kl. 4.
Rædd verða þingmál, sem snerta Alþýðu-
flokkinn. Áríðandi að félagsmenn fjölmenni.
Messur um áramótin verða sem hér segir:
Oamalárskvöld. Akureyri kl. 6 e. h.
Nýársdag. Lögmannshlíð — 12 á hád.
—»— Akureyri — 5 e: h.
Oamanvísnakvöld, til ágóða fyrir bóka-
safn Kristneshælisins, halda nokkrir ungir
menn í Samkomuhúsinu í kvöld. Verða
þar sungnir 10 nýir gamanbragir, flestir
um atburði úr bæjarlífinu, og má búast