Verkamaðurinn

Útgáva

Verkamaðurinn - 17.03.1928, Síða 2

Verkamaðurinn - 17.03.1928, Síða 2
2 VERKAMAÐURINN Verkamannafélag Akureyrar heldur fund Sunnudaginn 18. Mars kl. 3 e. h. í bæjarstjórnarsalnum. Fundarefni: 1. Framtíðarstefna verkalýðsins í bæjarmálum. 2. Félagaskírteini. 3. Ibsens-minning. Flokksstjórar eru beðnir að boða fundinn. Stjórnin. Alþingi. Málum virðist sem stendur miða frekar hægt áfram á Al- þingi. Kv&ð einkum vera þóf mik- ið í N.d. og tefja íhaldsmenn þar framgang ýmsra mála eftir mætti. Þessi mál eru nú merkust á ieið gegnum þingið eða nýkomin úr því: Fjdrlögin voru afgreidd frá n. d. á Miðvikudagskvöldið seint. Var þa tekjuhalli orðinn um miljón. Gengisviðtmkivn virðist ætla að komast gegnum þingið. Veiti» þar íhaldið Framsókn drjúgum fylgi, því þar finnur það íhaldsbragðið að henni. Sést hér hugleysi Fram- sóknar að þora eigi að létta þess- um ranglátasta skatti af alþýðu manna. Jafnvel tillaga jafnaðar- manna um að undanskilja kaffi og sykurtollinn, svo eigi yrði enn hækkaður neyslutollur alþýðu, var feldur af sameinuðu íhaldi og Framsókn. Hlakkar nú í íhaldinu, en annað hljóð kemur í strokkinn um tekju- og eignaskatts-viðauJcann. Meiri hluti fjárhagsnefndar n.d. vill samþykkja tillögur H. V. um 25% hækkur þess skatts, þó und- anskilja árstekjur, sem ekki nemi 4000 kr. Sýnir íhaldið mjög á- þreifanlega að það er verkfæri efnamannanna gegn fátækari stéttunum með afstöðu sinni til þessara mála. En Framsókn mun hugsa sér að bæta hinn viðaukann með þessum, t Síldareinkasalxm var á dagskrá í n.d. til 2. umr. í gær. Var búist við snörpum deilum og leggja í- haldsménn alt kapp á að tefja það mál og spilla því — en það mun lítt duga. Kauptryggingafrv. E. F. er af- greitt frá e.d. og er nú í sjávarút- vegsnefnd í n.d. Síldarbræðsluverksmiðjan mun komast í gegn að öllum líkindum. Er búist við að fram komi í n.d. tillaga, um að stjómin megi taka bræðslustöð á leigu í sumar til að bæta úr brýnustu þörfum. Skólag jaldið, hinn rangláti skattur á þekkingarþrá unglipga, fæst enn ekki afnuminn, þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir. Báru Alþýðuflokksmenn fram till. þess efnis, en hún var feld með 15 at- kvæðum gegn 11. Sameinuðust 7 íhaldsmenn og 8 Framsóknar- menn um að fella hana. En þótt þessir herrar skeri svo við neglur sér fé við fátæka nem- epdur, er öðru máli að gegna, þeg- ar um fjárstyrki er að ræða til erlendra stórríkra iðjuleysingja, svo sem Kristjáns Friðrikssonar frá Glúcksborg. Heimildarlaust hefir konungi þessum verið greidd þau 60.000 króna, er hann fær frá íslandi í dönskum krónum í stað íslenskra. Munar það um 12000 krónum. Vill meirihluti þingsins svo vera láta framvegis þrátt fyr- ir mótmæli jafnaðarmánna. Væri þó nær að veita nemendum lausn frá skólagjaldi, en fleygja þessu fé 1 Danskinn, sem hvort sem er mun þýkja smátt til risnunnar koma, þótt fátæk alþýða verði að þjást fyrir það út á fslandi. -------0------- Stúkan Akureyri nr. 13t heldur fund í Skjaldborg næstkomandi Mánudag kl. 814 e. h. Teknar verða ákvarðanir um tvö erindi, er stúkunni hafa verið send. Skemtileg hagnefndaratriði. »Lífsins bók«. þökkum hjartanlega öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför dóttur okkar, Sumarrósar Jónsdóttur Þórsnesi. Einnig þeim mörgu, sem auðsýndu hinni látnu samúð, og leituðust við að gleðja hana og styrkja í hinní löngu sjúkdómsbaráttu hennar. Foreldrarnir. Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýnduð okkur samúð og hlut- tekningu við jarðarför Gyðu litlu, dóttur okkar. Jónína og þorst Hörgdal. 777 sjómanna. Kæm stéttarbræður! Á síðastliðnum árum, hafa framleiðslutækin — sérstaklega við sjóinn — hröðum skrefum gerst fullkomnari og stórvirkari, í því að koma geysilegum verð- mætum undir yfirráð_ einstak- linga, sem teljast eigendur þeirra. Þessir einstaklingar (stórat- vinnurekendur) hafa jafnframt gengið lengra og lengra yfir hóf í ásælni sinni gagnvart hinum eiginlegu framleiðendum, mönnun- um sem vinna. Hagsmunasamtök alþýðunnar hafa eigi að sama skapi náð áð eflast, svo að þau hafi getað rönd við reist. Þó hafa samtök verkamanna á stöku stað, megnað að verða dá- lítill hemill á mestu yfirtroðslur mótaðiljans, í kaupgjaldsmálum, þar sem þau eru lengst á veg komin, hér á landi. En þetta mega heita undantekningar. Hitt mun kunnast, frá flestum stöðum þessa lands: Stöðugar kauplækkanir og hraðversnandi á- stæður vinnandi manna. Vestmannaeyjar hafa á síðustu

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.