Verkamaðurinn - 17.03.1928, Blaðsíða 4
4
VERKAMAÐURINN
Ósvífinn togari. Togari einn þýskur,
eem tekinn var í landhelgi við Vest-
mannaeyjar fyrir nokkru sfðan og sekt-
aðnr um 12000 kr., lærði ekki meira af
óförunum en það, að á Fimtudaginn
var hann kominn inn f landhelgina aft-
nr, var tekinn á ný og sektaður um
18000 krónur.
Leikfélagið hefir æft Æfintýri á
gönguför undanfarið og á nú að sýna
leikinn í fyrsta sinn í kvöld. Prófsýning
haldin í gærkvöldi. útbúnaður á leik-
sviði er ágætur og leikendur yfirleitt
vel söngvnir. Hefir »Æfintýrið« lengi
verið uppáhald almennings, og ekki 6-
liklegt að enn reynist svo.
Verkamarinafélagið heldur fund á
morgun kl. 3; sjá augl.
Verkakvennafélagið >Eining« heldur
skemtifund á morgun (Sunnudag) kl.
3'/2 í Skjaldborg.
Fýrir nokkru lést á sjúkrahúsi í
Eeykjavík, Ólafur Jónsson frá Hjalt-
eyri, aldraður maður, er þar hefir verið
húsettur í fjöldamörg ár. Ólafur sál.
var hinn mesti sómamaður f hvívetna,
vinsæll og virtur af öllum er þektu
hann.
Leiðrétting. í síðasta blaði hefir lína
setst inn á skakkan stað í frásögninni
um einkasölu á síld. Átti þar að standa,
að síldarsaltendur hafi í ár »frest með
að tilkynna til 15. Maí«.
--o---
Skæðadrífa.
Svar bændanna til furstans.
Guðmundur frá Sandi sagöi eftir
Karlgrén, að bændumir hefðu elskað
furstana, sem verið hefðu við þá eins
og feður við böm(ll)
En »Manchester Guardian« frá 1.
Febr. 1928, biríir eftirfarandi smásögu,
sem sýnir, hvað bsendumir segja:
Wolkonski fursti, sem býr í útlegð í
Frakklandi, ritaði bændunum í þorpun-
um Malinti og Luschki í Rjazan-héraði,
/
V E R O
k a í f i b æ t i r.
Einkaumboð fyrir Island:
Halldór Eiríksson
Hafnarstræti 22, Reykjavík,
í umboðssölu á Akureyri hjá
Páli Einarssyni.
þar sem jarðeignir hans voru áður,
bréf, og kvað þar samkvæmt lögum
keisaratímans krefjast jarðeigna sinna
og lét í ljósi, að hann myndi taka við
þeim, »þegar kristileg stjóm kæmist
aftur til valda í hinu þjáða föðurlandi
voru«.
Bændurnir í báðum þorpunum héldu
nú fund og skráðu svar það, er hér fer
á eftir:
»Við höfum ennþá ekki gleymt yðar
furstalegu keyrum og svipum, er dundu
á herðum okkar við erfiðið. Fyrir 10
árum brendum við í ofnunum þeim
keisaralegu lögum, sem hljóðuðu um
jarðeignir yðar. Jarðeignum yðar hefir
heiðarlega verið skift upp á milli okk-
ar, og það, sem furstarnir áður áttu,
eiga bændurnir nú. Að lokum vildum
við svo segja yður, að okkur varð mikil
skyssa á, þegar við létum yður komast
lifandi út úr ráðstjómarlandinu*.
2°/o—20%.
Guðmundur á Sandi staðhæfði á fyr-
irlestri sínum um Rússland, að iðnað-
arframleiðsla landsins hefði 1921 verið
komin niður í 2% af því, sem verið
hefði 1913. Hélt hann því og fram eftir
að E. O. hafði int hann frekar eftir
því. En það er öllum kunnugt, sem eitt-
hvað hafa kynt sér þróun Rússlands
eftir 1917, að iðnaðarframleiðslan fór
1921 niður í 20% af því, erhúnvarfyrir
stríð — og komst það lengst niður.
(1927 var hún orðin ca. 107%).
Slík er fáfræði þessa manns, er ger-
ist svo ósvífinn, að hafa það til fjár-
öflunar að flytja fyrirlestra um það.
sem hann hvorki vill né getur skilið, að
því er virðist.
Skal hann óáreittur fá að halda þeim
vana sínum, að skrökva tlfalt til um 6-
hróður á íslenska og rússneska bolsa,
— og vonandi auglýsir hann góðverk
Thorsanna með sömu samviskuseminni.
-----o------
ihaldsfulltrúinn.
Mjög þykir á því bera í seinni tíð,
að Hallgrímur Davíðsson standi einn
uppi, sem málsvari íhaldsstefnunnar í
bæjarstjórn Akureyrar. í atkvæða-
greiðslunni um uppgjöf sveitastyrksins
fékk hann að vísu einn fulltrúa með sér.
En á síðasta fundi stóð hann aleinn á
móti því, að rannsakað yrði, á hvern
hátt bærinn gæti stutt að því, að korn-
forðabúr kæmist hér á fót. Þá lagðist
hann einnig á móti því, að Rauðakross
deild Akureyrar yseri gefið nokkurt vil-
yrði um stuðning til að koma upp
hjálparstö? fyrir berklaveikt fólk. Vildi
hann jafnvel ekki láta fjárhagsnefnd
taka erindi Rauðakrossins til athugunar.
í fundarlokin varð einum áheyranda að
orði, að svona hreinræktuð íhaldssál
færi að verða sjaldséður gripur á vor-
um dögum.
Ritstjóm: Stjórn Verklýðssambandsins.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.